Lífið

Að sitja fyrir í Playboy er svo venjulegt - myndband

„Úti þá er ég í myndatökum oft í viku. Það mesta sem ég geri er að vera mamma með börnunum mínum og fjölskyldunni minni en hérna svo er ég í þessum glamúrheimi og glamúrfyrirsætustörfum og mikið í sjónvarpinu líka," segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta í sjónvarpsþættinum Ísland í dag í gærkvöldi. Á meðfylgjandi link má sjá viðtalið.

Lífið

Höfundur Ávaxtakörfunnar vill stöðva Símaauglýsingu

„Þetta kemur okkur verulega á óvart. Við teljum að í þessu felist ekki brot á höfundarrétti, hvað þá að birtingin hafi í för með sér fjárhagslegan skaða fyrir nokkurn mann,“ segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.

Lífið

Jónsi gerir poppaða sólóplötu

„Maður er bara að taka smá Phil Collins á þetta,“ segir Jón Þór Birgisson, Jónsi Í Sigur Rós, sem nú stendur í ströngu við að hljóðblanda fyrstu sólóplötuna sína úti í London. Hann mun helga sig verkefninu næsta ár og meðal annars leggjast í tónleikaferðalög um allan heim til að kynna plötuna. „Þetta er svaka popp,“ segir Jónsi aðspurður um nýja efnið. Hann segir að stefnan sé sett á að drífa plötuna bara út sem fyrst á nýja árinu, í febrúar eða mars.

Lífið

Heldur tónleika fyrir Ellu Dís

„Ég var í ræktinni þegar ég sá viðtal við móður Ellu Dísar. Það snerti mig og mér fannst ég verða að gera eitthvað,“ segir Alan Jones sem skipuleggur styrktartónleika á Spot í Kópavogi á fimmtudaginn 19. nóvember. Allur ágóðinn mun renna til Ellu Dísar, en hún hefur glímt við stigvaxandi lömun frá því að hún fæddist alheilbrigð árið 2006. Eftir fjölda rannsókna er enn óljóst hvað hrjáir Ellu Dís en móðir hennar, Ragna Erlendsdóttir, hefur nú fundið læknismeðferð í Ísrael sem gefur góða von um lækningu og mun ágóðinn nýtast til að fjármagna hana.

Lífið

Ásdís Rán í einkaviðtali við Ísland í dag í kvöld

Ásdís Rán er í stuttri heimsókn hér á landi. Í Íslandi í dag er rætt við hana um fjölskylduna, spennandi feril hennar í fyrirsætustörfum og umtalið sem hún vekur bæði hér heima og erlendis. Þá hittum við starfsmenn eina fyrirtækisins sem er flutt inn í turninn við Höfðatorg í Reykjavík, kynnum okkur athafnateygjuna og sitthvað fleira hér í Íslandi í dag strax á eftir kvöldfréttum Stöðvar 2.

Lífið

Jón Gnarr stofnar stjórnmálaflokk

Jón Gnarr hefur stofnað stjórnmálaflokk. Hann heitir Besti flokkurinn og Jóni er full alvara. „Mig hefur lengi langað til að hafa völd og góð laun. Góð leið til þess er að verða lýðræðislega kosinn,“ segir Jón, fullur einlægni. „Mig langar líka að komast í þá stöðu að ég geti hjálpað vinum mínum. Það eru endalaust margar leiðir til þess. Það má úthluta alls konar styrkjum og búa til hinar ýmsu nefndir. Fólk þarf svo ekkert endilega að mæta á fundi, en fær bara borgað.“

Lífið

Fékk handavinnuna í arf

Sunna Dögg Ásgeirsdóttir hannar skemmtilegar barnaflíkur undir nafninu Sunbird. Sunna Dögg útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands og starfar nú sem fatahönnuður hjá Nikita.

Lífið

Vælið haldið með prompi og prakt í Háskólabíói

Vælið, söngkeppni Verzlunarskóla Íslands var haldið með pompi og prakt föstudaginn 13. nóvember. Miðasala hófst strax á mánudeginum og seldist upp á miðvikudeginum. Færri komust því að en vildu og heppnaðist þetta kvöld frábærlega hjá skemmtinefnd nemendafélagsins sem stendur að atburðinum.

Lífið

Ungfrú Ísland fílar sig í tætlur - myndir

„Ég er að fíla mig í botn," svarar Guðrún Dögg Rúnarsdóttir ungfrú Ísland, sem er stödd í Abú Dabí ásamt fjölda fegurðardrottninga eins og sjá má á meðfylgjandi myndum frá ferðalagi Guðrúnar. „Þetta er svo mikil upplifun og allt fólkið sem ég er buin að hitta er svo frábært og yndislegt," bætti hún við. Hvað hefur komið þér mest á óvart í ferðinni? „Hvað maturinn hérna er geðveikur," svarar Guðrún. „Hér eru 10 stjörnu hlaðborð tilbúin fyrir okkur á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Alltaf eftirréttir og gourme. Ég elska það," segir Guðrún.

Lífið

Íslenskt kvenfólk aðeins í þriðja sæti

„Ég get vel skilið þetta,“ segir tískufrömuðurinn Karl Berndsen. Þrátt fyrir að íslenskt kvenfólk hafi hingað til verið talið það fegursta í heiminum er það aðeins í þriðja sæti ef marka má stefnumótasíðuna Beautifulpeople.com.

Lífið

Átta sýna í Havarí

Átta myndlistarmenn eiga verk á nýrri myndlistarsýningu sem verður opnuð í Gallerí Havarí í Austurstræti í dag klukkan 15. Sýningin stendur yfir til 3. desember. „Þetta er önnur sýningin sem við höldum og þetta gallerí hefur komið mjög vel út,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson í Havarí.

Lífið

Prestar aðstoða við Jesúleikrit

„Þetta er hið horfna en nýfundna Jólaguðspjall Leikfélags Reykjavíkur sem kemur í leitirnar eftir öll þessi ár,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri, um verkið Jesús litla sem verður frumsýnt 21. nóvember. Æfingar eru í fullum gangi fyrir verkið, sem gæti vakið athygli fyrir hispurslaus efnistökin.

Lífið

Tökum á Heaven"s Taxi að ljúka í miðborg Berlínar

Helgi Björnsson er þessa dagana staddur í Berlín þar sem tökur standa yfir á kvikmyndinni Heaven"s Taxi í leikstjórn Daryush Shokof frá Íran. „Þetta er allt skotið í miðborginni og við vorum í kringum Brandenborgarhliðið á miðvikudaginn. Það er dálítið lýjandi að vera í

Lífið

Dúndurflottar dömur á Nasa - myndir

Eins og myndirnar sýna var gríðarlegt fjör á barþjónakeppninni sem ber yfirskriftina Finlandia Vodka Cup á skemmtistaðnum Nasa í gærkvöldi. Starfandi barþjónar fá aðeins að taka þátt í keppninni, sem er samstarfsverkefni Finlandia og Barþjónaklúbbs Íslands.

Lífið

Fíkniefnahundar í Íslandi í dag

Fíkniefnahundar hafa fundið hundruð kílóa fíkniefna á Íslandi á síðustu árum, og eru mikilvægur þáttur í baráttunni gegn fíkniefnasmygli. Í Íslandi í dag í kvöld verður kíkt á æfingu löggæslumanna og leitarhunda á Snæfellsnesi. Þá verður fylgst með því þegar hundarnir leita uppi glæpamann, sem í kjölfarið er handtekinn fyrir vörslu á fíkniefnum. Ísland í dag er á dagskrá beint á eftir fréttum Stöðvar 2.

Lífið

Pínulítið skrítið popp

„Þetta er poppað „Skærbjart draumapopp“ sagði einhver. Músíkin er búin að léttast mjög mikið frá síðustu plötu,“ segir Elíza Newman – Elíza úr Kolrössu krókríðandi – um lögin á nýju plötunni sinni, Pie in the sky, sem Smekkleysa hefur gefið út. „Þetta er önnur sólóplatan mín, en sjöunda stóra platan í allt. Uss, helvíti er maður orðinn gamall!“ segir Elíza og hlær.

Lífið

Annir í Hvanndal

Hljómsveitin Hvanndalsbræður tekur nú starf sitt með miklum alvörubrag ólíkt því sem áður tíðkaðist. Hljómsveitin hefur líka aldrei verið jafn vinsæl.

Lífið

Sýnd í fimm borgum og heimsálfum

Kvikmynd Einars Þórs Gunnlaugssonar, Heiðin, verður sýnd í fimm borgum í þremur heimsálfum í nóvember og desember. Myndin ferðast til Indlands þar sem hún tekur þátt í Indian International Film Festival í flokknum Male Voice.

Lífið

Fatahönnuðir bjóða í heimsókn

„Þetta er „súpudagur“ fatahönnuða, með þessu framtaki viljum við þakka fólki góðar móttökur og bjóða fólki í heimsókn og upplifa skemmtilega jólastemningu í leiðinni,“ segir Gunnar Hilmarsson, formaður Fatahönnunarfélags Íslands.

Lífið

Fræga fólkið hittist í hádeginu - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá þekkt andlit snæða hádegisverð á Hilton Reykjavík Nordica í boði útgáfunnar Senu. Jón Ólafsson tónlistarmaður las upp úr bókinni Söknuður - ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar og Sólmundur Hólm las kafla úr bókinni Sjúddírari rei -endurminningar Gylfa Ægissonar. Sjá meira á meðfylgjandi myndum.

Lífið

Sætar í Sjallanum - myndir

Stærsti jólaviðburður norðan heiða fór fram í Sjallanum á Akureyri síðustu helgi. Plötusnúðar sem kalla sig „N3" spiluðu fyrir troðfullu húsi, tískusýning frá helstu tískuvöruverslunum bæjarins var sýnd við mikinn fögnuð viðstaddra og hljómsveitin „Fasion sense" tók nokkur lög. Gestir skemmtu sér konunglega eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Lífið

Ourlives heldur útgáfutónleika

Hljómsveitin Ourlives hefur nú sent frá sér sína fyrstu plötu, We Lost the Race. Með þessari heilsteyptu og metnaðarfullu plötu skjóta Ourlives sér beint í framlínu íslenskra tónlistarmanna. Platan hefur að geyma frábærar lagasmíðar og metnaðarfullar útsetningar sem hafa heillað hlustendur að undanförnu.

Lífið

Bætir kynlífið - myndir

Vísir hafði samband við Lönu Vogestad, hot jóga kennara í World Class, til að forvitnast um sportið en æfingarnar fara fram í upphituðum sölum. Fyrir hverja er hot jóga? „Hot jóga er fyrir alla, sama í hvaða líkamsástandi fólk er eða á hvaða aldri," svarar Lana sem er með réttindi til að kenna ákveðna útfærslu á hot jóga (the Barkan Method Hot Yoga), sem er nefnd eftir Jimmy Barkan. Þar er lögð áhersla á að vera með mismunandi erfiðleikastig svo æfingarnar henti byrjendum og lengra komnum. „Æfingarnar eru mjög krefjandi, sama á hvað stigi iðkendur eru og jafnvel þó fólk hafi stundað hot jóga í yfir áratug eins og ég, þá er þetta ennþá krefjandi og alltaf hægt að bæta sig," segir Lana. Hefur iðkun á hot jóga áhrif á kynlífið? „Bætt heilsa hefur margs konar bætandi áhrif á athafnir daglegs lífs og þar með talið á kynlíf. Fólk sem stundar hot jóga er í betri tengslum við sjálft sig og í betra jafnvægi. Það hefur meiri liðleika og öndunin er betri. Mestu máli skiptir þó að sjálfsvirðingin og sjálfsvæntumþykjan er meiri og þar af leiðandi hefur fólk meira að gefa af sér, þar með talið í kynlífi. Á meðfylgjandi myndum má sjá Lönu í ýmsum hot jóga stellingum.

Lífið

Fullt af fólki sem á ekki fyrir mat

„Við fjölskyldan erum að standa í þessu saman. Ég, mamma, pabbi og bróðir minn," segir Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm sem heldur styrktartónleika 22. nóvember næstkomandi þar sem hún sjálf ásamt fjölda listamanna koma fram. „Við fjölskyldan fengum bara þessa hugmynd þar sem það er fullt af fólki sem á ekki fyrir mat um jólin en við höfum það gott og langar að láta gott af okkur leiða," segir hún. „Undirbúningur gengur mjög vel. Við dundum við hann heima á kvöldin eftir að við ljúkum okkar vinnu og skóla. Þetta er heilmikil vinna en þrælskemmtilegt. Við hlökkum bara til tónleikanna 22. nóvember og vonumst til að sjá sem flesta," segir hún. Sjá nánar um tónleikana hér.

Lífið

Poppað í Garðabæ

Skólahljómsveit Kópavogs heldur sína árlegu hausttónleika á morgun kl. 20 í sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Fram koma um 130 ungir hljóðfæraleikarar sem skipt er í þrjár hljómsveitir eftir aldri og getu, enda er Skólahljómsveit Kópavogs ein fjölmennasta ungmennahljómsveit landsins.

Lífið

Scrooge á toppinn

Ný teiknimynd byggð á ævintýri Charles Dickens, A Christmas Carol, fór beint í efsta sæti aðsóknarlistans vestanhafs eftir frumsýningarhelgi sína.

Lífið