Erlent
Ekkert til fyrirstöðu Ekkert virðist því til fyrirstöðu lengur að Norður-Kóreumenn leggi kjarnorkuáætlunum sínum og slökkvi á kjarnaofninum í Yongban. Síðustu fyrirstöðunni hefur verið rutt úr vegi en það voru 25 milljónir bandaríkjadala í eigu Norður-Kóreu sem Bandaríkjamenn höfðu fryst á bankareikningi í Macau vegna gruns um peningaþvætti. Peningarnir verða nú millifærðir á reikning stjórnvalda í Poyngyang. Fulltrúar sexveldanna funda nú í Peking og svo virðist sem verið sé að höggva á allra síðustu hnútana. Erlent 19.3.2007 06:48
Lögregla á inni mikið frí vegna óeirða Kostnaðurinn við óeirðirnar í Kaupmannahöfn í tengslum við niðurif Ungómshússins í byrjun mánaðarins tekur á sig ýmsar myndir ef marka má frétt á vef Politiken. Erlent 18.3.2007 20:32
Réttur þriðjungur Bandaríkjamanna styður stríðið í Írak Rétt liðlega þriðjungur Bandaríkjamanna styður hernaðinn í Írak samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem bandaríska fréttastöðin CNN birti í dag en hún var gerð í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í Írak ásamt stuðningsmönnum sínum og steyptu Saddam Hussein af stóli. Erlent 18.3.2007 19:47
Skeytti skapi sínu á stórverslun Ekki liggur fyrir hvað reytti unglingsstúlku, í Minnesota í Bandaríkjunum, til reiði á föstudaginn en hún ákvað að skeyta skapi sínu á stórverslun. Erlent 18.3.2007 19:45
Grunur um að árásir tengist átökum gengja 15 ára unglingsstrákur var stunginn til bana í Lundúnum í gærkvöldi. Hann er annar unglingurinn sem hlýtur þau örlög þar í borg á þremur dögum. Í síðasta mánuði voru þrír unglingar skotnir til bana í suðurhluta borgarinnar í þremur mismunandi árásum. Grunur leikur á að ódæðin tengist öll átökum gengja. Erlent 18.3.2007 19:30
Aur flæddi niður fjallshlíðina Aur flæddi niður hlíðar eldfjallsins Ruapehu á Nýja Sjálandi í dag og eirði engu, ekki í fyrsta sinn. Íbúar, nærri fjallinu, eru vanir þessum hamförum og búnir undir þær. Erlent 18.3.2007 19:00
Miðjuflokkurinn með forystu eftir fyrstu tölur í Finnlandi Miðjuflokkur Mattis Vahanens, forsætisráðherra Finnlands, hefur forystu þegar fyrstu tölur hafa verið birtar í þingkosningum í Finnlandi en búið er að telja fjórðung atkvæða. Hafði flokkurinn fengið 24,8 prósent atkvæða en samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn, Jafnaðarmannaflokkurinn, er með 22,9 prósent. Erlent 18.3.2007 18:59
Þjálfari Pakistans í krikket deyr á heimsmeistaramóti Þjálfari pakistanska landsliðsins í krikket lést á sjúkrahúsi í Kingston á Jamaíku en hann fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi sínu fyrr í dag, degi eftir að liðið féll óvænt úr leik á heimsmeistaramótinu í krikket sem fram fer á Jamaíku. Erlent 18.3.2007 18:51
Milljón manns fallið í Írak Það er mat ástralsks sérfræðings að milljón mans hafi fallið í átökum í Írak frá því ráðist var inn í landið fyrir fjórum árum. Að sögn Sky fréttastofunnar byggir hann útreikninga sína á upplýsingum frá Barnahjálp og Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna og frá læknum í landinu. Aðfaranótt þriðjudagsins næsta eru fjögur ár liðin frá innrásinni í Írak. Erlent 18.3.2007 18:45
Munurinn á Sarkozy og Royal minnkar Aðeins hefur dregið saman með Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista í Frakklandi, og helsta andstæðingi hennar, íhaldsmanninum og innanríkisráðherranum Nicolas Sarkozy, samkvæmt tveimur nýjum skoðana könnunum. Tölurnar benda hins vegar enn til þess að Sarkozy verði næsti forseti Frakklands. Erlent 18.3.2007 17:03
Eldri gerðir berklabóluefnis betri Eldri gerðir berklabóluefnis virðast virka betur er þær nýrri. Þetta segja franskir læknar. Breytingar sem gerðar hafa verið á erfðaþáttum bóluefnisins til að reyna að draga úr hliðarverkunum þess hafa einnig leitt til þess að það virkar verr. Rannsakendur við Lois Pasteur-stofnunina vilja nú gera tilraunir með eldri gerðir bóluefnis og taka það aftur í notkun. Erlent 18.3.2007 16:21
Stjórnarandstæðingum meina að yfirgefa Simbabve Yfirvöld í Simbabve hafa meinað fjórum félögum í stjórnarandstöðunni að fara úr landi og börðu einn þeirra þegar hann hugðist fljúga til Evrópu á fund. Erlent 18.3.2007 16:15
Íhuga að malbika tunglið Vísindamenn kanna nú mögulega hættu sem geimförum stafar af því að anda að sér tunglryki. Rannsókn bendir til þess að smæstu agnir tunglryks gætu verið eitraðar en sannreyna á kenninguna með tilraunum á músum. NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur sett saman rannsóknarteymi sem á að kanna málið og komast að niðurstöðu fyrir fyrirætlaða tunglferð árið 2020. Erlent 18.3.2007 15:52
Níu skipverja saknað eftir árekstur flutningaskipa í Kínahafi Átta hafa fundist látnir og níu er saknað er eftir að tvö flutningaskip rákust saman á Austur-Kínahafi snemma í morgun. Björgunarsveitum tókst að bjarga 12 manns af skipunum upp í þyrlu og voru myndir af því sýndar í kínversku sjónvarpi. Erlent 18.3.2007 14:59
Innkallar katta- og hundamat vegna veikinda og dauða dýra Stór framleiðandi katta- og hundamatar í Bandaríkjunum innkallaði í gær 60 milljónir skammta af framleiðslu sinni eftir að bæði hundar og kettir hafa veikst og drepist eftir að hafa étið matinn. Erlent 18.3.2007 14:21
Fimm umferðaróhöpp á korteri í Danmörku Það er víðar en á Íslandi sem illviðri hefur áhrif á ferðir fólks því fimm umferðaróhöpp urðu á hraðbraut nærri Randers í Danmörku í morgun þegar mikið haglél skall skyndilega á. Óhöppin urðu á einungis fimmtán mínútum en í öllum tilvikum runnu bílarnir út af hraðbrautinni. Erlent 18.3.2007 13:34
Unglingur stunginn til bana í Lundúnum Fimmtán ára unglingur var stunginn til bana nærri heimaveill knattspyrnuliðsins West Ham í í Lundúnum í gærkvöld. Hann er annar unglingurinn sem stunginn er til bana á þremur dögum í borginni. Erlent 18.3.2007 13:15
Þingkosningar í Finnlandi í dag Kosið er til þings í Finnlandi í dag. Búist er við að mið- og vinstristjórn Matti Vanhanen, forsætisráðherra, haldi velli en svo gæti þó farið að einhverjar hrókeringar yrðu. Erlent 18.3.2007 12:15
Fagna 75 ára afmæli Hafnarbrúarinnar í Sydney Ástralir fagna í dag 75 ára afmæli Hafnarbrúarinnar í Sydney sem er eitt af einkennum borgarinnar. Fjölbreytt dagskrá verður við brúna að þessu tilefni, þar á meðal munu um 200 þúsund manns nýta sér fágætt tækifæri og ganga yfir brúna þar sem hún verður lokuð í dag fyrir bílaumferð. Erlent 18.3.2007 11:30
Safna undirskriftum gegn reykingabanni í Danmörku Andstaða við fyrirhugað reykingabann á veitingastöðum og krám í Danmörku sem taka á gildi um miðja ágústmánuð fer vaxandi eftir því sem greint er frá á vef Jótlandspóstsins. Þar segir að hópur veitingahúsaeigenda hafi nú hafið undirskriftasöfnun til þess að mótmæla banninu. Erlent 18.3.2007 11:15
Ræða ekki við ráðherra Hamas Bandaríkjamenn ætla ekki að aflétta banni sínu á fjárhagsaðstoð við palestínsku heimastjórnina þó ný þjóðstjórn hafi verið skipuð. Bandarísk stjórnvöld ætla ekki að ræða við ráðherra úr hópi Hamas-liða en útiloka ekki samskipti við aðra ráðherra eftir því sem þurfa þyki. Erlent 18.3.2007 11:00
Árás á skóla í Taílandi Að minnsta kosti þrír unglingar týndu lífi og sjö særðust þegar árás var gerð á íslamskan skóla í Suður-Taílandi í gær. Lögregla kennir uppreisnarmönnum úr hópi múslima um en þorpsbúar segja herinn hafa verið að verki. Erlent 18.3.2007 10:45
Þingkosningar í Finnlandi Kosið er til þings í Finnlandi í dag. Búist er við að mið- og vinstristjórn Matti Vanhanen, forsætisráðherra, haldi velli. Miðflokki Vanhanens er spáð fjórðungi atkvæða og þakka kjósendur stjórninni gott ástand efnhagsmála. Svo gæti þó farið að miðflokkur Vanhanens velji sér annan samstarfsflokk fyrir næsta kjörtímabil fari sem horfir. Erlent 18.3.2007 10:29
Blendin viðbrögð við nýrri þjóðstjórn Palestínumanna Evrópusambandið fagnaði í dag myndun þjóðstjórnar á heimasvæðum Palestínumanna en lýsti því um leið yfir efasemdum um stefnu hennar og aðgerðir. Bandaríkjamenn tóku hins vegar dýpra í árinni og sögðu þá stefnu stjórnarinnar að áskilja sér rétt til að berjast gegn Ísrael vekja ugg. Erlent 17.3.2007 20:31
Lögregla og lögmenn takast á í Pakistan Til harðra átaka kom í dag milli lögreglumanna og lögfræðinga í borginni Lahore í Pakistan þar sem lögmennirnir mótmæltu brottvikningu eins af hæstaréttardómurum landsins úr embætti. Erlent 17.3.2007 20:07
Óhóf í drykkju Íra Dagur heilags Patreks er haldinn hátíðlegur í dag og þá innbyrða Írar töluvert af áfengi. Samkvæmt nýrri könnun eru Írar mestu óhófsdrykkjumenn í Evrópu og því vekur sérstakt bjórtilboð, hjá stórmarkaði í Dublin, nokkrar deilur. Erlent 17.3.2007 19:30
Fyrsta konan formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins Mona Sahlin var í dag kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Formaður Samfylkingarinnar ávarpaði aukalandsfund flokksins í Stokkhólmi í dag og sagði það sögulegt að konur leiddu nú jafnaðarmenn í þremur Norðurlandanna. Erlent 17.3.2007 19:15
7 týndu lífi í flugslysi Að minnsta kosti 7 týndu lífi og nærri 30 slösuðust, þegar farþegaþota skall utan flugbrautar í lendingu í Síberíu í morgun. 50 farþegar og 7 manna áhöfn voru um borð. Vélin rann inn á flugbrautina og eftir henni þegar hún skall niður. Síðan valt hún. Erlent 17.3.2007 19:00
Klórgas notað í Írak 8 eru sagði látnir og 350 veikir, eftir 3 sjálfsmorðssprengjuárásir í Anbar-héraði í Írak í gær. Bílarnir voru allir fullir að klóri. Sprengjurnar sprungu með þriggja tíma millibili á þremur mismunandi stöðum í héraðinu en tveir árásarmannanna óku tankbílum og sá þriðji pallbíl. Erlent 17.3.2007 18:45
Norðmenn í hópi fyrstu þjóða til að viðurkenna þjóðstjórn Norðmenn eru í hópi fyrstu þjóða sem viðurkenna nýja þjóðsstjórn Palestínu, en hún var svarin í embætti í dag eftir að palestínska þingið hafði lagt blessun sína yfir hana. Norsk stjórnvöld hyggjast taka upp full stjórnmála- og efnahagsleg tengsl við Palestínumenn á ný og hvetja þá til að hafna ofbeldi og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. Erlent 17.3.2007 17:38