Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 12:45 Adrian Sipos er ekkert lamb að leika sér við. Hér fagnar hann í sigrinum gegn Ítalíu í gær. EPA/Johan Nilsson Leikmenn ungverska landsliðsins eru núna komnir með hugann við stórleikinn við Ísland í Kristianstad annað kvöld, þar sem segja má að baráttan um sæti í undanúrslitum EM í handbolta hefjist formlega.
Liðin eru örugg um sæti í milliriðli og taka þangað með sér stigin úr leiknum annað kvöld. Sem sagt tvö, eitt eða engin stig. Ítalía og Pólland reyndust ekki mikil fyrirstaða fyrir þau, þó að sigrar Íslands hafi verið stærri og meira sannfærandi, og það var svo sem vitað fyrir fram að slagur Íslands og Ungverjalands yrði fyrsta skrefið í átt að undanúrslitum. Þangað ætla Ungverjar að komast, rétt eins og Íslendingar, og þeim hefur gengið vel gegn Íslandi undanfarin ár. Ísland hafi mætt með mjög sterkan hóp Ungverjar unnu 30-28 sigur í sömu höll og spilað verður nú, í Kristianstad, þegar liðin mættust á HM 2023. Á EM í Þýskalandi fyrir tveimur árum vann Ungverjaland átta marka sigur, 33-25, en Ísland vann 31-30 þegar liðin mættust í Búdapest á EM 2022. „Þeir sem hafa séð íslenska liðið í fyrstu tveimur leikjunum eru sammála mér um að þeir mættu hingað með mjög sterkan hóp. Þeir eru sigurstranglegri fyrir fram en það er engin ástæða til að óttast það,“ sagði Bence Imre, hægri hornamaður Ungverja og Kiel. Ísland og Ungverjaland hafa marga hildi háð síðustu ár. Ómar Ingi Magnússon og félagar fögnuðu sigri þegar liðin mættust á EM 2022, í Búdapest.EPA/Tamas Kovacs „Ég held að ungverska og íslenska liðið séu áþekk að getu. Eitt er alveg á hreinu og það er að við ættum ekki að dvelja í fortíðinni. Sigurinn í München fyrir tveimur árum er dásamleg minning en hefur enga þýðingu á þriðjudaginn. Þeir ættu frekar að vera hræddir en við. Ef við vinnum tökum við risaskref í átt að því að láta draum okkar rætast. En við leikmennirnir verðum að vera mun, mun nákvæmari inni á vellinum,“ sagði Imre við Magyar Nemzet. Enn meiri orka fari í að mæta Íslendingum Línutröllið Adrián Sipos, sem spilar með Melsungen í Þýskalandi, er tilbúinn fyrir harðan slag við Íslendinga. „Þessir tveir leikir hafa tekið sinn toll af okkur en það er bara eðlilegt á Evrópumóti, þar sem spilað er annan hvern dag og tíminn í endurheimt er mjög takmarkaður. Ísland er líklegast til að vinna riðilinn. Þeir eru meira í að sækja „einn á einn“ en Ítalir eða nokkur önnur þjóð, því þeirra taktík gengur út á það, svo það krefst enn meiri orku frá okkur en fyrstu tveir leikirnir. En þetta er ekki fyrsta stórmótið okkar og ég geri þetta í hverri viku í Þýskalandi, svo ég held enn að það sé þannig að ef hausinn verður í lagi hjá okkur þá mun líkaminn höndla þetta,“ sagði Sipos.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Rooney um hálfleikssýninguna: „Þetta var drasl“ Fótbolti Strákarnir fengu silfur á EM Körfubolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira