Lífið

Magnús sem álfur í allra síðasta sinn

Nú styttist í mikla sýningu fyrir alla fjölskylduna en á laugardag leggur Latibær undir sig Laugardalshöllina. Hefur undirbúningur að Latabæjarhátíðinni staðið í langan tíma og verður öllu til tjaldað en fullyrt er að á hátíðinni komi Magnús Scheving fram í síðasta sinn sem íþróttaálfurinn. Staðfest er hverjir leika hinar landsþekktu persónur úr Latabæ:

Lífið

Systkini spila döbb

Hljómsveitin Ojba Rasta er níu manna döbb-hljómsveit sem spilar á Bakkusi í kvöld. Í bandinu eru fjögur alsystkini, Unnur, Valgerður, Gylfi og Arnljótur Sigurðarbörn. Gylfi og Arnljótur hafa líka spilað með Berndsen. „Við byrjuðum að spila tökulög fyrst en svo nenntum við því ekki, nú er allt frumsamið,“ segir Arnljótur. „Þetta er þykkt, hefí, hægt og kraftmikið. Mikið brass og smá bíómyndaáhrif á köflum.“

Lífið

Lýtalæknir heldur tónleika

Þórdís Kjartansdóttir, sem er eini kvenkyns lýtalæknirinn á Íslandi, heldur sína fyrstu tónleika hér á landi á Café Rosenberg á föstudagskvöld. Þar ætlar hún að syngja létta og ástríðufulla djasstónlist með frönsku ívafi.

Lífið

Tónleikar til styrktar SÁÁ

Styrktartónleikar fyrir SÁÁ verða haldnir á fimmtudagskvöld í Vonarsalnum í Efstaleiti. Fram koma Kristján Jóhannsson, Raggi Bjarna, Egill Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson, Íris Guðmundsdóttir og Geir Ólafsson. „Það væri æðislegt ef allir þeir sem vettlingi geta valdið myndu koma,“ segir Geir og bætir við að það sé mikill heiður að fá að vinna með þeim tónlistarmönnum sem koma þarna fram. Miðasala á tónleikana, sem hefjast klukkan 20, fer fram í Von.

Lífið

Dafnis og Klói eftir Ravel

Á morgun verður hljómurinn fagur þegar Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri mætir með Hamrahlíðarkóra sína í Háskólabíó og tekur þátt í tónleikum vikunnar með Sinfóníunni.

Lífið

Ys og þys á götum Austin

„Þetta gekk stórvel, það var gerður góður rómur að spilamennskunni okkar,” segir Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður. Hann spilaði á fernum tónleikum með söngkonunni Ólöfu Arnalds á SWSX-tónlistarhátíðinni í Texas. Davíð segir allt hafa verið krökkt af áhugafólki um góða tónlist en í ár rakst hátíðin á við kvikmyndahátíð sem haldin var vikuna áður og var að ljúka þegar gítarleikarar og aðrir tónlistarmenn hófu innreið sína.

Lífið

Eins árs afmæli Pósthússins - myndir

Pósthúsið vínbar hélt upp á eins árs afmæli sitt um síðustu helgi. Í tilefni af afmælinu var blásið til veislu á Pósthúsinu og fastagestum staðarins boðið upp á léttar veitingar. Sveinn Eyland, annar eiganda staðarins, segir að vel hafi verið mætt og stemningin hafi verið góð.

Lífið

Unglingar í Hagaskóla halda góðgerðardag

Þann 24. mars, miðvikudaginn, næstkomandi verður haldinn góðgerðardagur í Hagaskóla. Húsið er opið fyrir almenning frá klukkan 16:00 til 19:00. Markmiðið er að safna peningum fyrir tvenn góðgerðarsamtök.

Lífið

Heigl féll fyrir kossafimi Kutcher

Leikkonan Katherine Heigl er yfir sig hrifin af Ashton Kutcher en þau léku nýverið saman í myndinni Killers. Hún segir að kossar Kutchers séu ótrúlegir. Heigl hefur áður knúsað Hollywood-fola á borð við Gerard Butler, Justin Chambers og James Marsden en hún hefur viðurkennt að enginn þeirra jafnist á við Kutcher, sem er reyndar hamingjusamlega giftur Demi Moore eins og lesendur þekkja.

Lífið

Steindi Jr. í framboð fyrir VG

„Þetta byrjaði með því að ég vildi fá fótboltamark aftur á Varmárvöllinn. Við strákarnir spiluðum mikið á þetta mark, en svo var það bara tekið. Það var rosalega vont. Þegar það var hringt í mig og mér boðið sæti á lista, þá var mér hugsað til marksins og sagði bara já takk,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. Hann er í þriðja sæti á framboðslista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Mosfellsbæ.

Lífið

Enginn peningur til fyrir Eurovision-myndbandi í ár

„Það er einfaldlega ekki til peningur fyrir slíku. Þannig er allavega staðan í dag. En það getur alltaf breyst þótt ég eigi ekkert von á því,“ segir Hera Björk Þórhallsdóttir, fulltrúi Íslands í Euro­vision. Ekkert myndband verður gert við framlag Íslands, Je ne sais quoi, eins og gert hefur verið síðustu tólf skiptin sem Ísland hefur keppt. Myndbönd hafa verið framleidd alveg síðan Anna Mjöll söng Sjúbbídú árið 1996 eftir því sem Fréttablaðið kemst næst.

Lífið

Eldgosið eyðilagði heimsmetstilraun

Eldgosið við Fimmvörðuháls eyðilagði aðra af tveimur heimsmetstilraunum svissneska flugmannsins Riccardo Mortara. Mortara hugðist slá met ævintýramannsins Steves Fossett með því að fljúga hringinn í kringum hnöttinn á innan við 67 klukkustundum.

Lífið

Brúðkaup í september

Idol-dómarans Simons Cowell og Mezhgan Hussainy er fyrirhugað í september. Athöfnin, sem verður smá í sniðum, verður haldin skammt frá heimili móður Cowells í Austur-Sussex á Englandi.

Lífið

Langar að eignast dóttur

Söngkonuna Gwen Stefani langar að eignast dóttur en óttast að hún sé orðin of gömul til að standa í frekari barneignum. Hin fertuga Stefani á hinn þriggja ára Kingston og 19 mánaða Zuma með breska rokkaranum Gavin Rossdale.

Lífið

Villi og Andrea kósí saman

„Ég mátti velja mér listamann til að koma fram með og ég valdi Andreu Gylfadóttur, enda er hún í gríðarlegu uppáhaldi hjá mér,“ segir Vilhelm „Naglbítur“ Anton Jónsson. Villi og Andrea koma fram nú á miðvikudagskvöldið á fimmtu Fuglabúrs-tónleikum FTT og Reykjavík Grapevine.

Lífið

Glæsileg tískuhelgi að baki

Um helgina var haldin fyrsta raunverulega „tískuvikan“ í Reykjavík en hún átti sér stað á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem var haldin í tengslum við Hönnunarmars. Á föstudags- og laugardagskvöld sýndu tuttugu og tveir íslenskir fatahönnuðir hönnun sína í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Johnson & Kaaber við Sætún þar sem færri komust að en vildu. Sýningarnar þóttu heppnast mjög vel í þessari glæsilegu umgjörð og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna og tískumógula voru á svæðinu til að fylgjast með nýjustu straumunum í hinum vaxandi íslenska tískuheimi. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á RFF á föstudagskvöldið og myndaði þessa smekklegu gesti. - amb

Tíska og hönnun

Vara eða samtal

Á fimmtudaginn frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um áráttur, kenndir og kenjar. Verkið sem ber heitið MARS er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá ÚTGERÐ, Hugmyndahúsi háskólanna, sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af tólf verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá eins konar annáll ársins 2010.

Lífið

Til heiðurs Cohen

Aðrir tónleikarnir á skömmum tíma til heiðurs kanadíska söngvaskáldinu Leonard Cohen verða haldnir á Rosenberg í kvöld.

Lífið

Fjórða barn Camerons á leiðinni

David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, og eiginkona hans Samantha, eiga vona á sínu fjórða barni í september. Þingkosningar fara fram í Bretlandi að öllum líkindum í maí og benda skoðanakannanir til þess að staða íhaldsmanna sé góð. Því verður Cameron hugsanlega orðinn forsætisráðherra þegar barnið kemur í heiminn.

Lífið

Pete Doherty grunaður um að hafa orðið stúlku að bana

Dópistinn, söngvarinn í Babysamble og vitleysingurinn Pete Doherty, var handtekinn um helgina grunaður um að hafa útvegað Robin Whitehead fíkniefni sem drógu hana til dauða í janúar. Robin var 27 ára gömul þegar hún lést en hún var að gera heimildarmynd um líf Pete. Meðal annars um ástarsambandið sem hann átti við ofurfyrirsætuna Kate Moss.

Lífið

Gunnar í Krossinum og Jónína Ben giftu sig í gær

Athafnakonan Jónína Benediktsdóttir og Gunnar Þorsteinsson, ofast kenndur við Krossinn, giftu sig í gær í viðurvist barnanna sinna en fjallað verður um giftinguna í Íslandi í dag í kvöld. Meðal annars verður rætt við þau. Sjálf tilkynnti Jónína stórtíðindin á Facebook síðu sinni en þar segir hún orðrétt:

Lífið

Terminal til Evrópu 24. maí

Önnur plata Hjaltalín, Terminal, kemur út í Evrópu 24. maí með hjálp ýmissa útgáfu- og dreifingarfyrirtækja víða um álfuna. Sveitin er ekki með eiginlegan útgáfusamning erlendis og er því með marga á sínum snærum við að koma sér á framfæri.

Lífið