Lífið

Framleiðendur vilja meira af Íslandi í Game of Thrones

Framleiðendur Game of Thrones hafa hug á því að taka meira af efni fyrir næstu þáttaraðir hér á landi og jafnvel nýta sér sumarbirtuna og landslagið fyrir smærri tökur. Freyr Gígja Gunnarsson og Vilhelm Gunnarsson heimsóttu tökustað þáttanna við rætur Svínafellsjökuls.

Lífið

Hættir ekki að reykja

Hin ástsæla söngkona Adele er nú á batavegi eftir að hafa gengist undir aðgerð á raddböndum. Aðgerðin gekk vel og aðdáendur söngkonunnar önduðu léttar þegar þær fréttir bárust, en nú hafa þeir áhyggjur af henni vegna reykingafíknar hennar.

Lífið

Íslendingar fá ekki nóg af Glæstum vonum

„Þessir þættir eru einfaldlega of vinsælir hérna til að hætta sýningum á þeim,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs Stöðvar 2, um sápuóperuna Bold and the Beautiful.

Lífið

Hvernig vilt þú fara ofan í jörðina?

Nám í Mótun er tveggja ára tilraunastofa í samstarfi Myndlistaskólans í Reykjavík og Tækniskólans. Unnið er með leir og önnur efni, tengd honum. Námið er leið til BA-gráðu við evrópska samstarfsskóla.

Menning

Íslendingar taki lagið saman

„Við þurfum svolítið að fagna saman,“ segir Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður. Sigtryggur er einn skipuleggjenda Dags íslenskrar tónlistar sem haldinn verður hátíðlegur á morgun, á sjálfan fullveldisdaginn.

Lífið

Eins og blómi í eggi

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs, stillti sér upp á rauða dreglinum í Donna Karan kjól og YSL skóm í New York í gær ásamt unnusta sínum, Eric Johnson...

Lífið

Þorvaldur Davíð andlit nýja ilmsins frá Gyðju

"Það er ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þetta hefur á feril minn. En eitt veit ég þó að það er algengt að leikarar, erlendis, eru fengnir til að vera andlit fyrir ilmi og úr,“ segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

Lífið

Adam Sandler hatar þig!

Sparaðu þér aurinn og settu frekar jalapeño í augað á þér. Af hverju er Adam Sandler svona illa við okkur? Hvað höfum við gert honum? Er hann kannski viljandi að reyna að eyðileggja feril sinn? Af hverju hættir hann ekki þá frekar að leika í kvikmyndum? Og hvernig má það vera að þessi mynd sé búin að hala inn 65 milljónir dollara? Megum við eiga von á framhaldsmynd? Spurningarnar eru margar og þeim er ekki auðsvarað. En þessa mynd skaltu forðast eins og drepsótt.

Gagnrýni

Fyrirsætunnar Loulou de la Falaise minnst

Tískuíkonið Loulou de la Falaise lést í byrjun mánaðarins aðeins 63 ára að aldri. Falaise var músa, samstarfskona og ein besta vinkona hönnuðarins Yves Saint Laurent, sem hannaði Le Smoking-kvenjakkafötin fyrir áhrif frá henni.

Tíska og hönnun

Tíminn og vatnið

Strengur eftir Tómas R. Einarsson er einstakt verk. Þó að hugmyndin sé frumleg er tónlistin bæði aðgengileg og hljómfögur. Það er vel hægt að njóta hennar án þess að virkja allar þær tengingar sem verkið býður upp á. Mér hefur alltaf fundist hljómur kontrabassans einstaklega fallegur og þessi einfalda, latínskotna tónlist er bæði þægileg og heillandi.

Gagnrýni

Bloggarar græða á tá og fingri

Vinsældir tískublogga hafa vaxið síðustu ár og nú fylla bloggarar fremstu sætin á tískusýningum stóru tískuhúsanna þar sem áður mátti sjá ritstjóra og leikara. Mörg fyrirtæki hafa greint gróðavon í þessum bloggsíðum og má nú velta fyrir sér hlutleysi þeirra er halda síðunum úti.

Lífið

100% íslensk hönnun

Ágústa Margrét Arnardóttir, sem er hönnuðurinn á bak við fylgihluta- og fatalínuna Arfleifð, sýnir í meðfylgjandi myndskeiði örlítið brot af hönnunarsýningu hennar á Fosshótel Lind, Rauðarárstíg í Reykjavík, sem er opin almenningi klukkan 11-19 alla daga fram á sunnudag...

Lífið

Skemmtikvöld fyrir konur og karla

Ný fatalína Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum á morgun, miðvikudag. Línan er hönnuð af Guðmundi Jörundssyni, yfirhönnuði verslunarinnar.

Lífið

Bjartsklíkan fagnaði

Bókaútgefandinn Snæbjörn Arngrímsson fagnaði fimmtugsafmæli sínu um liðna helgi. Snæbjörn var aðalmaðurinn á bak við uppgang bókaútgáfunnar Bjarts á síðasta áratug en seldi hlut sinn í fyrirtækinu fyrir hrun og fluttist til Danmerkur.

Lífið

Brynja nýr kynnir í Eurovision

„Ég hef alltaf horft á keppnina en ég er enginn Eurovision-fíkill eða heitur aðdáandi,“ segir nýr Eurovision-kynnir, Brynja Þorgeirsdóttir. Hún tekur við af Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur sem hefur gegnt þessu hlutverki síðastliðin ár.

Lífið

Ekki jafn góð mamma

Leikkonan Angelina Jolie segist aldrei munu geta staðið jafnfætis móður sinni í uppeldishlutverkinu. Jolie, sem á sex börn með leikaranum Brad Pitt, var alin upp af Marcheline Bertrand sem var heimavinnandi húsmóðir og lést árið 2007.

Lífið

George greinilega ástfanginn

Leikarinn George Clooney, 50 ára, hélt utan um nýju kærustuna, Stacy Keibler, 32 ára, eftir að þau lentu í Los Angeles á sunnudag eftir rómantískt frí í Los Cabos í Mexíkó...

Lífið

Síðasti sjens í þriðja sinn

Tónleikakvöldið Síðasti sjens verður haldið í þriðja sinn á gamlársdag á Nasa. Fram koma Of Monsters and Men, sem hefur slegið í gegn á þessu ári, Retro Stefson, sem hefur spilað víða um Evrópu á árinu, og Rich Aucoin frá Halifax sem spilaði á Airwaves-hátíðinni við góðar undirtektir.

Lífið

Öskureið Demi

Það svoleiðis sýður á leikkonunni Demi Moore, 49 ára, sem skildi nýverið við leikarann Ashton Kutcher, 33 ára, eftir að hann hélt fram hjá henni eins og frægt er orðið...

Lífið

Skotin í Jeff Bridges

Leikkonan hæfileikaríka Michelle Williams, sem nýlega fór með hlutverk Marilyn Monroe í kvikmynd um ævi hennar, viðurkennir að hún sé rosalega skotin í gamla brýninu Jeff Bridges.

Lífið

Söngvaborg í hundrað þúsund eintökum

„María Björk [Sverrisdóttir] nefndi þessa tölu við mig fyrir skemmstu og ég trúði henni ekki. Ég hringdi því í hana aftur um daginn og þá voru hún og framleiðandinn okkar nýbúin að fara yfir tölurnar og þetta er víst rétt. Diskarnir fimm hafa selst í um hundrað þúsund eintökum,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona og söngkennari.

Lífið

Prinsessan pen í grænu

Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans Kate Middleton spjölluðu við fjölmiðlafólk í Bickingham höllinni í gær...

Lífið