Erlent Fimmti dagur átaka hefst í Líbanon Enn er barist í flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í útjaðri Trípóli í Líbanon. Hávær skothríð heyrist ennþá koma frá þeim. Þúsundir hafa flúið ástandið og sest að í nærliggjandi búðum. Erfitt hefur verið að koma neyðaraðstoð til þeirra sem á henni þurfa að halda vegna skothríðar. Erlent 25.5.2007 07:09 Bandaríska þingið samþykkir aukafjárveitingu Báðar deildir bandaríska þingsins samþykktu í nótt aukafjárveitingu til hersins án þess að tengja hana við heimkvaðningu hermanna frá Írak. Erlent 25.5.2007 06:55 Bandaríkjaþing samþykkir fjárveitingafrumvarp vegna stríðs í Írak Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti nú í kvöld frumvarp um fjárveitingar til Íraksstríðsins en miklar deilur hafa staðið um frumvarpið á milli forsetans og demókrata sem eru í meirihluta á þinginu. Ekki er að finna í frumvarpinu tímamörk sem tilgreina hvenær bandaríkjamenn hverfa frá Írak. Erlent 24.5.2007 23:27 Bandaríkjamenn senda Líbönskum stjórnarhermönnum vopn Líbanskar hersveitir sem eiga í höggi við íslömsk öfgasveitir eiga von á vopnasendingu frá bandaríska hernum á næstu dögum. Enn geysa harðir bardagar í landinu og í tilkynningu frá samtökunum Fatah al-Islam sem barst í dag, er sprengjuárásum á vestræna skóla í landinu hótað, gefist hermenn stjórnarinnar ekki upp. Erlent 24.5.2007 22:32 Grænar grundir á Trafalgar torgi Þeir sem hafa heimsótt London vita að á Trafalgar torgi er lítið um gróður, hvað þá rennisléttar grasflatir sem myndu sóma sér vel á golfvelli. Þannig er þó umhorfs á torginu í dag þó að breytingin sé aðeins tímabundin. Erlent 24.5.2007 22:03 Þrjú til átta ár í að Íranir geti smíðað kjarnavopn Íranir eiga enn nokkuð í land með að smíða kjarnorkuvop, sé það á annað borð á dagskrá hjá stjórnvöldum, segir yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Mohammad ElBaradai segir að landið eigi ekki kost á kjarnorkuvopnum fyrr en í byrjun næsta áratugar eða jafnvel ekki fyrr en um hann miðjan. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Lúxembúrg í dag. Erlent 24.5.2007 20:23 Kókheimurinn opnaður í Atlanta Þekktasta vörumerki heims verður í hávegum haft í Kókheiminum sem var opnaður með pompi og prakt í Atlanta í Bandaríkjunum á dag. Búist er við milljón gestum á ári. Erlent 24.5.2007 19:36 Bruni í Björgvin Gríðarlegir olíueldar loguðu nærri olíuhreinsunarstöð í Björgvin í Noregi í dag. Mikil sprenging varð í olíutanki. Vinnslustöðin hefur verið notuð sem dæmi um þá stöð sem myndi rísa á Vestfjörðum ef af yrði. Erlent 24.5.2007 18:45 Maður með exi handtekinn í námunda við drottningu Breska lögreglan handtók í dag mann rétt áður en Elísabet englandsdrottning hélt í göngutúr á meðal þegna sinna í borginni Huddersfield. Lögreglan réðst að manninum ásamt lífvörðum drottningar og handjárnaði hann eftir nokkur átök. Erlent 24.5.2007 18:25 Námusprenging í Rússlandi grandar 38 Að minnsta kosti 38 létust og sex slösuðust í metangassprengju í rússneskri kolanámu í Síberíu í dag. Tæplega 180 manns var bjargað lifandi úr námunni eftir sprenginguna, en tveggja er enn saknað. Náman er í Kemerovo héraði. Í mars síðastliðnum létust 100 manns í sprengingu í annarri námu í héraðinu. Erlent 24.5.2007 17:08 Bush: Krítískur tími fyrir Írak George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við því að komandi vikur og mánuðir yrðu krítískir fyrir velgengni nýrrar öryggisáætlunar fyrir Írak. Bush talaði við fréttamenn í Hvíta húsinu og sagði síðustu hermenn sem sendir verða til Íraks til að fylgja áætluninni eftir myndu fara þangað um miðjan júní. Hörð átök myndu halda áfram í Írak á þessum tíma. Erlent 24.5.2007 16:22 Seinfeld stjarna á grænni grein Það er kallað "Seinfeld bölvunin." Leikurum í Seinfeld þáttaröðinni hefur ekki gengið neitt sérlega vel að fá hlutverk eftir að þættirnir voru slegnir af. Nema hvað Jerry hefur nóg að gera. Það er þó kannski ástæðulaust að vorkenna þeim, því þau voru orðin moldrík á þáttunum. Erlent 24.5.2007 16:02 Mamma barði hákarlinn í klessu Fimm barna áströlsk móðir barði hákarl svo fast í hausinn með myndavél sinni að hann sleppti taki sínu á fæti hennar og synti burt frá henni og tveimur sonum hennar. Becky Cooke er þrjátíu og átta ára gömul. Hún var ásamt fjölskyldu sinni að vaða í sjónum við ströndina í Perth, þegar hún fann eitthvað skella á fæti sínum af miklum þunga. Erlent 24.5.2007 15:58 Losun gróðurhúsalofttegunda verði helminguð Shinzo Abe forsætisráðherra Japan lagði í dag til að alþjóðlegt markmið yrði sett um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um helming fyrir árið 2050. Japanir myndu styðja þróunarríki með fjárframlögum ef þau vildu skuldbinda sig til að hefta losunin lofttegundanna. Erlent 24.5.2007 15:56 Eldarnir slökktir í Björgvin Erlent 24.5.2007 15:35 SAS fellir niður flug á morgun Skandinavíska flugfélagið SAS tilkynnti í dag að öll flug frá sænskum flugvöllum yrðu felld niður á morgun vegna verkfalls flugliða. Sænska verkalýðsfélagið HTF sagði að um 800 hundruð flugliðar sem staðsettir eru í Svíþjóð færu í verkfall frá og með morgundeginum. Laun-og vinnuaðstæður eru meðal ágreiningsefna, auk matar- og hvíldartíma. Erlent 24.5.2007 15:26 Síðasta myndin af Madeleine birt Fjölskylda Madeleine McCann hefur birt síðustu myndina sem tekin var af telpunni áður en hún hvarf í Portúgal. Á henni er Maddie brosandi og að dingla fótunum ofan í sundlaug með föður sínum og Sean, yngri bróður. Kate McCann móðir stúlkunnar tók myndina daginn sem henni var rænt. Erlent 24.5.2007 15:06 Kærastan farin frá Wolfowitz Maí var ekki góður mánuður fyrir Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans. Fyrst missti hann vinnuna fyrir að hygla kærustu sinni. Og hann var ekki fyrr búinn að missa vinnuna en kærastan fór frá honum. Bandaríska dagblaðið New York Post segir að Shaha Riza hafi sagt bankastjóranum fyrrverandi upp. Erlent 24.5.2007 14:41 Sveppir nærast á geislavirkni Vísindamenn við Albert Einsteinstofnun Yeshiva-háskólans hafa komist að því að fjöldi sveppategunda getur nærst á geislavirkni. Sé hófleg geislavirkni til staðar vaxa þeir betur og fjölga sér hraðar. Rannsókn á þessum hæfileika sveppa hefur staðið yfir í fimm ár. Erlent 24.5.2007 14:00 3 til 8 ár í kjarnorkuvopn Að öllu óbreyttu verða Íranar búnir að framleiða sín fyrstu kjarnorkuvopn inna þriggja til átta ára. Þetta fullyrti Mohamed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, á alþjóðaráðstefnu um kjarnorkuvá sem hófst í Lúxembúrg í morgun. Erlent 24.5.2007 12:45 Pilla sem stöðvar blæðingar Ný pilla er í þróun hjá lyfjafyrirtækinu Wyeth. Ber hún nafnið Lybrel og er ætluð konum sem vilja stöðva blæðingar. Allar getnaðarvarnarpillur virka þannig að þær stöðva egglos og bæla tíðir. Venjulega er pillan ekki tekin í eina viku á hverjum tíðahring og konur fara því á blæðingar eins og venjulega. Erlent 24.5.2007 12:00 McDonalds vill breyta skilgreiningu á McStarfi Skyndibitarisinn McDonalds hefur farið fram á að skilgreining á hugtakinu McJob verði breytt. Í enskum orðabókum er orðið skýrt sem lýsing á starfi sem sé ekki hvetjandi, illa borgað og bjóði upp á lítinn ávinning eða möguleika á stöðuhækkun. McDonalds segir að þessi lýsing sé úrelt og móðgandi. Erlent 24.5.2007 11:15 Vill banna hundaföt Tíu ára gömul norsk telpa hefur skrifað Dýraverndarráði landsins og krafist þess að fólki verði bannað að klæða hunda sína í föt, skó, sólgleraugu og annað prjál. Lotta Nilsson segir að það sé dýrunum óeðlilegt að hafa þetta utan á sér og að þau líði fyrir það. Dýraverndarráðið er sammála Lottu. Erlent 24.5.2007 10:43 Hjón ákærð fyrir þrælahald í New York Vellauðugt par var á þriðjudag ákært fyrir að hafa um árabil haldið tveimur indónesískum konum í þrælkun á heimili sínu í New York. Erlent 24.5.2007 10:37 Bretland: Þrír grunaðir hryðjuverkamenn strjúka Breska lögreglan tilkynnti í gærkvöldi að þrír grunaðir hryðjuverkamenn sem hafa verið í nokkurs konar stofufangelsi hafi strokið. Ákvörðun Scotland Yard um að létta nafnleynd yfir mönnunum þykir benda til hversu alvarlegum augum hvarf mannanna er litið. Tveir þeirra eru bræður manns sem var fangelsaður í síðasta mánuði fyrir að skipuleggja sprengjuárásir í Bretlandi. Erlent 24.5.2007 10:37 Kenna stuðningsmönnum Liverpool um vandræðin Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur kennt áhangendum Liverpool um vandræðin fyrir leikinn. Óeirðalögregla í Aþenu notaði táragas og kylfur til þess að hafa stjórn á aðdáendunum þegar þeim var sagt að snúa heim á leið þar sem leikvangurinn væri fullur. Erlent 24.5.2007 10:11 Rannsaka hugsanlegt fuglaflensusmit í Wales Verið er að rannsaka hvort fuglaflensa hafi brotist út í Norður-Wales. Dauðir fuglar fundust Denbighshire-héraði sem er landsbyggðarhérað en breskir miðlar segja lítið annað vitað um málið. Erlent 24.5.2007 10:03 Fjórtán prósent dönsku þjóðarinnar glíma við offitu 750 þúsund Danir, eða um 14 prósent dönsku þjóðarinnar, þjást af offitu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Greint er frá niðurstöðunum á vef Jótlandspóstsins en skýrslan var unnin að beiðni heilbrigðisráðuneytis Danmerkur. Erlent 24.5.2007 09:55 60 metra eldsúlur standa til himins í Björgvin Gríðarlegir olíueldar geisa í olíuhreinsunarstöð í Björgvin í Noregi, eftir að þar varð mikil sprenging í morgun. Eldsúlurnar standa 50 til 60 metra í loft upp og verið er að rýma næsta nágrenni. Ekki er vitað um manntjón á þessari stundu. Slökkvilið og björgunarsveitir streyma til Björgvinjar úr nágrannabæjum og herþyrlur hafa einnig verið sendar á vettvang. Erlent 24.5.2007 09:54 32 látnir eftir námuslys í Síberíu 32 hafa nú fundist látnir eftir gassprengingu sem varð í námu í Síberíu í morgun. Sex manns er enn saknað en tekist hefur að bjarga 179 manns. Sprengingin varð þegar 217 manns voru að störfum í námunni. Slys í námum í Rússlandi eru algeng en námuverkamenn þar í landi fá borgað eftir framleiðni. Þeir slökkva því oft á öryggisbúnaði sem varar við gasmagni til þess að geta unnið meira úr námunum. Erlent 24.5.2007 09:09 « ‹ ›
Fimmti dagur átaka hefst í Líbanon Enn er barist í flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í útjaðri Trípóli í Líbanon. Hávær skothríð heyrist ennþá koma frá þeim. Þúsundir hafa flúið ástandið og sest að í nærliggjandi búðum. Erfitt hefur verið að koma neyðaraðstoð til þeirra sem á henni þurfa að halda vegna skothríðar. Erlent 25.5.2007 07:09
Bandaríska þingið samþykkir aukafjárveitingu Báðar deildir bandaríska þingsins samþykktu í nótt aukafjárveitingu til hersins án þess að tengja hana við heimkvaðningu hermanna frá Írak. Erlent 25.5.2007 06:55
Bandaríkjaþing samþykkir fjárveitingafrumvarp vegna stríðs í Írak Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti nú í kvöld frumvarp um fjárveitingar til Íraksstríðsins en miklar deilur hafa staðið um frumvarpið á milli forsetans og demókrata sem eru í meirihluta á þinginu. Ekki er að finna í frumvarpinu tímamörk sem tilgreina hvenær bandaríkjamenn hverfa frá Írak. Erlent 24.5.2007 23:27
Bandaríkjamenn senda Líbönskum stjórnarhermönnum vopn Líbanskar hersveitir sem eiga í höggi við íslömsk öfgasveitir eiga von á vopnasendingu frá bandaríska hernum á næstu dögum. Enn geysa harðir bardagar í landinu og í tilkynningu frá samtökunum Fatah al-Islam sem barst í dag, er sprengjuárásum á vestræna skóla í landinu hótað, gefist hermenn stjórnarinnar ekki upp. Erlent 24.5.2007 22:32
Grænar grundir á Trafalgar torgi Þeir sem hafa heimsótt London vita að á Trafalgar torgi er lítið um gróður, hvað þá rennisléttar grasflatir sem myndu sóma sér vel á golfvelli. Þannig er þó umhorfs á torginu í dag þó að breytingin sé aðeins tímabundin. Erlent 24.5.2007 22:03
Þrjú til átta ár í að Íranir geti smíðað kjarnavopn Íranir eiga enn nokkuð í land með að smíða kjarnorkuvop, sé það á annað borð á dagskrá hjá stjórnvöldum, segir yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Mohammad ElBaradai segir að landið eigi ekki kost á kjarnorkuvopnum fyrr en í byrjun næsta áratugar eða jafnvel ekki fyrr en um hann miðjan. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Lúxembúrg í dag. Erlent 24.5.2007 20:23
Kókheimurinn opnaður í Atlanta Þekktasta vörumerki heims verður í hávegum haft í Kókheiminum sem var opnaður með pompi og prakt í Atlanta í Bandaríkjunum á dag. Búist er við milljón gestum á ári. Erlent 24.5.2007 19:36
Bruni í Björgvin Gríðarlegir olíueldar loguðu nærri olíuhreinsunarstöð í Björgvin í Noregi í dag. Mikil sprenging varð í olíutanki. Vinnslustöðin hefur verið notuð sem dæmi um þá stöð sem myndi rísa á Vestfjörðum ef af yrði. Erlent 24.5.2007 18:45
Maður með exi handtekinn í námunda við drottningu Breska lögreglan handtók í dag mann rétt áður en Elísabet englandsdrottning hélt í göngutúr á meðal þegna sinna í borginni Huddersfield. Lögreglan réðst að manninum ásamt lífvörðum drottningar og handjárnaði hann eftir nokkur átök. Erlent 24.5.2007 18:25
Námusprenging í Rússlandi grandar 38 Að minnsta kosti 38 létust og sex slösuðust í metangassprengju í rússneskri kolanámu í Síberíu í dag. Tæplega 180 manns var bjargað lifandi úr námunni eftir sprenginguna, en tveggja er enn saknað. Náman er í Kemerovo héraði. Í mars síðastliðnum létust 100 manns í sprengingu í annarri námu í héraðinu. Erlent 24.5.2007 17:08
Bush: Krítískur tími fyrir Írak George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við því að komandi vikur og mánuðir yrðu krítískir fyrir velgengni nýrrar öryggisáætlunar fyrir Írak. Bush talaði við fréttamenn í Hvíta húsinu og sagði síðustu hermenn sem sendir verða til Íraks til að fylgja áætluninni eftir myndu fara þangað um miðjan júní. Hörð átök myndu halda áfram í Írak á þessum tíma. Erlent 24.5.2007 16:22
Seinfeld stjarna á grænni grein Það er kallað "Seinfeld bölvunin." Leikurum í Seinfeld þáttaröðinni hefur ekki gengið neitt sérlega vel að fá hlutverk eftir að þættirnir voru slegnir af. Nema hvað Jerry hefur nóg að gera. Það er þó kannski ástæðulaust að vorkenna þeim, því þau voru orðin moldrík á þáttunum. Erlent 24.5.2007 16:02
Mamma barði hákarlinn í klessu Fimm barna áströlsk móðir barði hákarl svo fast í hausinn með myndavél sinni að hann sleppti taki sínu á fæti hennar og synti burt frá henni og tveimur sonum hennar. Becky Cooke er þrjátíu og átta ára gömul. Hún var ásamt fjölskyldu sinni að vaða í sjónum við ströndina í Perth, þegar hún fann eitthvað skella á fæti sínum af miklum þunga. Erlent 24.5.2007 15:58
Losun gróðurhúsalofttegunda verði helminguð Shinzo Abe forsætisráðherra Japan lagði í dag til að alþjóðlegt markmið yrði sett um að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um helming fyrir árið 2050. Japanir myndu styðja þróunarríki með fjárframlögum ef þau vildu skuldbinda sig til að hefta losunin lofttegundanna. Erlent 24.5.2007 15:56
SAS fellir niður flug á morgun Skandinavíska flugfélagið SAS tilkynnti í dag að öll flug frá sænskum flugvöllum yrðu felld niður á morgun vegna verkfalls flugliða. Sænska verkalýðsfélagið HTF sagði að um 800 hundruð flugliðar sem staðsettir eru í Svíþjóð færu í verkfall frá og með morgundeginum. Laun-og vinnuaðstæður eru meðal ágreiningsefna, auk matar- og hvíldartíma. Erlent 24.5.2007 15:26
Síðasta myndin af Madeleine birt Fjölskylda Madeleine McCann hefur birt síðustu myndina sem tekin var af telpunni áður en hún hvarf í Portúgal. Á henni er Maddie brosandi og að dingla fótunum ofan í sundlaug með föður sínum og Sean, yngri bróður. Kate McCann móðir stúlkunnar tók myndina daginn sem henni var rænt. Erlent 24.5.2007 15:06
Kærastan farin frá Wolfowitz Maí var ekki góður mánuður fyrir Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans. Fyrst missti hann vinnuna fyrir að hygla kærustu sinni. Og hann var ekki fyrr búinn að missa vinnuna en kærastan fór frá honum. Bandaríska dagblaðið New York Post segir að Shaha Riza hafi sagt bankastjóranum fyrrverandi upp. Erlent 24.5.2007 14:41
Sveppir nærast á geislavirkni Vísindamenn við Albert Einsteinstofnun Yeshiva-háskólans hafa komist að því að fjöldi sveppategunda getur nærst á geislavirkni. Sé hófleg geislavirkni til staðar vaxa þeir betur og fjölga sér hraðar. Rannsókn á þessum hæfileika sveppa hefur staðið yfir í fimm ár. Erlent 24.5.2007 14:00
3 til 8 ár í kjarnorkuvopn Að öllu óbreyttu verða Íranar búnir að framleiða sín fyrstu kjarnorkuvopn inna þriggja til átta ára. Þetta fullyrti Mohamed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, á alþjóðaráðstefnu um kjarnorkuvá sem hófst í Lúxembúrg í morgun. Erlent 24.5.2007 12:45
Pilla sem stöðvar blæðingar Ný pilla er í þróun hjá lyfjafyrirtækinu Wyeth. Ber hún nafnið Lybrel og er ætluð konum sem vilja stöðva blæðingar. Allar getnaðarvarnarpillur virka þannig að þær stöðva egglos og bæla tíðir. Venjulega er pillan ekki tekin í eina viku á hverjum tíðahring og konur fara því á blæðingar eins og venjulega. Erlent 24.5.2007 12:00
McDonalds vill breyta skilgreiningu á McStarfi Skyndibitarisinn McDonalds hefur farið fram á að skilgreining á hugtakinu McJob verði breytt. Í enskum orðabókum er orðið skýrt sem lýsing á starfi sem sé ekki hvetjandi, illa borgað og bjóði upp á lítinn ávinning eða möguleika á stöðuhækkun. McDonalds segir að þessi lýsing sé úrelt og móðgandi. Erlent 24.5.2007 11:15
Vill banna hundaföt Tíu ára gömul norsk telpa hefur skrifað Dýraverndarráði landsins og krafist þess að fólki verði bannað að klæða hunda sína í föt, skó, sólgleraugu og annað prjál. Lotta Nilsson segir að það sé dýrunum óeðlilegt að hafa þetta utan á sér og að þau líði fyrir það. Dýraverndarráðið er sammála Lottu. Erlent 24.5.2007 10:43
Hjón ákærð fyrir þrælahald í New York Vellauðugt par var á þriðjudag ákært fyrir að hafa um árabil haldið tveimur indónesískum konum í þrælkun á heimili sínu í New York. Erlent 24.5.2007 10:37
Bretland: Þrír grunaðir hryðjuverkamenn strjúka Breska lögreglan tilkynnti í gærkvöldi að þrír grunaðir hryðjuverkamenn sem hafa verið í nokkurs konar stofufangelsi hafi strokið. Ákvörðun Scotland Yard um að létta nafnleynd yfir mönnunum þykir benda til hversu alvarlegum augum hvarf mannanna er litið. Tveir þeirra eru bræður manns sem var fangelsaður í síðasta mánuði fyrir að skipuleggja sprengjuárásir í Bretlandi. Erlent 24.5.2007 10:37
Kenna stuðningsmönnum Liverpool um vandræðin Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur kennt áhangendum Liverpool um vandræðin fyrir leikinn. Óeirðalögregla í Aþenu notaði táragas og kylfur til þess að hafa stjórn á aðdáendunum þegar þeim var sagt að snúa heim á leið þar sem leikvangurinn væri fullur. Erlent 24.5.2007 10:11
Rannsaka hugsanlegt fuglaflensusmit í Wales Verið er að rannsaka hvort fuglaflensa hafi brotist út í Norður-Wales. Dauðir fuglar fundust Denbighshire-héraði sem er landsbyggðarhérað en breskir miðlar segja lítið annað vitað um málið. Erlent 24.5.2007 10:03
Fjórtán prósent dönsku þjóðarinnar glíma við offitu 750 þúsund Danir, eða um 14 prósent dönsku þjóðarinnar, þjást af offitu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Greint er frá niðurstöðunum á vef Jótlandspóstsins en skýrslan var unnin að beiðni heilbrigðisráðuneytis Danmerkur. Erlent 24.5.2007 09:55
60 metra eldsúlur standa til himins í Björgvin Gríðarlegir olíueldar geisa í olíuhreinsunarstöð í Björgvin í Noregi, eftir að þar varð mikil sprenging í morgun. Eldsúlurnar standa 50 til 60 metra í loft upp og verið er að rýma næsta nágrenni. Ekki er vitað um manntjón á þessari stundu. Slökkvilið og björgunarsveitir streyma til Björgvinjar úr nágrannabæjum og herþyrlur hafa einnig verið sendar á vettvang. Erlent 24.5.2007 09:54
32 látnir eftir námuslys í Síberíu 32 hafa nú fundist látnir eftir gassprengingu sem varð í námu í Síberíu í morgun. Sex manns er enn saknað en tekist hefur að bjarga 179 manns. Sprengingin varð þegar 217 manns voru að störfum í námunni. Slys í námum í Rússlandi eru algeng en námuverkamenn þar í landi fá borgað eftir framleiðni. Þeir slökkva því oft á öryggisbúnaði sem varar við gasmagni til þess að geta unnið meira úr námunum. Erlent 24.5.2007 09:09