Moses Hightower syrgir Moses Hightower 5. ágúst 2011 11:00 Hljómsveitin Moses Hightower syrgir nú leikarann Bubba Smith, sem lést á dögunum. Hann lék ljúfa risann Moses Hightower í Lögregluskólamyndunum á níunda áratugnum. Fréttablaðið/HAG „
Þetta er töluvert áfall fyrir okkur," segir Andri Ólafsson, bassaleikari og annar söngvara hljómsveitarinnar Moses Hightower. Bandaríski leikarinn Charles Aaron „Bubba" Smith lést á miðvikudag, 66 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem ljúfi risinn Moses Hightower í Police Academy-myndunum sem voru vinsælar á níunda áratug síðustu aldar. Andri og félagar nefndu hljómsveitina eftir persónu Smiths og voru slegnir að heyra um andlát leikarans. Ætlar hljómsveitin að minnast Bubba Smith á einhvern hátt? „Þetta bar mjög brátt að, þannig að við höfum ekki beinlínis haft mikinn tíma til undirbúnings. En við munum að minnsta kosti minnast hans með örfáum orðum á tónleikum í kvöld. Meira hefur ekki verið ákveðið," segir Andri, en Moses Hightower kom fram á tónleikum í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi í gær. Andri játar að meðlimir Moses Hightower séu aðdáendur Lögregluskólamyndanna, eða allavega upp að því marki sem það er hægt sem fullorðnir einstaklingar. „Ætli það sé ekki líklegt að hljómsveitin haldi Lögregluskólavöku," segir Andri og bætir við að hljómsveitin heiðri minningu leikarans með því að halda áfram að heita Moses Hightower. „Og halda áfram að gefa út plötur."- afb
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira