Erlent
Öryggisráðið ekki stækkað John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, spáði því opinberlega í gær að sú tilraun sem í gangi væri til að fjölga aðildarríkjum öryggisráðs SÞ myndi fara út um þúfur. Bandarísk stjórnvöld myndu aðeins styðja að stækka ráðið upp í 19 eða í mesta lagi 20 aðildarþjóðir, úr 15 nú. Erlent 14.10.2005 00:01
Kosningar í Írak á morgun Eftir blóðugt stríð og hryðjuverk í meira en tvö ár vona íröksk stjórnvöld og hersetuveldin að morgundagurinn marki tímamót en hvers eðlis þau verða er með öllu óvíst á þessari stundu. Stjórnarskráin er ýmist talin marka upphaf tímabils friðar og lýðræðis, eða upphaf endalokanna. Erlent 14.10.2005 00:01
Bresk þota hrapar Þota úr konunglega breska flughernum hrapaði í sjóinn við austurströnd Skotlands í dag. Samkvæmt upplýsingum frá breska varnarmálaráðuneytinu hrapaði flugvélin um 16 km frá flugherstöðinni, RAF Leuchars, við austurströnd Skotlands. Flugmennirnir tveir sem voru um borð í þotunni náðu að skjóta sér úr henni áður en hún brotlenti. Ekki er vitað um orsakir slyssins. Erlent 14.10.2005 00:01
Engin miskunn hjá Pútín Engin miskunn var fyrirskipunin sem Pútín Rússlandsforseti gaf sveitum sínum og þær hlýddu. Tugir hryðjuverkamanna sem gerðu árásir í bæ í Suður-Rússlandi voru þurrkaðir út í dag. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. Erlent 14.10.2005 00:01
85 látnir í Naltsjik í Rússlandi Að minnsta kosti 85 manns létust í átökum uppreisnarmanna og her- og lögreglumanna í borginni Naltsjik í Norður-Kákasus í Rússlandi í gær. 61 hinna látnu voru tsjetsjenskir uppreisnarmenn en samtök þeirra lýstu yfir að þau stæðu á bak við árásirnar í borginni. Staða samtaka herskárra múslíma hefur styrkst mjög í Suður-Rússlandi síðustu misserin, þar sem átökin eiga sér stað. Erlent 14.10.2005 00:01
Japanski pósturinn einkavæddur Japanska þingið samþykkti lög í gær um einkavæðingu póstsins. Japanski pósturinn á stærsta banka heims og eignirnar eru metnar á þrjár biljónir bandaríkjdollara og því er þetta stærsta einkavæðing sögunnar. Einkvæðing póstsins hefur verið eitt af aðal stefnumálum Koizumi forseta og samkvæmt lögunum er áætlað að hún verði af fullu gengin í gegn árið 2007. Erlent 14.10.2005 00:01
María Elísabet á fæðingardeild María Elísabet krónprinsessa af Danmörku var í gærkvöld lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum danskra vefmiðla benti flest til þess að hún væri komin að fæðingu, um hálfum mánuði fyrir tímann. Erlent 14.10.2005 00:01
Leit að eftirlifendum hætt Björgunarmenn eru hættir að leita að eftirlifendum jarðskjálftans í Suður-Asíu. Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi úr því sem komið er. Erlent 14.10.2005 00:01
Neyðarfundur um fuglaflensu Neyðarfundur um viðbrögð við fuglaflensu verður haldinn í Brüssel í dag. Öruggt þykir að flensan breiðist út um Evrópu næsta vor. Níu eru undir ströngu eftirliti í Tyrklandi vegna ótta við fuglaflensu. Fjörutíu dúfur í eigu þeirra drápust á hálfum mánuði og vaknaði þá grunur um fuglaflensu. Líkurnar á smiti í mannfólk þykja litlar en í kjölfar þess að mannskæði stofn flensunnar fannst í Tyrklandi í gær þykir ástæða til að gera ítrustu varúðarráðstafanir. Erlent 14.10.2005 00:01
Hafa stöðvað alla mótspyrnu Rússneskir hermenn hafa brotið á bak aftur alla mótspyrnu í borginni Nalstjik í Norður-Kákasus eftir að tsjetsjenskir uppreisnarmenn réðust í gær á lögreglu og opinberar byggingar. Að minnsta kosti 90 féllu í átökunum, flestir þeirra uppreisnarmenn, en rússneskar hersveitir fresluðu í morgun nokkra gísla úr höndum andspyrnumannanna. Erlent 14.10.2005 00:01
Samsung sektað fyrir verðsamráð Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung hefur verið sektaður um 300 milljónir dollara eða sem nemur rúmum 18 milljörðum íslenskra króna en þeim er gert verðsamráð að sök. Þetta er önnur hæsta sekt sem greidd hefur verið af þessum toga en að baki henni liggur þriggja ára rannsókn. Samsung er stærsti framleiðandi minniskubba fyrir tölvur auk annarra rafeindatækja í heiminum. Erlent 14.10.2005 00:01
Sprenging í mosku í Afganistan Múslímaklerkur lést og sextán særðust þegar sprengja sprakk í mosku í Suðaustur-Afganistan í dag. Klerkurinn, Mullah Maulvi Ahmed Khan, var um það bil að hefja bænir þegar sprengjan sprakk, en lögregla á staðnum telur uppreisnarmenn úr röðum talíbana standa á bak við árásina. Erlent 14.10.2005 00:01
Ný njósnastofnun sett á fót í BNA Bandaríkjastjórn hefur komið á fótt nýrri njósnastofnun sem samhæfa á allar njósnir í útlöndum. Stofnunin hefur verið nefnd National Clandestine Service, NCS, og heyrir undir CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, en hún mun stjórna öllum njósnaaðgerðum, þar á meðal aðgerðum á vegum alríkislögreglunnar og varnarmálaráðuneytisins. Erlent 14.10.2005 00:01
Hafa heitið tíu milljörðum Þjóðir heimsins hafa skuldbundið sig til að leggja 165 milljónir dollara, eða rúmum 10 milljörðum króna, til neyðaraðstoðar vegna hamfaranna í Suður-Asíu, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Erlent 14.10.2005 00:01
Ráðist að súnníum Uppreisnarmenn í Írak beindu í gær spjótum sínum að leiðtogum súnnísks stjórnmálaflokks sem lýst hefur stuðningi sínum við drög að stjórnarskrá landsins. Fimm tilræði voru framin gegn þeim í gær en enginn slasaðist í árásunum. Erlent 14.10.2005 00:01
Lögsóknir vegna fuglaflensulyfs Framleiðsla flensulyfjanna Tamiflu og Relenza kemur hugsanlega til með að verða fyrir röskun þar sem nú standa yfir málaferli milli einkaleyfishafa og fyritækja sem eru með framleiðsluréttinn. Erlent 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Haag Hollenskir lögreglumenn umkringdu mikilvægar stjórnsýslubyggingar í höfuðborginni Haag í gær vegna gruns um að hryðjuverk væru í uppsiglingu. Ráðist var inn í hús og sjö manns handteknir í tengslum við málið. Erlent 14.10.2005 00:01
Danir hamstra fuglaflensulyf Ótti við fuglaflensu hefur gripið um sig í Danmörku og greinir danska blaðið <em>Politiken</em> frá því að Danir hamstri nú inflúenslyfið Tamiflu, en fréttir hafa borist af því að fuglaflensan hafi greinst í Evrópu. Þrjú þúsund pakkningar af lyfinu hafa seldust í ágúst og september samkvæmt Apótekarafélagi Danmerkur en á sama tímabili í fyrra var lyfið sent aftur til framleiðenda þar sem það seldist ekki. Erlent 14.10.2005 00:01
Stálu skipi en skiluðu því svo Sómalskir sjóræningjar sem fyrr í vikunni rændu flutningaskipi sem Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna hafði á leigu hafa nú séð að sér og skilað fleyinu. Eigandi skipsins segist ekki hafa þurft að greiða neitt lausnargjald. Erlent 14.10.2005 00:01
Barði þungaða konu með kylfu Kona í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum barði þungaða nágrannakonu sína með hafnaboltakylfu í höfuðið, ók með hana út í skóg og reyndi að skera á kvið hennar til að ná ófæddu barninu út. 17 ára gamall piltur sem leið átti hjá er talinn hafa fælt konuna frá en hann hringdi á lögreglu sem handtók hana. Erlent 14.10.2005 00:01
Methiti árið 2005 um allan heim Árið 2005 er annað eða þriðja heitasta ár síðan mælingar hófust. Vísindamenn segja veðurfarið sýna að hlýnun jarðar af völdum manna er vandamál. Erlent 14.10.2005 00:01
Fundu 3,5 tonn af kókaíni Lögreglan á Spáni hefur lagt hald á þrjú og hálft tonn af kókaíni sem fundust í fiskiskipi undan ströndum landsins. Lögreglan fékk ábendingu frá yfirvöldum í Bandaríkjunum en skipið var á leið frá Venesúela til Spánar þegar það var stöðvað. 10 manna áhöfn skipsins var handtekin. Erlent 14.10.2005 00:01
Rove í fjórða sinn fyrir nefnd Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, kom í dag í fjórða sinn fyrir rannsóknarnefnd sem rannsakar það hvernig nafn leyniþjónustumanns hjá CIA var lekið í fjölmiðla árið 2003. Flest bendir til að Rove hafi lekið nafni leyniþjónustukonunnar Valerie Plame og hefur eiginmaður Plame, Joseph Wilson, sakað stjórnvöld um að ljóstra upp nafni hennar til þess að refsa honum fyrir gagnrýni á málflutning stjórnarinnar í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Erlent 14.10.2005 00:01
Níðingsskap mótmælt Félagar í dýraverndunarsamtökunum PETA komu saman í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í gær og mótmæltu meðferð Ástrala á sauðfé. Erlent 14.10.2005 00:01
Skotvopnasala bönnuð í Brasilíu? Bann við sölu á byssum og skotfærum til almennra borgara í Brasilíu gæti orðið raunin áður en langt um líður. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu þess efnis og mun þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um málið í lok mánaðarins en það er í fyrsta sinn sem málefni af þessum toga er lagt í dóm almennings. Erlent 14.10.2005 00:01
ESB fundar um fuglaflensu Evrópskir sérfræðingar í fuglaflensu sitja nú á neyðarfundi vegna þeirra frétta sem bárust í gær að fuglaflensans sem greindist í Tyrklandi á dögunum hefði verið af hinum banvæna stofni H5N1 sem dregið hefur yfir 60 manns til dauða í Asíu. Erlent 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Hollandi Hollenska lögreglan handtók í dag sjö grunaða hryðjuverkamenn í þremur borgum nú um hádegi. Hópurinn samanstendur af sex körlum og einni konu, en einn karlanna var fyrr á árinu sakfelldur fyrir að skipuleggja hryðjuverkaárás í Hollandi. Lögregla vildi hins vegar ekki greina frá því hvers vegna byssuhvellir hefðu heyrst í einni borganna, Haag, en lögreglumenn umkringdu byggingu þar í borg sem Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, og fleiri hafa skrifstofur. Erlent 14.10.2005 00:01
Khodorkovskí sé við Volgu Rússneski olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovskí hefur verið sendur í fangabúðir í Saratov-héraði við ána Volgu þar sem hann mun afplána átta ára dóm fyrir fjár- og skattsvik. Þetta hefur Interfax-fréttastofan eftir ónefndum heimildarmönnum innan fangelsisins. Erlent 14.10.2005 00:01
Steinmeier í þýsku utanríkismálin Frank Walter Steinmeier, starfsmannastjóri Gerhards Schröder fráfarandi kanslara, verður næsti utanríkisráðherra Þýskalands. Þetta kom í ljós er forusta þýska jafnaðarmannaflokksins SPD staðfesti hverjir úr þeirra röðum tækju sæti í væntanlegri samsteypustjórn með kristilegum demókrötum. Erlent 13.10.2005 00:01
Fuglaflensan á mörkum Evrópu Fuglaflensan mannskæða er nú komin að mörkum Evrópu. Rannsóknir á sýnum sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi hafa leitt í ljós afbrigði veirunnar sem er hættulegt mönnum. Tyrknesk yfirvöld segjast hafa náð að hefta útbreiðslu veirunnar. Erlent 13.10.2005 00:01