Fótbolti
Pardew: Ekki mörg lið sem skora þrjú á móti Liverpool „Þetta var frábær sigur og það eru ekki mörg lið sem geta skorað þrjú mörk á móti Liverpool," sagði stoltur Alan Pardew eftir 3-1 sigur Newcastle á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn og hann skilaði liðinu upp fyrir Liverpool og í 8. sætið í deildinni. Enski boltinn 11.12.2010 20:30
Joey Barton tileinkaði Hughton verðlaun sín sem maður leiksins Joey Barton, var valinn maður leiksins þegar Newcastle vann 3-1 sigur á Liverpool í fyrsta leik liðsins undir stórn nýja stjórans Alan Pardew. Barton tileinkaði hinsvegar gamla stjóranum, Chris Hughton, verðlaun sín í leikslok. Enski boltinn 11.12.2010 19:58
Newcastle vann 3-1 sigur á Liverpool í fyrsta leik Pardew Newcastle byrjaði frábærlega undir stjórn Alan Pardew í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur á Liverpool á St James' Park í ensku úrvalsdeildinni. Newcastle-liðið komst með þessum sigri upp í áttunda sæti en Liverpool heldur áfram skelfilegu gengi sínu á útivelli undir stjórn Roy Hodgson. Enski boltinn 11.12.2010 19:24
Tony Pulis: Stundum er þetta ekki bara þinn dagur Tony Pulis, stjóri Stoke, lét Eið Smára Guðjohnsen sitja á varamannabekknum áttunda leikinn í röð þegar liðið tapaði 0-1 á heimavelli á móti Blackpool í ensku úrvalsdeildinni í dag. Blackpool skoraði sigurmark sitt í upphafi seinni hálfleiksins. Enski boltinn 11.12.2010 19:14
Enski boltinn: Manchester City skoraði þrjú mörk án Tevez Manchester City komst upp að hlið Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á botnliði West Ham á Upton Park í dag en Arsenal-menn halda toppsætinu á markatölu. Aston Villa vann sinn fyrsta sigur í fimm leikjum og Stoke tapaði heimavelli á móti Blackpool. Enski boltinn 11.12.2010 16:52
Gylfi lék allan leikinn í jafnteflisleik Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Hoffenheim í þriðja sinn á tímabilinu og lék allan leikinn þegar liðið vann gerði 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Nürnberg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 11.12.2010 16:31
Lampard verður ekki með á móti Tottenham á morgun Frank Lampard þarf að bíða enn lengur eftir að snúa til baka í lið Chelsea eftir að ljóst varð að hann er ekki klár í að spila með liðinu á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Enski boltinn 11.12.2010 15:30
Roy Hodgson neitaði að selja menn sem stjórnin vildi losna við Roy Hodgson, stjóri Liverpool, fékk síðasta sumar lista frá Christian Purslow, fyrrum yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu en á listanum voru leikmenn sem stjórnin vildi selja frá félaginu. Hodgson hefur nú komið fram og þakkað gott gengi liðsins að undanförnu því þar hafi leikmenn af umræddum lista spilað mikilvægt hlutverk í velgengi liðsins síðustu vikur. Enski boltinn 11.12.2010 14:30
Fabregas: Við viljum fara að vinna þessa stóru leiki Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, lifir enn í voninni um að ná stórleiknum á móti Manchester United á mánudagskvöldið. Þar mætast tvö efstu liðin á sannköllum toppslag á Old Trafford. Enski boltinn 11.12.2010 13:30
Ancelotti: Roman hefur lofað að reka hann ekki Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, er öruggur í starfi þrátt fyrir skelfilegt gengi liðsins að undanförnu. Ítalinn segir að eigandinn Roman Abramovich ætli að standa með honum á meðan hann kemur Chelsea-liðinu aftur í gang. Enski boltinn 11.12.2010 12:30
Forseti Parma: Allir vilja Cassano „Cassano er frábær leikmaður sem allir vilja hafa í sínu liði," segir Tommaso Ghirardi, forseti Parma á Ítalíu, sem er einn þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á því að fá sóknarmanninn Antonio Cassano frá Sampdoria. Fótbolti 10.12.2010 23:45
Houllier biðst afsökunar: Var sagt í gríni „Ef það er eitthvað lið sem ég vil tapa fyrir 3-0 þá er það Liverpool á Anfield," sagði Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Aston Villa, eftir að lið hans tapaði illa síðasta mánudag. Þessi ummæli hans féllu í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönnum Villa. Enski boltinn 10.12.2010 23:15
Xavi finnst furðulegt að Sneijder sé ekki meðal þriggja efstu „Hann átti stórkostlegt ár," segir miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona um Wesley Sneijder hjá Inter. Mörgum finnst furðulegt að Sneijder sé ekki einn þeirra þriggja sem eiga möguleika á að hljóta gullknöttinn; vera knattspyrnumaður ársins hjá FIFA. Fótbolti 10.12.2010 23:00
Tæklaði aðstoðardómara en slapp við bláa spjaldið - myndband Í vikunni fór fram athyglisverður æfingaleikur í Brasilíu milli Sao Paulo og Rio de Janeiro. Í myndskeið með fréttinni má sjá Volante Baiano, leikmann Sao Paulo, tækla aðstoðardómara leiksins þegar hann reyndi að ná til boltans. Fótbolti 10.12.2010 22:15
Heiðar tapaði gegn gömlu félögunum Watford vann 3-1 útisigur á toppliði QPR í ensku B-deildinni í kvöld. Heiðar Helguson var í byrjunarliði QPR gegn sínu fyrrum félagi og lék í 70 mínútur áður en honum var skipt af velli. Enski boltinn 10.12.2010 21:40
Auglýsing á treyjum Barcelona í fyrsta sinn Spænski risinn Barcelona hefur gert auglýsingasamning við Katar-stofnunina (Quatar Foundation). Vörumerki stofnunarinnar verður á treyjum Barcelona. Fótbolti 10.12.2010 20:30
Yaya Toure: Styttist í að ég sýni mínar bestu hliðar Miðjumaðurinn Yaya Toure segir að stuðningsmenn Manchester City séu nú loks farnir að sjá það besta frá honum. Miklar væntingar voru gerðar til Fílabeinsstrendingsins enda keyptur frá Barcelona á morðfjár. Enski boltinn 10.12.2010 19:45
Platini hlynntur því að HM 2022 verði í janúar Michel Platini, forseti knattspyrnusambands Evrópu, segist ekki vera mótfallinn þeirri hugmynd að spila heimsmeistaramótið 2022 um vetrartímann til að forðast steikjandi hitann í Katar yfir sumarið. Fótbolti 10.12.2010 19:00
Dómari segir að Ronaldo sé svindlari Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, er óheiðarlegur leikmaður. Þetta segir danski dómarinn Claus Bo Larsen sem dæmdi í vikunni sinn síðasta leik í Meistaradeildinni þegar Ajax vann AC Milan á San Siro. Fótbolti 10.12.2010 18:15
Alan Pardew: Aðrir stjórar segja að ég sé klikkaður Alan Pardew er sestur í stjórastólinn hjá Newcastle United þrátt fyrir að fjöldi stjóra hafi varað hann við að taka við liðinu. Pardew er áttundi stjóri félagsins á rúmlega fjórum árum og eigandinn Mike Ashley hefur ekki gott orð á sér fyrir að sýna stjórum sínum þolinmæði. Enski boltinn 10.12.2010 17:15
Ferguson bannar sínum mönnum að vera með hárband um hálsinn Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ekki hrifinn af nýjustu tísku leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar en margir þeirra hafa spilað með þykkt hárband um hálsinn til þess að verjast kuldanum sem hefur verið í Englandi síðustu vikur. Enski boltinn 10.12.2010 16:45
Gylfi og Hólmfríður eru knattspyrnufólk ársins Gylfi Sigurðsson og Hólmfríður Magnúsdóttir eru knattspyrnufólk ársins að mati Knattspyrnusambands Íslands. Þetta er í sjöunda sinn sem KSÍ útnefnir sérstaklega knattspyrnumann og -konu ársins. Íslenski boltinn 10.12.2010 15:26
Steven Gerrard ætti að ná Fulham-leiknum - ekki með um helgina Steven Gerrard verður ekki með Liverpool á móti Newcastle um helgina en ætti að geta spilað leikinn á móti Fulham um næstu helgi. Gerrard er enn að ná sér góðum eftir að hafa meiðst aftan í læri í vináttulandsleik Englendinga og Frakka á dögunum. Enski boltinn 10.12.2010 14:15
Patrice Evra segir Arsenal vera eins og knattspyrnuskóli Sálfræðistríðið fyrir toppslag Manchester United og Arsenal á mánudagskvöldið er hafið og franski bakvörðurinn hjá Manchester United, Patrice Evra, hraunaði aðeins yfir Arsenal-liðið í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina Canal+. Enski boltinn 10.12.2010 13:00
Meiðslavandræði Arsenal halda áfram - Gibbs frá í 3 vikur Kieran Gibbs, bakvörður Arsenal, verður frá næstu þrjár vikurnar vegna ökklameiðsli sem hann varð fyrir í Meistaradeildarleik á móti Partizan Belgrad í vikunni. Gibbs er enn einn leikmaður Arsenal á þessu tímabili sem verður lengi frá vegna meiðsla. Enski boltinn 10.12.2010 12:15
Ítalskir leikmenn hættir við að fara í verkfall um helgina Leikmannasamtök ítölsku A-deildarinnar hafa hætt við boðað verkfall um helgina eftir að þau náðu samkomulagi við forráðamenn ítölsku deildarinnar í gær. Samingurinn hefur ekki verið undirritaður en leikmenn hafa engu að síður hætt við verkfallið. Fótbolti 10.12.2010 11:45
Mancini: Lærið að vinna án Carlos Tevez Carlos Tevez verður í leikbanni um helgina þegar Manchester City mætir hans gamla félagi West Ham og það gæti skapað vandræði fyrir City-liðið enda hefur Tevez verið allt í öllu í sóknarleik liðsins. Enski boltinn 10.12.2010 11:15
Ferdinand, Scholes og Evra allir með á móti Arsenal Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er sannfærður um að að þeir Rio Ferdinand, Paul Scholes og Patrice Evra geti allir spilað í toppslagnum á móti Arsenal á mánudagskvöldið. Enski boltinn 10.12.2010 10:45
John Terry: Það góða er að við erum ekki eins og Liverpool John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur varað sína menn við því að liðið þurfi að fara að komast í gang sem fyrst ef það ætli ekki að missa af lestinni í baráttunni um enska meistaratitilinn. Enski boltinn 10.12.2010 09:45
Enska úrvalsdeildin ætlar að þvinga Sir Alex til þess að tala Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, neitar enn að tala við blaðamenn BBC þrátt fyrir að honum beri skylda til þess að tala við rétthafa ensku úrvalsdeildarinnar. Ferguson hefur safnað upp dágóðum upphæðum í sektir fyrir að skrópa í viðtöl en nú á að gera allt til þess að Sir Alex mæti í öll viðtöl. Enski boltinn 10.12.2010 09:15