Erlent
Stærsti flokkur þingsins í vanda Erlent 6.7.2007 02:00 Níu handteknir vegna árásar Lögreglan í Jemen hefur handtekið níu menn sem grunaðir eru um aðild að sjálfsmorðsárás á mánudagskvöld þar sem sjö Spánverjar og tveir Jemenar létust. Mennirnir, sem eru allir frá Jemen, voru yfirheyrðir í gær. Talið er að al-Kaída hafi staðið á bak við árásina. Erlent 6.7.2007 01:30 Neðanjarðarlest fór af spori Neðanjarðarlest fór af sporinu á háannatíma í austurhluta London í gær. 37 farþegar slösuðust og voru 11 þeirra fluttir á sjúkrahús. Flytja þurfti um 900 farþega burt eftir að lestin fór af sporinu, en önnur lest festist fyrir aftan hana í göngunum. Erlent 6.7.2007 01:00 Undrun á lofi Bush á Pútín Eftir að hafa setið mánuðum saman undir harkalegri gagnrýni á Bandaríkin og utanríkisstefnu þeirra úr munni hins rússneska starfsbróður síns bar George W. Bush Bandaríkjaforseti lof á Vladimír Pútín fyrir einlægni hans og hreinskilni, er leiðtogarnir tveir hittust í sumarhúsi Bush-fjölskyldunnar í Kennebunkport í Maine í byrjun vikunnar. Erlent 6.7.2007 01:00 Lugovoi verður ekki framseldur Ríkissaksóknari í Rússlandi hefur neitað því að framselja viðskiptajöfurinn Andrei Lugovoi, sem bresk yfirvöld gruna um að hafa eitrað fyrir fyrrverandi KGB-njósnaranum Alexander Litvinenko. Erlent 6.7.2007 00:30 14 fundust látnir eftir aurskriðu í Mexíkó Björgunarsveitarmenn í Mexíkó fundu í gær fjórtán látna í rútu sem varð undir aurskriðu í fyrradag. Lítil von þykir til þess að nokkur af þeim fjörutíu til sextíu farþegum rútunnar hafi komist lífs af úr slysinu-. Hundruð hermanna og björgunarsveitarmanna hafa grafið á vettvangi frá því slysið varð. Erlent 6.7.2007 00:15 Bresku stúlkubarni rænt Mannræningjar höfðu í gær þriggja ára gamla breska stúlku á brott með sér úr bifreið í Port Harcourt í sunnanverðri Nígeríu, þar sem olíuiðnaður er mikill og lögleysa hefur verið viðvarandi. Erlent 6.7.2007 00:00 Tveggja daga stúlkubarn grafið lifandi Tveggja daga gamalt stúlkubarn fannst á lífi eftir að hafa verið grafið lifandi á akri nærri Hyderabad í suðurhluta Indlands. Bóndi á nálægum bæ sá glitta í hendur barnsins og gerði viðvart. Erlent 5.7.2007 23:22 Þrjú hundruð ær drepast í óveðri í Danmörku Óveður og vatnavextir við Vadehaved í Danmörku kostaði 300 ær lífið í síðustu viku. dýraverndarsamtök í Danmörku telja að eigandinn hefði átt að gæta betur að öryggi dýranna. Þau vilja að dýraverndarlögum verði breytt. Erlent 5.7.2007 21:32 « ‹ ›
Loka kjarnorkukljúfi Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu í gær að þau ætluðu að loka helsta kjarnorkukljúfi landsins, Yongbyon, í skiptum fyrir að fá send tíu prósent af þeim 50 þúsund tonnum af hráolíu sem þeim var lofað fyrir að loka honum. Þetta er í fyrsta skipti sem stjórnvöld í landinu segja hvenær þau ætli að loka kljúfinum. Erlent 7.7.2007 02:30
Marokkó býst við hryðjuverkaárás Marokkó hefur hækkað öryggisviðbúnað í hæsta stig sem þýðir að vænst sé árásar róttækra islamista bráðlega. Ákvörðun um að auka viðbúnað var tekin eftir fund lögreglustjóra með leyniþjónustu og hervöldum í höfuðborginni Rabat, eftir að þessum aðilum bárust áreiðanlegar leyniþjónustuupplýsingar. Erlent 6.7.2007 23:06
Hrottaleg nauðgun á Palm Beach Tveir unglingar á Palm Beach hafa verið ákærðir fyrir að nauðga konu og neyða 12 ára gamlan son hennar til að taka þátt í nauðguninni. Að sögn lögreglunnar í Palm Beach var bæði móður og syni misþyrmt hrottalega. Hinir ákærðu eru 14 og 16 ára gamlir. Erlent 6.7.2007 21:17
Hús sprakk í Svíþjóð Kröftug sprenging varð í húsi í Södersvik austan við Norrtälje í Svíþjóð í nótt og er það gjörónýtt. Enginn var í húsinu sem er til útleigu en næstu leigjendur áttu að taka við á morgun. Samkvæmt lögreglu hafði enginn haft í hótunum við þá sem tengjast húsinu og urðu eigendurnir fyrir miklu áfalli. Erlent 6.7.2007 14:24
Hætta á að fólk geti drukknað á Hróaskeldu Rauði krossinn í Danmörku varar við því að hætta sé á að fólk geti drukknað á Hróaskelduhátíðinni. Þar hefur úrkoma verið mikil undanfarið og stór svæði eru þakin vatni. Talsmenn Rauða krossins á svæðinu segja að hætta á því að fólk geti drukknað sé raunveruleg, sérstaklega ef það er mjög ölvað og getur ekki komið sér upp úr vatninu af sjálfsdáðum. Erlent 6.7.2007 13:19
Nektarhlaupið í Pamplona Hundruð dýraverndunarsinna hlupu nærri naktir á götum borgarinnar Pamplona á Spáni í gær til þess að mótmæla hinu árlega nautahlaupi í borginni. Erlent 6.7.2007 12:15
Mótmæltu mannránum og ofbeldi Hundruð þúsunda manna í Kólumbíu mótmæltu í gær mannránum FARC, samtökum vinstri sinnaðra uppreisnarmanna. Talið er að um þrjú þúsund Kólumbíumenn séu nú í haldi mannræningja. Erlent 6.7.2007 12:00
Málverk seldist á 2,2 milljarða Málverk eftir endurreisnarlistamanninn Raphael seldist á uppboði í gær fyrir meira en 2,2 milljarða íslenskra króna. Verkið er af ítalska greifanum Lorenzo d'Medici, forföður þess sem nú er á skjánum í Bachelor þáttunum á Skjá einum. Verkið hafði ekki sést opinberlega síðan árið 1968. Erlent 6.7.2007 12:00
Fyrsta dauðsfallið í tengslum við flóðin í Suður-Svíþjóð Eldri kona fannst látin í bíl sínum rétt utan við Helsingborg í Suður-Svíþjóð í morgun. Bíllinn fannst umlukinn vatni í skurði við vegarkant og er talið að konan hafi drukknað. Mikil úrkoma og flóð hafa verið í Suður-Svíþjóð undanfarið. Erlent 6.7.2007 11:04
Elsti fósturvísirinn að barni Stúlkubarn fæddist nýlega í Bandaríkjunum en fósturvísirinn sem barnið þróaðist úr hafði verið geymdur í frysti í þrettán ár. Þetta er talinn lengsti tími sem fósturvísir hefur verið geymdur þannig að úr hafi orðið heilbrigt barn. Erlent 6.7.2007 10:15
Tvær til þrjár milljónir HIV/AIDS smitaðir í Indlandi Á bilinu 2 til 3,1 milljón manna í Indlandi eru með HIV/AIDS samkvæmt nýrri rannsókn sem Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld í Indlandi stóðu að. Áður var talið að allt að tvisvar sinnum fleiri væru smitaðir í Indlandi og hefði það því verið fjölmennasti hópur smitaðra í einu landi. Erlent 6.7.2007 08:48
Fjórir læknar til viðbótar yfirheyrðir í Ástralíu Lögreglan í Ástralíu hefur fundið ný sönnunargögn og yfirheyrt að minnsta kosti fjóra lækna til viðbótar vegna sprengjutilræðanna í Bretlandi. Erlent 6.7.2007 07:40
Hundruð þúsunda mótmæla í Kólumbíu Hundruð þúsunda mótmæltu mannránum FARC, vinstri sinnaðra uppreisnarmanna, í Kólumbíu í gær. Talið er að um þrjú þúsund kólumbíumenn séu í haldi mannræningja. Mótmælin, sem voru þau stærstu síðan árið 1999, voru skipulögð eftir að FARC myrti 11 stjórnmálamenn sem þau höfðu í haft í haldi síðastliðin fimm ár. Erlent 6.7.2007 07:19
Konur tala ekki meira en karlar Vísindamenn hafa afsannað þá goðsögn að konur tali meira en karlar. Þeir settu hljóðnema á 400 háskólanema í Bandaríkjunum og fylgdust með þeim í ákveðinn tíma. Í ljós kom að á meðaltali sagði hver kona rúmlega 16.200 orð á dag en karlmenn tæplega 15.700. Þeir karlmenn sem mest töluðu fóru upp í 45 þúsund orð en sumir sögðu rétt 500 orð á dag. Erlent 6.7.2007 07:12
Mannræningjar hóta að myrða stúlkuna Hópurinn sem rændi þriggja ára breskri stúlku í Nígeríu hefur hótað að myrða hana ef faðir hennar samþykkir ekki að koma í stað hennar. Móðir hennar skýrði frá þessu í nótt. Stúlkunni var rænt þegar verið var að fara með hana í skólann. Stærsti uppreisnarhópurinn í Nígeríu, MEND, fordæmdi ránið á stúlkunni. Erlent 6.7.2007 07:10
Umsátursástand er enn við Rauðu moskuna í Islamabad Umsátursástand er enn í Islamabad, höfuðborg Pakistan, en öryggissveitir stjórnvalda hafa enn ekki gert áhlaup á Rauðu moskuna. Erlent 6.7.2007 06:59
Uppgjör við öfgaklerka í Pakistan Herskár múslimaklerkur, sem pakistanskar öryggissveitir tóku höndum er hann reyndi að flýja dulbúinn í kvennakufl, sagði í gær að hinir nærri því þúsund fylgismenn sínir, sem enn væru í Rauðu moskunni í Íslamabad sem stjórnarherinn hefur nú setið um í tvo daga, ættu að gefast upp eða flýja. Erlent 6.7.2007 04:00
Konur og karlar tala jafnmikið Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að því að bæði kynin tala jafnmikið.Í rannsókninni voru hljóðnemar festir á tæplega fjögur hundruð háskólanema í allt frá tveimur dögum upp í tíu í senn. Reiknað var út hversu mörg orð hver sagði á hverjum degi. Erlent 6.7.2007 03:30
Fjörutíu rústuðu hóteli í Madrid Borgarbúum í Madrid bauðst óvenjuleg skemmtun á dögunum. Fjörutíu heppnir sjálfboðaliðar fengu að grípa sér sleggjur og brjóta allt og bramla á herbergjum á NH-hótelinu þar í borg. Erlent 6.7.2007 02:45
Sagði olíu vera ástæðu hersetu Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, þvertók í gær fyrir að olíuhagsmunir hefðu nokkuð með innrásina í Írak að gera. Brendan Nelson varnarmálaráðherra hafði stuttu áður sagt að helsti tilgangur veru ástralskra hermanna í Írak væri að verja olíulindir landsins. Erlent 6.7.2007 02:30
Palestínumenn hvattir til varna Ísraelskir hermönnum og herskáum Palestínumönnum lenti saman á Gaza-svæðinu í gær. Níu manns féllu í átökunum, sem herþotur, skriðdrekar og jarðýtur Ísraelshers tóku þátt í. Palestínumennirnir lögðu jarðsprengjur fyrir ísraelsku hermennina. Erlent 6.7.2007 02:00
Níu handteknir vegna árásar Lögreglan í Jemen hefur handtekið níu menn sem grunaðir eru um aðild að sjálfsmorðsárás á mánudagskvöld þar sem sjö Spánverjar og tveir Jemenar létust. Mennirnir, sem eru allir frá Jemen, voru yfirheyrðir í gær. Talið er að al-Kaída hafi staðið á bak við árásina. Erlent 6.7.2007 01:30
Neðanjarðarlest fór af spori Neðanjarðarlest fór af sporinu á háannatíma í austurhluta London í gær. 37 farþegar slösuðust og voru 11 þeirra fluttir á sjúkrahús. Flytja þurfti um 900 farþega burt eftir að lestin fór af sporinu, en önnur lest festist fyrir aftan hana í göngunum. Erlent 6.7.2007 01:00
Undrun á lofi Bush á Pútín Eftir að hafa setið mánuðum saman undir harkalegri gagnrýni á Bandaríkin og utanríkisstefnu þeirra úr munni hins rússneska starfsbróður síns bar George W. Bush Bandaríkjaforseti lof á Vladimír Pútín fyrir einlægni hans og hreinskilni, er leiðtogarnir tveir hittust í sumarhúsi Bush-fjölskyldunnar í Kennebunkport í Maine í byrjun vikunnar. Erlent 6.7.2007 01:00
Lugovoi verður ekki framseldur Ríkissaksóknari í Rússlandi hefur neitað því að framselja viðskiptajöfurinn Andrei Lugovoi, sem bresk yfirvöld gruna um að hafa eitrað fyrir fyrrverandi KGB-njósnaranum Alexander Litvinenko. Erlent 6.7.2007 00:30
14 fundust látnir eftir aurskriðu í Mexíkó Björgunarsveitarmenn í Mexíkó fundu í gær fjórtán látna í rútu sem varð undir aurskriðu í fyrradag. Lítil von þykir til þess að nokkur af þeim fjörutíu til sextíu farþegum rútunnar hafi komist lífs af úr slysinu-. Hundruð hermanna og björgunarsveitarmanna hafa grafið á vettvangi frá því slysið varð. Erlent 6.7.2007 00:15
Bresku stúlkubarni rænt Mannræningjar höfðu í gær þriggja ára gamla breska stúlku á brott með sér úr bifreið í Port Harcourt í sunnanverðri Nígeríu, þar sem olíuiðnaður er mikill og lögleysa hefur verið viðvarandi. Erlent 6.7.2007 00:00
Tveggja daga stúlkubarn grafið lifandi Tveggja daga gamalt stúlkubarn fannst á lífi eftir að hafa verið grafið lifandi á akri nærri Hyderabad í suðurhluta Indlands. Bóndi á nálægum bæ sá glitta í hendur barnsins og gerði viðvart. Erlent 5.7.2007 23:22
Þrjú hundruð ær drepast í óveðri í Danmörku Óveður og vatnavextir við Vadehaved í Danmörku kostaði 300 ær lífið í síðustu viku. dýraverndarsamtök í Danmörku telja að eigandinn hefði átt að gæta betur að öryggi dýranna. Þau vilja að dýraverndarlögum verði breytt. Erlent 5.7.2007 21:32