Erlent
Hamas vilja að Alan Johnston verði látinn laus úr haldi Hamas samtökin lýstu því yfir í dag að þau myndu gera það sem í þeirra valdi stæði til að fá Alan Johnston, blaðamann BBC, lausan úr gíslingu. Johnston var rænt 12. mars síðastliðinn á Gaza af öfgahópi sem kallar sig Jasish-e-al-Islam, eða her Islams. Erlent 15.6.2007 23:45
Handtekinn vegna hvarfs hjóna Lögreglan á Fjóni í Danmörku handtók í dag tuttugu og fimm ára gamlan karlmann. Hann var eftirlýstur vegna hvarfs hjóna fyrir tveimur vikum síðan. Fólkið hvarf frá Ærø, skammt frá Fjóni. Erlent 15.6.2007 21:25
Verkfall á flugvöllum í Belgíu Öryggisverðir á flugvöllum í Charleroi og Liege í Belgíu hafa ákveðið að framlengja verkfall sem hófst í dag. Verkfallið hófst í morgun við Charleroi flugvöllinn og var öllu flugi til og frá vellinum aflýst. Erlent 15.6.2007 19:49
Segir ástandið í Afganistan verra nú en í fyrra Minnst sex börn týndu lífi í sjálfsvígssprengjuárás á bílalest Atlantshafsbandlagsins í Afganistan í morgun. Upplýsingastjóri Alþjóða Rauða krossins segir stríð geisa í landinu og ástandið verra nú en í fyrra. Erlent 15.6.2007 19:00
Nær engar fréttir Fréttaútsendingar danska ríkisútvarpsins voru litlar sem engar í gær vegna verkfalls starfsmanna. Fjölmörgum fréttamönnum hefur verið sagt upp síðustu daga í sparnaðarskini. Enn þarf að skera niður vegna kostnaðar við byggingu nýrra höfustöðva ríkisútvarpsins danska. Erlent 15.6.2007 18:45
Sjómenn enn í haldi sjóræningja 5 danskir sjómenn sem sem sjóræningjar tóku höndum fyrir 12 dögum undan strönd Sómalíu eru enn í haldi ræningjanna og óvíst hvenær þeir fá frelsi. Sjómennirnir voru á ferð með flutningaskipinu Danica White þegar sjóræningarnir réðust um borð. Skipið liggur við akkeri utan við hafnarbæinn Hobyo. Erlent 15.6.2007 18:34
Clinton þénar vel á fyrirlestrum Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, þénaði meira en 10 milljónir bandaríkjadala, eða andvirði 620 milljóna íslenskra króna, fyrir ræðuhöld á síðasta ári. Erlent 15.6.2007 18:30
Plútó víkur fyrir Eres Fyrrum reikistjarnan Plútó þarf nú að þola enn eina niðurlæginguna. Ekki er nóg með að æðstaráð stjörnufræðinga hafi á síðasta ári útilokað hnöttinn frá samfélagi reikistjarna og skilgreint hann sem dvergstjörnu, heldur er nú ljóst að Plútó er ekki einu sinni stærsta dvergstjarnan í sólkerfinu. Erlent 15.6.2007 18:27
Áfengi skolar iktsýki burt Enn ein rannsóknin sem bendir til að hófleg áfengisneysla sé heilsusamleg hefur litið dagsins ljós. Nú voru það sænskir vísindamenn við Karolinska Institute í Stokkhólmi sem komust að þeirri niðurstöðu að þrjú vínglös eða litlir bjórar á viku minnka líkurnar á iktsýki um helming. Erlent 15.6.2007 17:10
Verkefnin hrannast upp um borð í Atlantis Tveir geimfarar Atlantis hefja í dag viðgerð á varmahlíf þotunnar. Þegar þotan tókst á loft föstudaginn síðasta losnaði hlífin og skemmdist lítillega. Erlent 15.6.2007 15:30
Tíföldum hljóðhraða náð Nýr flugvélamótor var prófaður í Ástralíu á dögunum og var honum komið á 11 þúsund km/klst. Það er tífaldur hraði hljóðsins. Mótorinn er brennslumótor sem ætlaður er orrustuflugvélum. Erlent 15.6.2007 14:36
Miklir vatnavextir á Bretlandi Fjöldi fólks situr nú fast í bílum sínum og húsum eftir gífurlegar rigningar sem staðið hafa nær látlaust í sólarhring á Bretlandseyjum. 42 starfsmenn verksmiðju í Sutton Coldfield eru innilokaðir í verksmiðjunni því að vatnið umlykur bygginguna. Erlent 15.6.2007 14:31
Lögregla fann ekkert þar sem bent var á lík Madeleine McCann Lögregla hefur nú lokið leit af Madeleine McCann í þorpinu Arao sem er skammt frá Praia de Luz þaðan sem henni var rænt fyrir 43 dögum. Nafnlaust bréf sem barst Hollenska dagblaðinu De Telegraaf á miðvikudaginn benti á að lík stúlkunar væri að finna á svæðinu. Erlent 15.6.2007 14:02
Abbas skipar nýjan forsætisráðherra Mahmoud Abbas, forseti Palestínu hefur tilnefnt Salam Fayyad sem nýjan forsætisráðherra eftir að Abbas leysti upp þjóðstjórn Hamas og Fatah. Ismail Haniya, forsætisráðherra þjóðstjórnarinnar heldur því hins vegar fram að hann sé enn forsætisráðherra og hefur þvertekið fyrir að fara að tilmælum Abbas. Erlent 15.6.2007 13:44
Fylgist með geimförum í barnapíutæki Húsmóðir í Chicago í Bandaríkjunum þarf ekki lengur að kveikja á fréttum til að fylgjast með afdrifum geimfara í geimskutlunni Atlantis sem nú er tengd Alþjóðlegum geimstöðinni. Hún þarf bara að kveikja á barnapíutækinu sínu. Erlent 15.6.2007 12:30
Hamas-liðar með Gaza-svæðið á sínu valdi Hamas-liðar hafa lagt allt Gaza-svæðið undir sig eftir blóðuga, vikulanga baráttu við liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas, forseta Palestínumanna. Forsetahöllin í Gaza-borg var hertekin í nótt. Ró hefur að mestu færst yfir svæðið í morgun þó loftið sé enn lævi blandið. Erlent 15.6.2007 12:15
Sjö menn dæmdir fyrir að skipuleggja umfangsmikil hryðjuverk Sjö félagar í hryðjuverkahópi sem skipulagði umfangsmiklar hryðjuverkaárásir í Bretlandi og Bandaríkjunum hafa verið dæmdir í samtals 136 ára fangelsi í Bretlandi. Erlent 15.6.2007 11:45
Níu létu lífið í sprengingu á Filippseyjum Að minnsta kosti níu manns létu lífið í sprengingu í strætisvagni á suðurhluta Filippseyja í morgun. Ekki er vitað hveru margir særðust. Sprengjan sprakk í strætisvagni sem var fullur af fólki í bænum Bansalan klukkan tíu í morgun. Enn hefur enginn sagst bera ábyrgð á árásinni en verið er að rannsaka hvort að múslimskir vígamenn eða glæpahópar hafi staðið á bak við hana. Erlent 15.6.2007 11:25
Reynt að seinka kynþroska kvenna í Kamerun Fjórða hver stúlka í Kamerun hefur upplifað það að brjóst hennar séu strokin niður með steinum eða keflum með það að markmiði að draga úr vexti þeirra og seinka kynþroska. Þetta er gert til að athygli karlmanna beinist ekki að þeim of snemma og eins til að koma í veg fyrir ótímabæra þungun. Erlent 15.6.2007 11:20
Hamasliðar á skrifstofu forsetans Liðsmenn Hamas hafa hertekið skrifstofu forseta Palestínu, Mahmoud Abbas í Gasa borg og fara nú ránshendi um byggingu forsetaembættisins. Hamasliðar hafa nú náð öllu Gasa svæðinu á sitt vald og liðsmenn Fatah hafa flúið eða verið handteknir í bardögum síðustu daga. Erlent 15.6.2007 10:47
Handtóku leiðtoga Jemaah Islamiah Yfirvöld í Indónesíu segjast hafa handtekið forsprakka herskáu samtakanna Jemaah Islamiah sem talin eru bera ábyrgð á sprengjutilræðunum á Bali í okótber árið 2002. Þar létust rúmlega 200 manns þegar sprengjur sprungu á vinsælum skemmtistað á eyjunni, flestir þeirra erlendir ferðmenn. Erlent 15.6.2007 10:33
Aukin fánasala samhliða vaxandi þjóðerniskennd í Danmörku Sala á danska þjóðfánanum og fánastöngum hefur aukist í Danmörku síðustu misseri eftir því segir í frétt Jótlandspóstsins. Tengja menn það aukinni þjóðerniskennd í landinu, ekki síst í framhaldinu að deilunum um Múhameðsteikningarnar í fyrra. Erlent 15.6.2007 09:59
Þrír látnir eftir lestarslys á Sardiníu Þrír létust þegar tvær lestir rákust saman á eyjunni Sardiníu við Ítalíu í morgun. Tveir hinna látnu voru Ítalir, þar af annar þeirra stjórnandi annarrar lestarinnar. Erlent 15.6.2007 09:34
John Howard hittir Dalai Lama Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, mun í dag funda með Dalai Lama þrátt fyrir mótbárur frá Kína. Hinn 71 árs trúarleiðtogi er á ellefu daga ferðalagi um Ástralíu um þessar mundir. Heimsókn hans hefur reynt á tengsl Ástralíu við Kína en löndin tvö eru tengd sterkum efnahagslegum böndum. Kínversk stjórnvöld segir Dalai Lama vera pólitískan útlaga sem vill kljúfa Tíbet frá Kína. Erlent 15.6.2007 08:53
Oprah Winfrey áhrifamesta fræga persónan Oprah Winfrey er áhrifamesta fræga persóna í heimi samkvæmt lista viðskiptatímaritsins Forbes. Kylfingurinn Tiger Woods lenti í öðru sæti og söngkonan Madonna lenti í því þriðja. Listinn hjá Forbes tekur tillit til tekna og hversu mikið efni er að finna um þær á internetinu og í fjölmiðlum. Á síðasta ári sat Tom Cruise á toppi listans. Erlent 15.6.2007 07:54
Fyrrverandi meðlimur KKK fundin sekur um aðild að morðum Fyrrum meðlimur Ku Klux Klan hefur verið dæmdur fyrir mannrán og aðild að morðum sem framin voru árið 1964. Þá var tveimur svörtum unglingum rænt, þeir lamdir og síðan drekkt. James Seale, sem nú er 71 árs, gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Erlent 15.6.2007 07:15
Forseti Argentínu vill Falklandseyjar Forseti Argentínu, Nestor Kirchner, hét því í gær að Argentína mundi aftur ráða ríkjum á Falklandseyjum. Hann ætlaði sér þó að fá þær aftur á friðsamlegan hátt. Þá sagði hann sigur Breta í Falklandseyjastríðinu vera nýlendusigur sem heimurinn hefði verið á móti. Erlent 15.6.2007 07:05
Rússar drekka frá sér lífið Rússneskir karlmenn eiga sér að því virðist dauðaósk því margir þeirra drekka bæði rakspíra og hreinsivörur. Bresk rannsókn komst að því að helming dauðsfalla karlmanna á vinnualdri í Rússlandi megi rekja til hættulegra drykkjuvenja. Erlent 15.6.2007 07:01
Hamas tekur völdin á Gaza Hamas segist hafa tekið öll völdin á Gaza svæðinu. Seint í gærkvöldi leysti forseti heimastjórnarinnar, Mahmoud Abbas, ríkisstjórnina upp og lýsti yfir neyðarástandi. Erlent 15.6.2007 06:54
Fundað um framtíð Afganistan Varnarmálaráðherrar NATO ríkjanna funda þessa dagana ,í Belgíu, um fyrirhugað eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna í Evrópu og framtíð varnarmála í Afganistan. Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að hersveit NATO og Bandaríkjanna hefði náð árangri í baráttu gegn Talibönum, en meira þyrfti til. Erlent 15.6.2007 06:15