Erlent
Spilling í Írak kostar landið milljarða á ári Spilling innan íröksku ríkisstjórnarinnar kostar landið milljarða dollara ári og hluti fjárins rennur til andófsmanna í landinu. Þetta segir Stuart Bowen, bandarískur erindreki sem hefur eftirlit með uppbyggingu í landinu. Erlent 9.11.2006 09:33
Norsk vegabréf eftirsótt hjá fölsurum Vegabréfafalsarar eru sólgnir í norsk vegabréf, að því er fréttavefur Aftenposten greinir frá. Þar segir að Interpol hafi fengið tilkynningar um 130 þúsund norsk vegabréf sem hafa horfið. Haft er eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Noregi að stolin norsk vegabréf séu vinsæl erlendis. Margir noti vegabréfin til að komast inn í Noreg og þaðan séu þeim allir vegir færir um Schengen-svæðið. Erlent 9.11.2006 08:45
Órangútönum bjargað úr skógareldum Tugir órangútana sem eru í útrýmingarhættu hafa þurft að flýja náttúruleg heimkynni sín í frumskógum á Borneó-eyju í Indónesíu vegna elda sem bændur kveikja til að hreinsa land fyrir akra. Þykkan reyk leggur yfir frumskógana og er fáum dýrum vært þar. Dýraverndunarsamtök björguðu nokkrum þeirra og huguðu að þeim vegna reykeitrunar og brunasára. Erlent 9.11.2006 08:45
Eitt barn og einn hundur - kjarnafjölskyldan í Kína Ekki nóg með að Kínverjar megi einungis eiga eitt barn, nú mega íbúar Peking ekki eiga fleiri en einn hund. Borgaryfirvöld kenna vaxandi vinsældum gæludýrahalds um snaraukna tíðni hundaæðis og saka hundaeigendur um leti við að láta bólusetja dýrin. Þar að auki verður ólöglegt að viðra hundinn á ýmsum opinberum stöðum og verða eigendur sem brjóta reglurnar sóttir til saka. Erlent 9.11.2006 08:32
Búist við fjölmennum minningargöngum í Palestínu í dag Hundruð Palestínumanna gengu í gegnum borgina Hebron á vesturbakka Jórdanar í gær til að mótmæla árásum Ísraela á sofandi borgara í bænum Beit Hanoun í gærmorgun, þar sem 18 manns létust. Þeir brenndu ísraelska fánann og hrópuðu slagorð gegn Ísraelsríki. Búist er við fjölmennum göngum í dag til minningar um þá sem létust. Erlent 9.11.2006 08:15
Demókratar með meirihluta í öldungadeildinni Demókratar hljóta mjög líklega meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins þar sem talningu er nú nánast lokið í Virginíufylki og demókratinn Webb heldur óbreyttu forskoti, þó naumt sé. Munurinn er langt innan við eitt prósent, sem eru skekkjumörkin sem leyfa þeim sem tapar að krefjast endurtalningar. Rúm 7000 atkvæði eru hins vegar munur sem ólíklegt þykir að snúist við með endurtalningu. Erlent 9.11.2006 07:39
Arftaki Rumsfelds Aðeins nokkrum tímum eftir að Donald Rumsfeld sagði af sér embætti sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Bush forseti eftirmann hans í embættið. Sá heitir Robert Gates og er fyrrverandi framkvæmdastjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Erlent 9.11.2006 07:32
Íhuga kosti við að vinna saman Sameinuðu þjóðirnar íhuga að blanda saman sveitum Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði og sveitum Afríkusambandsins. Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði í Súdan hafa mætt mikilli andstöðu. Sveitir Afríkusambandsins hafa takmarkað fjármagn og eru illa útbúnar. Sameinaðar sveitir gætu nýtt styrkleika beggja og náð þannig betri árangri. Erlent 8.11.2006 23:39
Ungir fjölmenntu á kjörstaði Fjöldi ungra Bandaríkjamanna sem mætti á kjörstaði í gær hefur ekki verið meiri í tuttugu ár. Í kringum 24% kosningabærra Bandaríkjamanna undir þrítugu kaus í þingkosningunum í gær. Talið er að þróun mála í Írak hafi ýtt á hópinn að kjósa og tryggja Demókrötum meirihluta á þingi. Erlent 8.11.2006 23:01
Komast leiðar sinnar með stolið norskt vegabréf Norðmenn eru uggandi yfir þeirri þróun að sífellt fleiri séu stöðvaðir við vegabréfaeftirlit með falsað norskt vegabréf. Fréttavefur Aftenposten í Noregi greinir frá því að hjá Interpol séu tilkynningar um 130.000 norsk vegabréf sem er saknað. Alls eru 12 milljón stolin vegabréf á skrá hjá Interpol. Haft er eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Noregi að stolin norsk vegabréf séu vinsæl erlendis. Erlent 8.11.2006 22:24
Rumsfeld taldi gott fyrir alla að hann léti af embætti Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir niðurstöður þingkosninganna sem fram fóru í gær hluta ástæðunnar fyrir því að hann ákvað að segja af sér. Erlent 8.11.2006 22:00
Vatíkanið fordæmir Gleðigöngu samkynhneigðra Vatíkanið hefur fordæmt Gleðigöngu samkynhneigðra sem halda á í Jerúsalem í Ísrael á föstudaginn kemur. Vatíkanið telur gönguna særandi í garð trúaðra og hvetur yfirvöld í Ísrael til að koma í veg fyrir gönguna. Erlent 8.11.2006 21:20
Viðurkenndi að stefnan í málefnum Íraks virki ekki nógu vel George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í ræðu sem hann hélt fyrr í dag að stefna Bandaríkjamanna í málefnum Íraks væri ekki að virka nógu vel og ekki nógu hratt. Erlent 8.11.2006 20:12
Demókratar hafa tryggt sér Montana Demókrataflokkurinn hefur tryggt sér öldunadeildarþingsæti í Montana en ekki er talin þörf á endurtalningu þar eins og líklegt var talið fyrr í dag. Þar með hafa Demókratar bætt við sig fimm öldungadeildarþingsætum og vantar aðeins eitt þingsæti til að ná völdum í Öldungadeildinni. Erlent 8.11.2006 19:35
Donald Rumsfeld sagði af sér Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Við starfi hans tekur Robert Gates fyrrverandi yfirmaður CIA. Afsögnin er tilraun Bush forseta til að sætta ólík sjónarmið um utanríkisstefnu Bandaríkjanna eftir ósigur repúblikana í þingkosningunum í gær. Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi nú fyrir skömmu. Erlent 8.11.2006 18:09
Viðbrögð Bush við niðurstöðum kosninganna Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Flokkurinn náði aftur meirihluta í fulltrúadeild eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Svo gæti farið að flokkurinn nái einnig meirihluta í öldungadeild en eftir er að telja á ný í tveimur fylkjum. Útlit er fyrir að tvö síðustu ár George Bush, Bandaríkjaforseta, í embætti verði honum erfið. Hann flytur sjónvarpsávarp kl. 18 að íslenskum tíma sem verður sent út beint á visir.is Erlent 8.11.2006 17:08
Sjáðu Napólí og deyðu Lögreglan í Napólí, á Ítalíu, handtók í dag þrjátíu og, tvo menn, í fyrstu stóraðgerð sinni til þess að binda enda á morðöldu sem gengið hefur yfir borgina undanfarna mánuði. Erlent 8.11.2006 16:50
Skothríð í Danmörku Danska lögreglan hefur beitt skotvopnum sínum mun oftar á þessu ári, en undanfarin ár. Það sem af er árinu hefur verið hleypt af níutíu skotum. Erlent 8.11.2006 16:32
Móðir Parísar stolt af klámmyndbandinu Móðir Parísar Hilton er stolt af öllu sem hún hefur gert, einnig klámmyndbandinu sem fór á netið, ef marka má nýja ævisögu hennar sem Jerry nokkur Oppenheimer skráði. Erlent 8.11.2006 15:47
Evrópusambandið setur Tyrkjum úrslitakosti Evrópusambandið hefur gefið Tyrkjum frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur, eða taka þeim afleiðingum sem áframhaldandi hafnbann hefði á aðildarumsókn landsins. Erlent 8.11.2006 15:43
Segir Bandaríkjastjórn áfram stefna að öryggi í Írak Zalmey Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, fullvissaði í dag írakska stjórnmálamenn um að George Bush Bandaríkjaforseti stefndi áfram að því að tryggja öryggi í Írak og að hann myndi vinna með demókrötum að því markmiði. Þessi orð lét hann falla í kjölfar sigurs demókrata í kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær, en kosningarnar þóttu um margt mælikvarði á stuðning Bandaríkjamanna við aðgerðirnar í Írak. Erlent 8.11.2006 15:37
Þrennt hálshöggvið í Saudi-Arabíu Þrír Pakistanar, voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu, í dag, fyrir smygl á fíkniefnum. Þetta voru tvær konur og einn karlmaður. Þau voru hálshöggvin á almannafæri. Erlent 8.11.2006 14:55
Spennið beltin og kveikið ykkur í sígarettu "Við viljum minna farþega á að það er leyfilegt að reykja í þessu flugi". Þannig hljóðar kynningin hjá nýju þýsku flugfélagi, sem hefur fengið nafnið Smokers International Airways. Erlent 8.11.2006 14:40
Plastpokar bannaðir Zanzibar hefur bannað plastpoka, til þess að vernda umhverfið. Háar sektir, og jafnvel fangelsi, liggur við því að framleiða, flytja inn eða selja plastpoka. Erlent 8.11.2006 14:01
Rússar tvöfalda verð á gasi til Georgíu Forsætisráðherra Georgíu sakaði Rússa í dag um pólitíska kúgun, vegna ákvörðunar um að meira en tvöfalda verð á gasi sem Rússar selja til landsins. Slík hækkun myndi leggja efnahag Georgíu í rúst. Erlent 8.11.2006 13:31
Michael Jackson snýr aftur á sviðið Michael Jackson mun snúa aftur og flytja lög af albúminu "Thriller" á tónlistarhátíð í Lundúnum um miðjan þennan mánuð. Jackson mun þar taka við viðurkenningu fyrir að hafa selt meira en eitthundrað milljón plötur á ferli sínum. Erlent 8.11.2006 13:23
Erfiður róður framundan hjá Bush Landslagið í bandarískum stjórnmálum er breytt eftir niðurstöður þingkosninga þar í gær. Stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum segja ljóst að Bandaríkjaforseta muni reynast erfitt að koma stefnumálum sínum í gegnum þingið og staða hans verði allt önnur en síðustu sex árin. Erlent 8.11.2006 12:15
Hvað svo? Demókratar eru komnir með sannfærandi meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins og þó ekki sé enn útséð með öldungadeildina er staðan verulega bætt þar. Eftir áratug af gremju út í stjórn Bush og repúblikana gefst nú tækifæri til hefnda en ýmislegt bendir til að fyrirskipun dagsins sé önnur. Slagurinn fyrir forsetakosningarnar 2008 er formlega hafinn. Erlent 8.11.2006 11:38
Afkoma Pliva batnar milli ára Króatíska lyfjafyrirtækið Pliva skilaði 67,4 milljónum bandaríkjadölum í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta svarar til 4,6 milljarða íslenskra króna sem er talsverður viðsnúningur frá afkomu síðasta árs þegar fyrirtækið tapaði 34,1 milljón dal eða rúmlega 2,3 milljörðum króna. Erlent 8.11.2006 11:30
Hænuskóli í Hyderabad í Pakistan Pakistanskir embættismenn fundu bara kjúklinga í grunnskóla í borginni Hyderabad en engin börn. Draugaskólar svokallaðir eru algengt vandamál í Pakistan, þar sem fólk segist reka grunnskóla til þess að fá fjárstyrk frá ríkinu en stundar í raun einhverja gróðavænlegri starfsemi. Samkvæmt yfirliti fræðsluráðs borgarinnar voru 59 börn skráð í skólann. Erlent 8.11.2006 11:06