Lífið

Heilsuhelgi á Sólheimum

"Þetta verður heil helgi af lífrænum og ljúffengum mat, hugleiðslu, jóga og hreyfingu,“ segir Margrét Alice Birgisdóttir, NLP heilsumarkþjálfi, sem stendur fyrir heilsuhelgi ásamt Gyðu Dröfn Tryggvadóttir lýðheilsufræðingi og jógakennara og Alberti Eiríkssyni ástríðukokki.

Lífið

Fara ekki frá Suðureyri

Einleikshátíðin Act Alone verður haldin áfram á Suðureyri við Súgandafjörð, þrátt fyrir að færri hafi komist að en vildu á hátíðinni fyrr í mánuðnum.

Lífið

Ekki kynnst slíkri stemningu fyrr

Svar við bréfi Helgu, eftir Bergsvein Birgisson, kemur út í þrettán þúsund eintökum í Frakklandi í dag og útgefendur þar í landi huga þegar að endurprentun.

Lífið

Nítján ára undrabarn

Fyrsta plata King Krule kemur út á nítján ára afmælisdegi hans á laugardaginn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð ótrúlegum þroska sem tónlistarmaður.

Tónlist

"Mér þykir vænt um Ólaf Ragnar“

"Vinsældir þáttanna komu mér ekki á óvart. Að þeim stóð hópur skemmtilegs fólks og þau gátu bara ekki klikkað,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon, sem er enn í nánu sambandi við Ólaf Ragnar.

Lífið

Þetta er algjört brjálæði

Hér má sjá myndskeið af brjálæðinu svo vægt sé til orða tekið sem myndaðist á meðal fjölda stúlkna sem mættu í Smárabíói í gær á forsýningu This is Us.

Lífið

Vala Matt snýr aftur á Stöð 2

Vala Matt leggur land undir fót og leitar uppi góðan mat í þáttunum Sælkeraferð um Ísland með Völu Matt sem hefja göngu sína á Stöð 2 fimmtudaginn 12. september.

Lífið

Þú ert að fara á tónleikana á Kex hostel í kvöld

Búast má við því að stappfullt verði á tónleikum Símans og þriggja frábærra hljómsveita, Ylju, Hjaltalín og Sometime, á Kex Hostel í kvöld. Fyrstir koma, fyrstir fá besta plássið á hostelinu. Bjartey, Guðný Gígja og hljómsveit þeirra Ylja hefja leikinn en hljómsveitin Hjaltalín endar. Tónleikunum verður streymt á vef Símans í kvöld. Enginn þarf því að missa af tónleikunum. Streymið hefst klukkan 20:00 "Frábært að uppteknir þurfi ekki að sleppa þessu tækifæri til að njóta góðrar stemningar og tónlistar. Þeir geta hlustað og horft í gegnum snjalltækin eða tölvuna meðfram öðrum verkefnum ,“ segir Gunnhildur Arna Gunnardóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Slóðin á streymið verður á finna á vef Símans: www.siminn.is/spotify

Lífið

„Mundi ekki eins mikið og ég vonaði“

Stuð og léttleiki ráða ríkjum á Stöð 2 á laugardagskvöldum þegar Siggi Hlö mætir í hús með þáttinn sinn "Veistu hver ég var?“. Næsta laugardag mætast lið útvarpsstöðvanna Bylgjunnar og Rásar 2 í skemmtilegri keppni.

Lífið

Gamli rífur í lóðin

Leikarinn Mel Gibson, 57 ára, var í þrusustuði þegar hann yfirgaf líkamsræktarstöð í Los Angeles í síðustu viku eftir strangar æfingar.

Lífið

Öskruðu og grétu

Meðfylgjand myndir voru teknar í Smárabíói í gær þegar One Direction myndin This is Us var forsýnd hér á landi.

Lífið