Erlent

Ráðist á barnabörn Mandela

Ráðist var á tvö barnabörn Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta Suður - Afríku og reynt að ræna þau þegar að þau voru á leið úr afmælisveislu hans um helgina.

Erlent

Frekar flókin nauðgun

Þrítugur Arabi hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi í Jerúsalem fyrir nauðgun. Samfarirnar voru þó með fullu samþykki konunnar.

Erlent

15 ára bankaræningjar

Tveir fimmtán ára piltar hafa verið handteknir í Kristianssand Noregi fyrir fjögur vopnuð bankarán. Þeir eru einnig grunaðir um fleiri rán.

Erlent

Stærsta stífla heims heldur flóðum í skefjum

Þriggja gljúfra stíflan í Yangtze-fljótinu í Kína hefur náð að koma í veg fyrir gríðarlegt mannfall og tjón vegna flóða á svæðinu. Rennslið um ána nær 70 þúsund rúmmetrum á sekúndu og hefur aldrei verið meira. 700 eru látnir vegna flóða á árinu.

Erlent

Fegurðarsamkeppni fyrir heimilislausa

Í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun hafa smekklausustu aðgerðirnar í baráttunni gegn heimilisleysi verið teknar saman af Feantsa, alþjóðlegum samtökum sem berjast gegn heimilisleysi.

Erlent

Danir treysta kirkjunni

Traust Dana á þjóðkirkjunni sinni hefur aukist umtalsvert að undanförnu þrátt fyrir að krafan um aðskilnað ríkis og kirkju sé áberandi þar í landi. Þetta kemur fram í frétt Kristilega Dagblaðsins sem DR vísar til í dag.

Erlent

Hálshjuggu sex lögreglumenn

Talibanar réðust í gær á eftirlitsstöð og svæðisskrifstofu í norðurhluta Afganistans. Þar myrtu þeir sex lögregluþjóna með því að höggva af þeim höfuðin.

Erlent

Éttu og haltu kjafti

Þar sem Norðmaðurinn Henrik Ulven sat í Ryanair flugvélinni frá Berlín til Rygge í Noregi ákvað hann að gera nú vel við sig.

Erlent

Yfir 30 slösuðust um borð í Boeing

Yfir 30 manns slösuðust þegar Boeing 777 vél frá United Airlines lenti í mikilli ókyrrð yfir Kansas í Bandaríkjunum í nótt, þegar vélin var á leið frá Wasington til Los Angeles.

Erlent

Góð gleði í Varsjá

Talið er að yfir 8000 manns hafi tekið þátt í Gleðigöngu homma og lesbía í Varsjá í Póllandi um síðustu helgi.

Erlent