Erlent
Herinn hafði betur eftir tólf klukkustunda blóðuga bardaga Þúsundir Tælenskra hermanna hröktu í dag mótmælendur af götum Bangkok eftir tólf klukkustunda blóðuga bardaga. Fjölmörg lönd hafa varað þegna sína við að ferðast til Tælands. Erlent 13.4.2009 18:57
Umferðin farin að þyngjast Umferð er farin að þyngjast til höfuðborgarinnar enda margir á faraldsfæti um helgina. Í gjaldskýli Spalar við Hvalfjarðargöng fengust þær upplýsingar fyrir skömmu að umferðin væri þó enn vel viðráðanleg og engar raðir teknar að myndast. Erlent 13.4.2009 14:58
Segir Brown ekki þurfa að afsaka tölvupósta fyrrum ráðgjafa Gordon Brown þarf ekki að biðjast afsökunar á tölvupóstsendingum Damian McBride fyrrum ráðgjafa síns að mati Alan Johnson heilbrigðisráðherra landsins. Hann segir menn eiga að biðjast afsökunar á því sem þeir beri ábyrgð á og þetta hafi ekkert með Gordon Brown að gera. Erlent 13.4.2009 13:37
Talibanar færa sig upp á skaftið í Pakistan Talibanar eru að herða tök sín í dal sem þeir hertóku í síðustu viku. Dalurinn er aðeins um 100 kílómetra frá höfuðborginni Islamabad. Erlent 13.4.2009 12:08
Hríðskotarifflum beitt í Bangkok í morgun Hríðskotarifflum var beitt í Bangkok á Tælandi í morgun þegar herinn lét til skarar skríða gegn mótmælendum sem vilja forsætisráðherra landsins frá völdum. Fjöldi ferðamanna hefur afpantað ferðir sínar til landsins. Erlent 13.4.2009 12:04
Á ofshraða með stúlku í fanginu Ungur ökumaður missti ökuskírteinið í Noregi um helgina fyrir að aka á alltof miklum hraða. Lögreglumenn veittu honum eftirför þegar hann mældist á 123 kílómetra hraða. Lögreglumennirnir sáu þá fljótlega að það var ekki bara bíllinn sem var á fullri ferð, heldur parið sem var í honum líka. Erlent 13.4.2009 11:27
Sérsveitarmenn skutu sómalska sjóræningja Bandarískir og franskir sérsveitarmenn létu til skarar skríða gegn sómölskum sjóræningjum um helgina. Bandarísku sérsveitarmennirnir skutu til bana þrjá af fjórum sjóræningjum sem héldu bandarískum skipstjóra í gíslingu. Skipstjórinn slapp ómeiddur. Erlent 13.4.2009 10:12
Tuttugu og einn lét lífið í bruna í Póllandi Að minnsta kosti tuttugu og einn lét lífið þegar athvarf fyrir heimilislausa brann til grunna í norðvesturhluta Póllands í nótt. Margir eru slasaðir eftir að hafa stokkið út um glugga til að bjarga sér frá eldinum. Erlent 13.4.2009 09:53
Vilja hefja friðarviðræður Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ræddu saman símleiðis í gær að frumkvæði Abbas. Þetta var fyrsta samtal leiðtoganna frá því að Netanyahu tók við sem forsætisráðherra 31. mars. Talsamaður forsætisráðherrans segir að um vinalegt símtal hafi verið ræða. Erlent 13.4.2009 08:00
Vopnahlé á Srí Lanka Mahinda Rajapaksa, forseti Sri Lanka, lýsti í gær yfir tveggja daga vopnahléi. Hann vill ekki að stjórnarherinn ráðist á aðskilnaðarsinna Tamíl Tígra og leyfi þess stað almennum borgurum að flýja bardagasvæði. Erlent 13.4.2009 07:00
Frjálsir Frakkar koma heim Herve Moin, varnarmálaráðherra Frakkalands, tók í dag á móti fjórum Frökkum sem franski herinn bjargaði úr klóm sómalskra sjóræningja í gær. Erlent 12.4.2009 23:00
Enn ríkir óvissa á Madagaskar Stuðningsmenn fyrrum forseta Madagaskar hafa dregið sig út úr viðræðum sem ætlað var að binda enda á hina miklu pólitísku óvissu sem verið hefur í landinu undanfarin misseri. Erlent 12.4.2009 22:00
Cameron krefur Brown um persónulega afsökunarbeiðni David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, krefst þess að Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, biðji sig persónulega afsökunar á tölvupóstum sem Damian McBride ráðgjafi Browns sendi. Erlent 12.4.2009 21:00
Uppreisnarmenn drápu 13 í Perú Uppreisnarmenn í samtökunum Skínandi stíg í Perú hafa undanfarna daga drepið 13 hermenn í tveimur árásum í suðausturhluta landsins. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu síðastliðin tíu ár. Erlent 12.4.2009 17:06
Maóistar felldu tvo lögreglumenn Fjörutíu vopnaðir maóistar drápu tvo lögreglumenn og einn óbreyttan borgara þegar þeir réðust inn í dag á lögreglustöð Chhattisgarh fylki sem er í miðhluta Indlands. Í gær drápu þeir fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austurhluta landsins. Erlent 12.4.2009 16:18
Hálfbróður Obama meinað að koma til Bretlands Samson Obama, hálfbróðir Baracks Obama Bandaríkjaforseti, fær ekki að heimsækja Bretland þar sem móður hans býr eftir að hann framvísaði ekki sínum skilríkjum þegar hann var handtekinn fyrir meint kynferðisbrot í nóvember. Hann var grunaður um að hafa áreitt unga stúlku. Þetta kemur fram í breska blaðinu News of the World. Erlent 12.4.2009 15:55
Páfi minntist fórnarlamba jarðskjálftans í páskaávarpi Benedikt 16. páfi minntist fórnarlamba jarðskjálftans á Ítalíu í árlegu páskaávarpi sínu til heimsbyggðarinnar sem hann flutti af svölum Péturskirkju í morgun. Erlent 12.4.2009 14:11
Atkvæði í þingkosningum endurtalin Stjórnlagadómstóll Moldavíu ákvað í dag að öll atkvæði í þingkosningunum sem fram fóru í landinu fyrir viku verði endurtalin. Áður hafði forseti landsins óskað eftir endurtalningu en hann hart verið tekist á um málið í höfuðborg landsins. Stjórnarandstæðingar hafa sakað sitjandi stjórn um kosningasvik. Erlent 12.4.2009 13:31
Herinn kallaður út í Bangkok Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bangkok höfuðborg Tælands og á nærliggjandi svæðum eftir mótmælaöldu andstæðinga forsætisráðherrans. Hermenn hafa þegar tekið sér stöðu á götum úti. Erlent 12.4.2009 12:56
Fórnarlömb jarðskjálftanna halda páskana hátíðlega Þúsundir fórnarlamba jarðskjálftanna í ítölsku borginnni L'Aquila halda í dag páskana hátíðlega í skugga hörmunga síðustu viku. Þar á meðal var Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins. Erlent 12.4.2009 12:09
Sjóræningjarnir halda enn bandarískum skipstjóra Lítið hefur þokast í deilu sómalskra sjóræningja og bandaríska hersins en þeir fyrrnefndu hafa bandarískan skipstjóra í haldi. Hópur sómalskra öldrunga reynir að liðka fyrir lausn deilunnar. Öldungarnir hafa nú siglt í átt að sjóræningjunum sem eru á siglingu skammt undan ströndum Sómalíu og ætla að reyna að gera sitt til að miðla málum. Erlent 12.4.2009 10:30
Neyðarástand í Bangkok Neyðarástandi var í morgun lýst yfir í Bangkok höfuðborg Tælands og á nærliggjandi svæðum. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að hundruðir mótmælenda stromuðu inn á skrifstofu innanríkisráðuneytis landsins og tókst Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherr,a naumlega að sleppa undan hópnum. Erlent 12.4.2009 10:07
Öryggisráðið fordæmir eldflaugaskot N-Kóreumanna Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir eldflaugaskot sem Norður-Kóreumenn greindu frá 5. apríl. Þá sögðu Norður-Kóreumanna hafa tekist að koma gervihnetti á sporbaug um jörðu. Flest nágrannaríki Norður-Kóreu og Vesturveldin segja að þetta hafi verið tilraun með langdræga eldflaug sem geti borið kjarnorkuvopn alla leið til Alaska. Erlent 11.4.2009 23:00
Leit að fórnarlömbum jarðskjálftans hætt innan skamms Leit að fórnarlömbum jarðskjálftans á Mið-Ítalíu á mánudag verður að öllum líkindum hætt í kvöld eða í síðasta lagi á morgun, sunnudag. Þetta hefur AP fréttastofan eftir talsmanni slökkviliðsins í héraðshöfuðstaðnum L'Aquila sem jarðskjálftinn lék illa. Erlent 11.4.2009 21:00
Ætlaði að smygla 250 milljónum til Gaza Egypska lögreglan stöðvaði nýverið för manns sem talinn er hafa ætlað að smygla tveimur milljónum dollara til Hamassamtakanna á Gazasvæðinu í Palestínu. Upphæðin samsvarar 250 milljónum íslenskra króna. Erlent 11.4.2009 16:14
Einn látinn eftir skotárás í Hollandi Einn er látinn og þrír slasaðir eftir að maður hóf skothríð á þéttsetnu kaffihúsi í borginni Rotterdam í Hollandi í dag. Kaffihúsagestir yfirbuguðu manninn og héldu honum föngnum þangað til lögregla kom á staðinn. Erlent 11.4.2009 13:58
Maóistar drápu fimm lögreglumenn Maóistar drápu fimm lögreglumenn og særðu þrjá í austuhluta Indlands skömmu áður en ráðgert var að Sonia Gandhi, leiðtogi Kongressflokksins, ávarpaði fjöldafund í nágrenni morðstaðarins. Erlent 11.4.2009 13:55
Ákvörðun um endurtalningu frestað Hæstiréttur Moldavíu ákvað að fresta í dag umfjöllun sinni um beiðni forseta landsins um endurtalningu atkvæða í þingkosningunum þar í landi síðastliðinn sunnudag. Erlent 11.4.2009 13:05
Leiðtogarnir fluttir á brott í þyrlum Tælensk stjórnvöld þurftu að aflýsa fundi leiðtoga í Asíu í annað sinn á fimm mánuðum eftir að þúsundir mótmælenda réðust í gegnum öryggisgæsluna á hótelinu í bænum Pattaya þar sem fundurinn átti að fara fram. Erlent 11.4.2009 10:45
Níu létust í sprengjuárás í Írak Níu arabískir hermenn létust og 31 særðist í sjálfsvígsárás í Babel í suðurhluta Íraks í morgun. Hermennirnir stóðu í biðröð við herstöð til að sækja launaseðla sína þegar árásin var gerð. Erlent 11.4.2009 10:18