Leik lokið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Gunnar Berg Stefánsson skrifar 23. október 2026 19:55 Þróttur - Breiðablik Besta deild kvenna Haust 2026 vísir/Diego Bikarmeistarar Þróttar enduðu tímabilið á 3-2 sigri á Grindavík/Njarðvík en liðin sem mættust í bikarúrslitaleiknum mættust einnig í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Það var markalaust í hálfleik en mörkunum rigndi inn í þeim seinni. Þróttur endar í fjórða sæti, stigi á eftir ÍBV. Sierra Marie Lelii skoraði tvö mörk á upphafsmínútum seinni hálfleiks og hin unga Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði síðan sitt áttunda mark í úrslitakeppninni. Fyrra mark Suðurnesjakvenna var sjálfsmark en hitt kom úr vítaspyrnu. Bríet Fjóla er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ ÞRÓTTUR Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, var ánægð eftir 3-2 sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hún segir mikla baráttu hafa einkennt leikinn en er jafnframt ánægð með eigin frammistöðu að undanförnu. „Mér fannst við mjög góðar. Það var mikil barátta og þetta var mjög jafn leikur langt fram í leik,“ sagði Bríet Fjóla eftir leik. Bríet hefur verið sjóðandi heit fyrir framan markið að undanförnu og segir aukið sjálfstraust eiga stóran þátt í því. „Mér finnst bara sjálfstraustið mitt hafa komið til baka. Ég var ekki alveg að finna mig fyrr á tímabilinu en mér finnst ég passa mjög vel inn í hópinn hérna hjá Þrótti og mér líður mjög vel.“ Bríet staðfesti jafnframt að hún ætlaði að halda áfram hjá Þrótti á næstu leiktíð. „Já, ég ætla að vera áfram hjá Þrótti. Mér líður mjög vel hérna og ég ætla bara að halda áfram að þróast hér. Svo veit ég ekki hvað gerist.“ Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Þróttar.vísir/Anton Jóhann Kristinn: „Ég er gríðarlega þakklátur þeim“ Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var ánægður eftir sigur liðsins á Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa tekið miklum framförum eftir erfiða byrjun á tímabilinu. „Það var gott að klára þetta með sigri,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik. Jóhann sagði að þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu hefði liðið smám saman fundið taktinn. Honum þætti leikmennirnir nú vera að finna þær leiðir sem lagt hefði verið upp með og að liðið væri orðið betur tengt inni á vellinum. Hann sagði jafnframt bikarmeistaratitilinn standa upp úr ásamt því hvernig leikmenn hefðu unnið sig út úr erfiðum vikum og mánuðum. „Mér finnst þær vera til fyrirmyndar og ég er gríðarlega þakklátur þeim,“ sagði Jóhann Kristinn. Þjálfarinn staðfesti að hann yrði áfram hjá Þrótti á næsta tímabili og sagðist spenntur fyrir framhaldinu. „Ég sé hvað við getum gert og mér finnst ekki vera langt í það. Mér finnst ekki vera stór skref sem eru eftir.“ Gylfi Tryggvason kemur skilaboðum áleiðis í leiknumGuðmundur/Vísir Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var þakklátur fyrir tímabilið þrátt fyrir 3-2 tap gegn Þrótti í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa náð frábærum árangri miðað við fjárhagslega stöðu félagsins. „Ég er bara þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa þetta tímabil,“ sagði Gylfi eftir leik og bætti við að tímabilið hefði verið draumatímabil að mörgu leyti. Gylfi hefur farið ítarlega yfir frammistöðu liðsins og segir niðurstöðuna skýra. „Ég er búinn að rannsaka þetta vel og vandlega, ólíkt kannski því sem er stundum í umræðunni, við erum samkvæmt mínum rannsóknum með minnsta budgetið í deildinni,“ sagði Gylfi og bætti við: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild.“ Hann benti á að liðið hefði engu að síður komist í bikarúrslit og verið í hópi bestu liða deildarinnar samkvæmt tölfræðinni. Hann telur því að liðið hafi staðið sig afar vel miðað við þær bjargir sem það hefur. Aðspurður hvort næsta skref væri að berjast um Íslandsmeistaratitilinn sagði Gylfi að það færi eftir því hvernig litið væri á málið. Hann vonaðist til að félagið gæti fengið fleiri styrktaraðila og aukið fjármagn til að halda áfram uppbyggingunni. „Ég væri alveg til í að vera ekki með ódýrasta lið deildarinnar. Það eru tvö lið sem eru með yfirburði þar og við þurfum allavega að reyna að nálgast þessi lið fyrst.” Framtíð Gylfa hjá félaginu er hins vegar óljós. „Þegar stórt er spurt,“ sagði hann þegar hann var spurður hvort hann myndi halda áfram sem þjálfari liðsins. „Ég veit það ekki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, sko.“ Gylfi sagðist vera að renna út á samningi eftir tímabilið og að framhaldið yrði rætt á næstunni. Hann vildi ekki fara nánar út í þær viðræður að svo stöddu. Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík