Handbolti

Aron: Hélt aldrei að við myndum tapa

Henry Birgir Gunnarsson í Cloetta Center skrifar
Ungstirnið Aron Pálmarsson var ekki lengur að ná sér niður eftir sigurinn dramatíska á Austurríki í kvöld og var afslappaður er Vísir hitti á hann.

"Er ég rólegur?" sagði Aron og hló við. "Maður er fljótur að ná sér niður."

"Þetta var mjög ljúft og þetta var allt öðruvísi en hinir leikirnir. Þeir mættu mjög vel stemmdir og við reyndar líka en við virtumst eiga fá svör við varnarleiknum þeirra í fyrri hálfleik," sagði Aron.

"Svo kom þetta smám saman í seinni hálfleik. Það er kannski asnalegt að segja það en sjálfstraustið er samt þannig að mér fannst við aldrei vera að fara að tapa þessum leik. Mér fannst við vera að fara að vinna þetta. Þess vegna er ég kannski svona rólegur núna."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×