Erlent
Hugðist ekki gera páfa mein Erlent 6.6.2007 16:53 Óttast að Sýrlendingar stefni á stríð Forsætisráðherra Ísraels reyndi í dag að róa þjóðina vegna þráláts orðróms um að Sýrlendingar séu að búa sig undir stríð til þess að endurheimta Golan hæðirnar. Ehud Olmert sagði að Ísrael vildi frið við Sýrland og að forðast yrði allan misskilning sem gæti leitt til átaka. Ísraelskir fjölmiðlar hafa skýrt frá því að Sýrlendingar séu að fjölga eldflaugaskotpöllum og hermönnum við landamæri ríkjanna. Erlent 6.6.2007 16:30 Útvarpskona myrt í Afganistan Ung kona, Zakia Zaki, sem rak útvarpsstöðvar í Afganistan, var skotin til bana fyrir skömmu. Konan var sofandi í rúmi sínu við hliðina á 20 mánaða gömlum syni sínum á heimili þeirra nærri Kabul. Hún var skotin sjö sinnum, þar á meðal í höfuð og brjóst. Börn hennar sakaði ekki. Vitað er að ódæðismennirnir voru þrír en ekki er vitað hverjir þeir voru. Ástæður verknaðarins eru ókunnir. Erlent 6.6.2007 15:19 Sýknuð af morðinu á bankastjóra Guðs Dómstóll í Róm sýknaði í dag fjóra karlmenn og eina konu sem voru sökuð um að hafa myrt ítalska bankamanninn Roberto Calvi fyrir 25 árum. Calvi sem var kallaður bankastjóri Guðs vegna tengsla sinna við páfagarð, fannst hengdur undir Blackfriars brúnni í hjarta Lundúna árið 1982. Vasar hans voru úttroðnir af múrsteinum og peningaseðlum. Erlent 6.6.2007 14:35 Mótmæli á G8 ráðstefnunni Mótmælendum og lögreglu lenti saman í Þýskalandi í dag, þegar mótmælendurnir reyndu að loka götum í átt að G8 ráðstefnunni. Að minnsta kosti átta lögreglumenn slösuðust eftir grjótárásir. Lögreglan réðst á mótmælendur með vatnsafli til þess að róa þá. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters. Erlent 6.6.2007 13:41 Nashyrningar í útrýmingarhættu Mikil fækkun hefur orðið á nashyrningum í Afríku. Helsta ástæðan er sú að viðskipti á hornum þeirra hefur færst mikið í vöxt á undanförnum árum. Nú nálgast stofninn útrýmingarhættu. Erlent 6.6.2007 13:41 Taktu rútu druslan þín Hinn 26 ára gamli Tom Sogheim fékk kaldar kveðjur þegar hann flaug með SAS flugfélaginu frá Osló til heimabæjarins Bodö síðastliðinn sunnudag. Tom var í götóttum gallabuxum, skeggjaður og með rasta-hárgreiðslu. Flugþjónn í SAS vélinni lét hann heyra að þetta Erlent 6.6.2007 13:11 Fjármálaráðherra Svíþjóðar hyggst berjast fyrir áfengisskatti Fjármálaráðherra Svíþjóðar, Anders Borg segir í viðtali við Dagens industri að leitað verði allra leiða til að sjá til þess að kaupendur greiði skatt af áfengi sem keypt er í gegnum netið. Erlent 6.6.2007 13:04 « ‹ ›
Varnar- og umhverfismál ber hæst Búist er við að forsetar Bandaríkjanna og Rússlands ræði umdeilt eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu einslega í dag. Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims hefja tveggja daga stífa fundarlotu í Þýskalandi í dag þar sem varnar- og umhverfismál ber hæst. Erlent 7.6.2007 12:15
Flýta hreinsun á kjarnorkuúrgangssvæði nærri Noregi Rússar hafa lofað Norðmönnum að flýta því að hreinsa upp geislavirkan úrgang á svæði í Múrmansk sem er nærri landamærum Noregs. Töluverð sprengihætta er á staðnum, sem nefnist Andrejev-höfn, og hafa rússnesk kjarnorkuyfirvöld bent á að ef sprenging yrði á svæðinu yrði það hrein kjarnorkumartröð. Erlent 7.6.2007 11:41
Norður - Kóreumenn skutu eldflaugum í dag Norður - Kóreumenn skutu skammdrægum eldflaugum frá vesturströnd landsins í dag. Stjórnvöld í Suður - Kóreu telja að flaugarnar hafi verið ein eða tvær. Sérfræðingar á þeirra vegum reyna nú að greina hverskonar flaugar þetta voru. Erlent 7.6.2007 11:33
Rúmlega 30 þúsund sjálfsvíg í Japan á hverju ári Sjálfsvígum í Japan fækkaði lítillega á síðasta ári en þrátt fyrir það frömdu rúmlega 30 þúsund manns sjálfsmorð á síðasta ári. Þessi tala hefur verið svipuð í hartnær áratug. Sjálfsvígum fólks, 60 ára og eldri fjölgaði mikið og nú er svo komið að þriðjungur þeirra sem taka eigið líf í Japan eru eldri borgarar. Erlent 7.6.2007 11:23
Ugla sat á markslá Hlé var gert á leik Finna og Belga í undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu í Helsinki í gær eftir að ugla settist á slá annars marksins. Erlent 7.6.2007 11:03
Yfirmaður Nasa harmar ummæli sín um loftlagsbreytingar Michael Griffin, yfirmaður NASA, hefur formlega beðist afsökunar á ummælum sínum um loftlagsbreytingarnar sem hann lét fjúka í bandarísku útvarpi á dögunum. Erlent 7.6.2007 10:49
Lúmskir lyklaþjófar Hafa talibanar fundið nýja leið til þess að berjast gegn hernámsliðinu ? Talsmaður pólska varnarmálaráðuneytisins segir að 1200 manna pólsk hersveit sem send var til Afganistans geti ekki hafið eftirlitsstörf fyrr en eftir nokkrar vikur. Ástæðan er sú að það er búið að stela bíllyklunum þeirra. Erlent 7.6.2007 10:45
Sendiherra afhendir blóðpeninga Sendiherra Bandaríkjanna á Filipseyjum mætti í dag með skjalatöskur troðfullar af peningum til þess að verðlauna fjóra múslima. Þeir gáfu upplýsingar sem leiddu til þess að tveir leiðtogar Abu Sayyaf hryðjuverkasamtakanna voru drepnir. Erlent 7.6.2007 10:02
Fjörutíu ár liðin frá hernámi Ísraels á Vesturbakkanum Nú eru fjörutíu ár liðin frá hernámi Ísraelsríkis á Vesturbakkanum og Gaza. Að því tilefni hefur Amnesty International hvatt ísraelsk stjórnvöld til að hætta að sölsa undir sig land, að halda íbúum í herkví og ástunda annars konar brot á alþjóðalögum. Samtökin hafa birt nýja skýrslu, Enduring Occupation: Palestinians under siege in the West Bank. Erlent 7.6.2007 09:25
Vill geta lögsótt bullur sem hlaupa inn á knattspyrnuvelli Danska knattspyrnusambandið vill fara að fordæmi þess enska og geta kært þá ólátaseggi sem hlaupa inn á knattspyrnuvöllinn. Erlent 7.6.2007 09:09
Tólf látnir eftir hvirfilbyl í Óman Tólf hið minnsta eru látnir eftir að hvirfilbylurinn Gonu gekk yfir Óman í Miðausturlöndum. Bylurinn er sá öflugasti sem farið hefur um ríkin við Persaflóa í áratugi og hefur hann skemmt bæði byggingar og vegi í höfuðborg Óman, Múskat. Erlent 7.6.2007 09:00
Ballet á Grænlandi í fyrsta sinn Ballett verður dansaður á Grænlandi á morgun í fyrsta sinn svo vitað sé. Það er danshópur konunglega danska leikhússins sem ætlar að kynna Grænlendingum þetta listform og fer svo þaðan til Færeyja. Erlent 7.6.2007 08:45
Ekki samið um tiltekinn samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í morgun að líklegt væri að leiðtogar átta helstu iðnríkja heims næðu samkomulagi um að draga „áþreifanlega" úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum fyrir árið 2050 en engar ákveðnar tölur í því efni yrðu ákveðnar. Erlent 7.6.2007 08:26
Danskar kýr fái 150 daga útivist á ári Dönsku dýraverndunarsamtökin gangast nú fyrir undirskriftasöfnun til að tryggja dönskum kúm að minnsta kosti 150 daga útivist á ári. 75 þúsund Danir hafa þegar skrifað undir kröfuna. Erlent 7.6.2007 08:15
Segja CIA halda 39 „draugaföngum“ Hópur mannréttindasamtaka hefur greint frá nöfnum 39 manna sem þau segja að Bandaríkjamenn haldi með ólögmætum hætti í leynifangelsum á vegum bandarísku leyniþjónustunnar. Erlent 7.6.2007 07:30
Segir sendiherra hafa fengið milljarða króna fyrir vopnasölusamning Fyrrverandi sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum fékk yfir 14 milljarða króna í leynilegar greiðslur frá stærsta vopnaframleiðanda Bretlands fyrir að koma að vopnasölusamningi milli Breta og Sádi-Araba á níunda áratugnum. Þetta er fullyrt í breska fréttaskýringarþættinum Panorama á BBC. Erlent 7.6.2007 07:15
Spenna á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims Aðgerðir í loftlagsmálum, sjálfstæði Kosovo, kjarnorkuáætlun Írana og eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna í Austur-Evrópu eru meðal þeirra mála sem rædda verða á fundi leiðtoga átta helstu iðnríkja heims í dag. Erlent 7.6.2007 06:58
Vilja stöðva fjölkvæni hjá sértrúarsöfnuði Fylkisyfirvöld í Bresku Kólumbíu í Kanada hafa skipað sérstakan saksóknara til ákveða hvort höfða eigi mál á hendur bandarískum sértrúarsöfnuði sem þar hefur sest að. Söfnuðurinn stundar meðal annars fjölkvæni en það er bannað í Kanada. Erlent 6.6.2007 23:44
Atlantis flytur sólarspegla til alþjóðlegu geimstöðvarinnar Vísindamenn hjá bandarísku geimferðarstofnuninni eru vongóðir um að hægt verði að skjóta geimskutlunni Atlantis á loft frá Canaveral höfða í Flórída næstkomandi föstudag. Geimskutlunni er ætlað að flytja mikilvæga hluti til alþjóðlegu geimstöðvarinnar en upphaflega átti Atlantis að fara á loft fyrir þremur mánuðum. Erlent 6.6.2007 20:35
Ætlaði ekki að gera honum mein Maðurinn sem reyndi að stökkva upp í bíl Benedikts páfa á ferð á Péturstorginu í Róm í morgun hefur átt við geðræn vandamál að stríða og vildi með athæfinu vekja athygli á sjálfum sér. Hann mun ekki hafa ætlaði að gera páfa mein. Erlent 6.6.2007 19:15
Ætla ekki að skrifa undir loftslagssamninga Bandaríkjamenn ætla ekki að skrifa undir neina loftslagssamninga á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims sem hófst í Þýskalandi í dag. Deilan um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu hangir einnig yfir fundinum eins og dökkt þrumuský. Erlent 6.6.2007 18:45
Merkur forleifafundur í Marokkó Gataðar skeljar sem fundust í helli í Marokkó á dögunum gætu verið elstu skartgripir sem vitað er um. Telja viðkomandi vísindamenn þær vera smíðaðar fyrir um það bil 82 þúsund árum. Erlent 6.6.2007 17:07
Óttast að Sýrlendingar stefni á stríð Forsætisráðherra Ísraels reyndi í dag að róa þjóðina vegna þráláts orðróms um að Sýrlendingar séu að búa sig undir stríð til þess að endurheimta Golan hæðirnar. Ehud Olmert sagði að Ísrael vildi frið við Sýrland og að forðast yrði allan misskilning sem gæti leitt til átaka. Ísraelskir fjölmiðlar hafa skýrt frá því að Sýrlendingar séu að fjölga eldflaugaskotpöllum og hermönnum við landamæri ríkjanna. Erlent 6.6.2007 16:30
Útvarpskona myrt í Afganistan Ung kona, Zakia Zaki, sem rak útvarpsstöðvar í Afganistan, var skotin til bana fyrir skömmu. Konan var sofandi í rúmi sínu við hliðina á 20 mánaða gömlum syni sínum á heimili þeirra nærri Kabul. Hún var skotin sjö sinnum, þar á meðal í höfuð og brjóst. Börn hennar sakaði ekki. Vitað er að ódæðismennirnir voru þrír en ekki er vitað hverjir þeir voru. Ástæður verknaðarins eru ókunnir. Erlent 6.6.2007 15:19
Sýknuð af morðinu á bankastjóra Guðs Dómstóll í Róm sýknaði í dag fjóra karlmenn og eina konu sem voru sökuð um að hafa myrt ítalska bankamanninn Roberto Calvi fyrir 25 árum. Calvi sem var kallaður bankastjóri Guðs vegna tengsla sinna við páfagarð, fannst hengdur undir Blackfriars brúnni í hjarta Lundúna árið 1982. Vasar hans voru úttroðnir af múrsteinum og peningaseðlum. Erlent 6.6.2007 14:35
Mótmæli á G8 ráðstefnunni Mótmælendum og lögreglu lenti saman í Þýskalandi í dag, þegar mótmælendurnir reyndu að loka götum í átt að G8 ráðstefnunni. Að minnsta kosti átta lögreglumenn slösuðust eftir grjótárásir. Lögreglan réðst á mótmælendur með vatnsafli til þess að róa þá. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters. Erlent 6.6.2007 13:41
Nashyrningar í útrýmingarhættu Mikil fækkun hefur orðið á nashyrningum í Afríku. Helsta ástæðan er sú að viðskipti á hornum þeirra hefur færst mikið í vöxt á undanförnum árum. Nú nálgast stofninn útrýmingarhættu. Erlent 6.6.2007 13:41
Taktu rútu druslan þín Hinn 26 ára gamli Tom Sogheim fékk kaldar kveðjur þegar hann flaug með SAS flugfélaginu frá Osló til heimabæjarins Bodö síðastliðinn sunnudag. Tom var í götóttum gallabuxum, skeggjaður og með rasta-hárgreiðslu. Flugþjónn í SAS vélinni lét hann heyra að þetta Erlent 6.6.2007 13:11
Fjármálaráðherra Svíþjóðar hyggst berjast fyrir áfengisskatti Fjármálaráðherra Svíþjóðar, Anders Borg segir í viðtali við Dagens industri að leitað verði allra leiða til að sjá til þess að kaupendur greiði skatt af áfengi sem keypt er í gegnum netið. Erlent 6.6.2007 13:04