Lífið
Ugly Betty-stjarna gift Leikkonan America Ferrera gekk í það heilaga á dögunum en hinn heppni er æskuástin og leikstjórinn Ryan Piers Williams. Parið hefur verið saman lengi en trúlofaði sig fyrir ári. Lífið 30.6.2011 09:30
Harry prins deitar undirfatamódel Harry Bretaprins hefur undanfarnar fjórar vikur verið að slá sér upp með Florence Brudenell-Bruce, 25 ára, sem skoða má í símaauglýsingu í meðfylgjandi myndskeiði. Florence lagði stund á listasögu en hefur þess á milli pósað í undirfötum. Hana dreymir um að verða kvikmyndastjarna og ætlar því að freista gæfunnar í Los Angeles í haust. Nú sitja breskir slúðurmiðlar fyrir stúlkunni og mynda hana hvert sem hún fer. Fyrirsætan átti í tveggja ára ástarsambandi við Formúlu 1 ökumanninn Jenson Button en þau hættu saman árið 2008. Lífið 30.6.2011 09:30
Gat verið - ber að ofan Leikkonan Gwyneth Paltrow, 38 ára, pósar ber að ofan í nýjasta Vanity Fair tímaritinu. Eins og sjá má í myndasafni er leikkonan eingöngu klædd í Louis Vuitton skartgripi og netasokkabuxur. Gwyneth, sem er tveggja barna móðir, er í dúndurformi enda leggur hún ríka áherslu á heilbrigt mataræði og hreyfingu. Lífið 30.6.2011 08:50
Galliano hannar brúðarkjólinn Fyrirsætan Kate Moss ætlar nú loks að ganga upp að altarinu en sá heppni er rokkarinn Jamie Hince. Brúðkaupið fer fram á heimili Moss á laugardaginn. Það er enginn annar en hönnuðurinn John Galliano sem hannar brúðarkjólinn en þeim upplýsingum hefur verið haldið leyndum hingað til. Lífið 30.6.2011 08:00
Áreynslulaus nafnaleikur Fyrsta plata Péturs Ben og Ebergs nefnist Numbers Game. Þar blanda þeir félagar saman poppi, rokki og elektróník á aðgengilegan og fagmannlegan hátt. Lífið 29.6.2011 19:30
Þetta heitir að daðra Pippa Pippa Middleton, 27 ára, var mynduð í dag á Wimbledon tennismótinu í London með Alex Loudon, sem hún hætti með í byrjun júní eftir tæplega eins árs ástarsamband. Eins og greinilega má sjá á meðfylgjandi myndum döðruðu þau við hvort annað líkt og enginn væri morgundagurinn. Nú velta slúðurmiðlar vestan hafs sér endalaust upp úr því hvort þau séu bara vinir eða sjóðheitir elskendur. Lífið 29.6.2011 17:15
Hefner fljótur að jafna sig Playboy-stofnandinn Hugh Hefner var ekki lengi að jafna sig eftir sambandsslitin við Chrystal Harris en hann er þegar kominn með tvær nýjar konur upp á arminn. Lífið 29.6.2011 15:00
Kasólétt með klikkaða útgeislun Leikkonan Jessica Alba, 30 ára, sem á þriggja ára dóttur, Honor, með eiginmanni sínum, Cash Warren, var mynduð versla í Whole Foods verslun í Kaliforníu á sunnudaginn síðasta. Eins og sjá má er Jessica stórglæsilega svona kasólétt en hún á von á sér í lok sumars. Lífið 29.6.2011 14:15
Vibskov og Mundi til Seattle Norræni tískutvíæringurinn verður haldinn í annað sinn í Seattle þann 30. september og stendur hann yfir til 13. nóvember. Norræna húsið er stofnandi tvíæringsins en listakonan Hrafnhildur Arnardóttir sinnir starfi sýningastjóra í ár. Lífið 29.6.2011 14:00
Vó þið eruð nákvæmlega eins Eins og meðfylgjandi myndir sýna er vaxstyttan af söngkonunni Aliciu Keys nákvæmlega eins og hún. Alicia sló á létta strengi þegar stytttan var formlega afhjúpuð á Madame Tussauds vaxmyndasafninu í New York í gær. Lífið 29.6.2011 13:30
Konungur næturinnar skemmtir sér með myndavélinni „Ég var alltaf úti á lífinu og eins og gengur og gerist þá tók ég með mér myndavél og fór að taka myndir af fólkinu. Það var síðan 2006 að ég ákvað að fara að gera eitthvað úr þessu,“ segir Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson ljósmyndari. Lífið 29.6.2011 13:00
Íslenski dansflokkurinn gerir góða hluti erlendis Íslenski dansflokkurinn sýndi í annað sinn á stuttum tíma á danshátið í Austuríki. Í apríl á þessu ári sýndi flokkurinn í Linz og fékk vægast sagt frábærar viðtökur. Blaðið OÖNachrichten gaf sýningunni fimm stjörnur af sex mögulegum. Í júní var ferðinni svo heitið til Dornbirn þar sem Íslenski dansflokkurinn sýndi verkið "Svanurinn“ eftir Láru Stefánsdóttur, ásamt því að sýna nýjar íslenskar dansstuttmyndir eftir Katrínu Hall og Reyni Lyngdal. Íslenski dansflokkurinn fékk mjög góðar viðtökur í Dornbirn og var uppselt á báðar sýningar flokksins. Mikil áhersla var lögð á sýningu Íslenska dansflokksins í allri kynningu á danshátíðinni og voru myndir úr Svaninum í forgrunni í öllum kynningarefni ásamt myndefni út náttúru Íslands. Þessi mikla athygli útheimti að dansarar stæðu undir miklu væntingum sem þeir gerðu með sóma. Flokkurinn fékk einkar góða umsögn í þarlendum blöðum. Lífið 29.6.2011 11:18
Magnús Scheving á háborði spænsku krúnunnar „Prinsessan tjáði mér að stelpur þeirra hjóna væru miklir aðdáendur Latabæjar. Ég sagði henni að ég væri með tvo Sollu stirðu-búninga með mér og að þær mættu fá þá,“ segir Magnús Scheving. Lífið 29.6.2011 11:00
Skilin í annað sinn Californication stjarnan David Duchovny, 50 ára, og leikkonan Tea Leoni, 45 ára, eru skilin að borði og sæng. Þau hafa ákveðið að skilja í óákveðinn tíma en þau ætla að sjá til hvað þau ákveða að gera í framhaldinu. Þau giftu sig í maí árið 1997 og eignuðust saman tvö börn, Madelaine og Kyd. Í október 2008 skildu þau örfáum vikum eftir að David útskrifaðist úr kynlífsmeðferð. Það var síðan ári síðar að þau tóku saman á ný. Skoða má myndir af þeim í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 29.6.2011 10:36
Hágrátandi fyrirsæta Fimm ára krullhærð fyrirsæta hágrét á Smalto tískusýningunni í París síðasta laugardag. Eins og myndirnar sýna leiddi brasilíska ofurfyrirsætan Alexandre Cunha hágrátandi drenginn en tók hann síðan í fang sér í lokaatriðinu og þá var fimm ára fyrirsætan enn að jafna sig. Drengurinn bræddi nærstadda með tárum sínum. Haft var á orði að margar fyrirsætur eru oftar en ekki hágrátandi innra með sér en halda andlitinu á pöllunum. Barninu var hinsvegar slétt sama og þerraði stöðugt tárin. Sjá drenginn í meðfylgjandi myndskeið (08:36) og í blálokin. Facebook-leikur Lífsins. Vertu með hér! Lífið 29.6.2011 09:41
Leikaraliðinu leiddist greinilega ekki Meðfylgjandi myndir voru teknar á veitingahúsinu Kex í gærkvöldi á árshátíð Brynjanna og Útlaganna sem eru félög leikkvenna og leikara sem lærðu erlendis. Félögin eru nú orðin þriggja ára og fara ört stækkandi enda sífellt fleiri sem sækja nám sitt utan landsteinanna. Síða Brynjanna á Facebook. Síða Útlaganna á Facebook. Facebook-leikur Lífsins. Vertu með hér! Lífið 29.6.2011 09:05
Alan og Íris gefa út brúðkaupsballöðu Tónlistarmaðurinn Alan Jones gefur um miðjan júlí út ballöðuna Stay With Me ásamt Írisi Hólm. „Þetta er hálfgert brúðkaupslag. Við vonum að þegar fólk heyri það vilji það nota lagið í brúðkaupunum sínum,“ segir Alan. Lífið 29.6.2011 08:30
Davíð fékk vespuna skemmda til baka "Vespan fannst í Írabakka. Lögreglan í Kópavogi kom með hana heim áðan. Lögreglumaðurinn var búinn að sjá fréttina á Visir.is í dag og hringdi í mig. Ég þakka kærlega fyrir þetta," sagði Bryndis Erna móðir Davíðs... Lífið 28.6.2011 21:39
Dama í gær drusla í dag Leikkonan Drew Barrymore, 36 ára, var mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles í gærdag, klædd í gallbuxur og Iron Maiden bol með nýja kærastanum sínum, Will Kopelman. Þá má einnig sjá Drew uppáklædda á rauða dreglinum í síðustu viku í myndasafni. Eftir að Drew sat fyrir léttklædd í Playboy árið 1995 sendi leikstjórinn Steven Spielberg henni bútasaumsteppi með orðunum breiddu yfir þig. Eintak af blaðinu fylgdi með þar sem búið var að breyta öllum myndum af henni þannig að hún var fullklædd á þeim öllum. Lífið 28.6.2011 19:25
Viltu frítt eintak af Léttara og betra líf? Léttara og betra líf er leiðarvísir danska ráðgjafans og sjónvarpskonunnar Lene Hansson til heilsubótar og vellíðunar – um er að ræða átta vikna áætlun þar sem hollmeti og hreyfing vísar veginn til breyttra og bættra lífshátta. Kvittaðu á Facebook síðu Lífsins, deildu leiknum á þinni Facebook síðu og hver veit nema heppnin verði með þér. Við drögum út fimm heppna þátttakendur næsta föstudag, 1. júlí. Vertu með ef þú vilt taka mataræðið í gegn hér. Í meðfylgjandi myndskeiði spyrjum við Lene út í svokallaðan svarta lista sem inniheldur fæðutegundir sem hún ráðleggur fólki sem vill grennast og bæta heilsuna alls ekki að neyta. Lífið 28.6.2011 18:36
Ýkt sæt svona ómáluð Þýska fyrirsætan Claudia Schiffer, 40 ára, tekur sig vel út í Chanel gleraugnaherferð fyrir haustið 2011 eins og sjá má í myndasafni. Claudia lét hafa eftir sér í tímaritinu Harper´s Bazaar að hún ætlar innan tíðar að setja eigin prjónafatalínu á markað. Ég er mjög bjartsýn og jákvæð varðandi verkefnið en á sama tíma pínu taugaveikluð. Ég hef alltaf ætlað mér að framleiða eitthvað sem ég sjálf er mjög hrifin af, eitthvað sem ég er virkilega stolt af, lét fyrirsætan hafa eftir sér. Þá má sjá Claudiu, sem á þrjú börn, á hlaupum fyrir utan skóla elstu barnanna sinna, sem eru 6 og 8 ára, ómálaða með slegið hárið. Lífið 28.6.2011 17:25
Rappari skrifar um einelti 50 Cent vinnur nú að bók um einelti. Rapparinn hefur þegar skrifað undir samning við bókaútgefandann Ben Schrank um innihald bókarinnar, en hún mun kallast Playground og vera skáldsaga byggð á hans eigin æsku. Lífið 28.6.2011 17:00
Trúir á Lindsay Lohan Leikarinn og fyrrverandi kærasti Lindsay Lohan, Wilmer Valderrama, segist ennþá hafa trú á leikkonunni þrátt fyrir mikil vandræði hennar upp á síðkastið. Valderrama og Lohan voru saman árið 2004 en leikarinn, sem er þekktastur fyrir leik sinn í þáttaröðinni That ‘70s Show, tjáir sig um Lohan í viðtali við blaðið People. Lífið 28.6.2011 16:00
Tilvonandi prinsessa er bæði óörugg og kvíðin Albert prins af Mónakó gengur að eiga sunddrottninguna Charlene Wittstock um næstu helgi. Tilvonandi prinsessa hefur átt í erfiðleikum með að aðlagast menningunni og tungumálinu í Mónakó. Henni hefur verið bannað að veita viðtöl fram að brúðkaupinu. Lífið 28.6.2011 15:00
Paris stofnar hótelkeðju Paris Hilton ætlar að stofna hótelkeðju, eins og langafi hennar, Conrad Hilton, gerði árið 1925 en hann er maðurinn á bak við Hilton-hótelin heimsþekktu. Hin þrítuga Paris hætti með kærasta sínum Cy Waits á dögunum og vill nú ólm einbeita sér að nýjum verkefnum, en hún hefur þegar hannað föt, skó og ilmvötn undir sínu nafni. Lífið 28.6.2011 14:00
Hjálpum Davíð að finna vespuna sína "Vespan hans Davíðs var læst fyrir framan eldhúsgluggann okkar í hleðslu og á sunnudeginum um hádegið kíkti ég út. Þá hélt ég að Davíð hefði farið á vespunni til pabba síns þannig að ég var ekkert að hafa áhyggjur af því," segir Bryndís Erna Thoroddsen móðir þrettán ára drengs, Davíðs, sem saknar vespunnar sinnar sárt en henni var stolið aðfaranótt sunnudags í Asparlundi í Garðabæ. Davíð var að leika í leikhúsinu, í Skoppu og Skrýtlu, og vann sér inn 150 þúsund krónur. Hann keypti sér vespuna í október í fyrra fyrir launin, ofsalega stoltur," útskýrir Bryndís Erna. Hún er af gerðinni Zuzuki, aðallega hvít á litin með smá gráu og það er bara einn spegill á henni en flestar eru með tveimur speglum. Já já við erum búin að keyra út um allt og hann er búinn að tala við krakkana í hverfinu," segir Bryndís spurð hvort þau hafi leitað að vespunni í í hverfinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá skutluna hans Davíðs. Vinsamlegast hafið augun opin fyrir vespunni hans Davíðs. Sími Bryndísar er 6973912. Allar ábendingar vel þegnar. Lífið 28.6.2011 13:06
Hann er fáránlega sætur „Það eru fyrst og fremst sagan hans og lögin sem heilla stelpur, en svo er hann auðvitað alveg fáránlega sætur,“ segir María Mjöll Björnsdóttir, 16 ára Kópavogsmær og einn helsti Justin Bieber-aðdáandi Íslands. Lífið 28.6.2011 13:00
Þú eldist fáránlega vel Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eldist ástralska leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, fáránlega vel. Leikkonan brosti blítt í gærdag þegar hún mætti á flugvöllinn í Sydney í Ástralíu ásamt dætrum sínum Sunday og Faith. Þá má sjá Nicole ásamt barnsföður sínum og eiginmanni Keith Urban sem gaf nýverið út lagið Without You í myndasafni. Lífið 28.6.2011 12:13
Kate týndi hringnum á Glastonbury Kate Moss týndi trúlofunarhring sínum á Glastonbury-hátíðinni um helgina. Fyrirsætan var stödd á tónleikum The Kills þegar hún uppgötvaði að hringurinn var horfinn, en kærasti hennar, Jamie Hince, er gítarleikari hljómsveitarinnar. Lífið 28.6.2011 12:00
Kristrún Ösp og Dwight Yorke byrjuð saman aftur Já erum svona að spá í þessu aftur. Ég fór bara stutt út núna og ætla hitta hann aftur í næsta mánuði, svarar Kristrún Ösp spurð hvort hún sé aftur byrjuð með fótboltakappanum Dwight Yorke. Líklegast til Barbados eða Trinidad, bætir hún við. Ég fór til Manchester að hitta hann yfir helgina og við keyrðum saman til London og höfðum það gott yfir helgina saman., Ég var að koma heim núna rétt áðan, sagði Kristrún Ösp áður en við kvöddum hana rétt í þessu. Lífið 28.6.2011 11:29