Lífið

Seinkað um hálft ár

Frumsýningu á teiknimyndinni Cars 2 hefur verið seinkað um hálft ár og verður hún því sýnd í desember á næsta ári. Í myndinni fer

Lífið

Poppdraumur frá Baltimore

Ein af þeim plötum sem tónlistarmiðlar hafa hlaðið lofi í upphafi nýs árs er þriðja plata Baltimore-dúósins Beach House, Teen Dream. Trausti Júlíusson skoðaði þessa merku sveit.

Lífið

Celine Dion snýr aftur á svið í Vegas

Söngkonan stórkostlega Celine Dion snýr aftur á svið í Las Vegas á næsta ári. Dion hefur gert þriggja ára samning við Ceasars Palace hótelið og sögusagnir eru um að hún fái 100 milljónir dollara greidda fyrir ómakið.

Lífið

Varúlfar alltaf jafn vinsælir

Varúlfar eru þjóðsagnaverur sem hafa löngum verið vinsælt umfjöllunarefni í Hollywood. The Wolfman með Benicio Del Toro í aðalhlutverki er nýjasta dæmið um það.

Lífið

Ráðhúsið í alveg nýju ljósi

Safnanótt er haldin annað kvöld með iðandi listviðburðum úti um alla borg. Eftir opnunaratriðið, Ástargöngu um Tjörnina, sem hefst á Austurvelli kl. 18, verður ljósskúlptur Texasbúans Bills Fitzgibbons frá San Antonio við

Lífið

Móri sakar Erp um að endurskrifa söguna

„Ég er búinn að rappa síðan Erpur var í bleyju,“ segir rapparinn Móri. Erpur lýsti yfir í útvarpsþættinum Harmageddon á dögunum að hann hefði uppvötað Móra á sínum tíma. Sagðist hann hafa fundið Móra í ræsinu fyrir utan Nonnabita og vísar í að þeir hafi hist fyrst á skemmtistaðnum Thomsen, sem stóð við Hafnarstræti.

Lífið

Sætir strákar í regnbogalitum

„Þetta verður flott sýning. Ég hvet alla til að mæta,“ segir ljósmyndarinn og myndlistarmaðurinn Oddvar Örn Hjartarson sem opnar sýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á föstudagskvöld. „Þetta eru konsept-verk. Ég verð með tvær nýjar seríur og gamalt efni sem mun rúlla á myndvarpa. En allt hitt er prentað og rosafínt.“

Lífið

Þolir ekki leiðinlegt fólk - myndband

„Mikill húmoristi, frábær söngkona og mikill skemmtikraftur," segja vinir Heru Bjarkar Þórhallsdóttur sem sigraði með lagið Je ne sais quoi á laugardaginn var í söngvakeppni Sjónvarpsins. Sjá nærmynd af Heru í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Ísskápur bjargar lífi Úlpumanns

„Ég var að taka upp vini mína í hljómsveitinni Blues Willis í Hafnarfirðinum. Við vorum að loka á milli tveggja rýma til að fá hljóð fyrir upptökur. Það þurfti að losa hlera, sem var helvíti mannýgur.

Lífið

22 merki valin til að sýna á RFF

Alls 22 hönnuðir hafa verið valdir til að sýna á tískuhátíðinni Reykjavík Fashion Festival. Þetta verður í fyrsta skipti sem hátíðin er haldin og hönnuðurinn Katrín Alda telur að fjölbreytt hönnun verði í sviðsljósinu. „Ég held að hátíðin sé það besta sem gat komið fyrir okkur á þessum tímum,“ segir hönnuðurinn Katrín Alda Rafnsdóttir sem hannar undir merkinu Kalda.

Lífið

Með Butler til Mexíkó

Leikkonan Jennifer Aniston hefur ýtt undir orðróm um að hún eigi í eldheitu ástarsambandi með skoska leikaranum Gerard Butler með því að fljúga með honum til borgarinnar Cabo í Mexíkó. Þar ætlar hún að halda upp á 41 árs afmælið sitt á fimmtudaginn.

Lífið

Draugurinn Bill Murray

Leikarinn Bill Murray verður í hlutverki draugs í þriðju Ghostbusters-myndinni sem er í framleiðslu um þessar mundir. Murray verður áfram í hlutverki dr. Peters Venkmans líkt og í fyrri tveimur myndunum en í þetta sinn verður hann í litlu hlutverki. Hann setti það sem skilyrði fyrir því að leika í myndinni að hann yrði draugur. „Ég sagði við þá: „Ég tek þátt ef þið drepið mig strax í byrjun myndarinnar“,“ sagði Murray, sem varð að ósk sinni. Ghostbusters III kemur út á næsta ári, 22 árum eftir að mynd númer tvö kom út.

Lífið

Skúli er ekki hundur

Fyrstu tónleikar Skúla mennska og hljómsveitarinnar Grjóts verða á Café Rosenberg við Klapparstíg í kvöld kl. 21. Skúli er Þórðarson og hefur gert nokkrar heimatilbúnar plötur undir því nafni. Hann er auk þess í hljómsveitinni Sökudólgarnir sem gerði plötu fyrir tveimur árum.

Lífið

Mús í útrás

Barnabókin Maxímús Músíkús kom nýverið út í Suður-Kóreu og hefur þegar ratað inn á metsölulista vinsælla barnabóka þar í landi. Í sögunni segir frá músinni Maxímús, sem villist inn í tónlistarhús þar sem heil sinfóníuhljómsveit er að hefja æfingu.

Lífið

Slóvenskur rokkari málar hraun

„Hraunið er mér innblástur,“ segir slóvenski myndlistarmaðurinn Jurij Asl Kelhar sem nú sýnir verk sín í Reykjavík Art galleríinu við Skúlagötu. „Ég

Lífið

Mótmæli í FB

Nemendur Fjölbrautarskólans í Breiðholti mótmæltu því í gær að skólastjóri FB hafi bannað þeim að halda árshátíð sína á Hótel Selfossi eins og hefur verið gert seinustu ár.

Lífið

Brjálað stuð baksviðs í Eurovision - myndband

Óhætt er að segja að gríðarleg stemmning hafi verið baksviðs í söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn var. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir spjallaði Sindri Sindrason annar umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Ísland í dag við helsta Eurovisionfólk landsins í útvarpshúsinu í Efstaleiti.

Lífið

Kvíðir fyrir kynlífssenum

Robert Pattinson, aðalleikarinn í Twilight-myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífssenum á mótu Umu Thurman í næstu mynd sinni, Bel Ami.

Lífið

Sló í gegn á grímuballi

„Ég bjóst ekki við að fá svona mikla athygli út á þetta,“ segir Ása Steinarsdóttir, sem vann fyrstu verðlaun á grímuballi Kvennaskólans fyrir Avatar-búning sinn.

Lífið

Latibær berst við offitu í Ameríku

Magnús Scheving og félagar hjá Latabæ hafa samið við eitt stærsta fræðsluleikhús í heimi, NTC eða National Theater for Children. Leikhúsið er í Minneapolis í Bandaríkjunum, hefur verið starfrækt í næstum þrjátíu ár og hefur gott orð á sér fyrir starf sitt með börnum.

Lífið

Elíza + fjórir í kvöld

Elíza Newman – oftast kennd við Kolrössu krókríðandi, en í seinni tíð stundum við kvennaklúbbinn Trúbatrixur – kynnir aðra sólóplötu sína, Pie in the Sky, á tónleikum á Café Rosenberg í kvöld.

Lífið

Worthington í sakamálum

Leikarinn Sam Worthington hefur tekið að sér aðalhlutverkið í sakamálamyndinni Texas Killing Fields. Framleiðandi verður Michael Mann, sem síðast leikstýrði Public Enemies með Johnny Depp í aðalhlutverki. Leikstjóri myndarinnar verður aftur á móti dóttir hans Ami Canaan Mann.

Lífið

Línur skýrast í Eurovision

Línur eru allverulega farnar að skýrast í Eurovision. Hera Björk og lagið „Je ne sais quai“ keppa fyrir okkar hönd og freista þess að komast upp úr undanúrslitakvöldinu, þriðjudagskvöldið 25. maí.

Lífið

Baulan búin: Kristín Hrönn og Svava María sigurvegarar kvöldsins

Hin margfræga söngvakeppni Skólafélags Menntaskólans við Sund, Baulan, var haldin hátíðleg föstudaginn 29. janúar. Skipuð var sjö manna nefnd í haust, Mjaltakonur, og sáu þær um skipulagningu á atburðinum. Í byrjun virtust fáir ætla að taka þátt en þegar á hólminn var komið komust færri að en vildu.

Lífið

Þið eruð fáránlega líkir - myndir

„Ég hef fengið að heyra það ótal oft, sumir ganga jafnvel það langt að kalla mig Conan í daglegu tali," segir Stefán Rafn Sigurbjörnsson, fyrsti maður á lista Skrökvu, félags flokksbundinna framapotara, sem fékk einn mann kjörinn í kosningum til Stúdentaráð Háskóla Íslands á dögunum þegar Vísir spyr hann út í tvífarann hans Conan O'Brian. „Að vísu vilja fleiri meina að ég sé líkur Ingó í Veðurguðunum, fólk hefur verið að ruglast á mér og honum úti á götu,"segir hann. Ekki nóg með að þið eruð báðir rauðhærðir og með eins höku heldur eru þið með eins hársveip? „Hárið á mér vex svona náttúrulega, þannig að ef eitthvað, þá er hann að stæla mig," segir Stefán.

Lífið

Frumsýning Skoppu og Skrítlu - myndir

Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu Skoppu og Skrítlu í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Visir ræddi við leikkonurnar Lindu Ásgeirsdóttur og Hrefnu Hallgrímsdóttur að sýningu lokinni. „Við vorum mjög ánægar með hvernig frumsýningin gekk," svara Hrefna og Linda.

Lífið