Erlent

Óttast að tala látinna eigi eftir að hækka verulega

Hátt á annað hundrað manns fórust þegar þrír öflugir jarðskjálftar riðu yfir suðvestur Pakistan í dag og þúsundir manna hafa misst heimili sín. Rauði krossinn óttast að þessar tölur eigi eftir að hækka verulega. „Jarðskjálftarnir mældust á bilinu 6,2-6,4 á Richter og ollu mestri eyðileggingu í Balukistanhéraði sem liggur við landamæri Afganistans,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum. Íslenskur liðsmaður samtakanna er í Peshawar í Pakistan.

Erlent

Framlengdu frystingu á eignum Landsbankans

Lávarðadeild breska þingsins samþykkti í gærkvöld að framlengja frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi þar til samkomulag hafi tekist milli Íslendinga og Breta um hvernig tryggja eigi breskar inneignir á Icesave-reikningum.

Erlent

160 látnir eftir skjálfta í Pakistan

Að minnsta kosti hundrað og sextíu eru látnir eftir að snarpur jarðskjálfti reið yfir suð vesturhluta Pakistans í nótt. Talið er að fjölmargir liggi grafnir í rústum húsa sem hrundu til grunna og óttast að tala látinna eigi eftir að snarhækka.

Erlent

Óeirðir í Kaupmannahöfn

Lögregla í Kaupmannahöfn beitti táragasi gegn æstum mannfjölda í gærkvöldi sem mótmælti því að hús í Kristíaníu-hverfinu yrði rifið.

Erlent

Karadzic hlýddi á breytta ákæru gegn sér í Haag

„Slátrarinn frá Bosníu“, Radovan Karadzic, kom fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í morgun til að hlýða á breytingu sem gerð hefur verið á ákærunni gegn honum. Karadzic er ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð og er ákæran alls í 11 liðum.

Erlent

Kim Jong Il hressist

Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, virðist vera að hressast og er nú talinn geta stjórnað landinu forfallalaust að mati leyniþjónustu Suður-Kóreu. Leiðtoginn er ekki alheill heilsu eftir heilablóðfallið sem hann fékk um miðjan ágúst en mat suðurkóresku leyniþjónustunnar er að hann sé fær um að halda um stjórnartaumana.

Erlent

Norður-Kóreumenn hafa uppi hótanir eftir liðhlaup

Norður-Kóreumenn hóta nágrönnum sínum í suðri því að skilja eftir sig sviðna jörð á landi þeirra, láti þeir ekki þegar af því sem norðanmenn kalla ógnandi tilburði sunnan megin við hlutlausa beltið sem aðskilur Norður- og Suður-Kóreu.

Erlent

Brugguðu Obama launráð

Lögregla í Tennessee segist hafa hindrað áform tveggja nýnasista um að ráða forsetaframbjóðandann Barack Obama af dögum.

Erlent

Erfið klósettviðgerð

Rannsóknarnefnd í Bangladesh hefur flett ofan af margvíslegri spillingu í opinberum stofnunum þar í landi. Í einu tilfellinu fengu 122 verkamenn greitt fyrir að laga eitt klósett.

Erlent