Erlent

Aulagangur CIA

Þekktur bandarískur blaðamaður við New York Times hefur skrifað bók um bandarísku leyniþjónustuna, CIA, og fer háðuglegum orðum um ódugnað hennar. Tim Weiner segir að stofnunin sé svo léleg að hún sé ógn við öryggi Bandaríkjanna. Hann nefnir mörg dæmi.

Erlent

Brown og Bush hyggja á nánara samstarf

Bein útsending var á Vísi frá fyrsta fréttamannafundi Gordons Browns og George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í dag. Brown er nú í sinni fyrstu opinberu heimsókn í Bandaríkjunum. Hægt er að horfa á hann hér á Vísi með því að smella á „Spila“ hnappinn.

Erlent

Fellibylir tvöfalt fleiri nú en árið 1900

Tíðni fellibylja við Atlandshafið er tvöfalt hærri nú en við upphaf síðustu aldar. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn sem birtist í breska tímaritinu Philosophical Transactions. Grandskoðaðir voru fellibylir við Atlandshafið allt frá aldarmótum 1900 og hvernig þeim hefur fjölgað frá ári til árs til dagsins í dag.

Erlent

Suðaustur-Asíuríki setja á fót mannréttindastofnun

Utanríkisráðherrar Suðaustur-Asíuríkja fögnuðu sögulegum áfanga í dag þegar þeir náðu samkomulagi um að setja á fót mannréttindastofnun fyrir svæðið. Gagnrýnendur segja þó að þeir hafi ekki verið nógu harðorðir í garð herstjórnarinnar í Myanmar, áður Búrma.

Erlent

Rússar styðja Abbas sem forseta allra Palestínumanna

Rússar viðurkenna Mahmoud Abbas sem forseta allra Palestínumanna og segjast munu styðja hann eftir megni í því að sameina palestinsku þjóðina og semja frið við Ísrael. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands lýsti þessu yfir við komu Abbas til Moskvu, þar sem hann er nú í opinberri heimsókn.

Erlent

Utanríkisráðherrar Arabaríkja funda í Kaíró

Utanríkisráðherrar nokkurra arabaríkja munu hittast á fundi í Kaíró í Egyptalandi í dag til að bregðast við tillögum George Bush Bandaríkjaforseta um að alþjóðlegur friðarfundur verði haldinn seinna á þessu ári, um ástandið í Miðausturlöndum.

Erlent

Sýndarveruleikinn færist nær

Í Second Life-sýndarheiminum halda tónlistarmenn tónleika, háskólar kenna fjarnemum og fyrirtæki opna reglulega útibú. Notendur eru tæplega tvær milljónir og er heimurinn opinn öllum.

Erlent

Talibanar framlengja lokafrest til hálftólf í dag

Talibanar sem hafa 22 Suður-Kóreumenn í haldi hafa framlengt lokafrest sinn til klukkan hálftólf í dag. Fresturinn sem þeir gáfu upphaflega rann út í morgun og ekki var vitað hvort að gíslarnir væru enn á lífi. Talsmaður talibana staðfesti þó í dag að þeir væru enn á lífi.

Erlent

Norðmenn hætta að þjálfa írakskar löggur

Norðmenn eru hættir að taka að sér þjálfun íraskra lögregeluforingja í Noregi. Ein ástæðan er sú að tíu þeirra hafa notað tækifærið til þess að stinga af og hefja nýtt líf á Vesturlöndum. Þeir hafa hreinlega horfið sporlaust nema hvað einn hefur sótt um hæli í Noregi sem pólitískur flóttamaður.

Erlent

Fjöldaframleidd lífverkfræðihönd

Skoskt fyrirtæki býður almenningi upp á fyrst u fjöldaframleiddu taugast ýrðu lí fverkfræðihöndina. Þetta hljómar eins og eitthvað úr Terminator eða Star Wars en er deginum sannara. Búið er að setja á markað svokallaðan „bionic arm“, eins konar lífverkfræðilega hönd.

Erlent

Ingmar Bergman látinn

Leikstjórinn Ingmar Bergman er látinn, 89 ára að aldri. Leikstjórinn var einna þekktastur fyrir myndir sínar The Seventh Seal og Wild Strawberries. Hann hlaut þrenn óskarsverðlaun á ferlinum, fyrir myndirnar The Virgin Spring, Through a Glass Darkly og Fanny and Alexander.

Erlent

Talað við trén í símann

Hringdu í tré er ekki ævintýrabók fyrir börn, heldur átak á vegum Reykjavíkurborgar til styrktar skógrækt. „Hugmyndin vaknaði þegar Reykjavíkurborg fór meðvitað að stíga grænni skref til að sporna við gróðurhúsaloftegundum á höfuðborgarsvæðinu. Umhverfisvernd er orðin mun stærri þáttur í starfi borgarinnar og Hringdu í tré er eitt slíkt skref,“ segir Álfheiður Eymarsdóttir, þjónustustjóri Reykjavíkurborgar.

Erlent

Tekist á um fjölkvæni í Danmörku

Danskir stjórnmálamenn, jafnt sem kirkjunnar menn takast nú á um fjölkvæni Íraska túlksins, sem dönsk stjórnvöld ákváðu að bjóða landvistarleyfi í Danmörku vegna heimkvaðningar danska herliðsins í Írak.

Erlent

Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin

Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin fyrir leiðtogahlutverk þeirra í baráttunni gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, lýsti þessu yfir í upphafi fyrstu opinberri heimsóknar sinnar til Bandaríkjanna í morgun.

Erlent

Breski herinn heim frá Norður Írlandi

Neyðaraðgerð breska hersins á Norður-Írlandi, sem staðið hefur í þrjátíu og átta ár, lýkur á miðnætti. Þetta er lengsta herseta breska hersins utan heimahaganna, en herliðinu var ætlað að veita norður-írsku lögreglunni aðstoð í baráttu hennar gegn hryðjuverkum.

Erlent

Mæðgin drukknuðu við vesturströnd Jótlands

Tveir þýskir ferðamenn, móðir og sonur, drukknuðu í sjónum úti við danska bæinn Söndervig á vesturströnd Jótlands í gær. Pilturinn var á sundi þegar sterk undiralda hreif hann með sér á haf út. Móðirinn gerði tilraun til að bjarga syni sínum með fyrrgreindum afleiðingum.

Erlent

Þriðjungur Íraka þarf á neyðaraðstoð að halda

Þriðjungur Íraka þarf á neyðaraðstoð að halda. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá mannúðarsamtökunum OXFAM og írökskum hjálparsamtökum. Í skýrslunni segir að ríkisstjórn Íraks takist ekki að sjá allt að átta milljónum manna fyrir grunnþörfum á borð við vatn, viðunandi hreinlætisaðstæður, mat og húsaskjól. Þá segir að skálmöldin í landinu skyggi hve slæmur aðbúnaður fólks er á stríðssvæðunum. Fjórar milljónir manna hafa flúið heimili sín frá upphafi stríðsins árið 2003.

Erlent

Brown reyndi að slá á sögur um kólnandi samskipti

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við Bush Bandaríkjaforseta í dag. Brown reyndi fyrir ferðina að slá á sögur um að samskipti þjóðanna færu kólnandi og lagði áherslu á mikilvægi þeirrar öflugu samvinnu sem ríki þeirra á milli.

Erlent

Tveir þýskir ferðmenn drukkna við strendur Jótlands

Tveir þýskir ferðamenn, móðir og sonur, drukknuðu í sjónum úti við danska bæinn Söndervig á vesturströnd Jótlands í dag. Pilturinn var á sundi þegar sterk undiralda hreif hann með sér á haf út. Móðirinn gerði tilraun til að bjarga syni sínum með fyrrgreindum afleiðingum.

Erlent

Shinzo Abe segir ekki af sér þrátt fyrir kosningaósigur

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að hann viðurkenni ósigur síns flokks í kosningum til efri deildar japanska þingsins í dag. Ekki er þó útilokað að gerðar verði breytingar á ráðherraskipan innan ríkisstjórnarinnar á næstunni.

Erlent

Sameinað Írak fagnar sigri á Asíuleikunum

Írakar hafa safnast þúsundum saman á götum úti til að fagna í sigri íraska fótbaltalandsliðsins á Saudi Aröbum í úrslitaleik liðanna á Asíuleikunum í Indónesíu í dag. Sjíar, Sunníar og Kúrdar þustu með fagnaðarlátum út á göturnar og heyra hefur mátt bílflautur þeyttar og byssuskot eftir að úrslitin lágu fyrir.

Erlent

Hætta á flóðum hefur rénað

Lík nítján ára pilts fannst umflotið vatni á vestur-Englandi í nótt en piltsins hafði verið saknað í um viku, eða frá því flóðin á svæðinu hófust. Hætta á flóðum á Bretlandseyjum hefur minnkað en rigningar sem gengu yfir suðvestur England í nótt höfðu töluvert minni áhrif en spáð hafði verið.

Erlent