Lífið

Golf í stað rokksins

Rokksveitin Kings of Leon hefur sagt skilið við rokklífernið og leggur nú stund á golf. „Nathan er frábær kylfingur en Caleb nálgast hann óðfluga. Útgefandi þeirra vonast til að þeir muni gefa út aðra plötu nú í ár en þeir fara sér hægt í þeim efnum. Þeim liggur ekkert á. Nú ætla þeir að njóta lífsins fjarri

Lífið

Dóttir Stings gefur út

Coco Sumner, hin nítján ára dóttir tónlistarmannsins Sting og eiginkonu hans Trudie Styler fetar nú í fótspor pabba síns og hefur gefið út fyrsta lagið sitt. Hún notar listamannsnafnið I Blame Coco og í laginu, „Caesar“, syngur

Lífið

Krepputexti í stað ástaróðs

„Hvers vegna skyldu menn ekki geta sungið um það sem skiptir máli þarna líka. Ekki það að ást og hamingja skipti ekki máli,“ segir Sváfnir Sigurðarson.

Lífið

Lady Gaga hné niður

Aflýsa þurfti tónleikum söngkonunnar Lady Gaga á fimmtudagskvöld vegna veikinda tónlistarkonunnar aðeins klukkustund áður en þeir áttu að hefjast

Lífið

Troðfullt hjá Gísla Marteini - myndir

Eins og myndirnar sýna var troðfullur salur Þjóðminjasafnsins þegar Gísli Marteinn Baldursson, sem sækist eftir 2. sæti í Reykjavík, hélt fyrirlesturinn „Reykjavík — hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór?" í gærkvöldi. Ertu ekki kominn með hundleið á pólítikinni Gísli? „Ég er í borgar-pólitík af því ég hef brennandi áhuga á fyrriparti orðsins. Fyrriparturinn er alltaf nýr, alltaf spennandi og er sífellt að endurnýja sig," svarar Gísli og bætir við: „Seinniparturinn mætti læra meira ýmislegt af þeim fyrri."

Lífið

Sherlock Holmes ratleikur í Reykjavík - myndir

Í tilefni af nýjustu kvikmynd Guy Ritchie, Sherlock Holmes, efnir útvarpsstöðin FM 95.7 til ratleiks í miðbæ Reykjavíkur í dag, föstudag. Til að taka þátt þarftu aðeins hlusta á FM 95.7 þegar útvarpsmaðurinn Kalli Lú greinir frá fyrstu vísbendingu leiksins í kringum klukkan 12:00.

Lífið

Frikki aðalmaðurinn á Nörrebro

Bandaríska stórblaðið New York Times valdi nýverið Kaupmannahöfn sem einn af þeim stöðum sem ferðamenn ættu að sækja á þessu ári. Og nefndi þar sérstaklega Nörrebro sem er þekkt fyrir fjölda kaffihúsa og sína miklu reiðhjólamenningu.

Lífið

Frægir bregðast við hamförunum á Haítí

Oprah Winfrey, Ben Stiller, Brad Pitt, Angelina Jolie og hljómsveitin Coldplay eru á meðal þeirra sem hafa hvatt almenning til að aðstoða þá sem eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftans á Haítí.

Lífið

Enskir gítarleikarar á Rosenberg

Tveir Englendingar verða í aðalhlutverki á Rosenberg um helgina, þeir Tom Hannay og Clive Carroll. Tom Hannay er 24 ára gamall gítarleikari og söngvari, sem hefur verið búsettur á Íslandi í eitt og hálft ár.

Lífið

Vonast eftir rúmum 32 milljónum

„Þetta verða meiriháttar tónleikar eins og þeir hafa verið síðustu ellefu ár,“ segir Einar Bárðarson um hina árlegu tónleika fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, eða SKB, sem verða haldnir á laugardaginn. „Það besta við þá verður að afhenda peningana í hléinu,“ segir hann. Allur ágóði rennur til SKB og allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína.

Lífið

Ragnar sagði nei við Jón Gnarr

Ragnar Bragason, leikstjóri Vaktar-seríanna, sagði nei við Jón Gnarr um að taka sæti á lista Besta flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Jón segir að leikstjórinn hafi sett sér það prinsipp að taka aldrei þátt í stjórnmálum.

Lífið

Tæknileg mistök hluti af skýringunni

Innspil lagsins, svokallað „playback“ Eurovision-lagsins In the Future var of lágt stillt þegar Karen Pálsdóttir, sextán ára söngkona, flutti það í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardagskvöld. Umrætt atriði hefur verið mörgum hugleikið í netheimum og var þeirri umræðu gerð sérstök skil í

Lífið

Bönd munu berjast

Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle Of The Bands hófst á Sódómu Reykjavík í gærkvöldi. Keppinn stendur yfir til laugardags og á meðal hljómsveita sem stíga á svið er Bróðir Svartúlfs, sigursveit Músíktilrauna, Nögl og We Made God.

Lífið

Listmálarinn Stallone

Sylvester Stallone er fjölhæfur listamaður. Upp á síðkastið hefur hann verið að vekja athygli í listaheiminum með hráum og tilfinningaríkum málverkum sínum. Leikarinn hefur málað frá unga aldri en það er aðeins nýverið að hann kom út úr skápnum með myndlist sína. Hann var viss um að frægð hans í kvikmyndabransanum myndi skyggja á myndlistina og gera hana að léttvægu fyrirbæri.

Lífið

Ragnheiður í Fríkirkjunni

Söngkonan Ragnheiður Gröndal heldur tónleika í Fríkirkjunni 21. janúar í tilefni af útkomu plötunnar Tregagás sem kom út fyrir jólin. Á tónleikunum verða spiluð íslensk þjóðlög bæði af Tregagás og plötunni Þjóðlög sem kom út 2006. Með Ragnheiði leika þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Haukur Gröndal á klarínett og þeir Matthías M.D. Hemstock og Birgir Baldursson á slagverk. Húsið opnar kl. 20 og tónleikarnir hefjast kl. 21. Miðasalan fer fram á Midi.is og er miðaverð 2.500 krónur.

Lífið

Leifar frá Feneyjadvölinni

Sýning á verkinu Endalokin - Klettafjöll, eftir Ragnar Kjartansson verður opnuð í Hafnarborg nú á laugardag og stendur til 28. febrúar. Verkið er tvískipt og er annar hluti þess tónlistar- og myndbandsverk sem tekið var upp í Klettafjöllunum og sýnir Ragnar og Davíð Þór Jónsson leika á ólík hljóðfæri á fimm mismunandi sjónvarpsskjáum. Seinni hluti verksins var unninn í Feneyjum þar sem Ragnar málaði listamanninn Pál Hauk Björnsson daglega í hálft ár.

Lífið

Ástralir elska Vesturport

Hamskiptin, leiksýning Vesturports, var nýverið valin besta alþjóðlega leiksýningin á árinu sem var að líða af tveimur áströlskum blöðum.

Lífið

Býr til þúfur fyrir Gerplu

Mikil þúfugerð fer nú fram á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins vegna leikritsins Gerpla sem verður frumsýnt 12. febrúar. Smíðaverkstæðið hefur aftur tekið við sínu gamla hlutverki sem vinnusvæði og þar hefur Trygve Jónas Eliassen, yfirmaður leikmunadeildar, haft í nógu að snúast við þúfugerðina. Vopn og verjur eru einnig að streyma í hús og má því búast við því að hausar og útlimir fari að fjúka á næstunni.

Lífið

Fimm ára bið á enda

Hljómsveitin Leaves spilar á sínum fyrstu tónleikum í Bretlandi í fimm ár á fimmtudaginn í næstu viku.

Lífið

KK endurvekur gamla stemningu

„Þetta verður æðislega gaman,“ segir tónlistarmaðurinn KK sem heldur tvenna tónleika á Café Rosenberg dagana 28. og 29. janúar. Á efnisskránni verða fyrstu tvær plötur KK, Lucky One og Bein leið, og með KK á sviðinu verða þeir tónlistarmenn sem spiluðu með honum á plötunum. „Það er ofsalega gaman að geta gert þetta með alla „orginal“ karlana með,“ segir KK.

Lífið

Tólftu tónleikarnir

Sálin hans Jóns míns, Ingó og Veðurguðirnir, Buff, Jóhanna Guðrún og félagarnir Friðrik Ómar og Jógvan verða á meðal þeirra sem koma fram á tónleikum í Háskólabíói á laugardaginn til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Þetta er í tólfta sinn sem tónleikarnir eru haldnir og eins og áður munu allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína.

Lífið

Stafrænn stórbruni

Út er komin stafræna breiðskífan A Quiet Afternoon frá Ghostigital og Finnboga Péturssyni. Skífan hefur að geyma upptökur af tónleikum þríeykisins sem fram fóru á Iceland Airwaves í fyrra. Tónleikarnir fóru fram að Klapparstíg 33 þar sem verslunin Hamborg var til húsa og síðar Gallerí i8

Lífið

Vilja byggja upp orðspor íslenska tískuiðnaðarins

Reykjavík Fashion Festival er viðburður sem stofnað var af nokkrum einstaklingum sem eiga það sameiginlegt að starfa á sviði hönnunar og tónlistar. Viðburðurinn á að stuðla að sýnileika íslenskrar tísku og hönnunar á erlendum vettvangi og auka samstarf meðal íslenskra hönnuða og listamanna.

Lífið

Eve leikur ársins hjá reynsluboltunum

„Þetta er elsta harðkjarnasíðan í þessum bransa. Við kunnum mjög vel að meta að hafa verið valin,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, sem framleiðir tölvuleikinn EVE Online.

Lífið

Samdi við Paris Hilton og Jóhönnu Guðrúnu - myndir

„Gyðja var kynnt fyrir stílistanum hennar Parisar Hilton, sem bar þetta svo undir hana sjálfa, þeim leist báðum mjög vel á og í kjölfarið valdi hún sér nokkrar týpur úr línunni sem var sérstaklega hugsuð fyrir hana til að klæðast í raunveruleikaþættinum sínum My Bff," svarar Sigrún Lilja Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Gyðju aðspurð hvernig samstarf hennar og Parisar Hilton hafi komið til. „Þátturinn var tekinn upp í Dubai en sú sería væntanleg í loftið á MTV á næstunni."

Lífið