Varnargarðar á Reykjanesskaga

Grindvíkingar gisti ekki meðan hraunið flæði
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir að á meðan gosið sé í gangi sé ekki öruggt að gista í Grindavík. Áhersluna sé að tryggja öryggi og velferð þeirra en aðbúnaður fyrir ferðamenn og þá sem vilja bera gosið augum sé aftarlega á listanum. Því segir hann göngustíg að gosstöðvunum ekki í forgangi, en seinna meir gæti það verið sett í skoðun.

Myndasyrpa: Rauðglóandi næturhiminn og myndun nýrra gíga
Eldgosinu, sem hófst við Sundhnúksgíga seint í gærkvöldi, er ekki hægt að lýsa öðruvísi en stórfenglegu. Fjöldi fólks lagði leið sína í átt að eldgosinu til að berja það augum og næturhimininn var rauður vegna endurvarpsins frá eldinum.

Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi
Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst.

Háalvarlegt en léttir á sama tíma
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir það ákveðinn létti hvar gossprungan á Reykjanesskaga liggur, þrátt fyrir að það sé alvarlegt hve nálægt bænum hún er. Til skoðunar er að reisa leiðigarða á svæðinu svo hraun renni ekki til byggðar.

Ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa
Hjálmar Hallgrímsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir ágætt að byrjað sé að gjósa, það sé ákveðinn léttir. Svæðið sé vel vaktað og „allir á tánum.“

Voru við vinnu í varnargarðinum þegar bjarminn blasti við
Bjarki Hólmgeir Halldórsson og Allan Steindórsson voru að vinna við varnargarðana í Svartsengi þegar eldgosið hófst.

Vinna við að loka gati á varnargarði
Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað svæðinu að nýju við Grindavík. Einungis eru eftir starfsmenn verktaka sem vinna við að loka gati á varnargarði við Grindavíkurveg og við Bláa lónið.

„Svo kallaði einhver í talstöðina: „Hvaða bjarmi er þetta þarna?“
Bjarki Hólmgeir Halldórsson var að vinna við varnargarða í Svartsengi þegar gosið kom upp í kvöld. Hann segi

Rýming æfð í Bláa lóninu
Rýming var æfð í Bláa lóninu í dag en það verður opnað á ný á sunnudaginn eftir að hafa verið lokað í rúmar fimm vikur. Til að byrja með er búist við að gestir verði heldur færri en þeir eru jafnaði.

Varnargarðar víða komnir upp í endanlega hæð
Vinna við varnargarðana á Reykjanesi gengur vel. Búið er að flytja að mestu efni úr nærliggjandi námum og er nú nær eingöngu unnið með efni af svæðinu. Verklok munu skýrast á næstu tveimur vikum.

Keyrt á varaafli í Grindavík í dag
Varaaflsvélar Landsnets munu sjá Grindavík fyrir rafmagni í dag þar sem orkuverið í Svartsengi verður tekið út vegna framkvæmda við uppsetningu nýs masturs í Svartsengislínu við varnargarðana.

Hraunið reynst betur en vonir stóðu til
Vinna við að reisa varnargarða til varnar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu hefur gengið betur en von var á. Sviðsstjóri hjá Verkís segir ástæðuna þá að betur hafi gengið að nýta jarðveg á svæðinu en búist var við í upphafi.

Sáralitlar líkur á gosi úr sprungunni
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir sáralitlar líkur á því að það gjósi úr sprungunum sem mynduðust í miðjum Grindavíkurbæ. Mestar líkur eru á gosi við Svartsengi.

Allra leiða leitað til standa með Grindvíkingum
Ráðherrar reikna með að Grindvíkingar fái einhver svör við lána- og húsnæðismálum sínum fyrir helgi. Unnið væri að lausnum til skamms og lengri tíma á mörgum vígstöðvum en Grindvíkingar geti treyst því að stjórnvöld muni standa með þeim á þeim óvissutímum sem nú ríki á Reykjanesi.

Hvað vilja Grindvíkingar?
Innviðaráðherra segir stóran lið í lausn á húsnæðisvanda Grindvíkinga að átta sig á því hvað Grindvíkingar vilji. Þar hjálpi náttúran og óvissan hennar vegna ekki til. Ríkið ráði vel við þann kostnað sem fylgi slíku verkefni.

Upplýsingafundur: Ekki skólaskylda en „safnskólar“ og hverfisskólar standa til boða
Mikið verkefni stendur yfir og fyrir dyrum í Grindavík og öllum árum róið að því að koma lífi Grindvíkinga sem neyðst hafa til að flýja heimili sín í farveg. Þetta var meðal þess sem kom fram á upplýsingafundi Almannavarna rétt í þessu.

Greina landris og áhættu við vinnu varnargarða betur í dag
Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir það koma í ljós í dag hvort landris hafi áhrif á vinnu við varnargarða við virkjun HS Orku í Svartsengi.

Myndir úr Grindavík: Mikið tjón blasir við sjónum
Grindvíkingar eru í óðaönn við að koma verðmætum sínum úr bænum og við þeim blasir gríðarmikið tjón. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fangaði stöðuna á filmu í dag.

Telur gos ennþá yfirvofandi: Yrði ekki stórt en staðsetning erfið
Jarðeðlisfræðingur segir enn líklegustu sviðsmyndina að það muni gjósa á Reykjanesskaga, fyrst kvika streymi enn í kvikuganginn. Þó yrði það gos líklega ekki stórt og meira í líkingu við gos undanfarinna ára.

Orkuverinu í Svartsengi verði fjarstýrt til áramóta
Páll Kristinsson, rekstrarstjóri í orkuveri HS Orku í Svartsengi, segir að starfsmenn búist við því að þurfa að fjarstýra orkuverinu til áramóta hið minnsta. Reykjanesvirkjun geti framleitt rafmagn fari allt á versta veg en erfiðara verði með heitt og kalt vatn, þó unnið sé að lausnum.

Líður ekkert alltof vel í Svartsengi
Ingi Rúnar atvinnubílstjóri segir að bílstjórum sem vinna að gerð varnargarðanna líði ekkert alltof vel að vera á svæðinu. Unnið sé alla nóttina.

Um vernd mikilvægra innviða
Þeirri spurningu hefur verið velt upp að undanförnu hvort einkafyrirtækin HS Orka og Bláa lónið eigi að greiða fyrir varnargarða vegna mögulegrar náttúruvár. Því miður hefur í gegnum tíðina heyrst svipuð umræða varðandi uppbyggingu snjóflóðavarnargarða en sem betur fer hefur mér að vitandi ekki verið lagt til að einstaka fyrirtæki greiði þann kostnað ef þau njóta verndar þeirra mannvirkja.

Hver á að borga brúsann?
Nú þegar jarðskjálftar og yfirvofandi eldgos á Reykjanesi ógna okkur er hugur okkar hjá Grindvíkingum sem þurftu à augabragði að yfirgefa heimili sín síðast liðinn föstudag. Við hin erum óttaslegin en við eigum þó húsaskjól og eigur okkar innan seilingar.

Vaktin: Rafmagn komið á ný
Um það bil 400 jarðskjálftar hafa mælst við kvikuganginn á Reykjanesi frá því á miðnætti. Stefnt er að því að halda áfram að hleypa Grindvíkinum heim til sín í dag til að bjarga því sem bjargað verður.

Hvetur þá sem þegar hafa farið inn í Grindavík að hleypa öðrum að
Rafmagn fór af hluta Grindavíkur seinni partinn í dag. Yfirlögreglustjóri Almannavarna segir viðgerðarfólk á vegum HS veitna muni fara inn í Grindavík á morgun ef hættumat leyfir. Þá biðlar hann til íbúa Grindavíkur sem þegar hafa fengið að fara heim að hleypa hinum á undan sér.

Unnið dag og nótt að byggingu varnargarðanna
Við Grindavíkurveg eru framkvæmdir í fullum gangi. Þar er unnið dag og nótt að því að reisa varnargarða sem eiga að vernda orkuverið í Svartsengi ef til eldgoss kemur. Varnargarðarnir eru þegar orðnir milli þrjú og fjögur hundruð metra langir.

Vinna hafin við varnargarðana
Vinnan er hafin við að reisa varnargarða til varnar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu.

Aðkoma HS Orku og Bláa lónsins ekkert rædd
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hvort það hafi komið til tals innan ríkisstjórnarinnar, hvort það hafi komið til greina að þau fyrirtæki sem á svæðinu eru; HS Orka og Bláa lónið, kæmu að þeim kostnaði sem væri því samfara að reisa varnargarð um þau?

„Það verður erfiðara og erfiðara að fara um svæðið“
Land heldur áfram að síga í Grindavík og nýjar sprungur myndast í sífellu að sögn sviðsstjóra Almannavarna. Breytingarnar séu sýnilegar á milli daga og því þurfi að gera auknar öryggiskröfur í dag til þeirra sem fái að sækja nauðsynjar og verðmæta í bæinn í dag.

Sér fram á efnahagslega þungar aðgerðir
Horft er til fordæma úr heimsfaraldrinum nú þegar unnið er að lausn til að tryggja afkomu Grindvíkinga á meðan rýmingu stendur. Forsætisráðherra segir ljóst að hamfarirnar muni reynast efnahagslega þungar og að mögulega þurfi að ráðst í víðtæka uppbyggingu á húsnæði. Til stendur að opna samkomustað fyrir Grindvíkinga.