Erlent
Brown eykur fylgi Verkamannaflokksins í Bretlandi Mjög hefur dregið saman með Verkamannaflokknum breska og Íhaldsflokknum eftir að tilkynnt var að Gordon Brown myndi taka við embætti formanns flokksins. Aðeins munar nú um tveimur prósentustigum í könnunum en áður hafði munað allt að 12 prósentum á þeim. Erlent 24.5.2007 07:36
Bandaríkin vilja refsiaðgerðir gegn Íran Bandaríkin ætla sér að fara fram á frekari refsiaðgerðir gegn Íran fyrir að hafa ekki farið að fyrirmælum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 24.5.2007 07:25
Tamíltígrar gera árás á bækistöðvar sjóhersins Uppreisnarmenn Tamíltígra á Sri Lanka sögðu í nótt að þeir hefðu orðið 35 stjórnarsjóliðum að bana í árás á stöðvar sjóhersins í norðurhluta landsins. Talsmaður sjóhersins á Sri Lanka sagði þó aðeins tíu sjóliða hafa látið lífið. Á Sri Lanka er nú í gildi friðarsamkomulag en það er ítrekað virt að vettugi og æ líklegra er að borgarastyrjöld hefjist að nýju. Erlent 24.5.2007 07:22
Castro segir heilsu sína batna Fidel Castro, forseti Kúbu, sagði í nótt að heilsa hans hefði batnað verulega. Hann skrifar nú pistla í dagblöð stjórnarinnar á Kúbu til þess að auka áhrif sín á ný en hann hefur ekki sést opinberlega í tíu mánuði. Erlent 24.5.2007 07:21
Gassprenging í námu í Síberíu Gassprenging varð í námu í Síberíu í nótt. 217 námuverkamenn voru inni í námunni þegar sprengingin átti sér stað. Rúmlega 150 hefur þegar verið bjargað en hinir eru enn inni í námunni. Enn sem komið er eru fjórtán dauðsföll staðfest. Náman er á svipuðu svæði og náman sem sprakk í Síberíu í mars síðastliðnum. Erlent 24.5.2007 07:08
Viagra gegn flugþreytu Stinningarlyfið Viagra leysir ýmis vandamál Viagra-lyfið er þekktast fyrir að leysa úr stinningarvanda karlmanna. Nú hefur komið á daginn að það geti leyst fleiri vandamál. Erlent 24.5.2007 00:01
Kúrdar sverja af sér sjálfsmorðsárásina í Ankara Aðskilnaðarsamtök Kúrda í Tyrklandi, PKK, sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem segir að samtökin hafi hvergi komið nærri sprengingunni í Ankara á þriðjudaginn var. Erlent 23.5.2007 23:27
Umdeild auglýsing frá danska lögregluskólanum Auglýsing frá lögregluskólanum í Danmörku hefur valdið úlfaþyt í Danmörku. Í auglýsingunni er reynt að lokka ungt fólk til náms í skólanum á þeirri forsendu að það fái að nota byssu. Birting auglýsingarinnar þykir koma á heldur slæmum tíma fyrir yfirvöld því lögreglumenn í Danmörku hafa sætt gagnrýni fyrir að vera snöggir til þegar kemur að notkun skotvopna. Erlent 23.5.2007 23:08
Lögreglan engu nær um orsök þess að Cutty Sark brann Breska lögreglan, Scotland Yard, er enn engu nær um hvað olli því að hið sögufræga skip Cutty Sark skemmdist mikið í eldi á dögunum. Erlent 23.5.2007 21:18
Starfsmenn Coca-Cola dæmdir fyrir að reyna að selja viðskiptaleyndarmál til Pepsi Tveir fyrrum starfsmenn Coca-Cola voru í dag dæmdir til átta og fjögurra ára fangelsisvistar fyrir að reyna að selja aðal samkeppnisaðilanum, Pepsi, viðskiptaleyndarmál. Erlent 23.5.2007 21:07
AC Milan er Evrópumeistari 2007 AC Milan frá Ítalíu fagnaði nú rétt áðan sigri í Meistaradeild Evrópu með 2-1 sigri á Liverpool í úrslitaleik keppninnar í Aþenu í Grikklandi. Markahrókurinn Pippo Inzaghi kom Milan á bragðið á lokaandartökum fyrri hálfleiks þegar aukaspyrna Andrea Pirlo hrökk af höndinni á honum og í netið. Erlent 23.5.2007 20:42
Íbúar Napólí í rusli Ítalska borgin Napólí er að fyllast af sorpi. Heilu fjöllin af rusli hafa myndast á götum borgarinnar og fara þau hækkandi með degi hverjum. Ástæðan fyrir þessu er ekki verkfall á meðal sorphirðumanna, heldur sú einfalda staðreynd að ruslahaugar borgarinnar eru fullir. Erlent 23.5.2007 18:21
Pilla sem stöðvar tíðarhring Fyrsta getnaðarvarnarpillan sem hönnuð er til að stöðva blæðingar kvenna hefur verið samþykkt til almennrar notkunar í Bandaríkjunum. Matvæla- og lyfjaeftirlitið studdi samfellda notkun pillunnar Lybrel sem framleidd er af Wyeth. Sé pillan tekin daglega getur hún stöðvað mánaðartíðir auk þess að koma í veg fyrir getnað. Erlent 23.5.2007 16:41
Styttist í stóru stundina í Meistaradeildinni Það ríkir mikil eftirvænting hjá stuðningsmönnum Liverpool og AC Milan sem í kvöld leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. AC Milan hefur sex sinnum orðið Evrópumeistari en Liverpool fimm sinnum Leikurinn hefst klukkan 18:45 í kvöld en upphitun fyrir leikinn hefst á Sýn klukkan 18:00. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að sjá upphitun Stöðvar 2 í hádeginu. Erlent 23.5.2007 16:15
Tyrkneska konan með 12 kg af sprengiefni Kona sem tyrkneska lögreglan tók höndum í suðurhluta Tyrklands í dag áætlaði að gera sjálfsmorðsárás. Konan var handtekin í borginni Adana. Ilhan Atis ríkisstjóri borgarinnar sagði fréttastofunni Anatolian að konan hefði verið með rúmlega 12 kg af sprengiefni, þar af tvær handsprengjur og 12 hvellhettur. Erlent 23.5.2007 16:14
Eldflaugavarnir í A-Evrópu skaðlegar Rússar hafa engan áhuga á samvinnu við Bandaríkin vegna áforma þeirra um að koma upp eldflaugavörnum í Austur-Evrópu. Vladimir Putin forseti Rússlands sagði ekkert nýtt vera í áætlunum Bandaríkjamanna og þeim hefði ekki tekist að fullvissa Rússa um nauðsyn varnanna eða samvinnu. Skoðun Rússa sé sú að varnarkerfið sé fullkomlega skaðlegt. Erlent 23.5.2007 15:56
Kærður fyrir vatnsbyssuárás á sænska forsætisráðherrann Sænska leyniþjónustan hefur lagt fram kæru á hendur sjónvarpsmanni fyrir að sprauta úr vatnsbyssu á forsætisráðherra landsins, Fredrik Reinfeldt. Erlent 23.5.2007 15:42
Íranar vanvirða tímamörk SÞ Íranar hafa ekki einungis hunsað tímamörk öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að stoppa tilraunir með auðgun úrans. Þeir hafa aukið við kjarnorkuáætlun sína og ganga þannig þvert gegn ályktunum öryggisráðsins. Erlent 23.5.2007 14:57
Friðargæsluliðar SÞ skiptu vopnum fyrir gull Pakistanskir friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Kongó skiptu á vopnum fyrir gull við herskáa hópa sem þeim var ætlað að afvopna. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Kongósku herliðin áttu sök á verstu mannréttindabrotum á meðan borgarastríðið stóð yfir í landinu. Skiptin fóru fram árið 2005. Erlent 23.5.2007 14:33
Ópíum gæti orðið stór útflutningsvara Íraka Bændur í suðurhluta Írak eru farnir að rækta ópíum í stað hrísgrjóna. Þetta hefur vakið ótta um að landið gæti orðið stór útflytjandi heróíns, líkt og gerðist í Afghanistan. Breska dagblaðið Independent segir að hrísgrjónabændur við borgina Diwaniya, suður af Bagdad, hafi snúið sér frá hrísgrjónarækt og rækti nú ópíum. Erlent 23.5.2007 13:29
Gleðitíðindi fyrir farsímanotendur í Evrópu Kostnaður við að hringja úr farsíma í Evrópu mun lækka verulega ef ný áætlun Evrópusambandsins gengur í gegn. Lögmenn ESB hafa ákveðið að styðja ákvörðun um að setja þak á rokkandi farsímagjöld. Sú upphæð sem farsímanotendur eru nú rukkaðir fyrir að nota farsímana í útlöndum, mun lækka um allt að 75 prósent. Erlent 23.5.2007 12:51
Sjö bandarískir hermenn létust í Írak Sjö bandarískir hermenn létust í sprengjuárásum í Írak í gær. Flestir létust í vegasprengjum samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hernum. Í verstu árásinni létust þrír og tveir slösuðust þegar herdeildin lenti í margföldum sprengingum. Í yfirlýsingu frá hernum var staðsetning árásanna ekki gefin upp. Erlent 23.5.2007 12:26
Tveir teknir með sprengjur í Tyrklandi Par var handtekið af lögreglu í Adana í Tyrklandi í morgun með fimm kg af sprengiefni í fórum sínum. Ríkisrekna fréttastofan Anatolian skýrði frá þessu. Ekki er ljóst hvort fólkið tengist sprengjutilræðinu í höfuðborginni Ankara í gær. En þar létust sex manns og rúmlega 100 slösuðust. Erlent 23.5.2007 12:12
Tveir yfirheyrðir aftur vegna mannráns Madeleine Portúgalska lögreglan er nú að yfirheyra tvo aðila vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Fólkið mun vera yfirheyrt sem vitni og hefur áður verið kallað til yfirheyrslu vegna málsins. Á fréttavef Sky segir að Robert Murat sé ekki annar aðilanna. Kate og Gerry foreldrar Madeleine eru nú í Fatima í Portúgal þar sem þau heimsækja heilagt hof. Erlent 23.5.2007 11:41
Ankara sprenging var sjálfsmorðsárás Nú er ljóst að sprengjutilræðið sem varð sex manns að bana og særði meira en 100 manns í Ankara í Tyrklandi í gær var sjálfsmorðsárás. Kemal Onal ríkisstjóri höfuðborgarinnar tilkynnti í dag að rannsóknir á vettvangi leiddu þetta í ljós. Sprengingin varð á háannatíma við verslunarmiðstöð í Ulus sem er fjölfarið verslunar og markaðshverfi. Erlent 23.5.2007 11:19
Tólf dæmdir fyrir morð á serbneskum forsætisráðherra Serbneskur dómstóll hefur dæmt 12 menn fyrir morðið á hinum vesturlandasinnaða forsætisráðherra Zoran Djindjic í Belgrad árið 2003. Allir hinna dæmdu höfðu neitað ákærunum, en þeir eru meðal annars meðlimir öryggislögreglunnar og eru taldir tengjast mafíuforsprökkum. Erlent 23.5.2007 10:53
Danir styðja hvalveiðar undir eftirliti Dönsk stjórnvöld ætla að styðja hvalveiðar undir ströngu eftirliti vísidanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins. Per Stig Möller utanríkisráðherra segist njóta stuðnings umhverfisnefndar þingsins í þessu máli enda sé hér miðað við sjálfbærar veiðar, sem ekki ógni hvalastofnunum. Erlent 23.5.2007 10:42
130 sviptir ökuskírteini fyrir hraðakstur í Danmörku Ríflega 130 manns voru sviptir ökuskírteini í sérstöku umferðarátaki lögreglunnar í Danmörku í síðustu viku. Fram kemur á vef Jótlandspóstsins að alls hafi 1400 ökumenn verið teknir fyrir of hraðan akstur á hraðbrautum Danmerkur. Erlent 23.5.2007 10:15
Níu ára njósnamyndband Litvinenko birt Níu ára gamalt myndband með fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko og tveimur öðrum rússneskum njósnurum hefur litið dagsins ljós. Myndbandið átti einungis að birta ef einhver mannanna yrði myrtur. Þar segja þeir frá fyrirskipunum að ofan um að myrða háttsetta menn, eins og útlæga viðskiptamanninn Boris Berezovsky. Mennirnir segjast einnig óttast um líf sitt og sinna nánustu. Erlent 23.5.2007 09:45
Líkur á verkfalli hjá SAS aukast Verkalýðsfélag áhafnarmeðlima flugfélagsins SAS hafnaði í dag lokatilboði samningamanna og þar með aukast líkur á verkfalli mikið. Áður hafði félagið sagt að 800 manns muni leggja niður vinnu þann 25. maí vegna vinnuskilyrða og launa. „Við viljum lausn á vinnutíma þar sem þetta var ekki í tilboðinu frá samningamönnunum. Þetta snýst ekki eingöngu um laun. Boltinn er hjá SAS núna.“ sagði aðalsamningamaður félagsins í morgun. Erlent 23.5.2007 08:47