Lífið

Íslenska geðveikin tekin á glamúrinn

Kjólameistarinn og klæðskerinn Selma Ragnarsdóttir saumaði gylltan glamúrkjól fyrir athafnakonuna Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur áður en hún fór á Golden Globe verðlaunaafhendinguna og það út frá teikningu eins og sjá má í myndskeiðinu. Selma og Sigrún ræða hvernig hugmyndin að kjólnum varð að veruleika og það nánast á mettíma eða á íslensku geðveikinni eins og sumir myndu segja.

Lífið

Spila sjóðheitt reggí

Tónlistarhópurinn Rvk Sound­system stendur fyrir mánaðar­legum reggíkvöldum í Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda annan laugardag hvers mánaðar.

Lífið

Ný kvikmyndaverðlaun

Kvikmyndaverðlaun tímaritsins Myndir mánaðarins og síðunnar Kvikmyndir.is verða haldin í Sambíóunum Egilshöll í fyrsta sinn á morgun. „Það þarf að hafa einhver verðlaun þar sem fólk fær að segja sína skoðun.

Lífið

Á stalli með þeim bestu

Jeff Bridges leikur drykkfelldan fógeta í nýjustu mynd Coen-bræðra, True Grit. Hann hefur sex sinnum verið tilnefndur til Óskarsverðlaunanna á löngum og litríkum ferli.

Lífið

Klaufaleg lygi og hamingja

Auk vestrans True Grit verða þrjár nýjar myndir frumsýndar í bíó á morgun. Just Go with It er gamanmynd með Adam Sandler og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum. Sandler leikur lýtalækni sem fellur fyrir mun yngri og sérlega glæsilegri konu. Hann fær aðstoðarkonu sína (Aniston) til að þykjast vera fyrrverandi kona hans til að breiða yfir klaufalega lygi. Lygin um eiginkonuna verður að lygi um að þau eigi tvö börn saman og fljótlega fer allt úr böndunum.

Lífið

Mikið rétt þetta voru týpiskir VIP tónleikar

Það var gríðarlega góð stemning á tónleikum Nýdanskrar í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þegar bandið mætti áhorfendum á skemmtilegan hátt í svokölluðu návígi leikhússins. Hljómsveitarmeðlimir sýndu skemmtiatriði samhliða söngnum sem vöktu mikla lukku frumsýningarge

Lífið

Samdi lag fyrir 100 milljónir

„Þetta er í rauninni stærra en að spila á Wembley, þannig séð,“ segir tónlistarmaðurinn Birgir Hilmarsson. Lag hans hljómaði í nýrri auglýsingu farsíma­fyrirtækisins Motorola sem var sýnd í hálfleik Super Bowl fótboltaleiksins í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Talið er að um 105 milljónir áhorfenda hafi séð auglýsinguna.

Lífið

Langafi Elvisar skilur ekkert í nafngiftinni

„Íslendingum er að fjölga og nafngiftum fjölgar líka,“ segir Ólafur Daði Helgason, faðir Theodórs Elvisar sem fæddist í desember á síðasta ári. Mannanafnanefnd samþykkti nýlega seinna nafn Theodórs eftir talsvert mas og þras að sögn föðurins.

Lífið

600 milljónir fyrir sigurinn

Sigurvegarinn í bandarísku hæfileikaþáttunum X Factor fær fimm milljónir dollara í sinn hlut, eða tæpar 600 milljónir króna, á fimm ára tímabili. Framleiðandinn Fox heldur því fram að þetta sé hæsta verðlaunafé í gervallri sjónvarpssögunni.

Lífið

Nýtt tónlistarmyndband Steed Lord

„Við vorum heppin að fá vini til að hjálpa til með förðun, hár og þess háttar. Þetta myndband er algjörlega gert af Steed Lord frá a-ö og við erum mjög stolt af því en um leið einnig alveg gríðalega þakklát þeim sem aðstoðuðu okkur," sagði Svala Björgvinsdóttir.

Lífið

Óútreiknanlegt úrslitakvöld

„Það er frábært að fá hann þarna inn. Hann þekkir þetta inn og út og er nörd nördanna,“ segir Guðmundur Gunnarsson, sem verður kynnir í úrslitum Eurovision á laugardagskvöld ásamt Páli Óskari, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Ragnhildur Steinunn, sem hefur staðið við hlið Guðmundar í undankeppninni, verður erlendis og því ekki með að þessu sinni.

Lífið

París farin að lyfta

Partídaman París Hilton er farin að taka hrikalega á því í ræktinni og hefur auk þess tekið mataræðið í gegn eftir hvatningu frá kærastanum, Cy Waits. París, sem er 29 ára, neytir 3.500 kaloría á dag til að eiga næga orku fyrir öll átökin. „París hefur alltaf verið í megrun til að halda vextinum sínum. En síðan hún kynntist Cy er hún heltekin af líkams­rækt,“ segir vinur Parísar.

Lífið

Skipað að sjá eigin myndir

Sálfræðingur leikarans Jesse Eisenberg hefur skipað honum að horfa aftur á sínar eigin kvikmyndir því hann þurfi að bera virðingu fyrir starfi sínu.

Lífið

Fann gamla kærastann

Breska leikkonan Helen Mirren, sem er gift leikstjóranum Taylor Hackford, var með Frakkland á heilanum þegar hún var yngri.

Lífið

Íslensk hljómsveit vekur athygli í Austurríki

Önnur plata íslensku hljómsveitarinnar Groundfloor, …This Is What"s Left of It, var tekin upp í borginni Salzburg í Austurríki. Þar hefur sveitin vakið athygli að undanförnu á sama tíma og hún er nánast óþekkt hér heima.

Lífið

Allt farið til fjandans í Verzló

Verzlunarskóli Íslands setur upp söngleikinn Drauminn í ár en hann er byggður á leikriti Shakespeare um Draum á Jónsmessunótt. Tónlistarþema í söngleiknum er 90's tónlist. Leikstjóri og höfundur er Orri Huginn Ágústsson og Stella Rósenkranz er danshöfundur sýningarinnar.

Lífið

Gaurinn kann að kveikja í kvenfólki

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá bandaríska heilarann Victor McWind, sem hefur 25 ára reynslu í heilun, en hann heldur heilunarnámskeið fyrir Íslendinga í Jógastúdío hjá Ágústu og Drífu sem hefst í lok mars. Að námskeiðinu loknu fá nemendur réttindi til að starfa sem heilarar. Kennt verður um helgar, frá föstudegi til sunnudags. Farið verður tvisvar út úr bænum og helgarnar þá lengdar. Þar fá nemendur tíma til að sökkva sér í efnið og vinna náið saman og kynnast hópnum vel. Halló gott kynlíf (viðtal við Ágústu og Drífu jógakennara) .

Lífið

Var bara ýkt sætum konum boðið?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í indversku dömuboði á föstudaginn þar sem stórglæsilegar konur komu saman og snæddu brot af því besta er í boði á matseðli nýja veitingastaðarins Gandhi í Pósthússtræti. Þá fengu allar dömurnar að bragða dísætar cupcakes frá Friðriku Hjördísi Geirsdóttur og að loknum fordrykknum tók við veisla fyrir augu og bragðlauka en á Gandhi er suður indversk matreiðsla í hávegum höfð. Tilgangur kvöldsins var að leiða saman skemmtilegar konur og færa þær inn í kryddaða indverska heima að sögn skipuleggjenda. Athafnakonan Yesmine Olsson þeytti skífum og fyrirsætur frá Elite sýndu Dim sokkabuxur frá París en sýningarstúlkurnar voru farðaðar með Make Up Store snyrtivörum.

Lífið

Soirées-kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum

Listamennirnir Snorri Ásmundsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Ragnar Kjartansson, Saga Sigurðardóttir, Margrét Bjarnadóttir, og fleiri óvæntir gestir munu setja upp ný verk í Þjóðleikhúskjallaranum í febrúar, mars og apríl. Kynnir verður Ármann Reynisson. Fyrsta sýningin hefst klukkan níu í kvöld.

Lífið

Booka Shade á aðdáendahátíð EVE

Dansdúettinn Booka Shade kemur fram á árlegri aðdáendahátíð CCP í Laugardalshöll 26. mars. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2002, en hana sækja hundruð erlendra spilara tölvuleiksins EVE Online, blaðamanna og fólks sem starfar í skapandi iðnaði víða um heim.

Lífið

Duttlungar hermanna

Heimildarmyndin Checkpoint verður sýnd í Reykjavíkurakademíunni í kvöld klukkan átta. Samstarfsmaður leikstjórans, Ron Rotem, mun taka þátt í umræðum að sýningu lokinni en Mannfræðifélagið stendur fyrir sýningunni.

Lífið

Dávaldurinn á hvíta tjaldið á næsta ári

Kvikmynd byggð á einni vinsælustu skáldsögu síðasta árs, Dávaldinum, er í undirbúningi. Leikstjóri verður Svíinn Lasse Hallström sem á að baki myndir á borð við Mit liv som hund, What"s Eating Gilbert Grape og Chocolat.

Lífið

Jukk og Skot fara til Japan

Plöturnar Jukk með Prins Póló og Skot með Benna Hemm Hemm koma út í Japan hjá japanska útgáfufyrirtækinu Afterhours í apríl. Kimi Records, útgáfufélag Prinspóló og Benna Hemm Hemm, framseldi útgáfuréttindin á plötunum til Japans á dögunum. Afterhours, sem er þekkt fyrirtæki á sviði jaðarútgáfu, hefur einnig gefið út tónlist Kríu Brekkan, Bills Callahan og Mice Parade. Íslensku flytjendurnir fljúga til Japans á næstu mánuðum til að kynna afurðir sínar enn frekar. Plötur þeirra koma síðan út í Evrópu og Bandaríkjunum í apríl og maí.

Lífið

Útgefandi lærir íslensku í HÍ

Útgefandinn og tónlistarmaðurinn Óttar Felix Hauksson hefur í mörg horn að líta. Auk þess að skipuleggja stórtónleika í tilefni sjötugsafmælis Bobs Dylan í Hörpunni eins og Fréttablaðið greindi nýlega frá, stundar hann fullt nám í íslensku við Háskóla Íslands.

Lífið