Lífið
Paris á endalaust margar töskur Paris Hilton setti tilkynningu á Twitter síðuna sína þess efnist að nú má nálgast töskurnar hennar á netinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá örlítið brotabrot af persónulegum töskum Parisar. Þá twittaði Paris eftirfarandi: Ég er í skýjunum yfir öllum ástarkveðjunum sem aðdáendur mínir senda mér. Þið skiptið mig svo gríðarlega miklu máli. Ég elska ykkur. Takk. Ástarkveðja Paris. Lífið 26.5.2011 09:15
Fitnessdrottning opnar matardagbók Freyja Sigurðardóttir Fitnessdrottning með meiru leyfði okkur að skyggnast örlítið inn í líf sitt með því að skrá niður matardagbókina sína. Hún segir vatnsdrykkju vera gríðarlega mikilvæga sem og góður svefn. Vaknaði 04:45. Græjaði mig í vinnuna, fékk mér heimatilbúið múslí. Það samanstendur af tröllahöfrum, rúsínum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum og Hleðslu próteindrykk út á. Tók inn tvær CLA fitusýrur, vítamín og eitt risastórt vatnsglas. Þá brunaði ég Reykjanesbrautina og mætti í Hreyfingu klukkan 6:00 til að þjálfa en ég starfa þar sem einkaþjálfari. Klukkan 7:00 tók ég sjálf æfingu. Fyrir æfinguna fékk ég mér HydroxyCut Hardcore brennslu efni blandað í vatn og tók síðan hrikalega á því. Eftir æfingu fékk ég mér súkkulaði próteindrykk Whay Isolate frá Fitnesssport. Ég elska þennan próteindrykk en bragðið er alveg æðislegt. Klukkan 8:15 hélt ég áfram að þjálfa kroppalingana mína í Hreyfingu. Klukkan 10:00 fékk ég mér eitt epli og vatn. Klukkan 12:00 fékk ég mér NINGS en ég alveg elska heilsuréttina þaðan. Á Nings á ég fjóra uppáhalds rétti en ég mæli hiklaust með þeim fyrir þá sem vilja huga vel að því sem þeir setja ofan í sig. Nr.88 Tröllatrefjar með kjúklingi og grænmeti. Nr.60 Tofukjöt og blandað grænmeti með Satay sósu Nr.65 Steiktar eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Nr.68 Ristaðar hrísgrjónanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti. Fyrir valinu í dag var réttur númer 88. Réttirnir frá Nings eru alveg ekta, allt þeirra hráefni er lífrænt. Ég drakk vatn með. Þjálfaði þennan dag til klukkan 15:00. Á heimleiðinni drakk ég eina ískalda karmellu Hleðslu og borðaði einn banana. Hlustaði á Hljóma og Valdimar í botn á leiðinni. Var síðan mætt til Keflavík City klukkan 16:00 en þá voru vaktaskipti á börnunum mínum þremur. Halli, maðurinn minn, fór á æfingu og ég tók við duglegum strákum. Við fórum saman í Nettó að versla í matinn. Jökull Máni elsti strákurinn minn fékk að velja kvöldmat og fyrir valinu varð Fahitas og Taco með fullt af grænmeti. Kvöldmatur klukkan 19:00. Fahitas, grænmeti, Taco sósa, sýrður rjómi 5% og fituminna hakk. Þessi réttur slær alltaf í gegn. Síðan fórum við í smá hjólatúr en fjölskyldan er nýbúin að fjárfesta í hjólum. Drakk alveg fullt af vatni yfir daginn en það er gríðarlega mikilvægt. Svo var ég alveg búin á því klukkan22:00. Svefn er líka mikilvægur og þess vegna reyni ég að hvílast vel því næsta dag vakna ég klukkan 05:20. Lífið 26.5.2011 08:15
Heimilislegt yfirbragð Bandaríska hljómsveitin Death Cab for Cutie er mætt með sína sjöundu hljóðversplötu. Heimilið er þar í aðalhlutverki. Sjöunda hljóðversplata bandarísku indíhljómsveitarinnar Death Cab for Cutie kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu, Narrow Stairs, sem fékk fínar viðtökur víðast hvar. Lífið 26.5.2011 08:00
Gusgus spilar á Bestu hátíðinni Hljómsveitin Gusgus og fjöldi annarra þekktra flytjenda hafa staðfest komu sína á Bestu útihátíðina sem verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu helgina 8. til 10. júlí. Gusgus gaf nýverið út sjöttu plötu sína, Arabian Horse, og sveitin er þekkt fyrir að spara hvergi til þegar kemur að sviðsframkomu. Sveitin spilar á laugardagskvöldinu, sama kvöld og hljómsveitin Quarashi rís upp frá dauðum. Lífið 26.5.2011 08:00
Fékk danskt barnabarn Leikarinn Jack Nicholson brosir breitt þessar dagana en dóttir hans, hin danska Honey Hollman, eignaðist son á dögunum og gerði því hinn 74 ára gamla leikara að afa. Nicholson er þekktur fyrir kvensemi sína en hann á fjögur börn með þremur konum og er Holly afrakstur sambands Nicholson við dönsku fyrirsætuna Winnie Hollman árið 1981. Feðginin eru náin og hefur Honey verið með annan fótinn hjá pabba sínum í Hollywood síðan hún var lítil. Lífið 26.5.2011 07:00
Berjast við vampírur Spennumyndin Dylan Dog: Dead of Night með Anitu Briem í einu af aðalhlutverkunum var frumsýnd í Laugarásbíói í gær. Lífið 26.5.2011 06:00
Stjörnurnar sáu svart á Billboard Þær voru ekki af verri endanum stjörnurnar sem prýddu rauða dregilinn á hinum árlegu Billboard verðlaum sem fór fram í Las Vegas um liðna helgi. Lífið 26.5.2011 05:00
Sumarbrúðkaup í vændum Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar að ganga að eiga kærasta sinn og barnsföður, rokkarann Thomas Mars, á Suður-Ítalíu í sumar. Ætlunin er að halda rómantíska athöfn við sumarhús Coppola-fjölskyldunnar að viðstöddum nánustu fjölskyldumeðlimum. Lífið 26.5.2011 04:00
Þýsk hljómsveit með tónleika Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri verða á Faktorý á föstudagskvöld og þeir seinni verða á Vertinum á Hvammstanga á laugardagskvöld. Die Ukrainiens er frá Dresden í Þýskalandi og hefur tónlist hennar verið lýst sem blöndu af Rússadiskói og Balkantónlist. Lög sveitarinnar eru ýmist þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraínu og öðrum Austur-Evrópulöndum eða frumsamin lög. Tónleikar Die Ukrainiens þykja kraftmiklir og dansvænir og minna um margt á austur-evrópsk brúðkaup og/eða jarðarfarir. Lífið 26.5.2011 03:30
Reynir við Ermarsundið Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri og sjósundkappi, ætlar að verða annar Íslendingurinn sem synt hefur yfir Ermarsund. „Benedikt Hjartarson kláraði þetta sund árið 2008 og ég hef ekki verið látinn vera síðan," segir Árni Þór glettinn. Lífið 25.5.2011 22:00
Hannaði mínimalískan heyrnatólamagnara Heyrnartólamagnari, bókaskápur og bakki eru meðal verka Snorra Þórðarsonar Reykdal á vorsýningu Iðnskólans í Hafnarfirði, sem var opnuð á laugardaginn. Lífið 25.5.2011 20:00
Nýtt austurrískt leikrit byggt á 10 ráðum eftir Hallgrím Leikrit byggt á síðustu bók Hallgríms Helgasonar, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, verður frumsýnt í Salzburg í Austurríki í haust. Sjaldgæft er að leikrit byggð á bókum íslenskra höfunda séu sett á fjalirnar erlendis. Lífið 25.5.2011 19:00
Tískuföt á meðgöngu Hera Guðmundsdóttir, nemandi á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, sigraði í samkeppni um meðgöngu- og brjóstagjafafatnað fyrir verslunina Tvö líf. Lína Heru þótti bæði praktísk og flott. Lífið 25.5.2011 17:00
Vill hanga í himninum Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta H. Björnsdóttir fljúga á svifvængjum um allan heim í nafni kvenfrelsis. "Við erum báðar með ódrepandi ferðabakteríu og sáum þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál." Lífið 25.5.2011 16:00
105 réttir úr stofu 105 Andrea Guðmundsdóttir og Margrét Þóra Þorláksdóttir úr mötuneyti LHÍ hafa gefið út matreiðslubók. Matur 25.5.2011 16:00
Snorri Helga klárar nýja plötu Snorri Helgason, fyrrum liðsmaður Sprengjuhallarinnar, er að ljúka vinnu að annarri breiðskífu sinni. Plötuna vinnur hann með aðstoð Sindra Má Sigfússonar úr Seabear og Sin Fang í hljóðveri hans í Reykjavík. Tónlist 25.5.2011 15:09
Í spor einhverfra „Ég gerði bók um einhverfu,“ segir Jóhann Leó Linduson, nemi í grafískri hönnun, um útskriftarverkefni sitt. Jóhann Leó stefnir á að útskrifast úr grafískri hönnun nú í vor. Bókin ber heitið Í annarra manna spor og Jóhann segir að tilgangurinn með henni sé að útskýra á einfaldan hátt vandamál tengd einhverfu. Lífið 25.5.2011 15:00
Maria Shriver ræður spæjara Maria Shriver hefur ráðið einkaspæjara til að rannsaka þær fullyrðingar að fyrrverandi eiginmaður hennar, Arnold Schwarzenegger, eigi fleiri en eitt barn utan hjónabands þeirra. Þetta kom fram á fréttasíðunni RadarOnline.com. Lífið 25.5.2011 14:00
Söngvararnir stela senunni Arabian Horse er mjög sterk og sannfærandi Gusgus-plata og mun aðgengilegri og skemmtilegri en sú síðasta. Hún ætti að geta stækkað áheyrendahóp sveitarinnar enn frekar, bæði hér á landi og erlendis. Gagnrýni 25.5.2011 14:00
Hvernig dettur þér í hug að vera svona til fara? Söngkonan Lady Gaga kynnti nýju plötuna sína, Born This Way, í New York með látum í fyrradag. Þá var hún meðal annars mynduð fyrir utan upptökuver sjónvarpsþáttarins The Late Show með David Letterman þar sem hún var gestur. Eins og sjá má í myndasafni var söngkonan léttklædd vægast sagt. Lífið 25.5.2011 11:20
Örlög smáblóma í írónískum heimi Skemmtilegasta ljóðabók sem út hefur komið lengi, en um leið hárbeitt og ögrandi samfélagsmynd sem sest að í minninu og vekur óróa. Gagnrýni 25.5.2011 11:00
Þessi toppar þá alla (svei mér þá) Jennifer Lopez, 41 ára, var klædd í bláan Zac Posen kjól í gær þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin Hall of Fame stjörnu sem þykir mikill heiður í skemmtanabransanum. Þá má sjá eiginmann Jennifer, Marc Anthony, og Randy Jackson einn af dómurum American Idol keppninnar í myndasafni. Lífið 25.5.2011 09:30
Önnur upprisa Fönixins í kvöld Seinni sýning Ferðalags fönixins verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. Í sýningunni fást Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona hver á sinn hátt við hina táknrænu goðsögu um Fönixinn. Menning 25.5.2011 09:30
Bieber setur konuilmvatn á markað Söngvarinn Justin Bieber setur á markað konuilmvatn, sem ber heitið Someday, eftir 25 daga. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsingu ilmvatnsins. Í tilkynningu frá söngvaranum er skýrt tekið fram að Justin lét gera ómótstæðilegan ilm fyrir aðdáendur sína sem eru ófáir um víða veröld. Hann fær ekki nóg af því að lykta af Someday ilminum. Lífið 25.5.2011 08:43
Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu. Lífið 25.5.2011 08:00
Úr tónlist í tískuna Plötuútgefandinn Haraldur Leví Gunnarsson opnaði tískuverslunina Lólu við Laugaveg 55 ásamt kærustu sinni, Eddu Ýr Aspelund, í gær. Verslunin selur notaðan fatnað og er hver flík sérvalin af Haraldi og Eddu. "Við ætluðum okkur að opna verslun síðasta sumar en það varð ekkert úr því þá. Við ákváðum því að kýla á þetta í sumar og höfum nú unnið hörðum höndum að því að koma öllu í stand. Við höfum staðið hér undanfarna daga með pensil í hönd og unnið að því að koma húsnæðinu í almennilegt stand," segir Haraldur Leví sem einnig er eigandi hljómplötuútgáfunnar Record Records og fyrrum trymbill hljómsveitanna Lödu Sport og Lifun. Lífið 24.5.2011 22:00
Fimm atriði sem þú vissir ekki um Claudiu Schiffer Claudia Schiffer var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins og var lengi andlit tískuhússins Chanel. Hún þykir sláandi lík kvikmyndastjörnunni Brigitte Bardot og hefur á ferli sínum prýtt forsíður meira en 500 tímarita. Tíska og hönnun 24.5.2011 21:30
Brjálaðir tónleikagestir Algerlega frábær skemmtun með stórkostlegum listamanni. Áheyrendur gengu gersamlega af göflunum! Kaufmann var klappaður upp hvað eftir annað, og söng hvorki meira né minna en fjögur aukalög. Þetta voru ótrúlegir tónleikar. Ljóst er að tónlistarlífið í Hörpu byrjar vel. Gagnrýni 24.5.2011 21:00
Gulur, rauður, grænn og blár Dökkir litir hafa verið ríkjandi í snyrtivörum í vetur en nú taka bjartari tímar við. Pastellitir, appelsínugulir tónar og fallegir fjólubláir litir munu leysa af dökka varaliti og svört naglökk. Tíska og hönnun 24.5.2011 20:30
Mikið rétt fallega fólkið sigraði Hugmynd okkar sem komum að keppninni Goð og Gyðjur var að finna einstaklinga sem hafa sterka sjálfsvirðingu og hafa ákveðið að fara vel með anda sinn, sál og líkama, sagði Ósk Norðfjörð spurð út í keppnina sem hún hélt síðustu helgi. Sigurvegararnir Björn M. Sveinbjörnsson, 33 ára, lögreglumaður og Íris María Bjarkardóttir, 23 ára, nemi voru leyst út með gjöfum. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók flestar myndirnar í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 24.5.2011 18:06