Fótbolti
TEAMtalk: Koma Gylfa til Swansea ein bestu viðskiptin í janúar Fótboltavefmiðillinn TEAMtalk fékk í dag Nick Hext til að velja fjögur best heppnuðu félagsskiptin í janúarglugganum en glugginn lokaði eins og kunnugt er í gærkvöldi. Hext nefnir til fjögur félagsskipti og er koma okkar manns Gylfa Þórs Sigurðssonar til Swansea á þeim lista. Enski boltinn 1.2.2012 14:45
Wenger ætlar að ræða framtíð Wilshere í kvöld | Brotinn á nýjum stað Jack Wilshere, miðjumaðurinn efnilegi hjá Arsenal, er ekkert að fara spila með liði sínu á næstunni eftir að það kom í ljós að hann er fótbrotinn á hægri fæti. Brotið er á öðrum stað en meiðlsin sem hafa haldið honum frá æfingum og keppni allt þetta tímabil. Enski boltinn 1.2.2012 14:15
Leeds búið að reka stjórann sinn Leeds rak í dag stjórann Simon Grayson og þjálfarateymi hans en hann hefur stýrt málunum á Elland Road undanfarin þrjú ár. Unglingaliðsþjálfari félagsins, Neil Redfearn, mun taka tímabundið við liðinu á meðan verður leitað verður að nýjum stjóra. Enski boltinn 1.2.2012 14:05
Réttarhöldin yfir Terry fara ekki fram fyrr en eftir EM í sumar John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, þarf ekki að mæta í réttarsal fyrr en í júlí eftir að afgreiðslu málsins um kynþáttahatur hans var frestað í dag. Lögmaður Terry mætti fyrir dómara og lýsti yfir sakleysi umbjóðanda síns. Enski boltinn 1.2.2012 13:00
Guardiola: Ég svara þegar ég veit svarið sjálfur Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er enn ekki búinn að ákveða það hvort að hann haldi áfram með liðið eftir þetta tímabil. Guardiola hefur alltaf samið til eins árs í senn og vill ekki gera lengri saminga þótt að mikill áhugi sé fyrir hendi meðal forráðamanna félagsins. Fótbolti 1.2.2012 11:45
Meira en þúsund mínútur síðan að Torres skoraði Fyrir ári síðan keypti Chelsea Fernando Torres á 50 milljón punda frá Liverpool og flestir héldu að Chelsea-menn væru að næla sér í einn besta markaskorara ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 1.2.2012 11:00
Mancini: Þetta tap var mér að kenna Roberto Mancini, stjóri Manchester City, kennir sjálfum sér um tapið á móti Everton í gær en það þýddi að nágrannarnir í Manchester United náðu City að stigum á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 1.2.2012 10:00
Allar breytingarnar hjá ensku liðunum í þessum glugga Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir breytingar hjá hverju liði í ensku úrvalsdeildinni í félagsskiptaglugganm sem lokaði í gærkvöldi. Lokadagurinn var ekkert í líkingu við þann á sama tíma í fyrra en fullt af leikmönnum breyttu þó um búning. Enski boltinn 1.2.2012 09:30
Pienaar kominn aftur til Everton Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar er kominn aftur til Everton en nú sem lánsmaður frá Tottenham til loka tímabilsins. Þetta var staðfest nú rétt fyrir miðnætti. Enski boltinn 31.1.2012 23:55
Theódór Elmar kominn til Randers Theódór Elmar Bjarnason er genginn til liðs við Randers í Danmörku og samdi við liðið til ársins 2015. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins í dag. Fótbolti 31.1.2012 23:42
United ákvað að selja hinn stórefnilega Morrison Ravel Morrison, átján ára miðvallarleikmaður, gekk í dag í raðir West Ham frá Manchester United. Því hefur verið haldið fram að hann sé einn efnilegasti leikmaður landsins en hann hefur þó átt í talsverðum erfiðleikum utan knattspyrnuvallarins undanfarin ár. Enski boltinn 31.1.2012 23:31
Mancini bætti miðjumanni í hópinn David Pizarro hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Roma til Manchester City til loka leiktíðarinnar. Hann er 32 ára miðjumaður frá Síle sem hefur lítið fengið að spila á Ítalílu í vetur. Enski boltinn 31.1.2012 23:12
Félagaskipti Zamora til QPR staðfest Bobby Zamora hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við QPR sem keypti hann í kvöld frá Fulham fyrir fjórar milljónir punda. Enski boltinn 31.1.2012 22:59
Saha samdi við Tottenham Tottenham gekk í kvöld frá samningi við sóknarmanninnum franska Louis Saha sem hefur verið á mála hjá Everton síðustu árin. Enski boltinn 31.1.2012 22:58
Gibson: Fæ örugglega símtöl frá leikmönnum United Darron Gibson var hógvær í viðtölum eftir að hann tryggði sínum mönnum í Everton 1-0 sigur á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sjálfsagt voru stuðningsmenn Manchester United ekki síður ánægðir með hann en Everton-menn enda tókst United að jafna City að stigum á toppi deildarinnar. Enski boltinn 31.1.2012 22:43
Cardiff enn í þriðja sæti Cardiff var ekki langt frá því að komast upp í annað sæti ensku B-deildarinnar í kvöld en liðið gerði þá jafntefli við Southampton í toppslag. Topplið West Ham steinlá fyrir Ipswich á útivelli. Enski boltinn 31.1.2012 22:17
Áhorfandi handjárnaði sig við annað markið á Goodison Park Ótrúlegt atvik átti sér stað þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik leiks Everton og Manchester City og þurfti að gera hlé á leiknum í nokkrar mínútur. Enski boltinn 31.1.2012 21:14
Kyrgiakos kominn til Sunderland Martin O'Neill, stjóri Sunderland, hefur verið iðinn við að styrkja vörn liðsins í dag en nú hefur félagið staðfest að félagið hafi keypt Grikkjann Sotirios Kyrgiakos, fyrrum leikmann Liverpool. Enski boltinn 31.1.2012 19:23
Nítján ára þýskur miðjumaður til Arsenal Arsenal hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á Thomas Eisfeld, nítján ára sóknarþenkjandi miðjumanni sem er uppalinn hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Borussia Dortmund. Enski boltinn 31.1.2012 18:58
Tevez ekki til AC Milan | Lokað fyrir félagaskipti á Ítalíu Þó svo að félagaskipti verði enn heimil í Englandi til klukkan 23 í kvöld er búið að loka fyrir félagaskipti á Ítalíu. Það þýðir að Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, fer ekki til AC Milan, eins og sögusagnir voru um. Enski boltinn 31.1.2012 18:44
United og City jöfn að stigum | Gylfi góður með Swansea Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og dró til tíðinda í toppbaráttu deildarinnar. Darron Gibson, fyrrum leikmaður Manchester United, hafði þar lykilhlutverki að gegna. Enski boltinn 31.1.2012 18:26
Í beinni: Wolves - Liverpool | Eggert byrjar en Gerrard hvílir Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Wolves og Liverpool í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 31.1.2012 18:25
Í beinni: Swansea - Chelsea | Gylfi og Torres byrja Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Swansea og Chelsea í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 31.1.2012 18:25
Í beinni: Manchester United - Stoke | Amos í markinu Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Manchester United og Stoke í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 31.1.2012 18:24
Í beinni: Everton - Manchester City | Kompany snýr aftur Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Everton og Manchester City í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 31.1.2012 18:24
Þjálfari Lazio: Klose er betri leikmaður en Zlatan Edy Reja, þjálfari ítalska liðsins Lazio, væri ekki tilbúinn að skipta á Svíanum Zlatan Ibrahimovic og Þjóðverjanum Miroslav Klose. Zlatan hefur skorað þremur mörkum meira en Klose í vetur og Svíinn hefur orðið ítalskur meistari öll tímabil sín í deildinni. Fótbolti 31.1.2012 18:00
Aron Einar um komu Hermanns til Coventry: Karakter sem liðið vantaði Hermann Hreiðarsson mun spila sinn annan leik með Coventry í kvöld þegar liðið fer í heimsókn til Blackpool. Coventry vann 3-1 sigur á Middlesbrough í fyrsta leiknum eftir komu íslenska víkingsins og þarf fleiri slíka sigri á næstunni ætli félagið að halda sæti sínu í deildinni. Enski boltinn 31.1.2012 16:30
Cisse búinn að semja við QPR til 2014 | Zamora á leiðinni Sóknarmaðurinn Djibril Cisse er genginn til liðs við QPR og mun því veita Heiðari Helgusyni meiri samkeppni um stöðu í byrjunarliði félagsins. Enski boltinn 31.1.2012 15:59
Agger heimtar þrjú stig á móti Úlfunum í kvöld Liverpool hefur enn ekki unnið deildarleik á árinu 2012 þrátt fyrir frábæran mánuð í bikarkeppnunum þar sem liðið sló Manchester City út úr enska deildabikarnum og Manchester United út úr enska bikarnum. Enski boltinn 31.1.2012 15:45
Kaupir Tottenham Rodallega eftir leikinn við Wigan í kvöld? Hugo Rodallega hefur verið orðaður við Tottenham í þessum félagsskiptaglugga og svo gæti farið að gengið verði frá kaupunum á framherjanum áður en glugginn lokar á miðnætti í kvöld. Hlutirnir gætu gerst hratt því Wigan mætir einmitt Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Enski boltinn 31.1.2012 15:00