Manchester City var ekki í miklum vandræðum með Atalanta í C-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld, lokatölur á Etihad vellinum í Manchester 5-1 heimamönnum í vil. Þá gerðu Shakhtar Donetsk og Dinamo Zagreb 2-2 jafntefli í Úkraínu.
Ruslan Malinovskyi kom gestunum frá Ítalíu óvænt yfir með marki úr vítaspyrnu á 28. mínútu eftir einstaklega klaufalegan varnarleik heimamanna. Sergio Agüero jafnaði metin sex mínútum síðar eftir sendingu Raheem Sterling. Á 38. mínútu var Agüero aftur á ferðinni, þá með marki úr vítaspyrnu.
Rétt fyrir leikhlé virtist Rodri togna aftan í læri og inn í hans stað kom John Stones en enski varnarmaðurinn skartaði þessu líka fína glóðurauga. Meiðslin höfðu engin áhrif á City en leikmenn Atalanta virtust alveg sprungnir á því í síðari hálfleik. Sterling gerði sér svo lítið fyrir og skoraði þrennu á rúmum 11 mínútum í síðari hálfleik með mörkum á 58., 64. og 69. mínútu.
Áður en leikurinn var úti nældi Phil Foden sér í tvö gul spjöld og þar með rautt. Það hafði þó ekki áhrif á lokatölur leiksins, 5-1 City í vil.
Í Úkraínu gerðu Shakhtar Donetsk og Dinamo Zagreb 2-2 jafntefli.
City sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Þar á eftir koma Shakhtar og Zagreb með fjögur stig hvort. Atalanta reka svo lestina en ítalska liðið á enn eftir að næla í stig í Meistaradeildinni í vetur.
Sterling fór mikinn er City slátraði Atalanta | Jafnt í Úkraínu

Tengdar fréttir

Rauða Stjarnan réð ekkert við Tottenham Erik Lamela | Bayern í basli í Grikklandi
Tottenham Hotspur svaraði fyrir sig eftir skelfilegt tap gegn Bayern Munich í síðustu umferð Meistaradeildarinnar. Þá tapaði liðið 7-2 gegn þýsku meisturunum en í kvöld lagði liðið Rauðu Stjörnuna frá Serbíu örugglega í London, lokatölur 5-0 Tottenham í vil. Þá vann Bayern Munich 3-2 sigur á Olympiacos í Grikklandi.

Varamennirnir tryggðu Atletico sigur | Morata fyrstur allra til að skora fyrir Atletico og Real
Varamaðurinn Alvaro Morata tryggði Atletico Madrid stigin þrjú skömmu eftir að hann kom inn af bekknum í kvöld, lokatölur 1-0 Atletico í vil gegn Bayer Leverkusen. Markið var sögulegt svo ekki sé meira sagt.