Sport

Villas-Boas: Ekkert nógu gott tilboð í Modric

Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, segir að félaginu hafi ekki borist nein frekari tilboð í Króatann Luka Modric sem hefur verið orðaður við spænsku meistarana í Real Madrid í allt sumar. Tottenham vill fá mun meira fyrir leikmanninn en Real var tilbúið að borga.

Enski boltinn

Fréttaskýring: Áhrif dekkjanna á keppnina í F1

Það er ekki tekið út með sældinni að vera ökuþór í Formúlu 1 í sumar því Pirelli-dekkin hafa gert leikinn enn flóknari en hann var. Dekkin eru hönnuð þannig að þau endast skemur og árangurinn sem kreista má úr nýjum dekkjum er mun meiri en úr notuðum dekkjum. Þannig hefur leikurinn verið gerður jafnari með því að kasta öllum liðum og starfsfólki þeirra á byrjunarreit.

Formúla 1

Sigmundur efstur á Hellu | gríðarleg spenna á toppnum

Sigmundur Einar Másson úr GKG er efstur þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik í golfi á Strandarvelli á Hellu. Íslandsmeistarinn frá árinu 2006 er með eitt högg í forskot á Kristinn Óskarsson sem er úr GS. Sigmundur er samtals á 3 höggum undir pari en hann lék á 69 höggum í dag eða einu höggi undir pari. Kristinn, sem er betur þekktur sem körfuknattleiksdómari, hefur leikið báða hringina á 69 höggum. Rúnar Arnórsson úr Keili, sem var í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn er í þriðja sæti á einu höggi undir pari vallar.

Golf

Raikkönen hefur fundið það sem vantaði

Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1 segist nú hafa fundið það sem uppá vantaði svo að hann gæti kreist það besta úr bíl sínum. Kimi hefur staðið sig vel það sem af er tímabilinu og staðið þrisvar sinnum á verðlaunapalli.

Formúla 1

Aron: Mjög mikill léttir

Aron Pálmarsson er kominn aftur á fullt skrið með íslenska landsliðinu - ekki seinna vænna enda aðeins tveir daga í fyrsta leik þess á Ólympíuleikunum í Lundúnum.

Handbolti

Sigmundur Einar ætlar sér að landa titlinum á Hellu

Sigmundur Einar Másson úr GKG er til alls líklegur á lokadögunum tveimur á Íslandsmótinu í höggleik. Sigmundur, sem sigraði á Íslandsmótinu árið 2006, lék á 69 höggum í dag eða -1 og er hann samtals á -3 og er hann þessa stundina í efsta sæti mótsins.

Golf

Æfingalaus körfuboltadómari stimplaði sig inn í toppbaráttuna

Kristinn Óskarsson hefur komið skemmtilega á óvart á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi. Kristinn, sem er betur þekktur sem einn reyndasti körfuknattleiksdómari landsins er þegar þetta er skrifað í efsta sæti mótsins ásamt fleiri kylfingum. Kristinn, sem leikur fyrir GS, er með 1,3 í forgjöf, hefur leikið báða hringina á Strandarvelli á Hellu á 1 höggi undir pari vallar.

Golf

Enska knattspyrnusambandið ákærir Terry | Neitar sök

Enska knattspyrnusambandið hefur ákært John Terry, miðvörð Chelsea, fyrir orðbragð sitt í garð Antons Ferdinand, leikmanns QPR, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í október. Terry hefur neitað sök og óskað eftir fundi með aganefnd sambandsins.

Enski boltinn

Hnífjafnt á Hellu | Anna og Valdís deila efsta sætinu

Anna Sólveig Snorradóttir, 17 ára kylfingur úr Keili, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni Akranesi deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Anna Sólveig og Valdís eru samtals á 6 höggum yfir pari vallar en tveimur höggum þar á eftir kemur Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO.

Golf

Snorri: Ég verð með

Snorri Steinn Guðjónsson er enn að glíma við sinaskeiðabólgu sem hefur haldið honum á hliðarlínunni undanfarna daga. Hann segist þó ætla að vera með í fyrsta leik Íslands á Ólympíuleikunum.

Handbolti

Robben og Ribery orðnir vinir á ný

Arjen Robben og Franck Ribery leika á sitthvorum vængnum hjá þýska stórliðinu Bayern München og eru báðir taldir vera í hópi bestu fótboltamanna heims. Það hafði því mikil áhrif á liðið þegar allt fór upp í háaloft á milli þeirra í hálfleik á undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar síðasta vor.

Fótbolti

Ryan Giggs kvartaði undan tæklingum Senegalanna

Ryan Giggs, fyrirliði breska Ólympíuliðsins, var ekki sáttur við harðar tæklingar leikmanna Senegal í leik þjóðanna í gær. Bretland og Senegal gerðu þá 1-1 jafntefli en Afríkumennirnir létu finna vel fyrir sér í leiknum.

Fótbolti

Fimmtán ára gengið stendur sig vel á Hellu

Það vekur athygli að fimm kylfingar sem taka þátt á Íslandsmótinu í golfi eru aðeins fimmtán ára gamlir en þau er öll fædd árið 1997. Þrír drengir eru karlaflokknum og tvær stúlkur. Árangur þeirra er með ágætum og það er greinilegt að ný kynslóð afrekskylfinga bíður handan við hornið.

Golf

Axel stimplaði sig inn í baráttuna með frábærum hring

Axel Bóasson, Íslandsmeistari í höggleik, lét verkin tala í dag á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins þar sem hann lék á 66 höggum eða 4 höggum undir pari vallar. Axel var í miklu stuði í dag og fékk hann alls sjö fugla á hringnum. Axel er samtals á pari Strandarvallar en hann hóf titilvörnina frekar illa í gær þar sem hann lék á 74 höggum.

Golf

Hamilton enn fljótastur í Ungverjalandi

Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur á seinni æfingum keppnisliða fyrir ungverska kappaksturinn. Þó æfingarnar hafi hafist í þurru veðri fór að rigna og brautin varð mjög sleip. Kimi Raikkönen á Lotus varð annar.

Formúla 1