Plútó víkur fyrir Eres Oddur S. Báruson skrifar 15. júní 2007 18:27 Plútó ásamt tunglum sínum Karon, Nix, og Hydra MYND/AP
Fyrrum reikistjarnan Plútó þarf nú að þola enn eina niðurlæginguna. Ekki er nóg með að æðstaráð stjörnufræðinga hafi á síðasta ári útilokað hnöttinn frá samfélagi reikistjarna og skilgreint hann sem dvergstjörnu, heldur er nú ljóst að Plútó er ekki einu sinni stærsta dvergstjarnan í sólkerfinu. Þegar Plútó var skilgreind upp á nýtt og flokkur dvergstjarna búinn til hlaut Plútó umsvifalaust æðsta sess í þeim flokki. Nú er ekki vitað betur en að Eres nokkur sé stærsta dvergstjarna sólkerfisins. Það var stjörnufræðingurinn Michael E. Brown og nemendur hans sem komust að þessari niðurstöðu við skoðanir á Dysnomia, tungli Eresar. Með hjálp Hubble-stjörnusjónaukans tókst þeim að reikna út massa Eresar. Og samkvæmt útreikningum þeirra er hann 27 prósent meiri en massi Plútós. Eres er því níundi stærsti hluturinn í sólkerfinu. Eres þessi er hreint ekki í seilingarfjarlægð. Hún er með allra ystu hlutum sem ganga á braut um sólina. Nánar til tekið er Eres staðsett handan Kuiper-beltisins á hinum svokallaða Dreifða diski sem enn er lítið vitað um. Eres var uppgötvuð árið 2005 og hefur fengið óskipta athygli stjörnuathuganafólk síðan þá. Vegna stærðar sinnar og tungls síns Dysnomia vilja sumir kalla hana tíundu reikistjörnu sólkerfisins. Eres er nefndur eftir grískri andagyðju.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Sjá meira