Fótbolti
Zoltan Gera aftur til West Brom Knattspyrnumaðurinn Zoltan Gera hefur gengið til liðs við West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gera þekkir vel til á Hawthorns-vellinum en hann spilaði með WBA á árunum 2005-2008. Enski boltinn 2.8.2011 22:45
Dönsku Íslendingaliðin komin í 4. umferð forkeppni Meistaradeildar Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson voru í liði FC Kaupmannahafnar sem sló út Shamrock Rovers frá Írlandi í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Rúrik Gíslason og félagar í OB Óðinsvéum eru einnig komnir áfram eftir sigur á Panathinaikos. Fótbolti 2.8.2011 22:29
Sneijdar spilar gegn Milan á laugardaginn Hollendingurinn Wesley Sneijder verður í liði Inter sem mætir erkifjendunum í AC Milan á laugardag. Knattspyrnustjóri Inter Gian Piero Gasperini staðfesti þetta í dag. Fótbolti 2.8.2011 22:00
Pastore á leið til PSG - yrði sjötti dýrasti í sögunni Argentínumaðurinn Javier Pastore hefur staðfest að hann sé á leiðinni til franska knattspyrnufélagsins Paris Saint Germain. Kaupverðið á Pastore, sem leikið hefur með Palermo undanfarin ár, er talið vera um 43 milljónir evra eða sem nemur rúmum sjö milljörðum íslenskra króna. Fótbolti 2.8.2011 21:15
Mata neitaði Tottenham - vill spila í Meistaradeildinni Óvinafélögin Arsenal og Tottenham hafa verið á höttunum eftir spænska landsliðsmanninum Juan Mata hjá Valencia undanfarnar vikur. Á sunnudaginn rann út ákvæði í samningi Mata við Valencia sem heimilaði honum að fara ef 25 milljóna evra tilboð bærist í leikmanninn. Enski boltinn 2.8.2011 19:45
Dýrast á völlinn hjá Liverpool Blackburn Rovers er eina félagið í ensku úrvalsdeildinni sem býður upp á miða á völlinn fyrir 10 pund eða sem nemur um 1.900 krónum. Til samanburðar eru ódýrustu miðarnir á Anfield um fjórum sinnum dýrari. Þeir kosta 39 pund eða um 7.400 krónur. Enski boltinn 2.8.2011 19:00
Sigur og jafntefli hjá U17 ára landsliðunum Ísland teflir fram tveimur landsliðum á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu sem hófst á Norðurlandi í dag. Lið Íslands sem leikur í A-riðli, Ísland1, gerði 2-2 jafntefli við Noreg. Lið Íslands í B-riðli, Ísland2, lagði Svía að velli 3-1. Íslenski boltinn 2.8.2011 18:45
Rossi hafnaði Juventus Ítalinn Giuseppe Rossi hefur tekið fyrir það að ganga til liðs við Juventus þar sem hann vill frekar spila með Villarreal í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 2.8.2011 16:45
Fyrrum landsliðsmaður Japans hneig niður á æfingu Naoki Madsuda fyrrum landsliðsmaður Japana hneig niður á æfingu með liði sínu Matsumoto Yamaga í morgun. Að sögn liðsfélaga Madsuda fór hann í hjartastopp áður en hann var fluttur á sjúkrahús. Fótbolti 2.8.2011 16:00
Kuyt: Þurfum að verjast betur Dirk Kuyt, leikmaður Liverpool, hefur ekki áhyggjur af gengi liðsins nú á undirbúningstímabilinu en viðurkennir að liðið þurfi að verjast betur. Enski boltinn 2.8.2011 15:30
Elsti sonur Eiðs Smára færir sig um set í Barcelona Sveinn Aron Guðjohnsen, þrettán ára sonur Eiðs Smára Guðjohnsen knattspyrnumanns, er búinn að skipta um félag í Barcelona-borg eftir því sem kemur fram í spænskum fjölmiðlum í dag. Fótbolti 2.8.2011 14:15
Sabella ráðinn nýr landsliðsþjálfari Argentínu Alejandro Sabella hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Argentínu í stað Sergio Batista sem var nýverið rekinn úr starfi hjá argentínska knattspyrnusambandinu. Fótbolti 2.8.2011 13:43
Ronaldo: Þurfum ekki Adebayor hjá Real Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, telur að það þurfi ekki að styrkja leikmannahóp liðsins með öðrum framherja. Fótbolti 2.8.2011 13:01
Stekelenburg samdi við Roma Hollenski markvörðurinn Marten Stekelenburg hefur gengið til liðs við ítalska félagið Roma frá Ajax í heimalandinu. Kaupverðið er sagt vera um 6,3 milljónir evra. Fótbolti 2.8.2011 12:15
Ætlar City að klófesta Nasri? Samir Nasri gæti verið á leið til Manchester City fyrir 22 milljónir punda ef marka má frétt í enska götublaðinu The Sun í dag. Nasri var fyrr í sumar sterklega orðaður við Manchester United. Enski boltinn 2.8.2011 11:30
Daily Mirror: Inter samþykkti tilboð United í Sneijder Breska götublaðið Daily Mirror staðhæfir í dag að ítalska félagið Inter hafi samþykkt tilboð Manchester United í Hollendinginn Wesley Sneijder. Enski boltinn 2.8.2011 10:45
Hart fékk nýjan samning hjá City Joe Hart hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester City samkvæmt fréttavef Sky Sports. Talið er að samningurinn gildi næstu fimm árin. Enski boltinn 2.8.2011 10:15
Scholes lofar Sneijder Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að Wesley Sneijder sé frábær leikmaður en hann hefur verið sterklega orðaður við félagið að undanförnu. Enski boltinn 2.8.2011 09:30
Ég er langelstur og finn dálítið fyrir því núna Bjarni Guðjónsson harkaði af sér nárameiðsli og leiddi sína menn til 4-1 sigurs á föður sínum Guðjóni Þórðarsyni og lærisveinum hans í BÍ/Bolungarvík í undanúrslitaleik Valitor-bikarsins á Ísafirði á sunndaginn. KR-ingar voru að komast í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð og í þriðja sinn síðan Bjarni kom í KR sumarið 2008. Íslenski boltinn 2.8.2011 07:00
Fær þessi tveggja ára bann fyrir þetta rugl? - myndband Brasilíumaðurinn Rildo gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnisbann fyrir að missa algjörlega stjórn á sér í leik í B-deildinni í heimalandinu. Rildo lét sér ekki nægja að kasta boltanum í dómarann í leik Vitoria 1-0 tapleik gegn Boa Esporte. Hann fullkomnaði fáránlega hegðun sína með því að sparka í dómarann en Rildo mistókst ætlunarverkið og hitti ekki dómarann. Fótbolti 1.8.2011 23:45
Leikmaður Twente með ótrúlegan leikaraskap - myndband Peter Wisgerhof leikmaður hollenska liðsins Twente gæti eflaust reynt fyrir sér sem leikari þegar keppnisferlinum lýkur í fótboltanum. Wisgerhof sýndi af sér óheiðarleika í hæsta gæðaflokki þegar hann henti sér niður með tilþrifum í leik gegn Kolbeini Sigþórssyni og félögum hans í Ajax fyrir viku síðan. Fótbolti 1.8.2011 23:30
Eggert Gunnþór að fá sinn áttunda stjóra á sex árum hjá Hearts Íslenski landsliðsmaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson og félagar hans í skoska liðinu Hearts bíða nú eftir því að rússneski eigandi félagsins, Vladimir Romanov, finni nýjan stjóra á liðið eftir að hann rak hinn sextuga Jim Jefferies í dag. Fótbolti 1.8.2011 23:00
Vucinic til Juventus Juventus hefur gengið frá kaupum á Mirko Vucinic frá Roma á 15 milljónir evra. Þessi 27 ára gamli framherji frá Svartfjallalandi skrifaði undir 4 ára samning við Juventus. Fótbolti 1.8.2011 22:00
Enn fær Liverpool þrjú mörk á sig Liverpool lenti í kröppum dansi gegn varaliði Vålerenga í æfingaleik liðanna í dag. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli en þjú mörk voru skoruð á síðustu sjö mínútum leiksins. Enski boltinn 1.8.2011 18:59
Bellamy vill ekki til Celtic Craig Bellamy framherji Manchester City hefur samkvæmt heimildum Sky Sports engan áhuga á að ganga til liðs við Celtic í sumar en hann var á láni hjá skoska stórliðinu frá Newcastle 2005. Fótbolti 1.8.2011 18:00
Zhirkov á leiðinni til Rússlands Rússneski kantmaðurinn Yury Zhirkov hjá Chelsea er við það að ganga til liðs við Anzhi Makhachkala í heimalandi sínu fyrir 15 milljónir evra en hann hefur verið á mála hjá Chelsea síðustu tvö árin. Fótbolti 1.8.2011 17:00
Valencia með nýjan samning Antonio Valencia hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Englandsmeistara Manchester United. Enski boltinn 1.8.2011 16:00
Mourinho þurfti að hlaupa undan æstum aðdáendum í Kína Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er einn allra frægasti og virtasti knattspyrnuþjálfari í heimi og hann er þekktur út um allan heim. Það fékk hann að kynnast í verslunarmistöð í Kína í gær. Fótbolti 1.8.2011 15:00
Barton má fara frá Newcastle Enski miðjumaðurinn og ólátabelgurinn Joey Barton má yfirgefa Newcastle á frjálsri sölu eftir að hafa farið mikinn á twitter síðasta sólarhringinn þar sem hann hefur gagnrýnt eigendur og stjórnendur Newcastle og rifist við stuðningsmann félagsins. Enski boltinn 1.8.2011 14:41
Balotelli: Ég þoli ekki Manchester-borg Það má ekki líta af Mario Balotelli og þá er hann kominn í vandræði. Balotelli stóð sig vel með Manchester City í úrslitaleik Dublin-bikarsins í gær, skoraði mark og fékk hrós frá stjóranum Roberto Mancini eftir leikinn. Hann talaði hinsvegar "af sér" í sjónvarpsviðtali eftir leikinn. Enski boltinn 1.8.2011 14:00
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn