Lífið Eddi Lár gengur til liðs við Gæðablóð Gítarleikarinn góðkunni Eðvarð Lárusson (Eddi Lár)hefur gengið til liðs við hljómsveitina Gæðablóð. Af því tilefni mun Gæðablóð halda tónleika á Bar 46 á Hverfisgötu í kvöld kl. 22. Lífið 5.3.2010 17:15 Getur þú hjálpað að selja MOTTU-næluna? - myndir Mottu-marsinn hefst með miklum glans en nú þegar hafa safnast tæpar 2,4 milljónir í áheitum fyrir hugrakka skeggkappa. Sífellt bætist í hópinn og eru á sjöunda hundrað manna búnir að skrá sig og um 150 hópar. Ekki er þó nauðsynlegt að láta sér spretta skegg til að styðja við átakið en á morgun, laugardag, verður mottunælan seld til styrktar átakinu. Krabbameinsfélagið leitar eftir þinni aðstoð við að selja næluna - en þörf er á sjálfboðaliðum um allt land til að selja skeggnæluna fyrir baráttuna gegn krabbameini í körlum. Hvað er einn dagur í þágu góðs málefnis? Þeir sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða geta leitað nánari upplýsinga á vefnum www.krabb.is. Auglýsingar átaksins hafa vakið mikla athygli að undanförnu, en þær má sjá hér og hér. Meðfylgjandi má sjá skemmtilegar myndir af hópum sem taka þátt í átakinu. Lífið 5.3.2010 16:30 Missti 40 kg á 5 mánuðum Í kvöld strax að loknum fréttum Stöðvar 2 hittum við Ólaf Ólafsson, tveggja barna föður sem lést hefur um hvorki meira né minna en 40 kíló á fimm mánuðum. Þá fræðumst við um Facebook ást og hittum Simma og Jóa sem eru á fullu við að undirbúa veitingastaðinn Fabrikkuna í Borgartúni þar sem þeir sjálfir munu þjóna til borðs en raunveruleikaþættir um opnun staðarins eru í bígerð og verða sýndir á Stöð 2. Lífið 5.3.2010 14:30 Opnunarpartí á Laugavegi - myndir Volcano Icelandic Design flutti formlega á Laugaveg 40 þar sem vörur Volcano Design eru fáanlegar sem og vörur fleiri hönnuða sem eiga það sameiginlegt að framleiða allar vörur sínar á Íslandi. Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í formlegu opnunarteiti í gær má sjá að allir gestirnir voru áberandi glaðir. Lífið 5.3.2010 14:00 101 í tveimur bindum „Þetta er óneitanlega mjög sérstakt en kápan fangar kjarnann í bókinni," segir Hallgrímur Helgason en ein af hans þekktustu bókum, 101 Reykjavík, er komin út í Kóreu. Bókin er gefin út í tveimur bindum, enda tæpar sex hundruð síður að lengd á kóresku og var hún þýdd upp úr þýsku útgáfunni. Lífið 5.3.2010 06:00 Vill vinna aftur með Degi Kára Bandaríski leikarinn Paul Dano, sem leikur annað aðalhlutverkanna í nýjustu mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, segist vel geta hugsað sér að leika aftur fyrir hann. Lífið 5.3.2010 06:00 Kankvísi á skítugum bar The Good Heart Leikstjóri Dagur Kári Pétursson.
Eddi Lár gengur til liðs við Gæðablóð Gítarleikarinn góðkunni Eðvarð Lárusson (Eddi Lár)hefur gengið til liðs við hljómsveitina Gæðablóð. Af því tilefni mun Gæðablóð halda tónleika á Bar 46 á Hverfisgötu í kvöld kl. 22. Lífið 5.3.2010 17:15
Getur þú hjálpað að selja MOTTU-næluna? - myndir Mottu-marsinn hefst með miklum glans en nú þegar hafa safnast tæpar 2,4 milljónir í áheitum fyrir hugrakka skeggkappa. Sífellt bætist í hópinn og eru á sjöunda hundrað manna búnir að skrá sig og um 150 hópar. Ekki er þó nauðsynlegt að láta sér spretta skegg til að styðja við átakið en á morgun, laugardag, verður mottunælan seld til styrktar átakinu. Krabbameinsfélagið leitar eftir þinni aðstoð við að selja næluna - en þörf er á sjálfboðaliðum um allt land til að selja skeggnæluna fyrir baráttuna gegn krabbameini í körlum. Hvað er einn dagur í þágu góðs málefnis? Þeir sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða geta leitað nánari upplýsinga á vefnum www.krabb.is. Auglýsingar átaksins hafa vakið mikla athygli að undanförnu, en þær má sjá hér og hér. Meðfylgjandi má sjá skemmtilegar myndir af hópum sem taka þátt í átakinu. Lífið 5.3.2010 16:30
Missti 40 kg á 5 mánuðum Í kvöld strax að loknum fréttum Stöðvar 2 hittum við Ólaf Ólafsson, tveggja barna föður sem lést hefur um hvorki meira né minna en 40 kíló á fimm mánuðum. Þá fræðumst við um Facebook ást og hittum Simma og Jóa sem eru á fullu við að undirbúa veitingastaðinn Fabrikkuna í Borgartúni þar sem þeir sjálfir munu þjóna til borðs en raunveruleikaþættir um opnun staðarins eru í bígerð og verða sýndir á Stöð 2. Lífið 5.3.2010 14:30
Opnunarpartí á Laugavegi - myndir Volcano Icelandic Design flutti formlega á Laugaveg 40 þar sem vörur Volcano Design eru fáanlegar sem og vörur fleiri hönnuða sem eiga það sameiginlegt að framleiða allar vörur sínar á Íslandi. Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í formlegu opnunarteiti í gær má sjá að allir gestirnir voru áberandi glaðir. Lífið 5.3.2010 14:00
101 í tveimur bindum „Þetta er óneitanlega mjög sérstakt en kápan fangar kjarnann í bókinni," segir Hallgrímur Helgason en ein af hans þekktustu bókum, 101 Reykjavík, er komin út í Kóreu. Bókin er gefin út í tveimur bindum, enda tæpar sex hundruð síður að lengd á kóresku og var hún þýdd upp úr þýsku útgáfunni. Lífið 5.3.2010 06:00
Vill vinna aftur með Degi Kára Bandaríski leikarinn Paul Dano, sem leikur annað aðalhlutverkanna í nýjustu mynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, segist vel geta hugsað sér að leika aftur fyrir hann. Lífið 5.3.2010 06:00
Reynsluboltar vilja feitt djobb hjá RÚV „Ég get staðfest það, ég er búinn að sækja um,“ segir Björn Þórir Sigurðsson, markaðsstjóri Morgunblaðsins, sem sækist eftir stöðu dagskrárstjóra hjá Ríkissjónvarpinu en auglýst var eftir umsækjendum fyrir skömmu. Lífið 5.3.2010 06:00
Hársbreidd frá því að vera andlit Icesave í Hollandi „Ég vissi ekki hvort ég var að fara að auglýsa íspinna eða bankareikninga,“ segir leikarinn Erling Jóhannesson. Lífið 5.3.2010 06:00
Samba á Skólavörðustíg Heitra og framandi strauma gætir nú á Skólavörðustígnum þar sem veitingahúsið Brasilía var opnað fyrir skömmu. Í kvöld klukkan 21 ætlar brasilíska söngkonan Jussanam Dejah að halda tónleika þar við undirleik píanóleikarans Agnars Más Magnússonar. Lífið 5.3.2010 05:45
Aida sviðsett Aida – Ástarþríhyrningurinn fer á svið í Íslensku óperunni í kvöld kl. 20. Þetta eru sviðsettir tónleikar þar sem öll helstu ein- og samsöngsatriði óperunnar Aidu eftir Verdi verða flutt. Lífið 5.3.2010 05:15
Vill búa til sjónvarpsefni Sarah Palin, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og ríkisstjóri í Alaska, er að framleiða raunveruleikaþætti, samkvæmt nýjustu fréttum vestan hafs. Sarah hefur fundað með Mark Burnett, sem er risi í bransanum og maðurinn á bak við Survivor og The Apprentice, og vill framleiða þætti sem gerast í heimaríki hennar, Alaska. Lífið 5.3.2010 05:00
Íslenskur kvikmyndavetur Kvikmyndagerðarmenn bíða nú eftir fyrstu úthlutun Kvikmyndasjóðs eftir að ríkisstjórnin ákvað að skera niður starfsemi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Laufey Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Kvikmyndamiðstöðvar, segir íslenska kvikmyndagerð búa við algjörlega nýtt landslag. Lífið 5.3.2010 04:15
Keith Harris meðal gesta Umboðsmaður Stevie Wonder var -meðal ræðumanna á fræðslukvöldi Útóns í Norræna húsinu. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna var meðal gesta. Lífið 5.3.2010 03:45
Kærastan kúgar Johnny Þegar Angelina Jolie og Brad Pitt léku saman í kvikmyndinni Mr. and Mrs. Smith stal hún honum frá Jennifer Aniston. Núna er Angelina Jolie að fara að leika í The Tourist með Johnny Depp og kærastan hans er ekki sátt. Lífið 5.3.2010 03:15
Vel mætt á frumsýningu Dags Kára The Good Heart var frumsýnd í Háskólabíói á miðvikudagskvöld. Stóri salurinn fylltist af spenntum kvikmyndaáhugamönnum sem flestir virtust sáttir við útkomuna. Frumsýningarpartí var svo haldið á Íslenska barnum og þar var gleðin sannarlega við völd. Lífið 5.3.2010 03:00
Ekta íslenskt þorrablót í London Þorrablót Íslendingafélagsins í London verður haldið á laugardagskvöld. Ekkert þorrablót var haldið í fyrra en nú hefur ný stjórn verið kosin í Íslendingafélaginu og áherslurnar að sama skapi breyst. „Það féll niður í fyrra en árin þar áður hafa þetta verið nokkur hundruð manna viðburðir. Það eru til sögur af því að fólk hafi verið að fljúga frá Íslandi til að koma á þorrablótið," segir Friðþjófur Þorsteinsson, formaður Íslendingafélagsins. Lífið 5.3.2010 02:45
Morðingjarnir flýja Morðingjarnir halda útgáfutónleika á Batteríinu í kvöld fyrir hina frábæru plötu, Flóttinn mikli. Platan er þriðja breiðskífa tríósins og hefur fengið glimrandi dóma hjá poppskríbentum landsins, og komst platan meðal annars á sex plötu úrvalslista tónlistarsjóðsins Kraums fyrir jól. Lífið 5.3.2010 02:00
Bannaður á Óskarnum Hætt hefur verið við grínatriði sem Sacha Baron Cohen ætlaði að sýna á Óskarsverðlaunahátíðinni á sunnudagskvöld. Ástæðan er ótti við að leikstjórinn James Cameron móðgist. Lífið 5.3.2010 02:00
Segir Noel ofmetinn Liam Gallagher segir að bróðir sinn Noel sé ofmetnasti maður allra tíma. Oasis, hljómsveit þeirra bræðra, lagði sem kunnugt er upp laupana í ágúst í fyrra eftir að áralöng spenna þeirra í millum varð óþolandi. Noel hætti í bandinu en Liam er handviss um að bróðir sinn sé ofmetinn. Lífið 5.3.2010 02:00
Gera mynd eftir Hughes Fyrirtækið Paramount Pictures hefur keypt réttinn á handriti eftir kvikmyndagerðarmanninn John Hughes, sem lést í fyrra. Lífið 5.3.2010 01:30
Solla og Vala Matt: Magnað múslí nammi Í kvöld í þættinum Ísland í dag verður hollustukokkurinn snjalli Solla Eríks með snilldar uppskrift að hollu sælgæti sem hægt er að gæða sér á með góðri samvisku. Upplagt að taka með sér í vinnuna eða skólann. Geggjað gott og dúndur hollt eins og allt sem Solla býr til. 5 dl haframjölsmúslí m/lífrænu súkkulaði 1 dl agave sýróp 1 dl hnetusmjör ½ dl kókosolía ½ dl kakóduft smá vanilluduft Lífið 4.3.2010 18:15
Topp # 6 í mottusöfnun - myndir Tæplega 500 karlar hafa nú skráð sig í einstaklingskeppni í mottuáskorun átaksins Karlar og krabbamein og 120 lið í hópakeppnina. Nú þegar hefur safnast yfir ein og hálf milljón í áheitum og hækkar sú upphæð með hverri mínútunni sem líður. Fjölmargir karlar eru því að safna mottum um þessar mundir og má ætla að sjaldan eða aldrei hafi jafn margir verið að rækta efri vörina af jafn miklu kappi. Hægt er að leggja átakinu lið með ýmsum hætti en meðal annars er verið að óska eftir sjálfboðaliðum um land allt fyrir landssöfnunina nú um helgina – en áhugasamir geta farið á vefinn krabb.is og leitað sér nánari upplýsinga um það. Sá sem hefur safnað mestum áheitum við lok fjórða keppnisdags er Guðmundur Karl Sigurdórsson á Selfossi. Meðfylgjandi eru myndir af þeim körlum sem tróna í efstu 6 sætunum. Lífið 4.3.2010 16:30
Gott hjarta Dags Kára frumsýnt Loksins, loksins, kynnu einhverjir að hugsa því á föstudaginn verður kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, frumsýnd. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda Dagur Kári einn fremsti kvikmyndagerðarmaður okkar Íslendinga. Töluvert hefur verið skrifað um The Good Heart en upphaflega stóð til að þeir Tom Waits og Ryan Goosling myndu leika aðalhlutverkin í þessari mynd. En sökum þess að ekki tókst að samræma dagskrá þeirra var fallið frá þeirri hugmynd. Lífið 4.3.2010 06:00
Vonar að „Dude“ fái Óskarinn Fjórða árlega Big Lebowski-hátíðin verður haldin laugardagskvöldið 13. mars í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Samnefnd gamanmynd um hinn lata keiluspilara „The Dude“ og vandræði hans kom út 1998 og síðan þá hefur myndast í kringum hana hálfgerður sértrúarsöfnuður, bæði hér heima og erlendis. Lífið 4.3.2010 06:00
Lúxus Blóðflokkur í kvöld Hljómsveitin Bloodgroup heldur útgáfutónleika í Iðnó í kvöld. Lífið 4.3.2010 06:00
Flytur lög Leonards Cohen Tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Valur Gunnarsson heldur tónleika á Café Rosenberg á sunnudagskvöld þar sem hann syngur lög kanadíska söngvaskáldsins Leonards Cohen. Lífið 4.3.2010 06:00
Djöflasýrubeikon auglýsir úlpur „Fyrir einhverja hundaheppni gátum við selt gamalt lag í North Face-auglýsingu í Japan og fengum nógu mikið af peningum til að gera heila plötu. Og þetta er hún," segir Bogi Reynisson í hljómsveitinni Bacon Live Support Unit um plötuna Rodentmaster sem er nýkomin út. „Þessi kona hafði bara samband. Hún hafði heyrt lagið Powerprest - ég veit ekkert hvernig hún heyrði það, líklega á ferðalagi hérna - og vildi endilega fá að nota það. Og við bara, já já, endilega." Lífið 4.3.2010 06:00
Lok, lok og læs á Grand Rokki „Þangað til maður fréttir annað þá lítur út fyrir að við þurfum að færa keppnina,“ segir Gunnar F. Árnason, sem stendur fyrir spurningakeppninni Drekktu betur á Grand Rokki á föstudögum. Menningarknæpunni Grand Rokki var fyrirvaralaust lokað á þriðjudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var staðnum lokað að kröfu leigusala. Það hefur ekki fengist staðfest og ekki náðist í Þorstein Þórsteinsson veitingamann í gær. Lífið 4.3.2010 05:30
Derek Zoolander vaknar til lífsins Einhver heimskasta persóna hvíta tjaldsins er án nokkurs vafa fyrirsætan Derek Zoolander en þessi kvikmynd Ben Stiller varð að hálfgerðu kult-fyrirbæri því gagnrýnendur voru ekkert ýkja hrifnir þótt áhorfendur hafi oft velst um af hlátri yfir asnastrikum Zoolanders og vina hans. Lífið 4.3.2010 05:15