Ópíum gæti orðið stór útflutningsvara Íraka Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 23. maí 2007 13:29 Forsíða Independent í dag.
Bændur í suðurhluta Írak eru farnir að rækta ópíum í stað hrísgrjóna. Þetta hefur vakið ótta um að landið gæti orðið stór útflytjandi heróíns, líkt og gerðist í Afghanistan. Breska dagblaðið Independent segir að hrísgrjónabændur við borgina Diwaniya, suður af Bagdad, hafi snúið sér frá hrísgrjónarækt og rækti nú ópíum. Þróunin sé enn á byrjunarstigi í landinu, en ríkisstjórnin geti lítið gert til þess að sporna við ræktuninni þar sem herskáir Síja múslimar ráði yfir Diwaniya. Blóðug átök hafa átt sér stað á svæðinu milli þeirra, lögreglu, íraska hersins og bandarískra hermanna síðustu tvo mánuði. Svæðið suður og vestur af borginni er þekkt fyrir hrísgrjónarækt. Blaðið segir ræktunina erfiðleikum bundna vegna mikilla hita og raka. Þá sé of hættulegt fyrir erlenda fréttamenn að heimsækja svæðið. Heimildarmenn blaðsins í Basra, sem kunnugir eru eiturlyfjaviðskiptum í Írak, staðfesta þróunina. Eiturlyfjasmyglarar hafa um árabil notað Írak sem viðkomustað fyrir eiturlyf á leið til ríkra markaða í Saudi Arabíu og við Persaflóa. Öryggissveitir Saddam Husseins í Basra voru taldir taka þátt í þessu ólöglega athæfi. Ólíklegt þykir að bændurnir hafi tekið ákvörðunina skyndilega og er talið að gengi fjármagni framleiðsluna. Þau séu vel skipulögð og búin góðum bílakosti og vopnum.
Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fleiri fréttir Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Sjá meira