Lífið
Fullt út úr dyrum á Jazzhátíð „Þetta hefur gengið alveg hreint glimrandi,“ segir Pétur Grétarsson, skipuleggjandi Jazzhátíðar Reykjavíkur. „Fyrsta vikan er að klárast. Við höfum oft verið dálítið seinir í gang en núna startaði hún með miklum látum. Við erum alveg búnir að sprengja utan af okkur Rosenberg.“ Lífið 21.8.2009 02:30
Guðjón Davíð verður Ormur Óðinsson í Gauragangi „Við erum búin að mynda þetta fræga þríeyki í Gauragangi, Guðjón Davíð Karlsson, Gói, verður Ormur Óðinsson og honum til halds og traust verða þau Hallgrímur Ólafsson og Ilmur Kristjánsdóttir,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins. Lífið 20.8.2009 06:30
Skrifaði meistararitgerð um Elvis Ólafur Halldór Ólafsson, bassaleikari rokksveitarinnar Weapons, er nýkominn heim frá Tennessee í Bandaríkjunum þar sem hann skrifaði meistaraverkefni um sögu Elvis Presley, eins helsta áhrifavaldar síns og sveitarinnar. Lífið 20.8.2009 06:00
Popparar heiðra Lennon Einvalalið íslenskra tónlistarmanna hyggst heiðra Bítlagoðsögnina John Lennon á tónleikum á Nasa. Skipuleggjandi tónleikanna ætlar að bjóða Yoko Ono og býst fastlega við að hún þekkist boðið. Þar til annað kemur í ljós. Lífið 20.8.2009 05:45
Réðu 19 ára trymbil Nítján ára trommari, Mike Byrne, hefur gengið til liðs við rokkarana í Smashing Pumpkins. Forsprakkinn Billy Corgan hélt áheyrnarpróf fyrir framtíðartrommara sveitarinnar og um eitt þúsund sóttu um hina eftirsóttu stöðu. „Mike virtist hafa þennan X-Faktor sem allir frábærir trommarar hafa. Hann býr yfir ótrúlegri blöndu af krafti, hraða og reisn,“ sagði Corgan um Byrne. „Ég er spenntur fyrir því að vinna með honum í framtíðinni. Hann á svo sannarlega skilið þetta tækifæri. Hann á eftir að gera mig að betri tónlistarmanni.“ Lífið 20.8.2009 05:00
Noel má taka upp sólóplötu Liam Gallagher, söngvari Oasis, ætlar ekki að standa í vegi fyrir því að bróðir hans Noel taki upp sólóplötu. Noel hefur gefið í skyn að hann vilji taka upp sína fyrstu sólóplötu eftir að Oasis lýkur núverandi tónleikaferð sinni. Lífið 20.8.2009 04:45
Húðflúraði laglínu eftir pabba „Þetta var sjúklega vont, eiginlega bara ógeðslega sársaukafullt. Það er ekki gott að láta húðflúra á sér rifbeinin," segir Oddur Snær Magnússon. Hann lét nýverið húðflúra á sig laglínu úr hinu sígilda lagi Trúbrots, To be Grateful, sem faðir hans, Magnús Kjartansson, söng svo eftirminnilega á hljómplötunni Lifun. Lífið 20.8.2009 04:45
Hasar að hætti Seagals á svið „Við erum einmitt að fínstilla bardagaatriðin,“ segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA um sýningu leikhópsins Cobra Kai, Kata-Dori: !!Seagal!! sem frumsýnd verður á laugardaginn í Leikhús-Batteríinu. Lífið 20.8.2009 04:00
Meðlimur Pistols sér Hjálma Bassaleikarinn Glen Matlock, einn af upprunalegum meðlimum Sex Pistols, verður á meðal gesta á tónleikum hljómsveitarinnar Hjálma í Austurbæ á föstudag. „Hann er bara að koma á tónleikana. Það kom til tals að hann myndi klára plötu hjá mér í stúdíóinu. Ætli hann sé ekki aðallega að koma í helgarferð og kíkja á stúdíóið,“ segir Kiddi í Hjálmum. Lífið 20.8.2009 03:30
Framkoma er engin töfrabrögð „Ég lærði alþjóðaviðskipti og hún er menntaður stjórnmálafræðingur. Okkur langar að tala um mismunandi kynningaraðferðir, af hverju fólk er að nota power point, af hverju ekki og svo tala um mismunandi aðstæður sem fólk getur lent í þegar það er að koma fram,“ segir Finnur Þ. Gunnþórsson, en hann og Vera Knútsdóttir standa fyrir fríu framkomunámskeiði sem hefst klukkan sex í kvöld í Austurbæjarbíói. Lífið 20.8.2009 03:30
Krúserar spæna malbikið í kvöld Krúserar, klúbbur áhugamanna um klassíska fornbíla, stendur fyrir sínu árlega Krúserkvöldi í kvöld. Uppákoman verður haldin frá 19 til 21 á planinu fyrir utan verslun N1 við Bíldshöfða þar sem sýnd verða mörg af flottustu tryllitækjum landsins. Einnig mun blúsband leika tónlist frá þeim tíma þegar þessar bíltegundir runnu fyrst af færibandinu og munu menn klæða sig upp með lakkrísbindi og sólgleraugu. Lífið 20.8.2009 03:15
Djöflar helvítis og ræningjar Spennan er allsráðandi í bíóhúsum um helgina, en Drag Me to Hell og The Taking of Pelham 123 voru frumsýndar í gær. Frumkvöðull hryllingsmynda með gamansömu ívafi, Sam Raimi, leikstjóri Evil Dead, snýr aftur eftir langt hlé frá hryllingnum með Drag Me to Hell. Lífið 20.8.2009 03:00
Nýjar áherslur í eyðimörk Þriðja plata ensku hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, Humbug, kemur út á mánudaginn. Hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda er sveitin talin ein sú efnilegasta í rokkinu í dag. Lífið 20.8.2009 02:00
Rándýr hús erfið í sölu - myndband Gríðarlegur samdráttur hefur orðið á fasteignamarkaði hérlendis en sérfræðingar spá því að verð á fasteignum muni lækka enn frekar áður en það fer upp að nýju. Í kvöld klukkan 18:55 í Ísland í dag verður fjallað... Lífið 19.8.2009 15:21
Atli Fannar hættir sem ritstjóri Monitor Atli Fannar Bjarkason hættir sem ritstjóri Monitor nú um mánaðamótin. „Monitor heldur áfram í núverandi mynd. Það stendur núna yfir leit að nýjum ritstjóra. Blaðið breytist bara eins og það gerir alltaf með nýjum ritstjóra, það er ekkert verið að leggja árar í bát,“ segir Atli. Lífið 19.8.2009 07:00
Kokkar mótmæla stýrivöxtum með skeggvexti Tveir af þekktustu matreiðslumönnum landsins, þeir Úlfar Eysteinsson á Þremur frökkum og Tómas Tómasson á Hamborgarabúllunni, hafa tekið höndum saman og mótmæla nú háum stýrivöxtum Seðlabankans með fremur óvenjulegum en friðsömum hætti. Þeir hafa tekið þá ákvörðun að skerða ekki skegg sitt fyrr en hinir margumtöluðu vextir eru komnir niður fyrir tíu prósent. Þeir standa nú í tólf stigum en peningastefnunefnd ákvað að halda þeim óbreyttum á fundi sínum hinn 13. ágúst. Lífið 19.8.2009 05:30
Jungle Drum enn á toppnum Lag Emilíönu Torrini, Jungle Drum, hefur nú setið í sjö vikur samfleytt í efsta sæti þýska vinsældalistans. Lagið komst fyrst á listann 6. júní og sat þá í 12. sæti. Hinn 4. júlí komst lagið síðan á toppinn og hefur setið þar allar götur síðan. Vinsældir lagsins, sem er tekið af nýjustu plötu Emilíönu, Me and Armini, má rekja til þess er það hljómaði í hinum vinsæla raunveruleikaþætti Germany‘s Next Top Model. Lífið 19.8.2009 05:00
Velja átta fjölskyldur í raunveruleikaþátt „Ég held að við séum með á bilinu þrjátíu til fimmtíu umsóknir,“ segir Þóra Björg Clausen, aðstoðardagskrárstjóri Skjásins, um þáttinn Skemmtigarðinn sem fer í loftið á Skjáeinum 18. september. Umsóknarfrestur rann út í fyrradag og munu tökur hefjast í næstu viku, en í þáttunum etja átta fimma manna fjölskyldur kappi í leikjum og þrautum í Skemmtigarðinum í Grafarvogi. Lífið 19.8.2009 04:30
Pör og systkini eftir vinnu Hjón stýra hjónum og systkini vinna saman að nýju íslensku leikverki, Fyrir framan annað fólk. Verkið fjallar um hegðunarfrávik og afleiðingar þeirra, klikkun og ást. Lífið 19.8.2009 04:00
Nýja rennibrautin í Laugardalslaug opnuð Opnuð hefur verið ný og glæsileg rennibraut í Laugardalslaug, en rennibrautin var opnuð í dag á afmælisdegi borgarinnar. Lífið 18.8.2009 21:28
Tökum á busamyndbandi lokið Myndbandsnefnd Skólafélagsins ætlar sér ýmsa skemmtilega og stóra hluti í vetur. Fyrsta verkefni skólaársins er að sjálfsögðu gerð og frumsýning busakynningarmyndbandsins. Lífið 18.8.2009 14:21
Fyrsta íslenska rómantíska þáttaröðin hefst á morgun Ilmur Kristjánsdóttir leikur unga konu sem ræður sig til vinnu hjá fjármálafyrirtæki þar sem allt er auðvitað að gerast en um leið ekki neitt í rómantísku þáttaröðinni „Ástríður" sem hefst á Stöð 2 annaðkvöld klukkan 20:55. Ástríður er ný og spennandi leikin gamanþáttaröð, full af rómantík og drama og með stórskemmtilegri skírskotun í íslenskan veruleika rétt fyrir hrun. Auk Ilmar fara með stórhlutverk í Ástríði þau: Kjartan Guðjónsson, Friðrik Friðriksson, Rúnar Freyr Gíslason, Þórir Sæmundsson, Þóra Karítas Árnadóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmir Snær Guðnason. Lífið 18.8.2009 13:55
Jóhanna Guðrún: Mika glæsilegur en hlédrægur Í kringum tólf þúsund manns hlýddu á tónleika Jóhönnu Guðrúnar, hins heimfræga Mika og þekktra sænskra tónlistarmanna í Malmö í Svíþjóð síðastliðinn laugardag. „Þetta gekk rosalega vel. Þetta fór fram eins og flestir tónleikar sem ég hef verið að syngja á undanfarið,“ segir Jóhanna, sem söng Eurovision-lagið Is it True? og Walking on Water af plötu sinni Butterflies and Elvis. Tónleikarnir voru haldnir undir beru lofti og skipulagðir af stærstu útvarpsstöð Svíþjóðar, RIXFM. Lífið 18.8.2009 07:30
Kalli Berndsen í útrás „Ég er með þrettán módel frá fimmtán ára upp í sjötugt,“ segir Karl Berndsen, hárgreiðslu- og förðunarmeistari og eigandi Beauty Barsins. Hann leggur nú lokahönd á kennslumyndband í förðun sem Beauty Barinn gefur út í lok október á Íslandi og er í viðræðum við dreifingaraðila í Evrópu. Lífið 18.8.2009 07:00
Fyrsti dúett Ragga og Megasar Raggi Bjarna kemur fram með Megasi í fyrsta sinn á 75 ára afmælistónleikum sínum í Laugardalshöll 26. september. Saman ætla þeir að syngja Megasarlagið Meyfreyjublús sem Raggi Bjarna gerði vinsælt fyrir nokkru. Lífið 18.8.2009 06:30
Dylan handtekinn Lögreglan í New Jersey þurfti að hafa afskipti af tónlistarmanninum Bob Dylan þegar sást til hans spranga um í garði seint um kvöld fyrir utan einbýlishús í bænum Long Branch. Lífið 18.8.2009 06:00
Geimverur í efsta sætinu Geimverumyndin District 9 fór beint í efsta sætið vestanhafs yfir vinsælustu myndir helgarinnar. Þetta góða gengi kom á óvart enda leikstýrði óþekktur leikstjóri myndinni og leikaraliðið er ekki skipað neinum stjörnum. Þess ber þó að geta að Peter Jackson, sem leikstýrði Lord of the Rings-þríleiknum, framleiddi myndina og átti þátt í markaðssetningu hennar. District 9 sló hasarmyndina GI Joe úr efsta sætinu. Í þriðja sæti á listanum er The Time Traveler"s Wife með Eric Bana í aðalhlutverki. Lífið 18.8.2009 05:30
Klikkað fólk úr Kópavoginum Tökum á kvikmynd Gríms Hákonarsonar, Sumarlandinu, lauk um helgina. Ljósmyndari Fréttablaðsins leit við síðasta daginn. Lífið 18.8.2009 05:00
Númi kokkur hættir með Segurmo Kokkurinn knái Númi Thomasson hefur ákveðið að taka sér frí frá eldamennsku um óákveðinn tíma og mun því hætta rekstri veitingastaðarins Segurmo, sem er í húsnæði Boston á Laugavegi, í lok mánaðarins. Lífið 18.8.2009 04:00
Skátar leggja upp laupana Kveðjutónleikar hljómsveitarinnar Skáta verða haldnir á Sódómu Reykjavík næstkomandi föstudag. Eftir sex ára starf hefur sveitin ákveðið að hætta störfum. Lífið 18.8.2009 03:45