Lífið

Rikka gerir ekki upp á milli keppenda

Úrslitaþáttur MasterChef Ísland er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld og þá kemur í ljós hver verður fyrsti meistarakokkur Íslands. Þau Gunnar Helgi Guðjónsson, myndlistarmaður og kaffibarþjónn, og Jenný Rúnarsdóttir, starfsmaður hjá Te & Kaffi, keppa um þennan eftirsótta titil. Spennan verður rafmögnuð í kvöld að sögn Friðriku Hjördísar Geirsdóttur, dómara í MasterChef.

Lífið

Ósátt við RIhönnu

Slest hefur upp á vinskap söngkvennanna Rihönnu og Katy Perry vegna sambands þeirrar fyrrnefndu og Chris Brown. Samkvæmt heimildum er Perry ósátt við samband Rihönnu og Brown og hefur hún ærna ástæðu til.

Lífið

Slúðursögur pirra konuna

Leikarinn Hugh Jackman viðurkennir að sögusagnir um kynhneigð hans fari í taugarnar á eiginkonu hans, Deborru-Lee Furness. Þetta kemur fram í viðtali við The Hollywood Reporter.

Lífið

Franski sjónvarpsþátturinn Bachelor á Íslandi

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá franska útgáfu af Bachelor raunveruleikasjónvarpsþættinum sem var meðal annars tekinn upp á Íslandi eins og þegar piparsveinninn fer meðal annars í Bláa Lónið, á vélsleða og á Slippbarinn með konunum sem hann leitast við að kynnast og væntanlega verða ástfanginn af.

Lífið

Skapandi ský á Adobe-ráðstefnu

Alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækið Adobe hefur endurnýjað samstarf sitt við Advania sem umboðsaðila fyrirtækisins á Íslandi. Af því tilefni bauð Adobe bauð grafískum hönnuðum og fagfólki í vídeóvinnslu til ráðstefnu hjá Advania í dag undir yfirskriftinni "Skapandi ský“. Að ráðstefnu lokinni var tæplega 400 ráðstefnugestum og öðrum viðskiptavinum Advania boðið til tónleika Jónasar Sigurðssonar og hljómsveitar í nýrri verslun fyrirtækisins við Guðrúnartún.

Lífið

Spennan stigmagnast fyrir Sónar hátíð helgarinnar

Stephan Stephensen og Dj Margeir skipa dúettinn Gluteus Maximus sem kemur fram ásamt fjölda söngvara á Sónar tónlistarhátíðinni í Hörpu um helgina. Stephan er góðkunningi Sónar hátíðarinnar og hefur fylgst með henni árum saman eins og fram kemur í meðfylgjandi myndbandi þar sem útvarpsmaðurinn Frosti Logason tekur viðtal við Stephan. Samaris, Ólafur Arnalds og Gluteus Maximus eru íslensk bönd sem hafa verið tilkynnt á dagskrá Sónar í Barcelona á Spáni en þar verður hátíðinr haldin í tuttugasta sinn aðra helgina í júní og verður það að teljast mikill heiður að koma þar fram þar sem þetta er talin ein allra virtasta tónlistarhátíð heims. Spennan stigmagnast og enn eru örfáir miðar til sölu á midi.is og harpa.is á þessa risastóru tónlistar veislu.

Lífið

"Þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi"

"Já þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi þar sem þetta hefur ekki gerst í tæp 30 ár að bandarískt bætiefnafyrirtæki semji við íslenskan vaxtarræktarmann. Síðast þegar það gerðist þá var það árið 1984 að Weider fyrirtækið samdi við Jón Pál Sigmarsson heitinn," segir Svavar Jóhannson eigandi Fitness Sport sem er umboðsaðili Muscletech á íslandi.

Lífið

Djörf og kynþokkafull

Söngkonan Beyonce geislaði í orðsins fyllstu merkingu á frumsýningu myndar sinnar Life Is But A Dream í Ziegfeld Theater í New York á þriðjudagskvöldið.

Lífið

Fallegasta konan í sjónvarpi

Sjónvarpsstjarnan Elisha Cuthbert er íðilfögur á forsíðu marsheftis Maxim sem kemur í verslanir vestan hafs þann 19. febrúar. Tímaritið veitir Elishu nafnbótina “Fallegasta konan í sjónvarpi”.

Lífið

Ólétt í leðurbuxum

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian bauð upp á níðþröngar leðurbuxur og himinháa hæla er hún keypti sér frosna jógúrt með sínum heittelskaða, tónlistarmanninum Kanye West, í Los Angeles í vikunni.

Lífið

Pabbi í fyrsta sinn á sjötugsaldri

Grínarinn Steve Martin er orðinn faðir í fyrsta sinn, 67 ára gamall. Hann eignaðist litla gullmolann með eiginkonu sinni Anne Stringfield en skötuhjúin eru búin að ná að halda barneignunum leyndum fyrir fjölmiðlum um hríð.

Lífið

Myndin sem er að gera allt brjálað

Bandaríska slúðurblaðið Star birtir mynd af óléttri Kate Middleton í bikiníi á forsíðu nýjasta heftis blaðsins. Myndin var tekin af hertogynjunni er hún fór í frí með Vilhjálmi prins á eyjunni Mustique.

Lífið

Dásamlegt dömuboð

Í tilefni af opnun veitingastaðarins MAR í Hafnarbúðunum við Geirsgötu var haldið dásamlegt kvennaboð í gærkvöldi þar sem nokkrum útvöldum konum var boðið að njóta ævintýraferðar um matseðil staðarins. Þá hófst boðið í Mýrinni sem er hönnunarverslun sem tengist matsölustaðnum á skemmtilegan hátt.

Lífið

Anna Mjöll: Mamma leiddi mig inn kirkjugólfið

Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir kom til landsins í síðustu viku og gekk að eiga unnusta sinn Luca Ellis í Árbæjarsafni. Eins og sjá má á myndunum var söngkonan stórglæsileg klædd í fallegan ljósan blúndukjól með uppsett hárið og perlufesti um hálsinn. Þá var móðir Önnu, Svanhildur Jakobsdóttir, klædd í buxnadragt glæsileg eins og ávallt. Bróðir Önnu, Andri Gaukur sem er skurðlæknir í New Hampshire, var einnig viðstaddur en hann og Svanhildur voru svaramenn brúðarinnar.

Lífið

Fjölbreyttar myndir helgarinnar

Uppvakningar verða ástfangnir, Öskubuska verður hetja villta vestursins og rúmenskar uppeldissystur lenda í dramatískum ævintýrum í bíói um helgina.

Lífið

Reynsla Högna er ómetanleg

Hljómsveitin Hjaltalín er byrjuð að semja og taka upp tónlistina við leikritið Engla alheimsins sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 20. apríl.

Lífið

Nýtt lag frá The Strokes

Bandaríska hljómsveitin The Strokes hefur sent frá sér nýtt lag af væntanlegri plötu, Comedown Machine, og nefnist það All the Time.

Lífið

Tarantino vill gera þríleik

Quentin Tarantino langar að "endurskrifa söguna" í sinni næstu kvikmynd, líkt og hann hefur gert í síðustu tveimur, Django Unchained og Inglorious Basterds.

Lífið

Ásgeir Trausti spenntur fyrir Sónar

Í meðfylgjandi myndskeiði segir Ásgeir útvarpsmanninum Frosta Logasyni að hann sé loksins farinn að venjast því að koma fram fyrir fullum sal af fólki. Einnig segist hann vera spenntastur fyrir því að sjá James Blake og Squarepusher koma fram á hátíðinni.

Lífið

Selur heimilið með gróða

Spéfuglinn Tyler Perry er búinn að selja heimili sitt í Hollywood-hæðum á 11,5 milljónir dala, tæpan einn og hálfan milljarð króna.

Lífið