Erlent

Fólksbíll flattist út

Vörubíll með 45 tonna farm af sandi endaði inni í íbúðarhúsi í bænum Bountiful í Utah eftir að bremsur hans biluðu.

Erlent

Lestarstjóri ákærður fyrir morð

Lestarstjórinn sem var við stjórnvölinn þegar sjötíu og níu manns létust þegar lest fór út af sporinu á Spáni í sumar er nú fyrir rétti, en hann er ákærður fyrir morð.

Erlent

Hægri flokkunum er spáð stórsigri í Noregi

Rauðgræna stjórnin í Noregi hangir á bláþræði. Þingkosningar verða á mánudaginn og allt bendir til þess að þá missi stjórn Jens Stoltenberg meirihluta sinn. Erna Solberg verður líklega næsti forsætisráðherra. Hinn umdeildi Framfaraflokkur gæti verið á leið í ríkisstjórn.

Erlent

Sarín í fötum fórnarlamba

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands segir að vísindamenn á Porton Down tilraunastofunni hafi fundið eiturefnið sarín í fötum fórnarlamba efnavopnaárásarinnar í Sýrlandi 21. ágúst síðastliðinn. Þá hafi eiturefnið einnig fundist á vettvangi.

Erlent

Hundrað bílar skullu saman í Kent

Fjölmargir eru slasaðir eftir að mikill fjöldi bifreiða skall saman í Kent á Englandi í morgun. Að sögn Sky fréttastofunnar rákust rúmlega hundrað bílar saman á brú í héraðinu.

Erlent

Fundu hundruð skriðdýra í íbúð

Lögregluþjónar í Ósló ráku upp stór augu í gærmorgun þegar þeir komu inn í íbúð og fundu þar á bilinu 150 og 200 lifandi skriðdýr, aðallega kyrkislöngur.

Erlent

Ekkert vopn til beittara menntun

Malala Yousafzai, sextán ára pakistanska stúlkan sem lifði það af að vera skotin í höfuðið af talíbönum í Pakistan í október 2012, opnaði formlega stórt bókasafn í Birmingham í gær.

Erlent

Öngþveiti í Caracas

Víðtækt rafmagnsleysi herjar nú á íbúa Venesúela en um sjötíu prósent landsins eru án rafmagns og þar á meðal er stór hluti höfuðborgarinnar Caracas.

Erlent

Þráðormur í líkama Ríkharðs III

Við rannsóknir á beinagrind Ríkaharðs III hefur komið á daginn að líklega herjaði á líkama hans fremur viðbjóðslegur þráðormur, sníkjudýr, sem getur orðið allt að 33 sentímetrar að lengd.

Erlent

Pútín vill fá sannanir

Pútín Rússlandsforseti varaði í gærkvöldi Bandaríkin og samherja þeirra við því að taka einhliða ákvörðun í málefnum Sýrlands.

Erlent