Lífið

Leitar út fyrir landssteinana

Sonja Bent var í hópi þeirra íslensku hönnuða sem sóttu sölusýninguna CPH Vision sem fór fram í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Sonja segir sýningar sem þessa geta skapað góð tækifæri fyrir íslenska hönnuði.

Lífið

Á uppleið innan hárbransans

Sara Katrín Sigurðardóttir hefur unnið hjá hárvöruframleiðandanum Wella undanfarin þrjú ár og starfar sem listrænn stjórnandi fyrirtækisins í Danmörku auk þess sem hún er meðlimur í Norðurlandaliði hárvöruframleiðandans Sassoon.

Lífið

Gastu ekki leigt galakjól eins og hinar?

Söngkonan Lady Gaga, 24 ára, fangaði athyglina þegar hún mætti í risastóru eggi á bandarísku Grammyverðlaunahátíðina sem fram fór í Los Angeles í gærkvöldi. Fjórir karlmenn báru umrætt egg yfir rauða dregilinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en burtséð frá því landaði söngkonan þremur verðlaunum á hátíðinni.

Lífið

Houellebecq til Íslands

Franski rithöfundurinn Michel Houellebecq verður einn af gestum Listahátíðar í Reykjavík í vor. Tilefni komu hans er hundrað ára afmæli Alliance française á Íslandi.

Lífið

Skilnaðarfárið heldur áfram

Mánuðina fyrir jól barst fjöldi frétta af hjónaskilnuðum ríka og fræga fólksins í Hollywood-hæðum. Ekkert lát virðist vera þar á, í vikunni bárust fregnir af því að fleiri fræg pör hafi ákveðið að halda hvort í sína áttina.

Lífið

Klámstjarna í nýrri mynd

Daryl Hannah verður í hlutverki klámstjörnu í myndinni Snuff sem er byggð á samefndri bók eftir Chuck Palahniuk, höfund Fight Club. Hannah leikur Cassie Wright sem reynir að setja heimsmet með því að sofa hjá sex hundruð mönnum í einni og sömu klámmyndinni.

Lífið

Baksviðs á Eurovision

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs í útvarpshúsinu Efstaleiti þegar lagið Aftur heim sigraði úrslitakeppnina í ár. Umrætt lag verður framlag Íslands í Eurovision sem fram fer í Dusseldorf í Þýskalandi í vor. Lagið er eftir Sigurjón Brink og textinn eftir Þórunni Clausen eiginkonu hans. Bestu vinir Sjonna fluttu lagið, en það eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær Vigfússon, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson. Sjö lög tóku þátt en lagið Ég trúi á betra líf í flutningi Magna Ásgeirssonar varð í öðru sæti. Eins og myndirnar sýna var gríðarlega góð stemning á meðal keppenda og starfsfólks sjónvarpsins baksviðs.

Lífið

Frá lögum unga fólksins yfir í lög fyrir eldri borgara

Gerður G. Bjarklind, útvarpskona á Rás 1, stjórnaði óskalagaþættinum Óskastundin í 700. sinn í gærmorgun. Af því tilefni var haldið hóf henni til heiðurs og hún leyst út með blómum og púrtvíni af samstarfsfólki sínu í Ríkisútvarpinu.

Lífið

Ekkert múður þú kemur á Kærleikana

Á morgun, sunnudag, klukkan 17:30 munu eldar vera kveiktir á kyndlum á Austurvelli og ástin fær að blómstra. Lúðrasveit mun spila, kórar munu syngja og götuleikhús koma fólki á óvart. Hátíðin sem ber heitið Kærleikar er haldin til að skapa samkennd, veita hvatningu og styrk. Við sameinumst um að fagna kærleikanum og senda jákvæða strauma út í samfélagið," svarar Bergljót Arnarlds skipuleggjandi kærleikanna spurð út í samkomuna. Björgunarsveitirnar, Rauði Krossinn, Veraldarvinir, Lúðrasveit Verkalýðsins, Leikhópurinn Perlan, Sönglist, Hlutverkasetur hafa þegar boðað komu sína. Þá eigum við von á fjölda gesta þar á meðal Þórði Guðnasyni hetju ársins og Ragnheiður Gröndal söngkonu. Hátíðin hefst á því að nokkrir þjóðþekktir einstaklingar veita okkur fegurð og styrk með því að deila með okkur hugleiðingum um kærleikann og það sem tengir okkur saman. Að því loknu göngum við kyndlagöngu í kringum Tjörnina ásamt Lúðrasveit Verkalýðsins. Götuleikhúsfólk tekur á móti göngunni með óvæntum uppákomum. Í lok kyndlagöngu sameinast kórar Reykjavíkur við Reykjavíkurtjörn í fjöldasöng og eru allir kórar Reykjavíkur og nágrennis velkomnir. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn. Hátíðin hefur tekist einstaklega vel og skapast gríðaleg stemning," segir Bergljót. Akureyrarbær sendir okkur hjörtu sem skorin eru út í ís og prýða þau sviðið með glæsibrag. Litur hátíðarinnar er rauður og því er upplagt að mæta með eitthvað rautt í klæðum t.d. rauðan trefil, vettlinga eða í rauðri peysu."

Lífið

Versti söngleikur allra tíma

Framleiðandi söngleiksins Spider-Man: Turn off the Dark er afar ósáttur við þá gagnrýni sem hann hefur fengið í bandarískum fjölmiðlum.

Lífið

Eigum við að rifja upp hvenær þú gladdir ástina þína síðast?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Kringlunni í dag þar sem Friðrika Hjördís Geirsdóttir selur girnilegar ástarkökur í tilefni af Valentinusardeginu fram á mánudaginn næsta. Hluti af söluágóðanum rennur til styrktar Barnaspítala Hringsins og með hverri köku fylgir fallegt ástarljóð eftir afa Friðriku, Geir Gunnar Gunnlaugsson, sem er fallinn frá. Þá segir Friðrika stuttlega frá kökunum í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Jessica 6 á Austur

Bandaríska danstríóið Jessica 6 og Of Monsters and Men, sem vann Músíktilraunir í fyrra, koma fram á Austur – Live-kvöldi sem verður haldið í fyrsta sinn á skemmtistaðnum Austur í kvöld. Austur – Live er ný tónleikaröð þar sem ferskar innlendar og erlendar hljómsveitir koma fram.

Lífið

Spaghettí-plata í maí

Platan Rome, sem er samstarfsverkefni Danger Mouse úr hljómsveitinni Gnarls Barkley og ítalska tónskáldsins Daniele Luppi, kemur út 16. maí. Platan er undir áhrifum frá spaghettívestra­tónlist Ennio Morricone og var hún tekin upp í hljóðverinu Forum í Róm sem Morricone átti þátt í að stofna.

Lífið

Palli á Aldrei fór ég suður

Fyrstu flytjendurnir hafa verið bókaðir á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði um páskana. Páll Óskar Hjálmtýsson, FM Belfast, Jónas Sigurðsson, Grafík, Bjartmar og Bergrisarnir, Skálmöld, Perla Sig og Vintage ætla öll að troða upp á hátíðinni. Opinn borgarafundur var haldinn um framtíð Aldrei fór ég suður í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar kom fram að Íslandsstofa hefur lýst yfir áhuga á samstarfi við skipuleggjendur um að streyma viðburðum á netið og að fá erlenda fjölmiðlamenn á svæðið. Nýi rokkstjórinn, Jón Þór Þorleifsson, var einnig kynntur til sögunnar.

Lífið

Bjartmar tilnefndur í fyrsta sinn

„Þetta er virkilega flott og maður er bara þakklátur fyrst og fremst. Það er alltaf gott að fá hlýjan hug,“ segir tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson, sem hefur verið tilnefndur til þrennra Íslenskra tónlistarverðlauna.

Lífið

Sætu stelpurnar létu sjá sig

Meðfylgjandi myndir voru teknar af gestum á verðlaunahátíð á vegum Kvikmyndir.is og Myndir mánaðarins sem fram fór í Egilshöll í kvöld. Kvikmyndin Órói hrifsaði til sín öll áhorfenda verðlaun fyrir íslenskar myndir. Baldvin Zophoniasson var valinn besti leikstjórinn, Atli Óskar Fjalarsson besti leikarinn, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm var valin besta leikkonan og Órói kvikmynd ársins. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá leikara úr Óróa, þar á meðal Birnu Rún Eiríksdóttur sem er með milljón dollara rödd, og höfund Óróa, Ingibjörgu Reynisdóttur leikkonu

Lífið

Krimmakóngur horfir til Íslands

„Jussi er einn heitasti höfundurinn í Skandinavíu í dag og við urðum fyrst til að hreppa hnossið,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins.

Lífið

Loksins forsíðustúlka sem lítur ekki út fyrir að hafa svelt sig í ár

Leikkonan Sara Ramirez, 35 ára, sem varð heimsþekkt eftir að hún fékk hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Grey's Anatomy, er glæsileg á forsíðu Latina tímaritsins. Í umræddu forsíðuviðtali segir Sara meðal annars: Það er langur listi sem ég gæti velt mér upp úr endalaust og haft áhyggjur af. Eins og er ég nógu mjó? Er ég nógu hæfileikarík og svo framvegis. Ég geri mjög miklar væntingar til mín." Sjá meira á Latina.com og fleiri myndir af Söru í myndasafni.

Lífið

Þó líði sextíu ár

Stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson heldur upp á sextugsafmæli sitt með tónleikum í Háskólabíói á afmælisdegi sínum 16. apríl. Þar verður farið yfir einstakan feril söngvarans allt frá því að hann var kjörinn poppstjarna ársins árið 1969 fram til dagsins í dag.

Lífið

Fótboltamaður og fegurðardrottning - á föstu á Facebook

Ein helsta von okkar íslendinga í knattspyrnuheiminum Gylfi Þór Sigurðsson er kominn í samband. Sú heppna heitir Alexanda Helga Ívarsdóttir sem hlaut nafnbótina Ungfrú Ísland árið 2008. Gylfi hefur heldur betur farið vel af stað í þýska boltanum en hann er markahæsti leikmaður Hoffenheim á tímabilinu.

Lífið

15 hlutir sem þú vissir ekki um Sjálfstætt fólk

Sjálfstætt fólk, þáttur Jóns Ársæls Þórðarsonar og Steingríms Jóns Þórðarsonar, er tilnefndur til Edduverðlauna í áttunda skipti í ár. Þrisvar sinnum hafa þeir félagar hreppt verðlaunin í flokki frétta- eða viðtalsþátta.

Lífið

Elma Lísa í ruglinu: Selur flottu fötin sín á fáránlegu verði

Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona ætlar að selja fallegu fötin sín ásamt vinkonum sínum tveimur á morgun, laugardag í FÍL húsinu á bak við Þjóðleikhúsið. Elma sem er áberandi smekklega klædd kona sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvað hún ætlar að selja og það á spottprís.

Lífið

Útgáfu flýtt um viku

Breska hljómsveitin The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar Árnason innanborðs, hefur flýtt útgáfu á fyrstu plötu sinni um eina viku. Platan, sem nefnist What Did You Expect From The Vaccines, kemur út 14. mars í staðinn fyrir 21. mars. Þar með er ljóst að hún kemur ekki út á sama tíma og nýjasta plata rokkaranna í The Strokes, Angles, sem The Vaccines hefur stundum verið líkt við.

Lífið