Erlent

Evrópusambandið að miðla málum milli Rússa og Georgíumanna

Evrópusambandið (ESB) er sem stendur að reyna að koma á sáttum á milli Rússlands og Georgíu. Samskipti ríkjanna hafa versnað til muna undanfarið vegna áhuga forseta Georgíu á því að ganga í ESB. Javier Solana, utanríkisráðherra ESB, hefur verið í samningaviðræðum við forseta landanna tveggja síðustu daga en með litlum árangri.

Erlent

Ákærður fyrir sprengjugabb á íþróttavöllum

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að sækja tvítugan mann í Milwaukee til saka fyrir að hafa birt falsaða hótun á Netinu um að hryðjuverkamenn hygðust sprengja svokallaðar skítugar sprengjur á sjö stórum fótboltavöllum í landinu.

Erlent

Ryan Air reynir að stækka við sig

Fyrir tveimur vikum ákvað lággjaldaflugfélagið Ryan Air að bjóða í írska flugfélagið Aer Lingus. Á fréttamannafundi sem Ryan Air hélt í dag kom síðan fram að ef að kaupunum yrði myndi starfsmönnum hjá Aer Lingus fækkað þar sem það væri ein af leiðunum til þess að lækka rekstrarkostnað flugfélagsins.

Erlent

Vígamenn sækja í sig veðrið í Írak

Alls hafa um 15 manns látist og 91 slasast í bardögum á milli öryggissveita og vígamannanna í Írak í dag. Vígamenn sjía, sem eru hliðhollir Muqtada al-Sadr, gerðu áhlaup á bæinn Amara í Suður-Írak.

Erlent

Pútín í vandræðum eftir misheppnaðan brandara

Valdímír Pútín, forseti Rússlands, virðist í slæmum málum í heimalandinu eftir heldur misheppnaðan brandara sem fréttamenn áttu ekki að heyra. Pútín var á blaðamannafundi með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á dögunum og í lok hans mátti heyra Pútín biðja Olmert fyrir kveðju til forseta Ísraels, Moshe Katsav.

Erlent

Ráðist á bílalest Haniyehs

Forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, slapp ómeiddur þegar ráðist var á bílalest hans þegar hann var á leið frá föstudagsbænum í mosku á Gaza-ströndinni í dag. Heimildarmenn innan Hamas segja að skotið hafi verið á bílalestina auk þess sem ein bifreið hafi verið brennd.

Erlent

Fjarlægja æxli með hátíðnihljóði

Læknum hefur tekist að þróa aðferð til að fjarlægja æxli með hátíðnihljóði. Uppskurðir gætu því heyrt sögunni til. Verið er að gera tilraunir með aðferðina á konum með bandvefsæxli, sem hefðu annars þurft að gangast undir legnám. Aðferðin felst í því að beina sterkum ómsjárgeisla að sýktum vefjum og hún skilur ekki eftir ör.

Erlent

26 þúsund milljarðar tapaðir vegna spillingar

Rannsóknarstofnun vegna spillingar í Nígeríu áætlar að 26 þúsund milljarðar af nígerísku almannafé hafi tapast þar síðan 1960 vegna spillingar stjórnmálamanna. Fénu hafi ýmist verið stolið eða sólundað. Nuhu Ribadu, framkvæmdastjóri stofnunarinnar segir að níundi og tíundi áratugurinn hafi verið verstir en enn í dag lendir landið í efstu sætum lista yfir spilltustu lönd heims.

Erlent

Þúsundir fjölmenntu á götu Tehran

Þúsundir Írana fjölmenntu á götum úti í Tehran í morgun til að sýna stuðning sinn við Palestínu. Mótmælendur vildu með aðgerðum sínum ítreka andstöðu sína við Ísraelsríki.

Erlent

Ekki fleiri kjarnorkusprengingar í Norður-Kóreu

Kim Jong-il sagði kínverskum sendierindreka á fundi þeirra fyrr í vikunni að Norður-Kóreumenn myndu ekki gera tilraunir með fleiri kjarnorkusprengjur. Yonhap fréttastofan suðurkóreska hefur þetta eftir kínverskum embættismanni. Kínverski embættismaðurinn Tang Jiaxuan ræddi við Kim Jong-il á miðvikudaginn og kom bjartsýnn til baka.

Erlent

Hamas verði ekki bolað út

Forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniyeh, sagði í dag að flokkur hans Hamas, myndi koma í veg fyrir tilraunir Abbas forseta og Fatah-hreyfingar hans til að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga eða fella ríkisstjórn Hamas til þess að binda enda á stjórnmálakrísu í Palestínu.

Erlent

Vopnahléð lítils virði í Balad í Írak

Nýumsamið vopnahlé í Balad, um 130 km norður af Bagdad, sem héraðshöfðingjar samþykktu á miðvikudaginn virðist ekki hafa mikil áhrif. Í gær létust níu manns þegar 15 sprengjum var varpað í árás á þorp súnnímúslima í nágrenni Balad-borgar. Borgin Balad er nokkurs konar eyja sjíamúslima á svæði sem er að mestu byggt súnnímúslimum.

Erlent

Ástralir fordæma hvalveiðar Íslendinga

Ástralía hefur nú bæst í hóp ríkja sem gagnrýna þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Umhverfisráðherra Ástralíu, Ian Campbell, segir í áströlskum fjölmiðlum að það sé sorglegt þegar þróað ríki eins og Ísland snúist gegn einum af mestu afrekum Í umhverfismálum á síðustu öld sem hafi verið að stöðva hvalveiðar.

Erlent

Víðar en í Svíþjóð sem ráðherrar borga svart

Skattahneykslið sem hefur hrjáð nýja ríkisstjórn í Svíþjóð virðist vera að smitast yfir landamærin til Noregs. Ráðherrar í norsku ríkisstjórninni viðurkenna einn af öðrum að hafa borgað barnapíum og heimilishjálpum undir borðið. Meðal þeirra sem viðurkenna þetta samkvæmt frétt á vefútgáfu Verdens Gang er forsætisráðherrann Jens Stoltenberg.

Erlent

Umhverfismál efst á baugi hjá ESB í Lahti

Leiðtogar Evrópusambandslandanna eru nú á leið til Lahtitil að taka þátt í hálfsárslegum fundi leiðtoganna. Helstu umræðuefnin verða hlýnun andrúmsloftsins, orkuöryggi og mengun. Einnig verður rætt við Pútín forseta Rússlands um stöðu mannréttinda í landi hans hugsanlegan aukinn aðgang að gífurlegum olíu- og gasbirgðum Rússlands.

Erlent

Vilja velja hvors kyns barnið verður

Danskar konur eru farnar að fara til Kýpur til að gangast undir aðgerðir svo þær geti ráðið kyni væntanlegra barna sinna. Nyhedsavisen og danska útvarpið segja að aðgerðir þessar séu ólöglegar í Evrópusambandinu og því fari konurnar til Kýpur. Þetta munu einkum vera konur sem eiga tvo til þrjá stráka eða stelpur fyrir, en vilja eitt barn af hinu kyninu.

Erlent

Japanir og Suður-Kóreumenn funda um öryggismál

Utanríkisráðherrar Japans og Suður-Kóreu hittust í morgun til þess að ákveða hvernig best sé að draga úr spennunni á svæðinu. Suður-Kóreumenn hafa varað við því að of harkalega sé tekið á nágrönnum þeirra í norðri en Japanir og Bandaríkjamenn hafa heldur mælt með strangari refsiaðgerðum.

Erlent

Kínverjar segja fund með Kim Jong-il gagnlegan

Háttsettur embættismaður frá Kína sem Hu Jintao sendi til fundar við norðurkóreska leiðtogann Kim Jong-il, segir fund þeirra hafa verið gagnlegan til þess að auka skilning milli þjóðanna. Þetta kom fram á fundi Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með starfsbróður sínum í Kína, Li Zhaoxing.

Erlent

Leggur til hertar aðgerðir gegn vopnahlésbrotum Ísraela

Foringi UNIFIL-friðargæslusveitanna í Líbanon lagði til í gær að vopnum yrði beitt gegn brotum Ísraela á vopnahléssamningnum við Líbanon. Kvartar hann yfir því að Ísraelar fljúgi ítrekað yfir líbanska lofthelgi. Hann segir hins vegar að beiting ofbeldis krefjist breytingu á starfsreglum UNIFIL.

Erlent

Aftöku seinkað um 60 daga

Breskur ríkisborgari, sem taka átti af lífi í Pakistan meðan á opinberri heimsókn Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles eiginkonu hans stæði, verður ekki líflátinn fyrr en í lok ársins.

Erlent

Einn áttundi haldinn netfíkn

Einn af hverjum átta Bandaríkjamönnum á við netfíkn að stríða, að því er kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Stanford-háskólans í Kaliforníu. Hegðun netfíkla einkennist helst af áráttukenndri netnotkun og sífelldri athugun á tölvupósti, vefsíðum og spjall­svæðum. Þetta segir á vef fréttastofu BBC.

Erlent

Markmið Evrópumanna er að skáka MIT

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti á miðvikudag áform um stofnun evrópsks rannsóknaháskóla sem standa ætti bandaríska skólanum Massachusetts Institute of Technology (MIT) á sporði.

Erlent

1.500 starfsmenn í verkfalli

Þúsundir finnskra farþega komust ekki leiðar sinnar í gær þegar fimmtán hundruð flugþjónar finnska flugfélagsins Finnair lögðu niður störf. Nærri allt millilandaflug fyrirtækisins lá því niðri í gær þó nokkrar vélar flygju bæði til Evrópu og innanlands.

Erlent

Útfararstjórar í New York sekir

Sjö bandarískir útfararstjórar hafa játað aðild að líffæraþjófnaði úr líkum, að því er saksóknari í New York greindi frá í gær. Líffærin, meðal annars bein og húð, voru síðar seld til líffæraflutninga án samþykkis aðstandenda hinna látnu.

Erlent

Kínverjar milda Kim Jong-Il með gjöfum

Enn eykst pressan á Norður-Kóreu um að hætta við kjarnorkuframleiðslu sína. Í gær funduðu talsmenn Bandaríkjanna, Japans og Suður-Kóreu um málið og Kínverjar sendu hátt settan embættismann til Norður-Kóreu.

Erlent

Stóru flokkarnir myndi stjórn

Jiri Paroubek, leiðtogi tékkneskra jafnaðarmanna, hefur lagt til að mynduð verði samsteypustjórn síns flokks og höfuðkeppinautarins, íhaldsflokksins ODS. Það sé eina færa leiðin út úr pattstöðunni sem ríkt hefur í stjórnmálum landsins frá því kosið var til þings í sumar, en þeim lyktaði þannig að pólitísku fylkingarnar fengu nákvæmlega jafnmarga þingmenn, hundrað hvor.

Erlent

Barði mann eftir netrifrildi

Breskur netnotandi hefur verið fundinn sekur í máli sem kallað hefur verið fyrsta netbræðismálið þar ytra. Eftir að hafa hnakkrifist við annan mann á spjallsíðu leitaði sakborningurinn, Paul Gibbons, uppi heimilisfang viðmælanda síns, keyrði yfir hundrað kílómetra heim til hans og barði hann með axarskafti. Þetta kemur fram á vefsíðu fréttastofu BBC.

Erlent

Vilja átak gegn loftmengun

Evrópa á miklar hamfarir á hættu af völdum gróðurhúsa­áhrifanna nema þjóðir álfunnar grípi til róttækra ráðstafana til að draga úr loftmengun af brennslu hefðbundins eldsneytis eins og olíu og kola.

Erlent

OPEC dregur úr olíuframleiðslu

OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, ákváðu á fundi sínum í dag að draga úr framboði á olíu um 1.2 milljónir tunna á dag. Samkvæmt þessu verður framboð á olíu 26.3 milljónir tunna á dag frá 1. nóvember nk. Þetta er í fyrsta sinn í rúm 2 ár sem þetta bandalag 11 olíuútflutningsríkja kemst að niðurstöðu um að dregið verið úr framboði heilt yfir. Samtökin eru að reyna að tryggja alheimsverð á hráolíu sem hefur lækkað um 20% frá því að það náði hámarki, eða 78 bandaríkjadölum á tunnuna, þegar átök stóðu sem hæst milli Ísraela og Hizbollah-skæruliða í Líbanon í júlí sl.

Erlent