Erlent

Fundu 3,5 tonn af kókaíni

Lögreglan á Spáni hefur lagt hald á þrjú og hálft tonn af kókaíni sem fundust í fiskiskipi undan ströndum landsins. Lögreglan fékk ábendingu frá yfirvöldum í Bandaríkjunum en skipið var á leið frá Venesúela til Spánar þegar það var stöðvað. 10 manna áhöfn skipsins var handtekin. Þá fann portúgalska lögregla rúmlega fjögur tonn af kókaíni í vörugeymslu í Lissabon á dögunum sem talið er hafi átt að fara til Spánar og þaðan um Evrópu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×