Erlent
Piers Morgan móðgaðist og strunsaði út úr stúdíóinu Piers Morgan, einn þáttastjórnanda Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni, strunsaði út úr myndverinu í beinni útsendingu í morgun í kjölfar umræðu um hið margumtalaða viðtal Opruh Winfrey við Meghan Markle og Harry Bretaprins. Erlent 9.3.2021 10:13
Svipta Puigdemont og tvo til viðbótar friðhelgi Meirihluti Evrópuþingsins hefur samþykkt að svipta Evrópuþingmanninn Carles Puigdemont friðhelgi. Puigdemont er fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, en auk Puigdemont hafa tveir Evrópuþingmenn til viðbótar verið sviptir friðhelgi. Erlent 9.3.2021 08:53
Krísufundir hjá konungsfjölskyldunni vegna viðtalsins Breska konungsfjölskyldan hefur haldið krísufundi í kjölfar viðtals Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex, þau Meghan Markle og Harry Bretaprins. Viðtalið var frumsýnt á CBS-sjónvarpsstöðinni á sunnudagskvöld en sýnt í Bretlandi í heild sinni í gærkvöldi. Erlent 9.3.2021 08:42
Ógildir dóm yfir Lula sem gerir honum kleift að bjóða sig fram á ný Dómari í Brasilíu hefur ógilt dóm yfir Luiz Inácio Lula da Silva, fyrrverandi forseta landsins, sem hann hlaut vegna spillingar. Niðurstaðan gerir það að verkum að Lula gæti boðið sig fram að nýju í forsetakosningunum 2022. Erlent 9.3.2021 07:37
Sjálfstæðir fjölmiðlar í Mjanmar sviptir útvarpsleyfinu Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur bannað fimm fjölmiðlafyritækjum í landinu að starfa og er ástæðan sú að fjölmiðlarnir sögðu frá hinum víðtæku mótmælum sem staðið hafa yfir síðan herforingjarnir tóku völdin í Mjanmar á dögunum. Erlent 9.3.2021 07:34
Þrettán ára stúlka játar lygar sem leiddu til grimmilegs morðs Frönsk stúlka hefur játað að hafa logið um Samuel Paty, kennara sem var myrtur á grimmilegan máta í október. Lygar hennar og ófrægingarherferð föður hennar eru sagðar hafa leitt til dauða kennarans. Erlent 8.3.2021 23:50
Ekkert fararsnið á ríkisstjóra þrátt fyrir röð ásakana Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segist ekki ætla að segja af sér þrátt fyrir að hafa misst stuðning leiðtoga Demókrataflokksins í ríkinu. Fjöldi kvenna hefur stigið fram og sakað Cuomo um kynferðislega áreitni. Stjórn Cuomo er einnig sökuð um að hafa reynt að hylma yfir fjölda dauðsfalla á hjúkrunarheimilum í kórónuveirufaraldrinum. Erlent 8.3.2021 17:04
Bólusettir geta hist grímulausir Fólk sem hefur verið bólusett við kórónuveirunni getur hist innandyra án þess að vera með grímu eða halda fjarlægðarmörk samkvæmt nýjum leiðbeiningum bandarísku sóttvarnastofnunarinnar sem voru kynntar í dag. Erlent 8.3.2021 16:27
Fórnarlömbum kongósks stríðsherra dæmdar metbætur Barnahermönnum og öðrum fórnarlömbum Boscos Ntaganda, kongóska stríðsherrans, voru saman dæmdar þrjátíu milljón dollara, jafnvirði meira en 3,8 milljarða íslenskra króna, miskabætur í Alþjóðasakamáladómstólnum í Haag í dag. Bæturnar eru þær hæstu sem dómstóllinn hefur dæmt til þessa. Erlent 8.3.2021 13:33
Assad-hjónin sögð smituð af kórónuveirunni Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, og Asma eiginkona hans greindust smituð af kórónuveirunni. Í opinberri yfirlýsingu forsetaembættisins segir að forsetahjónin þjáist aðeins af vægum einkennum. Erlent 8.3.2021 12:39
Réttarhöld yfir lögreglumanninum sem drap George Floyd að hefjast Taugar eru þandar í Minneapolis í Bandaríkjunum vegna réttarhalda yfir lögreglumanni sem varð George Floyd að bana sem hefjast í þessari viku. Byrjað verður að velja kviðdómendur í málinu í dag en upphaf réttarhaldanna gæti enn frestast. Erlent 8.3.2021 12:30
Menn taldir hafa eyðilagt eða eytt stærstum hluta regnskóganna Um tveir þriðju hlutar regnskóga jarðarinnar hafa verið eyðilagðir eða eyddir vegna athafna manna. Meira en helmingurinn skógareyðingarinnar frá árinu 2002 hefur átt sér stað í Amasonfrumskóginum og öðrum regnskógum í nágrenni hans í Suður-Ameríku. Erlent 8.3.2021 11:15
Slæðubann samþykkt í Sviss Naumur meirihluti Svisslendinga samþykkti bann við andlitsdulum í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Bannið nær til slæða sem konu af múslimatrúa klæðast, þar á meðal til búrkna og andlitsslæða. Erlent 8.3.2021 10:25
Tugir látnir eftir miklar sprengingar í Miðbaugs-Gíneu Að minnsta kosti tuttugu fórust og um sex hundruð særðust þegar miklar sprengingar urðu við herstöð í borginni Bata í Miðbaugs-Gíneu í gærkvöldi. Erlent 8.3.2021 08:21
Meghan Markle: „Ég vildi ekki lifa lengur“ Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, segir að breska konungsfjölskyldan hafi skapað svo rasískt andrúmsloft að hún hafi á tímabili verið í sjálfsvígshugleiðingum á meðan hún gekk með fyrsta barn og sitt og Harrys Bretaprins, Archie. Erlent 8.3.2021 06:42
Látin laus eftir fimm ára afplánun Nazanin Zaghari Ratcliffe, bresk-írönsk kona sem dæmd var í fimm ára fangelsi fyrir njósnir í Íran í september árið 2016, var látin laus úr stofufangelsi í dag. Nýtt mál á hendur henni gæti þó farið fyrir dóm í Íran í næstu viku og því óljóst um framtíð hennar. Erlent 7.3.2021 23:00
Franskur milljarðamæringur lést í þyrluslysi Franski milljarðamæringurinn og stjórnmálamaðurinn Olivier Dassault er látinn, 69 ára að aldri. Dassault lést eftir að einkaþyrla hans hrapaði í Normandí í Frakklandi síðdegis í dag. Erlent 7.3.2021 20:27
Samþykktu tveggja billjóna efnahagsaðgerðir Bidens vegna faraldursins Einn af hverjum þremur Bandaríkjamönnum hafa misst einhvern nákominn vegna Covid-19. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær efnahagslegar mótvægisaðgerðir Joes Biden Bandaríkjaforseta til bregðast við áhrifum faraldursins. Erlent 7.3.2021 13:47
Harmar að embættisfólk hafi fengið bólusetningu fyrr en forgangshópar Sendiherra Færeyja í London fékk ásamt maka sínum bólusetningu í lok janúar eftir að mennta- og utanríkisráðuneytið þar í landi hafði sent beiðni þess efnis til landlæknisins í lok síðasta árs. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, segir að héðan í frá verði öllum bólusetningaráætlunum fylgt og forgangshópar virtir. Erlent 6.3.2021 23:49
Vill snúa aftur á K2 í sumar til að aðstoða við leit Fjallgöngumaðurinn Noel Hanna hefur boðið fram aðstoð sína ef farið verður í leitarleiðangur á K2 í sumar. Hanna ætlaði sér að komast á topp fjallsins í síðasta mánuði en sneri við þegar veður fór versnandi, skömmu áður en síðast spurðist til John Snorra og félaga hans. Erlent 6.3.2021 22:34
Trump bannar Repúblikönum að nota nafn sitt í fjáröflun Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er afar ósáttur við Repúblikanaflokkurinn noti nafn sitt við fjáröflun og á varningi sem seldur er til stuðningsmanna flokksins. Hafa lögmenn hans sent kröfu um að því verði hætt tafarlaust. Erlent 6.3.2021 18:06
John McAfee ákærður fyrir að plata fólk til að fjárfesta í rafmynt Tæknifrumkvöðullinn John McAfee, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað McAfee vírusvarnarfyrirtækið, hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir fjársvik og peningaþvætti. Erlent 6.3.2021 14:07
Fyrsta ökuferð Perseverance á rauðu reikistjörnunni Bandaríski könnunarjeppinn Perseverance notaði hjól sín í fyrsta skipti og ók stuttan spöl á reikistjörnunni Mars í gær. Enn er verið að búa tæki og tól jeppans fyrir fimmtán kílómetra langt ferðalag um yfirborð reikistjörnunnar næstu tvö árin. Erlent 5.3.2021 23:39
Sameinuðu þjóðirnar fá engin svör vegna týndu prinsessunnar Tveimur vikum eftir að Sameinuðu þjóðirnar báðu um sannanir fyrir því að dóttir ráðanda Dubaí væri á lífi, hafa þær ekki borist. Dóttirin, prinsessan Latifa Al Maktoum, hefur undanfarin ár gengið undir nafninu „Týnda prinsessan“. Erlent 5.3.2021 15:15
Öllum stafar ógn af ríkjum í afneitun og feluleik Þrjú ríki virðast í afneitun eða feluleik þegar kemur að Covid-19 og hafa ekki deilt upplýsingum um stöðu mála. Umrædd ríki eru Tansanía, Túrkmenistan og Norður-Kórea en sérfræðingar segja áhyggjuefni að SARS-CoV-2 fái mögulega að grassera óáreitt á ákveðnum stöðum. Erlent 5.3.2021 14:28
Embættismaður og Trump-liði tók þátt í árásinni á þingið Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) handtóku í gær mann sem var starfaði í ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að hafa tekið þátt í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar. Erlent 5.3.2021 13:54
Byrja að þróa tækni til að sækja sýni Perseverance og koma þeim til jarðar Geimvísindastofnun Bandaríkjanna hefur gert samning við fyrirtækið Northrop Gumman Systems um að þróa leið til að koma jarðvegssýnum af yfirborði Mars og til jarðarinnar. Erlent 5.3.2021 12:59
Mannapar í San Diego bólusettir gegn Covid-19 Níu mannapar í dýragarðinum í San Diego hafa verið bólusettir gegn Covid-19. Um er að ræða fjóra órangúta og fimm simpasa, sem hafa fengið tvo skammta af bóluefni frá Zoetis, fyrirtæki sem framleiðir lyf fyrir dýr. Erlent 5.3.2021 12:38
Segir ósanngjarnt að hann sé í fangelsi Richard Barnett, sem naut fimmtán mínútna heimsfrægðar í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, er ekki sáttur við að sitja í fangelsi. Hann missti stjórn á sér í dómsal í gær og gargaði á dómara í gegnum fjarfundarbúnað að hann ætti ekki að þurfa að sitja inni fram að réttarhöldum. Erlent 5.3.2021 11:28
Dauðsföll ná nýjum hæðum og Bolsonaro segir fólki að hætta að væla Dauðsföll vegna Covid-19 hafa náð nýjum hæðum í Brasilíu. Undanfarna tvo daga hefur metfjöldi fólks dáið vegna sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur og í gærkvöldi sagði Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, fólki að hætta að væla. Erlent 5.3.2021 10:34