Erlent
Engin alvarleg blóðsegavandamál síðustu fjórar vikur Engar tilkynningar um alvarleg blóðsegavandamál hafa verið tilkynnt á Bretlandseyjum í kjölfar bólusetninga síðustu fjórar vikur. Vísindamenn segja þetta mega rekja til þess að tilmælum var breytt þannig að yngri en 40 ára fá ekki bóluefnið frá AstraZeneca. Erlent 12.8.2021 12:51
Valta yfir stjórnarherinn: Ríkisstjórnin býðst til að deila völdum með Talibönum Vígamenn Talibana náðu í morgun tökum á þeirra tíundu héraðshöfuðborg í Afganistan. Á undanfarinni viku virðast Talibanar hafa valtað yfir stjórnarher landsins og sveitir stríðsherra sem styðja ríkisstjórnina. Erlent 12.8.2021 12:45
Shell greiðir milljarða vegna olíuleka í Nígeríu fyrir hálfri öld Olíurisinn Shell hefur loks fallist á að greiða nígerískum þjóðflokki meira en fjórtán milljarða króna í bætur vegna meiriháttar olíuleka í Biafra-stríðinu á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar með lýkur áralöngum málaferlum vegna lekans. Erlent 12.8.2021 10:04
Átta taldir af í þyrluslysi á Kamtjatkaskaga Óttast er að átta manns hafi farist þegar þyrla með ferðamenn um borð hrapaði í stöðuvatn á náttúruverndarsvæði á Kamtjatkaskaga austast í Rússlandi í dag. Átta aðrir sem voru um borð náðu að bjarga sér út úr flakinu. Erlent 12.8.2021 09:00
Skraut af brúðartertu Karls og Díönu selst á 325 þúsund krónur Kökuskraut ofan af brúðkaupstertu Karls Bretaprins og Díönu prinsessu seldist nýverið á uppoði fyrir 1.850 pund, jafnvirði 325 þúsund íslenskra króna. Karl og Díana gengu í hjónaband fyrir rúmum fjörtíu árum, 29. júlí 1981. Erlent 12.8.2021 08:10
Umdeilt fjölmiðlafrumvarp samþykkt og stjórnin missir meirihlutann Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær umdeilt fjölmiðlafrumvarp sem stjórnarandstæðingar segja miða að því að múlbinda sjónvarpsstöð sem hefur verið gagnrýnin á störf stjórnar landsins. Erlent 12.8.2021 08:03
Rússneskur auðjöfur og pólitíkus játar að hafa orðið manni að bana Rússneskur stjórnmálamaður hefur játað að hafa orðið manni að bana en segist hafa haldið að um væri að ræða björn. Stjórnmálamaðurinn, Igor Redkin, er sagður einn auðugasti embættismaður Rússlands. Erlent 12.8.2021 07:09
Þúsundir leita skjóls í Kabúl en enda á götunni Þúsundir manna hafa flúið heimili sín víðs vegar um Afganistan undan stórsókn Talibana til höfuðborgarinnar Kabúl. Erlent 12.8.2021 06:47
Lok og læs á Nýja-Sjálandi út árið Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands tilkynnti í gær að landamæri ríkisins verði lokuð út þetta ár vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar. Það væri besta leiðin til að halda veirunni í skefjum og efnahagslífinu gangandi. Erlent 12.8.2021 06:38
Segja evrópskt hitamet hafa fallið í dag Mögulegt er að mesti hiti í Evrópu frá upphafi mælinga hafi mælst í dag, en stjórnvöld á Sikiley segja að 48,8 gráðu hiti hafi mælst skammt frá borginni Siracusa. Erlent 11.8.2021 21:43
Saka Navalní um að brjóta á réttindum fólks Rússnesk yfirvöld hafa lagt fram nýjar ákærur á hendur Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem allt að þriggja ára fangelsisdómur liggur við. Félagasamtök sem Navalní stofnuðu eiga að hafa „brotið á réttindum“ fólks, að sögn yfirvalda. Erlent 11.8.2021 15:53
Stærstu gróðureldar á jörðinni loga í Síberíu Gróðureldar sem nú loga á þúsundum ferkílómetra lands í Síberíu eru stærri en allir aðrir gróðureldar sem loga á jörðinni. Rússnesk yfirvöld berjast nú við fleiri en 190 skógarelda en tugir annarra elda fá að loga óáreittir fjarri mannabyggð. Erlent 11.8.2021 14:53
Breti handtekinn í Þýskalandi fyrir að njósna fyrir Rússa Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið breskan mann sem vann í sendiráði Breta í Berlín. Maðurinn er sakaður um að hafa njósnað fyrir Rússa. Erlent 11.8.2021 13:11
Minnst 65 fórust í umfangsmiklum eldum í Alsír Minnst 65 dóu vegna umfangsmikilla skógarelda í Alsír í gær. Þar á meðal voru 28 hermenn sem voru að hjálpa við slökkvistarf og brottflutning íbúa í Kabylie-héraði. Smærri eldar loga í minnst sextán öðrum héruðum landsins. Erlent 11.8.2021 10:59
Þúsundir fengu saltvatnslausn í stað bóluefnis Yfirvöld í norðurhluta Þýskalands hafa biðlað til fjölda einstaklinga um að þiggja viðbótarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eftir að grunur vaknaði um að hjúkrunarfræðingur hefði sprautað þúsundir með saltvatnslausn í stað bóluefnis. Erlent 11.8.2021 08:58
Getur ekki falið sig á bakvið „auð og vald og hallarveggi“ Hertoginn af York getur ekki falið sig á bakvið „auð og hallarveggi“ og verður að svara þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar fyrir bandarískum dómstólum. Þetta segir lögmaður Virginiu Giuffre, sem hefur sakað Andrés Bretaprins um nauðgun. Erlent 11.8.2021 08:04
Kanadamaður dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir njósnir í Kína Kínverskur dómstóll dæmdi í gær Michael Spavor frá Kanada í ellefu ára fangelsi fyrir njósnir. Hann og samlandi hans Michael Kovrig hafa verið í gæsluvarðaldi í tvö ár. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp yfir Kovrig. Erlent 11.8.2021 07:38
Dóttir Bernie Ecclestone sakar Sverri um svik og pretti Fyrirsætan Tamara Ecclestone fer ófögrum orðum um athafnamanninn Sverri Einar Eiríksson á Instagram, þar sem hún segir hann meðal annars hafa leigt fasteign af góðri vinkonu sinni en ekki greitt leigu í tíu mánuði. Erlent 11.8.2021 07:17
Facebook lokar áróðurssíðum gegn vestrænum bóluefnum Stjórnendur Facebook segja að hundruð reikinga eða notenda með tengsl við Rússlandi hafi verið fjarlægðir vegna herferðar þeirra gegn tilteknum bóluefnum og falsfrétta um þau. Erlent 11.8.2021 06:45
Biden segir Afgana þurfa að berjast fyrir landinu sínu Joe Biden forseti Bandaríkjanna segist ekki sjá eftir að hafa kallað herlið Bandaríkjamanna í Afganistan heim þótt Talibanar hafi að undanförnu náð hverri héraðshöfuðborg landsins á sitt vald. Erlent 11.8.2021 06:39
Cuomo hættir í skugga ásakana Andrew Cuomo hefur sagt af sér sem ríkisstjóri New York-ríkis. Það gerir hann eftir að ríkissaksóknari ríkisins birti skýrslu þar sem ríkisstjórinn er sakaður um áreitni í garð ellefu kvenna. Erlent 10.8.2021 16:14
Hver borgin fellur á fætur annarri Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum. Erlent 10.8.2021 13:14
Óttast útrýmingu eftir svarta loftslagsskýrslu Fulltrúar fimmtíu þróunarríkja sem eru í einna mestri hættu vegna loftslagsbreytinga af völdum manna óttast að ríkin séu á barmi útrýmingar verði ekki gripið til aðgerða hratt. Í nýrri loftslagsskýrslu er gert ráð fyrir að markmið um takmörkun hlýnunar sem var sett til að vernda viðkvæm eyríki bresti líklega strax á næsta áratug. Erlent 10.8.2021 08:30
Sjálfsvígum fjölgar í Kenía Nærri 500 manns hafa tekið eigið líf í Kenía það sem af er ári en allt árið í fyrra nam fjöldinn 320. Yngsta manneskjan var níu ára og sú elsta 76 ára, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. Erlent 10.8.2021 08:07
Umferð stöðvaðist þegar stóð á Turnbrúnni Turnbrúin sögufræga í London festist í stöðu í nærri því hálfan sólarhring í gær með tilheyrandi umferðartöfum. Lögregla sagði að brúin hefði verið lokuð vegna „tæknilegrar bilunar“. Erlent 10.8.2021 07:24
Biðst afsökunar á því að gróðureldarnir geisi enn Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðist afsökunar á að ekki hafi tekist að ráða niðurlögum skógarelda í landinu. Jafnvel þótt allt hafi verið gert sem í mannlegu valdi standi til að kæfa eldana hafi það oft á tíðum ekki reynst nóg. Erlent 10.8.2021 07:13
Kínverskur áfrýjunardómstóll staðfestir dauðadóm yfir Kanadamanni Áfrýjunardómstóll í Kína hefur staðfest þyngingu á dómi yfir Kanadamanni úr fimmtán ára fangelsi í dauðadóm fyrir að hafa reynt að smygla tæplega 230 kílóum af metaamfetamíni frá Kína til Ástralíu árið 2014. Erlent 10.8.2021 06:42
Andrés prins kærður fyrir nauðgun Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul. Erlent 9.8.2021 22:34
Fjórtán greinst með Covid-19 þrátt fyrir þriðja skammtinn Fjórtán Ísraelsmenn hafa greinst með Covid-19 þrátt fyrir að hafa fengið þriðja skammtinn af bóluefni, samkvæmt upplýsingum frá ísraelska heilbrigðisráðuneytinu. Erlent 9.8.2021 17:07
Fyrrverandi aðstoðarkona Cuomo lýsir meintri kynferðisáreitni Fyrrverandi aðstoðarkona Andrews Cuomo, ríkisstjóra New York, sem hefur kært hann fyrir kynferðislega áreitni hefur stigið fram og lýst ofbeldinu í fyrsta sinn undir nafni. Konan er ein ellefu kvenna sem hafa sakað Cuomo um kynferðislega áreitni á tíma hans í embætti. Erlent 9.8.2021 15:55