Erlent

Svipti sig lífi skömmu fyrir aftöku

Fangi á dauðadeild í Texas í Bandaríkjunum svipti sig lífi í dag, aðeins örfáum klukkustundum áður en að það átti að taka hann af lífi. Maðurinn skrifaði skilaboð í eigin blóði í fangaklefa sínum þar sem hann hélt fram sakleysi sínu.

Erlent

Minnst 77 súdanskir hermenn druknuðu

Að minnsta kosti 77 súdanskir hermenn drukknuðu þegar gufubátur þeirra sökk eftir árekstur við farþgaferju á ánni Níl í Suður-Súdan í dag. Hermennirnir eru allir liðsmenn í ferlsisher fólksins í Súdan, eins og hann er kallaður, og fyrrverandi uppreisnarmenn. Einn hermaður til viðbótar týndi lífi þegar tveir björgunarbátar skullu saman nær slysstaðnum skömmu eftir að bátur hermannanna tók að sökkva.

Erlent

Reyndu að flýja úr fangelsi í Egyptalandi

Þrír menn sem eru í haldi yfirvalda í Kaíró í Egyptalandi, grunaðir um aðild að sprengjuárásum á þrjá ferðamannastaði við Rauðahafið í október 2004, reyndu að flýja úr fangelsi í dag. Það tókst ekki og slasaðist einn þremenninganna. Mennirnir höfðu bundið saman föt og reyndu að klifra yfir fangelsisveggina.

Erlent

Grípa þurfi til valdbeitingar til að stöðva Ísraela

Yfirmaður eftirlitssveita Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líbanon segir að svo geti farið að grípa verði til valdbeitinga til að koma í veg fyrir innrásir Ísraela inn í lofthelgi Líbana. Alain Pellegrini, yfirmaður friðargæslusveitanna, sagði þetta á blaðamannafundi í dag og bætti því við að til þess að það yrði hægt þyrfti að breyta umboði hersveita SÞ í landinu. Talsmenn SÞ sögðu eftir fundinn að ekki væri verið að undirbúa það. Sendifulltrúi Ísraela hjá SÞ segir það koma sér á óvart að Pellegrini hafi látið þessi orð falla.

Erlent

Internet Explorer 7 vafrarinn kominn á vefinn

Uppfærsa á Internet Explorer netvafrara Microsoft tölvurisans er nú aðgengileg almenningi. Internet Explorer 7 er fyrsta uppfærsla á vafraranum í rúm 5 ár. Meðal nýjunga er sá möguleiki að opna fjölmarga undirglugga í sama aðal vefglugga, að leita beint á netinu og sérstakt kerfi sem á að koma í veg fyrir ýmsar innrásir tölvuþrjóta sem ásælast upplýsingar um bankareikninga og greiðslukort tölvunotenda. Hægt er að sækja vafrarann að kostnaðarlausu á netinu en fjölmargir fá sjálfkrafa uppfærslu í næsta mánuði noti þeir Windows XP stýrikerfið í tölvum sínum.

Erlent

Dow Jones mælist yfir 12 þúsund stigum

Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 19 stig í dag og var yfir 12 þúsund stigum við lokun markaðar í Bandaríkjunum í dag, í fyrsta sinn í sögunni. Dow Jones vísitalan mælir gengi hlutabréfa í stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Minnkandi verðbólga í Bandaríkjunum, breytingar á olíu- og bensínverði og jákvæðar afkomutölur hjá fjölmörgum fyrirtækjum eru ástæður þessa að sögn sérfræðinga á markaði.

Erlent

Þjóðaratkvæðagreiðsla um fóstureyðingar í Portúgal

Portúgalar ganga að kjörborðinu í janúar á næsta ári og greiða atkvæði um það hvort leyfa eigi fóstureyðingar í landinu. Fóstureyðingar eru aðeins leyfðar í Portúgal nú ef konu hefur verið nauðgað og hún verður síðan þunguð, líf hennar er talið í hættu, fósturskaði orðið eða hætta á alvarlegri fötlun.

Erlent

8 sprengingar í vopnageymslu í Serbíu

Að minnsta kosti 20 særðust þegar minnst 8 sprengingar urðu í vopnageymslu serbneska hersins í nótt. Vopnageymslan stóð á hæð nærri iðnaðarbænum Paracin, um 150 kílómetra suður af höfuðborginni Belgrad. Fjölmargar byggingar í Paracin skemmdust.

Erlent

Mýkri friðargæsla

Ásýnd íslensku friðargæslunnar verður mýkt og lögð verður áhersla á borgaraleg svið í verkefnavali hennar. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra kynnti þessar hugmyndir á fundi utanríkismálanefndar í morgun.

Erlent

Reyna að tala um fyrir Kim

Kínverjar hafa sent erindreka sína til Norður-Kóreu til að freista þess að fá þarlend stjórnvöld til að hætta kjarnorkutilraunum sínum.

Erlent

Hótar Íslendingum ófarnaði

Sjávarútvegsráðherra Bretlands segir að Íslendingum muni hefnast fyrir að hefja hvalveiðar og spáir því að Bretar muni sniðganga íslenskar vörur og þjónustu. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig lýst yfir vonbrigðum með veiðarnar.

Erlent

Flugþjónar og flugfreyjur leggja niður vinnu í Finnlandi

Verkfall 1500 flugfreyja og flugþjóna hjá finnska flugfélaginu Finnair heldur áfram. Samningaviðræðum milli fulltrúa starfsmanna og flugfélagsins, sem fóru fram í dag, skiluðu engum árangri og var frestað til morguns. Verkfallið hófst í morgun. Viðræður hafa staðið í margar vikur eftir að það fréttist að félagið ætlaði að ráða starfsfólk í gegnum Aero, dótturfélag sitt í Eistlandi, og greiða því töluvert lægri laun.

Erlent

Lík þýsks drengs fundið eftir 2 daga leit

Lögregla í Fulda í Þýskalandi fann í dag lík 6 ára drengs sem hefur verið leitað í tvo daga. Móðir drengsins lést í bílslysi og var óvíst hvort drengurinn hefði verið í bílnum með henni þegar slysið varð.

Erlent

Grímuklæddir ræningjar á McDonalds

Lögreglan í franska bænum Saint-Denis, norður af höfuðborginni París, umkringdi í dag McDonalds skyndibitastað þar í bæ en fregnir höfðu borist af því að ræningjar hefðu tekið þar fólk í gíslingu. Lögreglumaður á ferð framhjá sá þrjá grímuklædda menn ganga inn á skyndibitastaðinn í morgun og var varla hægt að áætla annað en að þeir ætluðu að fremja þar rán.

Erlent

Fimmtán fórust í flugslysi í Úsbekistan

Fimmtán fórust þegar lítil flugvél, sem notuð er til flugþjálfunar, brotlenti í Úsbekistan í dag. Fram kom í úsbeskum fjölmiðlum að vélin hefði verið eins hreyfils af gerðinni An-2, en hún hrapaði til jarðar þegar reynt var að lenda henni á flugvelli nærri höfuðborginni Tashkent.

Erlent

Helmingur Bandaríkjamanna telur flesta þingmenn spillta

Helmingur Bandaríkjamanna telur að flestir þingmenn landsins séu spilltir samkvæmt nýrri skoðaðakönnun sjónvarpsstöðvarinnar CNN. Eru þetta tólf prósentustigum fleiri en í upphafi árs. Könnunin leiðir einnig í ljós að aðeins 42 prósent eru ánægð með störf demókrata á þingi en repúblikanar fá enn verri útreið því aðeins rúmlega þriðjungur er ánægður með störf þeirra á þingi.

Erlent

Fullskipuð keppnin um hin nýju 7 undur veraldar

Mayaborgin forna Chichen Itza í Mexíkó er síðasti staðurinn sem fær að taka þátt í keppninni um hin nýju sjö undur veraldar. Vinningshafar verða tilkynntir í Lissabon þann sjöunda júlí 2007 en auk Chichen Itza taka þekktar byggingar og minnismerki þátt í keppninni, þeirra á meðal eru Taj Mahal í Indlandi, Effelturninn, Stonehenge, stytturnar á Páskaeyjunni og óperuhúsið í Sydney.

Erlent

Vopnahlé samþykkt í Balad í Írak

Héraðshöfðingjar í Balad-héraði, norður af Bagdad í Írak, féllust í gær á 20 daga vopnahlé í borginni sem hefur logað í átökum milli sjía og súnnímúslima. Röð hefndarárása milli sjía og súnnímúslima hafa kostað 95 manns lífið á fimm dögum í borginni Balad. Borgin er að mestu byggð sjíamúslimum en héraðið í kring tilheyrir súnnimúslimum.

Erlent

Leitað að 300 milljónasta Bandaríkjamanninum

Bandaríkjamenn leita nú logandi ljósi að 300 milljónasta Bandaríkjamanninum sem fæddist á þriðjudaginn. Fjölmiðlar strandanna á milli keppast við að stinga upp á nýfæddum börnum sem fæddust nærri örlagastundinni 7:46 á þriðjudagsmorgun að austurstrandartíma. Í húfi eru lífstíðarbirgðir af Pampers-bleyjum og heiðurinn, vitaskuld.

Erlent

Tæpur þriðjungur á heimsvísu hlynntur pyntingum

Í könnun sem BBC lét gera í 25 löndum kemur fram að á heimsvísu er tæpur þriðjungur, eða 29%, hlynntur pyntingum. Mestur stuðningur við pyntingar er í Ísrael, þar sem 43% telja pyntingar réttlætanlegar í vissum tilvikum. Rúmur þriðjungur Bandaríkjamanna er hlynntur pyntingum að einhverju marki ef með því má bjarga mannslífum.

Erlent

Pinochet ber við minnisleysi

Fyrrum einræðisherra Chíle, Augusto Pinochet, sagði dómara í gær að hann muni ekki eftir og hann sé ekki ábyrgur fyrir aðgerðum öryggissveita sinna í leynifangelsum þar sem þúsundir manna voru pyntaðir og hundruð drepin. Auk Pinochets voru 59 til viðbótar yfirheyrðir vegna Villa Grimaldi leynifangelsisins.

Erlent

Útfararstjórar játa að hafa stolið líffærum

Sjö útfararstjórar í New York hafa játað að hafa tekið þátt í umfangsmiklum líffærastuldi. Líffærin voru fjarlægð úr líkum án samþykkis ættingja og voru síðan seld til líftæknifyrirtækja. Saksóknari í málinu segir að hundruð líkamshluta hafi verið seld með þessum hætti og að fleiri yrðu líklega ákærðir.

Erlent

Rice og Ban Ki-Moon funduðu í Seoul

Condoleezza Rice fundaði í morgun með Ban Ki Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu og verðandi framkvæmdastjóra. Á sameiginlegum blaðamannafundi fullvissaði Rice Suður-Kóreumenn um að Bandaríkjamenn muni styðja við varnir Suður-Kóreu. Hún sagði að samband Suður-Kóreumanna og Bandaríkjamanna "gæti ekki verið sterkara".

Erlent

Mótmæltu viðskiptatengslum við Norður-Kóreu

Hundruð Suður-Kóreumanna mótmæltu í morgun ferðaþjónustu suðurkóreska fyrirtækisins Hyuandai Asan sem í átta ár hefur skipulagt ferðir yfir landamærin vinsæls fjallaþorps í óvinaríkinu Norður-Kóreu. Mótmælendurnir sögðu fyrirtækið styrkja stjórn Kim Jung-Ils með því að dæla peningum upp í hendurnar á henni.

Erlent

Íranar vilja ekki samanburð við Norður-Kóreu

Utanríkisráðherra Írans bað í gær stjórnvöld Evrópuríkja um að haga sér af skynsemi þegar rætt væri um kjarnorkustarfsemi Írana. Í ræðu sinni vísaði hann til kjarnorkutilrauna Norður-Kóreu og sagði að það að bera friðsamlega kjarnorkunotkun Írana saman við kjarnorkusprengjur annarra landa benti til þess að rökhugsun Vesturveldanna væri að veikjast.

Erlent

Margmenni í moskum á helgustu nótt Ramadan

Rúmlega 175 þúsund múslimar komu saman í Al Aqsa-moskunni í Jerúsalem í nótt til að biðjast fyrir á þessari helgustu nótt föstumánaðarins Ramadan. Al Qadr nóttin er opinbera tímasetningin á því þegar spámanninum Múhameð var birtur Kóraninn, helgirit múslima.

Erlent

Stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum ósátt við hvalveiðar

Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, hefur kallað Sverri Hauk Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, á sinn fund í dag, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á vefsíðu sinni. Þar verður honum gert að skýra forsendur þær sem liggi fyrir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni á ný.

Erlent

Sektaður fyrir að deila tónlist

Fjörutíu og fjögurra ára gamall Svíi var í gær dæmdur fyrir að hafa ólöglega deilt tónlist á netinu með öðrum og var gert að greiða tuttugu þúsund sænskar krónur í sekt, eða um 185 þúsund íslenskar krónur.

Erlent

Tveir hermenn NATO létust í Suður-Afganistan

Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á herlið Atlantshafsbandalagsins í Suður-Afganistan í morgun. Tveir hermenn NATO létust samstundis í árásinni, auk einhverra óbreyttra borgara. Bíll á vegum NATO stóð í ljósum logum eftir árásina í miðborg Lashkar Gah, sem er ein stærsta borgin í Suður-Afganistan.

Erlent