Erlent

Stonehenge var lækningamiðstöð

Breskir fornleifafræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að steinahringurinn mikli Stonehenge sé um þrjúhundruð árum yngri en áður var talið.

Erlent

Lá lífið á að komast á barinn

Rúmlega fimmtug kona í Belton í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á yfir höfði sér ákæru vegna þorsta síns. Lögregla kom að Lorettu Tollison á bar um hálftíuleytið á fimmtudagskvöldið.

Erlent

Anders Fogh á vígvellinum

Danir eru víða við friðargæslu í heiminum, meðal annars í Afganistan og Kosovo. Það kemur kannski einhverjum á óvart en þessir glaðværu frændur okkar eru taldir vera úrvals hermenn. Þeir hafa sterkar taugar og eru harðir í horn að taka.

Erlent

Mbeki segir formlega af sér

Thabo Mbeki hefur nú formlega sagt af sér sem forseti Suður-Afríku. Hann mun láta af embætti um leið og búið er að finna einhvern til þess að taka við embættinu fram að næstu kosningum sem verða á næsta ári. Ekki er ljóst hver muni taka við í millitíðinni en talið er að þingforsetinn Baleka Mbeta taki við.

Erlent

Hryðjuverkaleiðtogi handtekinn í Jemen

Yfirvöld í Jemen segjast hafa handtekið leiðtoga Islamic Jihad hryðjuverkahópsins sem lýst hefur ábyrgð á árás á sendiráð Bandaríkjanna í landinu á hendur sér. Sautján manns biðu bana í árásinni sem átti sér stað á miðvikudaginn. Leiðtoginn, Abu al-Ghaith al-Yamani, var á meðal sex manna sem handteknir voru í dag.

Erlent

Klíkustríð í Óðinsvéum - lögregla fær auknar heimildir

Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku hefur fengið auknar heimildir til þess að stöðva fólk og framkvæma húsleitir í kjölfar skotárásar í nótt. Skotið var að höfuðstöðvum Vítisengla í borginni og óttast lögreglan að átökin á milli vélhjólaklíkunnar og gengja sem skipuð eru innflytjendum séu að breiðast út um landið. Hingað til hafa átökin verið takmörkuð við Kaupmannahöfn. Strax eftir árásina fékk lögregla þessar auknu heimildir í nágrenni höfuðstöðvanna en nú síðdegis var ákveðið að láta þær gilda um alla borgina.

Erlent

Ekkert melamín í Nestlé vörum

Öll Nestlé þurrmjólk sem seld er á Íslandi er framleidd í Evrópu undir ströngustu skilyrðum og eftirliti Evrópusambandsins. Stórmarkaðir í Hong Kong hafa innkallað Nestlé þurrmjólk sem framleidd er í Kína af ótta við að hún sé menguð. Nestlé hefur vísað þessum ásökunum á bug og bendir á að kínversk stjórnvöld hafi gefið út lista yfir tegundir sem kynnu að innihalda hið mengandi efni melamín. Nestlé vörur eru ekki á þeim lista.

Erlent

Fimmtíu létust þegar kínverskur skemmtistaður brann

Hátt í fimmtíu létust og níutíu slösuðust þegar eldur kviknaði í ólölegum næturklúbbi í suðurhluta Kína á miðnætti. Fullt var út úr dyrum þegar eldins varð vart á þriðju hæð skemmtistaðarins en staðurinn er vinsæll meðal ungmenna.

Erlent

Stjórnarsáttmáli tilbúinn í Færeyjum

Ný ríkisstjórn er í uppsiglingu í Færeyjum en Jóhannes Eidesgaard lögmaður sleit stjórninni á mánudaginn var vegna deilna um skrifstofurými á Þinganesi. Formenn Jafnaðarmanna, Sambandsflokksins og Fólkaflokksins hafa komist að samkomulagi um nýjan stjórnarsáttmála og búist er við að tilkynnt verði um nýja stjórn á morgun.

Erlent

Tékkneski sendiherran á meðal fallinna á Marriott

Tala látinna heldur áfram að hækka eftir sjálfsmorðsspengjuárásina á Marriott hótelið í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í gær. Að minnnsta kosti fimmtíu og þrír létust og tvö hundruð og fimmtíu særðust. Á meðal látinna er tékkneski sendiherrann í Pakistan.

Erlent

Nestlé þurrmjólk innkölluð í Hong Kong

Stórmarkaðir í Hong Kong hafa innkallað alla Nestlé þurrmjólk sem framleidd er í Kína af ótta við að hún sé menguð. Sky fréttastofan segir dagblað í Hong Kong hafa birt grein um að efnið melamín hefði fundist í mjólkinni.

Erlent

Tugir létust í tveimur námuslysum í Kína

Kínversk yfirvöld segja að minnsta kosti 36 látna í tveimur námuslysum þar í landi í gær. 31 lést og níu annara er saknað eftir gassprengingu í einkarekinni námu í Dengfeng borg í Henan héraði.

Erlent