Erlent Góðar löggur Níu af hverjum tíu kvörtunum um framferði breskra lögregluþjóna, sem bornar voru fram á síðasta ári voru tilefnislausar, að mati sjálfstæðrar rannsóknarnefndar sem fær slíkar kvartanir til meðferðar. Kvörtunum fjölgar þó sífellt, og eru lögregluþjónum þyrnir í augum. Erlent 13.12.2006 13:15 Samkynhneigðir unnu sigur á færeyska lögþinginu Færeyska lögþingið hefur samþykkt, með 17 atkvæðum gegn 13, að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Samskonar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. Erlent 13.12.2006 13:08 Gagnrýnir fjölgun í öryggissveitum Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, gagnrýndi í dag Mahmoud Abbas, forseta, fyrir að fjölga í liði öryggissveita á Gaza ströndinni. Hann sagði að rétta leiðin til þess að koma í veg fyrir ofbeldi væri að virða sigur Hamas í þingkosningunum, sem skiluðu þeim til valda. Erlent 13.12.2006 13:00 Stefnir í stríð í Sómalíu Allt stefnir í alvarleg stríðsátök í Sómalíu eftir að íslamskir skæruliðar umkringdu borgina Baidoa í suð-vestur Sómalíu í morgun. Þar hefur bráðabirgðastjórn landsins hreiðrað um sig. Stjórnvöld í Eþíópíu viðurkenna að þau hafa flutt hergögn til stjórnvalda síðustu daga auk þess sem liðsmenn í eþíópíska hernum eru sagðir bíða átekta, tilbúnir til átaka ef látið verði sverfa til stáls. Erlent 13.12.2006 12:30 Leitar logandi ljósi að raðmorðingja Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á Englandi. Óttast er að ódæðismaðurinn fremji annað morð áður en lögregla hefur hendur í hári hans. Erlent 13.12.2006 12:15 Að minnsta kosti 17 fallnir í árásum í Írak í morgun Að minnsta kosti sautján hafa fallið í tveimur bílsprengjuárásum í Írak í morgun. Tíu létust og 25 særðust þegar bílsprengja sprakk í úthverfi sjía í Bagdad-borg í morgun nærri stað þar sem verkamenn koma saman og leita vinnu. Erlent 13.12.2006 11:04 Lofar Bandaríkjamönnum persónuvernd á ný Verðandi formaður laganefndar bandaríska þingsins lofaði í dag að berjast gegn því sem hann kallaði tilhneigingu Georges Bush til þess að fótum troða réttindi bandarískra þegna, í nafni baráttunnar gegn hryðjuverkum. Erlent 13.12.2006 10:25 Draga ekki úr olíuframleiðslu Olíuframleiðsluríkin í OPEC virðist ætla að verða við beiðni neysluþjóða um að draga ekki frekar úr olíuframleiðslu, í vetur, til þess að koma í veg fyrir verðhækkanir sem hefðu neikvæð áhrif á efnahagsþróun í heiminum. Erlent 13.12.2006 09:47 Dómari myrtur á Gaza Erlent 13.12.2006 09:26
Góðar löggur Níu af hverjum tíu kvörtunum um framferði breskra lögregluþjóna, sem bornar voru fram á síðasta ári voru tilefnislausar, að mati sjálfstæðrar rannsóknarnefndar sem fær slíkar kvartanir til meðferðar. Kvörtunum fjölgar þó sífellt, og eru lögregluþjónum þyrnir í augum. Erlent 13.12.2006 13:15
Samkynhneigðir unnu sigur á færeyska lögþinginu Færeyska lögþingið hefur samþykkt, með 17 atkvæðum gegn 13, að samkynhneigðir skuli njóta lagaverndar gegn háði og ofsóknum. Samskonar frumvarp var fellt með yfirgnæfandi meirihluta á síðasta ári. Erlent 13.12.2006 13:08
Gagnrýnir fjölgun í öryggissveitum Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, gagnrýndi í dag Mahmoud Abbas, forseta, fyrir að fjölga í liði öryggissveita á Gaza ströndinni. Hann sagði að rétta leiðin til þess að koma í veg fyrir ofbeldi væri að virða sigur Hamas í þingkosningunum, sem skiluðu þeim til valda. Erlent 13.12.2006 13:00
Stefnir í stríð í Sómalíu Allt stefnir í alvarleg stríðsátök í Sómalíu eftir að íslamskir skæruliðar umkringdu borgina Baidoa í suð-vestur Sómalíu í morgun. Þar hefur bráðabirgðastjórn landsins hreiðrað um sig. Stjórnvöld í Eþíópíu viðurkenna að þau hafa flutt hergögn til stjórnvalda síðustu daga auk þess sem liðsmenn í eþíópíska hernum eru sagðir bíða átekta, tilbúnir til átaka ef látið verði sverfa til stáls. Erlent 13.12.2006 12:30
Leitar logandi ljósi að raðmorðingja Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á Englandi. Óttast er að ódæðismaðurinn fremji annað morð áður en lögregla hefur hendur í hári hans. Erlent 13.12.2006 12:15
Að minnsta kosti 17 fallnir í árásum í Írak í morgun Að minnsta kosti sautján hafa fallið í tveimur bílsprengjuárásum í Írak í morgun. Tíu létust og 25 særðust þegar bílsprengja sprakk í úthverfi sjía í Bagdad-borg í morgun nærri stað þar sem verkamenn koma saman og leita vinnu. Erlent 13.12.2006 11:04
Lofar Bandaríkjamönnum persónuvernd á ný Verðandi formaður laganefndar bandaríska þingsins lofaði í dag að berjast gegn því sem hann kallaði tilhneigingu Georges Bush til þess að fótum troða réttindi bandarískra þegna, í nafni baráttunnar gegn hryðjuverkum. Erlent 13.12.2006 10:25
Draga ekki úr olíuframleiðslu Olíuframleiðsluríkin í OPEC virðist ætla að verða við beiðni neysluþjóða um að draga ekki frekar úr olíuframleiðslu, í vetur, til þess að koma í veg fyrir verðhækkanir sem hefðu neikvæð áhrif á efnahagsþróun í heiminum. Erlent 13.12.2006 09:47
Jólaskreytingar valda usla í Seattle Flugvallaryfirvöld í bandarísku borginni Seattle tóku niður fjórtán jólatré á flugvallarsvæðinu, eftir að rabbíi í borginni fór fram á að risastórri sjö arma ljósastiku yrði bætt við hátíðaskreytingarnar. Erlent 13.12.2006 08:16
Kyrrstæður bíll á lestarteinum olli lestarslysi í Ástralíu Lögreglan í Ástralíu hefur handtekið vöruflutningabílstjóra sem sagður er hafa valdið lestarslysi þar í landi í gær. Vel á níunda tug farþega voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar meiðsl eftir að lest, sem flytur farþega um vinsæla ferðamannastaði í óbyggðum Ástralíu, fór af sporinu er hún skall á vöruflutningabíl sem var kyrrstæður á lestarteinunum. Erlent 13.12.2006 07:44
Bush hefur frestað að kynna nýja stefnu í Írak George Bush, Bandaríkjaforseti, hefur frestað því að kynna nýja stefnu stjórnar sinnar í Írak þar til eftir áramót. Búist hafi verið við yfirlýsingu frá forsetanum fyrir jól en talsmaður forsetans segir hana ekki tilbúna og ekki að vænta fyrr en á nýju ári. Erlent 13.12.2006 07:38
Eitt lítið skref fyrir Fugelsang, stórt skref fyrir Svía Sænski geimfarinn Christer Fugelsang fór í sína fyrstu geimgöngu í gærkvöldi og nótt. Fugelsang og þrautreyndi Bandaríkjamaðurinn, Robert Curbeam, héldu áfram framkvæmdum utan á Alþjóðlegu geimstöðinni og tók ganga þeirra tæpar sjö klukkustundir. Erlent 13.12.2006 07:20
Fyrrum einræðisherra Eþíópíu sakfelldur fyrir þjóðarmorð Mengistu Haile Mariam, fyrrverandi einræðisherra í Eþíópíu, var í gær sakfelldur fyrir þjóðarmorð og önnur ódæði á sautján ára valdatíma sínum. Mengistu steypti Haile Selassie, keisara í Eþíópíu, árið 1974 í blóðugri byltingu og var síðan sjálfum komið frá völdum 1991. Erlent 13.12.2006 07:09
Sögð hafa setið fáklædd fyrir hjá listmálara Bretar eru afar uppteknir þessa dagana af mynd sem sögð er vera af forsætisráðherrafrúnni Cherie Blair í adamsklæðunum, en málverkið hefur ekki verið til sýnis í rúma tvo áratugi. Frú Blair er sögð hafa setið nakin fyrir hjá málaranum Euan Uglow á námsárum sínum, en hann lauk aldrei við málverkið. Erlent 13.12.2006 06:15
Ræða aðildarundirbúning Varnarmálaráðherrar sex landa á Balkanskaga settust á rökstóla í albönsku höfuðborginni Tirana í gær til að ræða tilraunir landa þeirra til að fá aðild að Atlantshafsbandalaginu. Erlent 13.12.2006 06:00
Tvö lík finnast til viðbótar Lögreglan í Suffolk í Bretlandi fann í gær lík tveggja kvenna til viðbótar þeim þrem sem fundist hafa í nágrenni Ipswich á undanförnum dögum. Konurnar störfuðu allar sem vændiskonur í Ipswich borg og voru allar myrtar. Erlent 13.12.2006 05:30
Kjarnorkuummæli setja Olmert í vanda Orð sem ísraelski forsætisráðherrann lét falla í þýsku sjónvarpsviðtali, þar sem hann virtist telja Ísrael sem kjarnorkuvígvætt land, hafa vakið hörð viðbrögð í Ísrael. Olmert reynir að bera í bætifláka, talar um mismæli og að ekkert hafi breyst. Erlent 13.12.2006 05:00
Karzai ásakar Pakistana Átta menn biðu bana er sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp við innganginn að skrifstofum héraðsstjóra Helmand-héraðs í sunnanverðu Afganistan í gær. Hamid Karzai forseti fordæmdi tilræðið og sakaði grannríkið Pakistan um að vera „forsprakka talíbana“. Erlent 13.12.2006 04:00
Ísinn bráðnar örar en áður Bandarískir vísindamenn telja að sumarísinn á norðurpólnum geti allur verið horfinn árið 2040. Hafísinn varð minnstur í ár í september og hefur hann einungis þrisvar áður mælst minni á síðustu 29 árum. Erlent 13.12.2006 03:00
Hvít-Rússi heiðraður Leiðtogi stjórnarandstöðu Hvíta-Rússlands, Alexander Milinkevits, tók í gær við mannréttindaverðlaunum Evrópusambandsins við hátíðlega athöfn í Frakklandi. Hlaut hann heiðurinn vegna baráttu sinnar fyrir lýðræði í heimalandi sínu. Erlent 13.12.2006 02:00
Herða ber reglur um ökunám Sífellt fleiri Danir á aldrinum 18 til 24 ára láta lífið á götum Danmerkur og í Politiken um helgina kölluðu sérfræðingar eftir því að ökunám þar í landi yrði hert til muna. Erlent 13.12.2006 01:00
Glingrið truflar þráðlaust net Jólaglingur getur haft svo mikil áhrif á þráðlaust net að styrkur þess minnkar um fjórðung. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn, sem fjallað er um á fréttavef danska blaðsins Berlingske Tidende. Erlent 13.12.2006 00:15
Morðingi Hariris var ekki líbanskur Rannsóknarlögreglumenn á vegum Sameinuðu þjóðanna telja sig hafa dregið upp nokkuð grófa mynd af sjálfsmorðssprengjumanni sem myrti Rafik Hariri í gífurlegri sprengingu, út frá einni tönn og 33 ofurlitlum, skaðbrunnum húðflipum. Rannsóknarnefndin segir hann hafa verið á þrítugsaldri og að hann hafi ekki verið líbanskur. Erlent 12.12.2006 23:23
Ísraelar virða enn vopnahléð á Gaza Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í kvöld að Ísraelar hefðu ekki í hyggju að svara fyrir sig þó að Palestínumenn hafi skotið um 20 eldflaugum frá Gaza eftir að vopnahlé komst á þar þann 26. nóvember. Vopnaðir hópar á Gaza segja nýlegar árásir Ísraelshers gegn skæruliðum á Vesturbakka Jórdanar brot á vopnahlénu, þó það sé einungis í gildi á Gaza. Erlent 12.12.2006 22:38
Fuglesang á geimgöngu Fyrsti Svíinn sem hefur komið út í geiminn er nú á leið í spásértúr í geimgalla á 28 þúsund kílómetra hraða á sporbaug um jörðu. Christer Fuglesang, fer í kvöld við annan mann út fyrir geimstöðina, til að halda áfram að byggja hana, sem er megintilgangur ferðar geimskutlunnar Discovery. Erlent 12.12.2006 22:20
Annan gagnrýnir allsherjarþingið Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi meðlimi allsherjarþings S.þ. í kvöld fyrir að bregðast ekki við vaxandi ofbeldi í átökum Ísraela og Palestínumanna. Hann flutti sitt síðasta ávarp um Miðausturlönd fyrir öryggisráðið í kvöld, þar sem hann lætur af störfum sem framkvæmdastjóri um áramótin. Erlent 12.12.2006 22:05
Öflugur jarðskjálfti á miklu dýpi nærri Indónesíu Öflugur neðansjávarjarðskjálfti hreyfði við norðausturhluta Indónesíu í kvöld en engin hætta er á flóðbylgju vegna þess hve djúpur sjórinn er þar sem skjálftinn á upptök sín. Skjálftinn mældist 6,5 á Richter-kvarðanum og átti upptök sín um 252 kílómetra norðaustur af eyjunni Sulawesi, á 237 kílómetra dýpi undir yfirborði sjávar og jarðskorpunnar. Erlent 12.12.2006 21:27
Þrýstihópur um Lónsheiðargöng innan Samstöðu Baráttuhópur um göng undir Lónsheiði í stað núverandi vegstæðis um Hvalnes- og Þvottárskriður hefur verið stofnaður undir verndarvæng regnhlífarsamtakanna Samstöðu, að sögn fréttavefjarins horn.is. Samtökin sameina marga þrýstihópa sem berjast fyrir bættu umferðaröryggi á landinu. Þau voru upphaflega stofnuð til að berjast fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar. Erlent 12.12.2006 21:08
Rabbíinn vildi ljósastiku í jólaskreytingarnar Flugvallaryfirvöld í Seattle í Bandaríkjunum tóku niður 14 jólatré eftir að rabbíi í borginni fór fram á risastórri sjö arma ljósastiku yrði bætt við jólaskreytingarnar. Trén voru sett upp aftur í gær eftir að rabbíinn fullvissaði flugvallarstjórnina um að hann myndi ekki þröngva gyðinglegum áhrifum inn í jólaljósin með dómsúrskurði. Erlent 12.12.2006 20:38