Barnalán

Frægir fjölguðu sér árið 2022
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.

Fóru leynt með óléttuna í átta mánuði
Hulda Vigdísardóttir, fegurðardrottning, og kærasti hennar, Birgir Örn Sigurjónsson, eiga von á sínu fyrsta barni. Þau hafa vitað af óléttunni síðan í maí en ekki greint frá henni fyrr en nú.

Barn Katrínar Eddu komið með nafn
Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda og eiginmaður hennar Markus Bande hafa nefnt nýfædda dóttur sína, Elísu Eyþóru Markusdóttur Wasserbäch.

Vinirnir Þórdís og Sigurjón eiga von á öðru barni
Vinirnir og tónlistarmennirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson eiga von á öðru barni. Það sem er óvenjulegt við þeirra barneignir er að þau hafa aldrei verið í nokkurs konar ástarsambandi, heldur hafa þau aðeins verið góðir vinir og bæði dreymdi þau um að eignast barn.

Katrín Edda og Markus eignuðust stúlku
Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda og eiginmaður hennar Markus Bande eignuðust stúlku í gærkvöldi.

Margrét Rán og Bryndís Hrönn eiga von á sínu fyrsta barni
Tónlistarkonan Margrét Rán á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni Bryndísi Hrönn. Parið tilkynnti þessar gleðilegu fréttir með sameiginlegri færslu á Instagram.

Þóra og Arnar eignuðust stúlku
Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir og sambýlismaður hennar, listamaðurinn Arnar Ásgeirsson, eignuðust í vikunni stúlku. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Þóra eina dóttur.

„Við erum þakklát fyrir stækkandi fjölskyldu“
Parið Andri Steinn Hilmarsson og Sonja Anaís Ríkharðsdóttir Assier eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau eina fjögurra ára dóttur.

Greta Salóme orðin móðir
Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir eignaðist í dag sitt fyrsta barn ásamt unnusta sínum, Elvari Þór Karlssyni.

Ellefta barnið komið í heiminn og það tólfta á leiðinni
Barnamaskínan Nick Cannon er orðinn ellefu barna faðir. Hann eignaðist dótturina Zeppelin Cannon á þeim flotta degi 11.11. með plötusnúðinum Abby De La Rosa. Zeppelin er þá fjórða barnið sem Cannon eignast á þessu ári en það fimmta er væntanlegt í desember.

Rihanna var nálægt því að hafna Super Bowl
Tónlistarkonan Rihanna er mætt á Íslenska listann á FM957 eftir langa fjarveru en hún gaf út sitt fyrsta lag í sex ár í lok október. Lagið heitir „Lift Me Up“ og var samið fyrir kvikmyndina „Black Panther: Wakanda Forever“.

Flóni er orðinn faðir
Tónlistarmaðurinn vinsæli Flóni er orðinn faðir. Hann greindi frá þessum gleðitíðindum á Instagram síðu sinni nú í morgun.

Rebel Wilson eignaðist barn með hjálp staðgöngumóður
Leikkonan Rebel Wilson hefur eignast sitt fyrsta barn, dóttur að nafni Royce Lillian, með hjálp staðgöngumóður.

Bíður eftir ellefta barninu og er sagður eiga von á því tólfta
Barnamaskínan og þáttastjórnandinn Nick Cannon er sagður eiga von á enn öðru barninu. Barnsmóðir hans Alyssa Scott greindi frá því á Instagram í gær að hún væri ófrísk. Þá herma heimildir ET fjölmiðilsins að Cannon sé faðirinn, þrátt fyrir að hann hafi ekki enn staðfest það.

Varð ólétt á Eurovision og gefur út nýja tónlist
Söngkonan ZÖE hefur komið víða að í heimi tónlistarinnar en hún var meðal annars bakraddasöngkona fyrir Eurovision atriði okkar Íslendinga í Torino síðastliðinn maí. Það er mikið á döfinni hjá ZÖE þar sem hún á von á barni, er að senda frá sér nýtt lag og kemur fram á nokkrum tónleikum.

The Ellen DeGeneres Show stjarnan Sophia Grace er ólétt
Barnastjarnan Sophia Grace Brownlee, sem sló eftirminnilega í gegn í The Ellen DeGeneres Show, á von á barni. Hún komst í sviðsljósið þegar hún var aðeins níu ára gömul að rappa lagið Super Bass með Nicki Minaj ásamt frænku sinni Rosie McClelland.

María Rut og Ingileif eiga von á barni
„Fjölskyldan stækkar og hjörtun með“ segja hjónin María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir í sameiginlegri Instagram færslu.

Íris Stefanía jarðaði fylgjuna í uppáhaldsfjörunni
Listakonan Íris Stefanía Skúladóttir jarðaði fylgjuna sína í uppáhalds fjörunni sinni. „Ég vildi bara hafa nánasta kjarnann með mér, fólkið sem ég treysti. Ég var að kveðja og vildi fá að gera það án þess að vera meðvituð um fólkið í kringum mig,“ segir hún um athöfnina í samtali við Vísi.

Guðrún Sørtveit eignaðist „draumadreng“
Guðrún Helga Sørtveit, förðunarfræðingur með meiru eignaðist sitt annað barn með kærasta sínum Steinari Erni Gunnarssyni, þann 12. október síðastliðinn. Guðrún deildi mynd af drengnum sem parið eignaðist á Instagram fyrr í dag og segir hann hafa mætt „með hraði.“

Jóhann Páll og Anna Bergljót eiga von á barni
Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður og Anna Bergljót Gunnarsdóttir, nýdoktor í efnafræði við Háskóla Íslands, greindu frá því fyrr í kvöld að þau ættu von á barni.

„Þrjú í apríl“
Ari Ólafsson og kærastan hans Sólveig Lilja Rögnvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Söngvarinn vann hug og hjörtu landsmanna þegar hann sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins og keppti í Eurovision með lagið Our Choice.

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust son
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, er orðinn pabbi. Hann tók á móti sínu fyrsta barni ásamt kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Drengurinn kom í heiminn þann 9. október. Smartland greindi fyrst frá.

Á von á sínu fyrsta barni
Bandaríska leikkonan Kaley Cuoco á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tom Pelphrey.

Hildur og Gísli eiga von á barni
Hildur Sverrisdóttir alþingismaður og sambýlismaður hennar, Gísli Árnason, eiga von á barni.

Stjörnulífið: Laxness, leður og Borat
Úlpurnar eru komnar á kreik, hrekkjavöku skreytingar eru mættar í verslanir og pumpkin spice latte er orðið aðgengilegt á kaffihúsum. Haustið er að ná hápunkti. Myndir frá ferðalögum eru enn áberandi á Instagram og virðast Íslendingar æstir í að ná nokkrum sólargeislum.

„Glæsileg Gunnarsdóttir kom í heiminn með hvelli“
Trendnet bloggarinn og athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir og handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hafa tekið á móti sínu þriðja barni. „Glæsileg Gunnarsdóttir kom í heiminn með hvelli,“ segja hjónin í sameiginlegri Instagram færslu.

Ófrísk í fyrsta sinn 48 ára: „Ekki bara eitt barn, heldur tvö“
Óskarsverðlaunaleikkonan Hilary Swank er ófrísk. Hún segir það hafa verið draum sinn lengi að verða móðir. Það er óhætt að fullyrða að hún eigi eftir að vera með báðar hendur fullar í móðurhlutverkinu, því hún á ekki bara von á einu barni heldur tveimur.

Eignaðist tíunda barnið rúmri viku á eftir því níunda og bíður eftir því ellefta
Sjónvarpsmaðurinn Nick Cannon er nú orðinn tíu barna faðir. Cannon tilkynnti um fæðingu sonarins Rise Messiah á Instagram síðu sinni aðeins nokkrum dögum eftir að hann eignaðist dótturina Onyx Ice.

Karen á von á páskaunga
Landsliðskonan Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi og lykilmaður Fram í handbolta, verður ekki með Íslandsmeisturunum í vetur þar sem hún er ólétt að sínu öðru barni.

Stjörnulífið: Hollywood, húðflúr og glimmerskreyttir golfbílar
Íslenskir listamenn komu fram í Hollywood, Mexíkó, Fífunni í Kópavogi og víðar um Ísland í vikunni sem leið. Óveður helgarinnar hvatti suma í kósí gírinn og aðra til þess að flýja eyjuna.