Erlent
Kennari játar morð á nemanda sínum Japanskur kennari játaði í morgun á sig morð á einum nemenda sinna. Maðurinn kom fyrir dóm í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa ráðist með hnífi á nemendann, tólf ára gamla stúlku, inni í skólastofu og veitt henni banvæn sár. Erlent 20.2.2006 10:00
Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum fækkar Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum í Danmörku fækkaði töluvert á síðasta ári miðað við árin á undan. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar þar í landi. Ákært var í 227 málum í fyrra, eða um helmingi færri en árið 2004 þegar tæplega 460 mál fóru fyrir dómstóla. Erlent 20.2.2006 09:14
Flak þýsku flugvélarinnar fundið Flak þýsku flugvélarinnar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimmtudag er fundið. Um borð í vélinni voru fimm Þjóðverjar og einn Íraki og voru þeir allir látnir þegar komið var að vélinni. Erlent 20.2.2006 09:10
Líklega ekki um fuglaflensu að ræða í Finnlandi Heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi greindu frá því í gær að niðurstöður úr sýnum úr hræjum nokkurra svana sem fundust þar í landi bendi ekki til að fuglarnir hafi drepist úr nokkurri gerð fuglaflensu. Erlent 20.2.2006 08:39
Samstarf Rússa og Írana um auðgun úrans Íranar eru reiðubúnir að fallast á tillögur stjórnvalda í Moskvu um samstarf við auðgun úrans í Rússlandi, ef samkomulag tekst um breytingar á tillögunum í viðræðum sem hefjast í Moskvu í dag. Erlent 20.2.2006 08:31
Skotbardagi fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn Tveir liggja með skotsár á sjúkrahúsi eftir að ágreiningur manna á milli fór úr böndunum fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn í gærmorgun. Mennirnir fengu báðir byssukúlu í annan fótinn og þá var þriðji aðili skorinn í andlitið. Erlent 20.2.2006 08:07
Ísraelar afhenda ekki skatta Ísraelar ætla ekki að afhenda heimastjórn Palestínumanna skatta sem þeir taka af palestínskum verkamönnum. Þá ætla þeir heldur ekki að afhenda þeim tolla sem Ísraelsstjórn innheimtir af vörum sem Palestínumenn flytja inn. Erlent 20.2.2006 08:05
Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn síðastliðinn föstudag og er hún meðal elstu kvenna sem það hefur gert í heiminum. Janise Wulf átti fyrir 11 börn, 20 barnabörn og þrjú barna barnabörn. Meðganga þessa 12 barns Janise gekk vel framan af, en vegna hækkandi blóðþristings var barnið tekið með keysaraskurði viku fyrir tímann. Erlent 20.2.2006 08:01
Bin Laden segist ekki verða tekinn höndum lifandi Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, heitir því að hann verði aldrei tekinn höndum lifandi og segir Bandaríkjamenn hafa gripið til sömu villimannslegu úrræðanna í Írak og Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti. Þetta kemur fram í hljóðupptöku sem birt var á vefsíðu herskárra samtaka í morgun. Erlent 20.2.2006 07:55
Beit nef af kærustu sinni og gleypti það Rólegt matarboð fjölskyldu í Californíu endaði með hörmungum þegar maður beit nef af kærustu sinni og gleypti það. Jody Bannet kom fram í stofu alblóðug í framan eftir að hafa verið í rifrildum við kærsta sinn og sá þá heimilisfólkið að nefið vantað á hana, lögregla og sjúkralið var kvatt á staðinn og kærastinn hendtekinn. Erlent 20.2.2006 07:51
Skopmyndundunum af Múhameð enn mótmælt Þúsundir manna komu saman bæði í Pakistan og í Tyrklandi í gær til að mótmæla skopmyndunum af Múhameð spámanni. Lögreglan þurfti að beita táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa mannfjöldanum sem hrópaði slagorð gegn Bush Bandaríkjaforseta. Erlent 20.2.2006 07:50
Sögulegar viðræður um framtíð Kosovo-héraðs Samninganefndir Serba og Kosovo-Albana koma saman til sögulegs fundar í Vín í Austurríki í dag til að ræða framtíð Kosovo-héraðs. Kosovo-Albanir krefjast þess að héraðið fái sjálfstæði frá Serbíu en Serbar segja Kosovo mikilvægan hluta af ríki sínu og vilja halda einhverri stjórn þar. Erlent 20.2.2006 07:44
Óttast um líf 65 námuverkamanna Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Erlent 20.2.2006 07:42
Mesta mannfall vegna skopteikninganna hingað til Sextán manns létust í hörðum átökum sem brutust út í Nígeríu í gær vegna skopteikninganna af Múhammeð spámanni. Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingunum af myndbirtingum Jótlandspóstsins og átökin í Nígeríu í gær eru þau mannskæðustu hingað til. Erlent 19.2.2006 16:00
6 létust í flugslysi í Írak á fimmtudaginn Sex lík fundust í morgun í braki lítillar flugvélar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimtudaginn. Um borð í vélinni voru þrír Þjóðverjar og einn Íraki, en þjóðerni hinna tveggja sem létust er ekki þekkt. Erlent 19.2.2006 15:04
Tveir fundust á lífi Tveir fundust á lífi í morgun í rústum þorpsins Guinsaugon á Filippseyjum, eftir aurskriðurnar á föstudag. Vinna er hafin við að grafa upp barnaskóla þorpsins, þar sem 250 börn urðu undir tíu metra þykkri eðjunni. Útilokað þykir að nokkurt þeirra sé á lífi. Erlent 19.2.2006 13:30
Þúsundir kjúklinga aflífaðir Heilbrigðisstarfsmenn aflífuðu þúsundir kjúklinga í vesturhluta Indlands í gærkvöldi, eftir að fyrsta tilfelli fuglaflensu var greint þar í landi. Erlent 19.2.2006 10:45
Gekk í bol með skopteikningu úr Jótlandspóstinum Ítalskir ráðamenn reyna nú hvað þeir geta að lægja öldurnar meðal múslima, eftir að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar móðgaði múslima með því að ganga í bol með einni af skopteikningu Jótlandspóstsins framan á. Erlent 19.2.2006 10:15
Tíu manns fórust í mótmælum í Líbýu Að minnsta kosti tíu manns létust í mótmælum múslima við ítalska sendiráðið í Líbýu í gærkvöldi. Erlent 18.2.2006 12:45
Lítil von með að finna fólk á lífi Björgunarsveitir eygja litla von til að finna fleiri á lífi eftir aurskriðurnar í Guinsaugon á Filippseyjum. Aðstæður til leitar eru afar erfiðar og enn er hætta á fleiri aurskriðum. Erlent 18.2.2006 09:57
Mannfall í mótmælum í Líbíu Ekki er vitað hve margir létu lífið í átökum mótmælenda og lögreglu fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í borginni Benghazi í Líbíu í kvöld. Fyrstu fregnir hermdu að níu hefðu látið lífið og hátt í 60 særst en það hefur ekki fengist staðfest. Erlent 17.2.2006 22:31
Rúmlega 8 tonn af kókaíni haldlögð Portúgalska lögreglan lagði í dag hald á meira en átta tonn af kókaíni sem er það mesta sem hefur verið haldlagt þar í landi í einu. Lögreglan lagði til atlögu gegn glæpagengi á Algarve í suður hluta landsins. Erlent 17.2.2006 22:24
Olíuleiðsla í Írak sprengd Sprenging varð í dag í olíuleiðslu sem flytur hráolíu frá olíusvæðum í Kirkuk í Írak til olíuhreinsunarstöðvar í höfuðborginni Bagdad. Þetta er aðal olíuleiðslan á þessu svæði og segir íraska lögreglan að uppreisnarmenn beri ábyrgð á sprengingunni. Erlent 17.2.2006 22:22
Leikskóli fyrir pandabirni Leikskóli fyrir pandabirni var opnaður í Suður-Kína í gær. Það eru aðstandendur stærstu uppeldisstöðvar pandabjarna þar í landi sem reka skólann og segja hann þann fyrsta sinnar tegundar í heimi. Erlent 17.2.2006 22:19
Vilja vinna hjá Ryanair Á þriðja hundrað flugmenn skandinavíska flugfélagsins SAS hafa leitað eftir vinnu hjá Ryanair að undanförnu. Ryanair hyggst ráða eitt þúsund flugmenn vegna fjölda flugvélakaupa að undanförnu. Erlent 17.2.2006 17:39
Fuglaflensan komin til Frakklands Fuglaflensa hefur greinst í andarhræi í Austur-Frakklandi. Talið er líklegt að flesan sé af hinum hættulega H5N1 stofni en það hefur ekki fengist staðfest. Erlent 17.2.2006 17:36
Orkla til sölu Norska, fjölmiðlafyrirtækið Orkla Media, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidene, BT og Weekendavisen, er til sölu. Að því er fram kemur á norska fréttavefnum NTB hefur stjórn félagsins ákveðið að hlusta á tilboð í samsteypuna í heild sinni eða að hluta. Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, og norska blaðið Dagbladet hafa sýnt fyrirtækinu áhuga. Erlent 17.2.2006 16:37
Leigja út Dick Cheney veiðigalla Búningaleiga í Bandaríkjunum hefur hafið leigu á Dick Cheney veiðigöllum. Gallinn er leigður undir þeim formerkjum að vera hin fullkomna leið til að hræða veiðifélagana. Erlent 17.2.2006 14:30
Frjálst flæði vinnuafls dregur úr atvinnuleysi Frjálst flæði vinnuafls úr tíu nýju löndum Evrópusambandsins virðist draga úr atvinnuleysi, þvert á það sem flestir bjuggust við. Eldri löndum sambandsins sem ekki hafa sett takmarkanir á flæði vinnuafls, farnast betur en öðrum. Erlent 17.2.2006 14:15
Sendiráði Dana lokað í Islamabad af öryggisástæðum Danska sendiráðinu í Islamabad í Pakistan var í dag lokað af öryggisástæðum en mikil mótmæli hafa verið í landinu í vikunni vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni. Jótlandspósturinn hefur eftir sendiherra Danmerkur í Pakistan að hann sé enn í landinu en hann vill ekki gefa upp hvar hann er. Erlent 17.2.2006 14:00