Erlent

Krabbameinsleit fremur gagnleg en skaðleg

Krabbameinsleit í brjóstum gerir meira gagn en ógagn. Fjöldi lífa sem bjargað er með slíkri leit er tvöfaldur á við þær leitir sem gerðar eru að tilefnislausu. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerðar voru á 80 þúsund konum.

Erlent

Loftslagsprófessor gerði ekkert rangt

Vísindanefnd breska þingsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að prófessor sem var í miðdepli hins svokallaða tölvupóstahneykslis í loftslagsmálum hafi ekki falsað neinar niðurstöður.

Erlent

Ellefu fórust í sjálfsmorðssprengjuárás

Að minnsta kosti ellefu fórust í tveimur sjálfsmorðssprengjuárásum í bænum Kisljar á Kákasussvæðinu við Rússland í nótt. Meðal þeirra sem fórust voru sex lögreglumenn. Þjóðarsorg var í Rússlandi í gær vegna hryðjuverkanna í Moskvu í fyrradag.

Erlent

Fresta skýrslu um morðið á Bhutto

Sameinuðu þjóðirnar hafa frestað útgáfu skýrslu um morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, að beiðni pakistanskra stjórnvalda. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, samþykkti þessa frestun í gær, einungis fáeinum klukkustundum áður en skýrlsan átti að koma út. Bhutto var myrt í sjálfsmorðsárás á leið sinni á framboðsfund í Rawalpindi í desember 2007.

Erlent

Rændu 100 indverskum sjómönnum

Sómalskir sjóræningjar hafa rænt meira en 100 indverskum sjómönnum undan ströndum Sómalíu. Gíslarnir voru á sjö til átta farþegaskipum þegar þeim var rænt, en skipin eru núna á valdi sjóræningjanna.

Erlent

Biðjast afsökunar á fjöldamorðunum í Srebrenica

Serbneska þingið samþykkti í gær ályktun þar sem beðist er afsökunar á fjöldamorðunum í Srebrenica fyrir fimmtán árum síðan. Í ályktuninni segir að Serbar hefðu átt að gera meira til þess að koma í veg fyrir þær hörmungar sem urðu. Um átta þúsund múslimar í Bosníu voru myrtir í árásunum en árásarmennirnir voru bandamenn Slobodans Milesovic, sem þá var forseti Serbíu. Ályktunin var samþykkt með naumum meirihluta eftir 13 tíma umræður í serbneska þinginu.

Erlent

Örfáir eru algerlega öruggir

Aðeins einn af hverjum fjörutíu ökumönnum getur ekið bíl og talað í farsíma á sama tíma án þess að það bitni á öryggi hans og ökuhæfileikum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar.

Erlent

Róteindir nálguðust ljóshraða

Sviss, ap Vísindamönnum við Evrópsku kjarnorkurannsóknarstöðina (CERN) tókst í gær að koma róteindum nærri hraða ljóssins og láta þær svo rekast saman í risavöxnum sterkeindahraðli.

Erlent

Ísraelar ósamstiga um kröfur Bandaríkjanna

Ísrael, AP Tilgangur Baracks Obama með því að boða Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, á sinn fund í Washington í síðustu viku var að kynna þær kröfur sem Bandaríkjamenn gera til Ísraelsstjórnar.

Erlent

Hægir á verðhækkun orku

Tólf mánaða verðbólga í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) minnkaði lítillega í febrúar á þessu ári, var 1,9 prósent. Í fyrra mánuði mældist 2,1 prósents verðbólga.

Erlent

Óvíst um afdrif námumanna

Kína, AP Ættingjar 153 námuverkamanna kröfðust svara og aðgerða af björgunarfólki og stjórnvöldum í Kína. Um þúsund björgunarmenn hafa unnið á vöktum við að bjarga mönnum úr námu í Shanxi-héraði eftir að vatn flæddi niður í hana á sunnudag.

Erlent

Moskvuárásir: Óánægja með sjónvarpsstöðvarnar

Rússar eru óánægðir með sjónvarpsstöðvar landsins sem þyka hafa staðið sig með eindæmum illa þegar hryðjuverkamenn sprengdu sig í loft upp í neðanjarðarlestakerfi Moskvuborgar á mánudaginn. Þegar fregnirnar bárust út af árásunum hópuðust rússar að sjónvarpstækjum sínum til þess að fá upplýsingar um ástandið. Á sjónvarpsstöðvunum sem hliðhollar eru ríkisstjórninni var hins vegar lítið að frétta og aðeins matreiðsluþættir og sápuóperur á dagskrá eins og venjulega.

Erlent

G8 hópurinn þrýstir á Írana

Utanríkisráðherrar G8 hópsins, sem samanstendur af öflugustu iðnríkjum heims, hittust á fundi í dag þar sem áform Írana í kjarnorkumálum voru eitt aðal umræðuefnið. Eftir fundinn skoruðu ráðherrararnir á alþjóða samfélagið að taka „viðeigandi“ skref til þess að sýna samstöðu gegn kjarnorkuáformum Írans. Stjórnvöld í Íran hafa hins vegar ávallt haldið því fram að áætlun landsins sé eingöngu í friðsömum tilgangi.

Erlent

Helstirnið í nærmynd

Cassini geimfarið tók þessa mynd af Mimas tungli Satúrnusar úr aðeins 9.500 kílómetra fjarlægð. Það er það næsta sem geimfar hefur farið tunglinu.

Erlent

Þakhluti á höll Nerós hrundi í dag

Stór hluti af þakinu á hinni Gullnu höll Nerós í Róm hrundi í dag. Ekki er vitað til þess að neinn hafi orðið þar undir, en slökkviliðsmenn hafa girt svæðið af og eru að leita í rústunum.

Erlent

Hvar í helv... er klósettpappírinn?

Starfsmenn í Stjórnsýslumiðstöð breska ríkisins í West Midlands eru öskureiðir yfir því að búið er að setja upp tímamæla sem slökkva ljós á klósettum miðstöðvarinnar eftir tíu mínútur.

Erlent

Morðkvendin í Moskvu hyllt

Margar vefsíður sem tengjast Al Kaida hafa hyllt konurnar tvær sem myrtu þrjátíu og níu Rússa í sprengjuárásum á neðanjarðarlestarkerfi Moskvu í gær.

Erlent

Tony Blair aftur í slaginn

Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands blandar sér í dag í kosningabaráttuna fyrir þingkosningarnar sem að öllum líkindum verða haldnar sjötta maí næstkomandi.

Erlent

Nú brosir Silvio breitt

Það virðist vera nokkuð sama hversu mikið andstæðingarnir hamast á Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu. Hann heldur sínu og vel það.

Erlent

Viðurkennir að hafa ætlað að myrða Obama

Tuttugu og eins árs gamall nýnasisti frá Tennesse í Bandaríkjunum hefur viðurkennt að hafa ætlað að myrða fjölda svartra Bandaríkjamanna. Þar á meðal Barack Obama, sem þá var öldungardeildarþingmaður og forsetaframbjóðandi.

Erlent

Börn hreyfa sig of lítið

Þriðjungur barna í öllum heiminum ver þremur tímum eða meira á dag fyrir framan tölvu eða sjónvarpið, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gert. Rannsóknin tók til nærri 73 þúsund barna á aldrinum 13 - 15 ára í 34 löndum.

Erlent

Þjóðarsorg í Rússlandi

Yfirvöld í Rússlandi hafa lýst yfir þjóðarsorg í landinu í dag vegna þeirra 38 sem fórust í sjálfsmorðssprengingum í landinu í fyrrinótt.

Erlent

Aung San Suu Kyi ekki fram

Lýðræðishreyfingin í Búrma ætlar ekki að bjóða fram í þingkosningum, sem herforingjastjórnin hefur boðað til síðar í ár. Hreyfingin segir greinilegt að kosningarnar verði ekki lýðræðislegar. Þetta verða fyrstu þingkosningar í landinu í tvo áratugi. Herforingjastjórnin hefur lagt ríka áherslu á að stjórnarandstæðingar gæti hófs í baráttunni.

Erlent

Sakfelldir fyrir mútuþægni

Fjórir yfirmenn ástralska fyrirtækisins Rio Tinto í Kína fengu sjö til fjórtán ára fangelsi fyrir að þiggja mútur og aðra spillingu, sem kínverskur dómstóll segir að hafi valdið kínverskum stáliðnaði alvarlegu tjóni.

Erlent