Lífið

Spennan stigmagnast fyrir Sónar hátíð helgarinnar

Ellý Ármanns skrifar
Stephan Stephensen og Dj Margeir skipa dúettinn Gluteus Maximus sem kemur fram ásamt fjölda söngvara á Sónar hátíðinni í Hörpu um helgina.

Stephan er góðkunningi Sónar hátíðarinnar og hefur fylgst með henni árum saman eins og fram kemur í meðfylgjandi myndbandi þar sem útvarpsmaðurinn Frosti Logason tekur viðtal við Stephan.

Samaris, Ólafur Arnalds og Gluteus Maximus eru íslensk bönd sem hafa verið tilkynnt á dagskrá Sónar í Barcelona á Spáni en þar verður hátíðin haldin í tuttugasta sinn aðra helgina í júní og verður það að teljast mikill heiður að koma þar fram þar sem þetta er talin ein allra virtasta tónlistarhátíð heims.

Spennan stigmagnast og enn eru örfáir miðar til sölu á midi.is og harpa.is á þessa risastóru tónlistar veislu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×