Sport
Willum Þór telur að Futsal geti bætt tæknifærni fótboltamanna á Íslandi Willum Þór Þórsson valdi í gær fimmtán leikmenn sem verða í fyrsta íslenska Futsal-landsliðinu sem tekur þátt í forkeppni EM. Mótherjar Íslands í riðlinum eru Grikkland, Lettland og Armenía og verður leikið á Ásvöllum 21. - 24. janúar. Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður Stöðvar 2 ræddi við Willum í gær. Fótbolti 19.1.2011 11:30
Frábær seinni hálfleikur kom okkur inn í milliriðilinn - myndir Strákarnir okkar sýndu úr hverju þeir eru gerðir í þriggja marka sigri á Austurríki á HM í handbolta í Svíþjóð í gærkvöldi. Eftir dapran fyrri hálfleik mættu strákarnir í ham inn í þann seinni, unnu sig í gegnum mikið mótlæti og hreinlega lokuðu öllum leiðum fyrir austurríska liðið. Handbolti 19.1.2011 11:00
Fyrirliðinn yfirgefur Val Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðsins hefur ákveðið að kveðja Val að sinni og ganga til liðs við sænska liðið Djurgården. Á vefsíðu Vals kemur fram að Katrín hyggi á framhaldsnám í læknisfræði í haust og þetta sé liður í þeim áformum. Íslenski boltinn 19.1.2011 10:09
Eyjólfur samdi við SönderjyskE Eyjólfur Héðinsson samdi í gær við danska knattspyrnufélagið SönderjyskE til tveggja og hálfs árs, eða fram á sumarið 2013, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Eyjólfur er 26 ára gamall og hefur spilað í stöðu miðjumanns með GAIS í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin fjögur ár. Samningur hans þar var útrunninnn og Eyjólfur hafnaði því að leika áfram með félaginu. Hjá SönderjyskE eru þegar Ólafur Ingi Skúlason og Arnar Darri Pétursson, markvörður 21 árs landsliðsins. Fótbolti 19.1.2011 10:02
Til tíðinda dregur í dauðariðlinum á HM Ætli Þjóðverjar sér að gera alvöruatlögu að sæti í undanúrslitunum verða þeir að vinna ógnarsterkt lið Frakklands á HM í Svíþjóð í dag. Leikurinn hefur ekki síst mikla þýðingu fyrir íslenska liðið þar sem líklegt er að bæði lið munu mæta Íslandi í milliriðlakeppninni. Handbolti 19.1.2011 10:00
NBA: Fjórði tapleikur Miami Heat í röð Miami Heat tapaði á heimavelli gegn Atlanta Hawks á heimavelli í NBA deildinni í körfubolta í gær, 93-89 og var þetta fjórði tapleikurinn hjá Miami í röð. Úrslitin réðust í framlengingu. Körfubolti 19.1.2011 09:00
Hápunktar úr leik Íslands og Austurríkis- Þorsteinn J & gestir Íslendingar tryggðu sér sæti í milliriðli í gær á HM í handbolta með mögnuðum sigri gegn Austurríki. Ísland var 16-11 undir í halfleik en magnaður varnarleikur og góð markvarsla í þeim siðari tryggði liðinu 26-23 sigur. Hápunktar úr leiknum sem sýndir voru í þætti Þorsteins J & gestir í gær á Stöð 2 sport eru aðgengilegir á visir.is. Handbolti 19.1.2011 08:45
Bestu atriðin úr þætti Þorsteins J., Ísland - Austurríki Í þætti Þorsteins J og gestir á Stöð 2 sport í gær var farið yfir ýmis atriði úr leiknum. Logi Geirsson og Hafrún Kristjánsdóttir ræddu m.a. um nýliða í landsliðum Íslands - og sérfræðingarnir Guðjón Guðmundsson og Geir Sveinsson fóru yfir stöðu mála eftir frábæran sigur Íslands. Handbolti 19.1.2011 07:45
Guðmundur: Eftirminnilegar 30 mínútur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari viðurkenndi það fúslega að það hefði verið erfitt að standa á hliðarlínunni í kvöld. Handbolti 18.1.2011 23:30
Sverre: Við drápum þá Varnartröllið Sverre Andreas Jakobsson átti stórbrotinn síðari hálfleik í kvöld ásamt félaga sínum Ingimundi Ingimundarsyni. Handbolti 18.1.2011 23:20
Aron: Hélt aldrei að við myndum tapa Ungstirnið Aron Pálmarsson var ekki lengur að ná sér niður eftir sigurinn dramatíska á Austurríki í kvöld og var afslappaður er Vísir hitti á hann. Handbolti 18.1.2011 23:08
Björgvin: Ég var með gæsahúð í 30 mínútur „Ég var með gæsahúð í 30 mínútur,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson markvörður íslenska landsliðsins í handbolta í viðtali við Hörð Magnússon á Stöð 2 sport eftir frábæran sigur liðsins gegn Austurríki. Handbolti 18.1.2011 23:06
Guðjón Valur: Diddi var enn reiður eftir leik Guðjón Valur Sigurðsson var brosmildur eftir sigurinn á Austurríki í kvöld. Hann hefur gengið í gegnum margt með landsliðinu á 13 stórmótum en sigrar eins og í kvöld eru alltaf sætir. Handbolti 18.1.2011 22:59
Sverre: Þetta var bara ótrúlegt „Við ræddum um það í hálfleik að sýna hvað við vorum búnir að vinna í fyrir leikinn. Við vorum búnir að leggja línurnar og ætluðum að gera hlutina allt öðruvís í fyrri hálfleik,“ sagði Sverre Jakobsson við Hörð Magnússon á Stöð 2 sport eftir leikinn. Handbolti 18.1.2011 22:53
Guðmundur: Liðið sýndi stórkostlegan karakter „Þessi leikur vannst í síðari hálfleik, það er það eina sem ég veit,“ sagði Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta við Hörð Magnússon á Stöð 2 sport eftir 26-23 sigur liðsins gegn Austurríki á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld. Handbolti 18.1.2011 22:41
Úrvalsdeildarliðin komust áfram í enska bikarnum Manchester City lagði Leicester 4-2 í síðari leik liðanna í 64-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld en liðin skildu jöfn í fyrri leiknum. Man City mætir Notts County í 32-liða úrslitum. Wolves vann Doncaster 5-0 og Stoke hafði betur gegn Cardiff eftir framlengingu 2-0. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahóp Stoke. Enski boltinn 18.1.2011 22:30
FH lagði Hauka í grannaslag FH vann í kvöld sigur á Haukum, 25-18, í N1-deild kvenna í handbolta. Staðan í hálfleik var 10-8, FH-ingum í vil. Handbolti 18.1.2011 20:21
Valskonur örugglega inn í undanúrslitin Íslandsmeistarar Vals tryggðu sér sæti í undanúrslitum Eimskipsbikar kvenna í handbolta með fjórtán marka sigri á ÍBV, 35-21 í Vestmannaeyjum í kvöld. Valsliðið var 13-7 yfir í hálfleik. Handbolti 18.1.2011 20:21
Dagur: Alexander greinilega sáttur við að sitja upp í stúku Dagur Sigurðsson var ekki ánægður með þá ákvörðun Alexanders Peterssonar um að ganga til liðs við Rhein-Neckar Löwen árið 2012. Handbolti 18.1.2011 20:07
Balotelli vill fara til Milan innan tveggja ára Ítalinn Mario Balotelli segist viss um að hann muni fara aftur til Ítalíu á næstu tveimur árum en hann er nú á mála hjá Manchester City. Fótbolti 18.1.2011 20:00
Norðmenn unnu nauman sigur á Brasilíu Norðmenn sluppu með naumindum þegar að þeir mættu Brasilíu í riðli Íslands á HM í handbolta í kvöld. Lokatölur voru 26-25. Handbolti 18.1.2011 19:44
Ísland lék í heimsklassa í seinni hálfleik og vann Austurríki Strákarnir okkar sýndu á sér tvær hliðar í kvöld. Eftir að liðið var fimm mörkum undir í hálfleik, 16-11, átti það ótrúlega endurkomu í þeim síðari og vann leikinn með þriggja marka mun, 26-23. Handbolti 18.1.2011 19:11
Pólverjar kláruðu Suður-Kóreumenn Pólland er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir á HM í handbolta en í kvöld vann liðið sigur á Suður-Kóreu, 25-20. Handbolti 18.1.2011 19:01
Blackburn fær bandarískan miðvallarleikmann að láni Bandaríkjamaðurinn Jermaine Jones hefur verið lánaður til Blackburn frá þýska úrvalsdeildarfélaginu Schalke. Enski boltinn 18.1.2011 18:45
Stuðningsmenn Íslands mála sig fyrir leik Það er heldur betur farið að styttast í leik Íslands og Austurríkis á HM en leikurinn hefst klukkan 20.30 í Cloetta Center í Linköping. Handbolti 18.1.2011 18:33
Ungverjar stóðust áhlaup Japana Ungverjaland vann nokkuð þægilegan sigur á Japönum í riðli Íslands á HM í handbolta í dag þrátt fyrir að þeir síðarnefndu hafi náð að saxa verulega á forskotið á lokakafla leiksins. Handbolti 18.1.2011 18:03
Liverpool spurðist fyrir um Mark van Bommel Umboðsmaður hollenska landsliðsmannsins Mark van Bommel segir að enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hafi sent Bayern München fyrirspurn vegna kappans. Enski boltinn 18.1.2011 17:45
Ryan Babel í læknisskoðun hjá Hoffenheim Það lítur allt út fyrir að Hollendingurinn Ryan Babel verði fljótlega orðinn liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá þýska liðinu Hoffenheim. Liverpool er tilbúið að selja leikmanninn fyrir sjö milljónir punda og hann er samkvæmt heimildum Sky Sports í læknisskoðun hjá Hoffenheim. Enski boltinn 18.1.2011 17:00
Jafntefli hjá Síle og Slóvakíu í ótrúlegum leik Síle náði í sitt fyrsta stig frá upphafi á HM í handbolta er liðið gerði jafntefli við Slóvakíu í dramatískum leik í D-riðli í dag. Handbolti 18.1.2011 16:52
Dagur: Það eru fá lið sem geta stoppað íslenska liðið á þessum hraða Dagur Sigurðsson, fyrrum landsliðsþjálfari Austurríkis, var í viðtali við Valtýr Björn Valtýsson og Ívar Guðmundsson á Bylgjunni í í dag. Hann talaði um frammistöðu íslenska liðsins á mótinu og um leikinn á móti Austurríki í kvöld. Handbolti 18.1.2011 16:45